Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 52
52 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Stefanía Arn-fríður Heiðar
Sigurjónsdóttir
fæddist í Bruna-
hvammi á Vopna-
fjarðarheiði 21. júní
árið 1941. Hún lést
af slysförum hinn
26. október síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Matt-
hildur Guðjóns-
dóttir, f. 22.10.
1918, d. 11.5. 1995,
og Sigurjón Stef-
ánsson, f. 3.6. 1911,
d. 15.11. 1974. Systkini Stefaníu
eru Anton Heiðar, f. 14.12. 1938,
Ingibjörn Heiðar, f. 30.7. 1942,
Stefanía Ásta Björg Heiðar, f.
21.5. 1946, Guðni Stígur Heiðar, f.
8.12. 1947, Einar Þór Heiðar, f.
16.12. 1950, Álfheiður Heiðar, f.
24.2. 1952, Steinunn Árný Heiðar,
f. 19.11. 1953, og
Arnþór Ingi Heiðar,
f. 18.1. 1960.
Stefanía lætur
eftir sig fimm börn,
dóttir hennar er 1)
Kleopatra Krist-
björg Stefánsdóttir,
f. 24.10. 1957, búsett
í Reykjavík. Stef-
anía giftist Jósep H.
Þorgeirssyni. Börn
þeirra eru 2) Jóna
Hildur, f. 17.1. 1962,
búsett í Vestmann-
eyjum, 3) Þorgerð-
ur, f. 6.12. 1962, búsett á Vopna-
firði, 4) Gyða Álfheiður, f. 8.1.
1964, búsett á Vopnafirði og 5)
Jósep Hjálmar, f. 5.12. 1965, bú-
settur á Vopnafirði.
Útför Stefaníu var gerð frá
Hofskirkju í Vopnafirði 3. nóv-
ember.
Elsku mamma mín, fyrirgefðu
mér að ég skildi þig ekki alltaf og
vanrækti þig. Þrátt fyrir það elsk-
aði ég þig alltaf og syrgi þig nú
mjög sárt.
Jólin voru mjög sársaukafull,
sorgleg og erfið án þín því þú varst
mikið jólabarn og gafst okkur börn-
unum þínum og barnabörnum alltaf
yndisleg jól. Það er erfitt að sleppa
þér en ég verð að gera það svo við
báðar getum haldið áfram okkar för
þótt leiðir hafi skilið.
Guð varðveiti þig hjartkæra
mamma mín.
Þín dóttir
Kleopatra Kristbjörg.
Ástkær móðir, amma og
langamma Stefanía Arnfríður Heið-
ar Sigurjónsdóttir fæddist í Bruna-
hvammi á Vopnafjarðarheiði en
flutti þaðan ásamt foreldrum sínum
og eldri bróður í Skála á Vopnafirði
þá sem ungbarn. Þar ólst hún upp
hjá foreldrum sínum, þeim Matt-
hildi Guðjónsdóttur og Sigurjóni
Stefánssyni, ásamt átta systkinum.
Hún fæddist hinn 21. júní árið 1941.
Er hún var aðeins 16 ára að aldri
eignaðist hún sitt fyrsta barn, Kleo-
pötru Kristbjörgu Stefánsdóttur.
Síðar eignaðist hún fimm börn með
eiginmanni sínum Jósep Þorgeirs-
syni, þau Jónu Hildi, Þorgerði,
Gyðu Álfheiði og Jósep Hjálmar, en
yngsta barnið, sem var drengur, dó
við fæðingu. Stefanía og Jósep
bjuggu á Fremri-Nýpi í Vopnafirði
ásamt börnum sínum og ráku þar
búskap með miklum myndarbrag.
Stefanía var mikill dýravinur, svo
mjög að umtalað var. Hún var ein-
staklega hjartahlý og góð mann-
eskja og hjálpaði þeim sem minna
máttu sín. Börnum sínum og barna-
börnum var hún góð, var alltaf til
staðar fyrir þau og reyndist þeim
vel. Í kringum 1982 skildu þau Stef-
anía og Jósep og flutti hún í Vatns-
dalsgerði í Vopnafirði og hóf þar
búskap með Sigurði Ólafssyni. Þar
var hún með ýmiss konar dýr sér til
gamans, þar sem hún elskaði dýr
og leið aldrei eins vel og innan um
þau. Hún átti geitur, kindur, endur,
hænur, gæsir, ketti og hunda auk
þess sem Sigurður var með mjólk-
urbúskap. Stefanía rak í Vatnsdals-
gerði gistiheimilið Skjól og lagði sig
alla fram við það og dýrin sín. Gest-
ir hennar höfðu einstaklega gaman
af því að sjá halarófu af geitum og
öndum vappa á eftir henni á bæj-
arhlaðinu.
Hún hafði einstakt lag á dýr-
unum sínum og kenndi barnabörn-
unum sínum það sama. Hún unni
barnabörnum sínum heitt og var
öllum börnum góð enda mikill
barnavinur og börn löðuðust mjög
að henni. Fólk sem átti erfitt og
bágt leitaði mikið til hennar því hjá
henni var alltaf skjól að finna og
huggun að fá. Fólk vissi hvert það
átti að leita, Stefanía var vinur í
raun. Hún hjálpaði fólki oft með
peninga og segja má að hún hafi oft
gefið sína síðustu krónu.
Hún gaf og gaf og fannst sælla
að gefa en þiggja. Hún var sveita-
barn fram í fingurgóma, unni sveit-
inni og vildi hvergi annars staðar
vera. Hún undi sér vel í æðarvarp-
inu sínu við að tína egg og dún og
knúsa litla sæta unga.
Barnabörnin bjuggu flest hjá
henni í Vatnsdalsgerði í einhvern
tíma á ævi sinni. Stefanía hafði
lengi átt við alvarleg veikindi að
stríða en þrátt fyrir að hafa verið
mikill sjúklingur lét hún það ekki
stoppa sig í að vinna verkin.
Hún var einstaklega orkumikil og
dugleg kona. Alltaf vildi hún öðrum
vel og gat ekki þolað ef einhver átti
erfitt og gerði hvað hún gat til að
hjálpa öðrum. Sjálfselsk var hún
ekki. Alltaf var hún tilbúin að rétta
hjálparhönd gamalmennum og öll-
um þeim sem minna máttu sín. Því
miður mátti hún sjálf þola hræði-
lega mikið mótlæti og erfiðleika um
ævina. Hún var með eindæmum
hreinskilin og oft einum of sem þó
er mikill kostur. Hún var mjög lífs-
reynd kona, með háa einkunn í
skóla lífsins og sá heiminn eins og
hann er í réttu ljósi og mannfólkið,
þess vegna var hún ávallt í vörn
gagnvart fólki því hún var svo
brennd á sálinni, vissi að fólk er
svikult og einnig að svo bregðast
krosstré sem önnur tré. Vegna þess
var hún orðin mikið ein á báti undir
lokin. Margir hennar nánustu voru
líka brottfluttir frá Vopnafirði. Hún
var mjög dulræn og sá oft fyrir
óorðna hluti og ekkert þýddi fyrir
börnin hennar að leyna hana neinu
né barnabörnin.
Hún bara vissi það hvað var að
gerast þótt enginn segði henni
neitt.
Hún var mjög söngelsk og börnin
hennar ólust upp við að heyra hana
syngja lagið Söngur villiