Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 24
|sunnudagur|7. 1. 2007| mbl.is
M
argir hata hann en
fleiri elska hann.
Hinn 28 ára gamli
Mario Lavandeira
rekur eins manns
slúðurmaskínu á vefsíðunni Perez-
Hilton.com. 3,5 milljónir manna lesa
hana á hverjum degi, jafn margir og
fletta tímaritinu People á viku. Sjálf-
ur segist hann reka hötuðustu vefsíð-
una í Hollywood. Hann er oft fyrstur
með fréttirnar og tekur hvorki sjálf-
an sig né aðra hátíðlega. Hann blogg-
ar gjarnan um Lindsay Lohan, Paris
Hilton, Olsen-tvíburana, misþekkta
tónlistarmenn og kvikmyndastjörnur
og líka sjálfan sig. Perez býr nefni-
lega í Los Angeles og tekur virkan
þátt í gleðisenunni. Hann birtir
myndir á síðunni sinni af sér með
Jessicu Simpson, John Mayer og
Christinu Aguilera, til að nefna ný-
legustu dæmin, en líka átrúnaðargoð-
inu Paris Hilton. Fröken Hilton er í
góðu bókunum en þeir sem Perez
heldur ekki upp á fá að finna fyrir því,
eins og Jennifer Aniston sem hann
kallar iðulega Maniston.
Perez nefnir sjálfan sig „drottn-
ingu allrar fjölmiðlunar“ en kven-
læga skírskotunin kemur til af því að
hann er samkynhneigður og vill láta
vita af því. Hann bloggar reglulega
um aðra samkynhneigða og líka þá
sem hann heldur fram að séu enn í
skápnum. Hægt er að kalla þetta of-
sóknir en einnig leiða líkur að því að
skrif hans hafi leitt til þess að óvenju
margir leikarar og tónlistarmenn
hafa komið út úr skápnum á síðasta
ári. Fremstir í flokki eru leikararnir
Neil Patrick Harris og T.R. Night úr
How I Met Your Mother og Gray’s
Anatomy og fyrrverandi ’N Sync-
meðlimurinn Lance Bass.
En hvernig er dæmigerður dagur í
lífi slúðurdrottningar?
„Enginn dagur er dæmigerður í lífi
mínu og það gerir starfið spennandi.
Þetta er svipað því og að fara á brim-
bretti, nema hvað ég geri það á net-
inu,“ segir hann og heldur áfram með
útskýringum og líkingum við hæfi
Kaliforníubúa. „Margt hefur áhrif,
suma daga er gott veður en aðra
slæmt, stundum eru öldurnar stórar
og stundum litlar. Málið snýst um að
halda þarna út á hverjum degi, stíga
ölduna og hafa gaman af því. Ég hef
meira gaman af því sem ég er að gera
núna en þegar ég byrjaði,“ segir
Perez, sem hefur haldið úti bloggi
sínu í tvö ár. Þegar hann byrjaði hét
vefurinn PageSixSixSix.com en hann
þurfti að breyta nafninu vegna lög-
sóknar frá dagblaðinu New York
Post, sem er með frægan skemmt-
anadálk kenndan við blaðsíðu sex.
Slúðrið bíður ekki eftir neinum.
„Vekjaraklukkan mín er stillt á
klukkan 5.15 á morgnana. Ég er
kominn á fætur 5.30 og venjulega far-
inn út úr húsi 5.40 og byrjaður að
vinna 5.50. Ég þarf að vera á austur-
strandartíma þó að ég sé hérna í Los
Angeles. Ég fer í viðtöl í mörgum
morgunútvarpsþáttum. Það er ein
ástæða þess að ég vakna svo snemma
því margt af þeim er við fólk á austur-
ströndinni.“
Skrifstofan er kaffihús
Perez vinnur ekki á skrifstofu, ekki
heima hjá sér, heldur á kaffihúsinu
The Coffee Bean & Tea Leaf í vest-
urhluta Hollywood. Reyndar mætir
hann svo snemma að ekki er búið að
opna kaffihúsið heldur byrjar hann
daginn á veröndinni með fartölvuna
við hönd. Annað en hve árrisull hann
Hataðasti maðurinn í Hollywood
Ekkert er heilagt og
allt látið flakka á slúð-
urbloggsíðunum. Inga
Rún Sigurðardóttir
ræddi við drottningu
slúðurfjölmiðlanna,
manninn sem kallar sig
Perez Hilton.
Reuters
Góð saman Slúðurbloggarinn Perez Hilton afhendir átrúnaðargoðinu Paris Hilton verðlaun á Stór ’06-hátíð tón-
listarsjónvarpsstöðvarinnar VH1 í Kaliforníu í desember en árið var gott hjá Perez líkt og hjá hótelerfingjanum.
Í HNOTSKURN
» Perez Hilton heitir réttunafni Mario Armando
Lavandeira Jr. og fæddist 23.
mars 1978.
» Hann er af kúbönskum ætt-um, ólst upp í Miami en býr
nú í Los Angeles.
» 3,5 milljónir manna lesabloggið hans á hverjum degi.
Perez Hilton hefur eins ogaðrir slúðurbloggarar skrif-að mikið um Britney
Spears. Hún er tvímælalaust frétt
ársins sem var að líða, samkvæmt
honum.
„Þetta er ekki einu sinni ein frétt
heldur margar. Britney byrjaði ár-
ið á því að vera gagnrýnd mjög
fyrir foreldrahæfileika sína eða
nánar tiltekið, skort á þeim. Það
voru ýmsar uppákomur með Sean
Preston. Hún keyrði með hann í
fanginu, hún missti barnið næstum
á götu í New York á meðan blaða-
ljósmyndarar fylgdust með. Loks
þurfti hann að fara á neyðarmót-
tökuna því hann datt úr barna-
stólnum og barnaverndarnefnd
komst í málið. Til viðbótar er allt
dramað sem átti sér stað í sam-
bandi hennar og Kevins Federline.
Í vor var mikið talað um að þau
væru að hætta saman og hún fór til
Hawaii, án hans. Svo var það allt
dramað í kringum skilnaðinn.
Einnig fór hún í hræðilegt viðtal,
sem Matt Lauer tók við hana fyrir
NBC. Og til viðbótar varð hún ólétt
aftur. Það hafa ekki birst neinar
myndir af því barni enn!
Loks lauk hún árinu á því að
djamma út í eitt og láta endurtekið
mynda sig án nærbuxna. Þetta er
alveg eins og geggjuð sápuópera
sem verður bara stöðugt bilaðri.“
Perez um
Britney
Reuters
Hörmung Viðtal Britneyjar við Matt Lauer, fréttamann NBC, í júní á síð-
asta ári gerði ekki mikið fyrir orðspor og ímynd söngkonunnar.
Betrumbætt Britney á
AMA-verðlaunahátíð-
inni í nóvember en sú
ímynd varði ekki lengi.
daglegtlíf
Árið 2006 sagði Ómar Ragn-
arsson virkjanasinnum stríð á
hendur og var valinn maður
ársins af Rás 2. » 28
náttúruunnandi
Konur tvíburabræðranna Gunn-
ars og Ásmundar Helgasonar
segir þá tala saman eins og
gamlar kellingar. » 30
tengsl
Listhlaup á skautum er
skemmtileg íþrótt, sem eflir
samhæfingu, jafnvægi og ekki
síst sálina. » 32
skautar
Rannveig Ívarsdóttir dag-
mamma er farin að passa börn
barnanna, sem hún passaði
fyrst. » 34
daglegt líf
Uppgröfturinn á Skriðuklaustri
hefur veitt ýmsar upplýsingar
um klausturlifnað á Íslandi til
forna. » 26
fornminjar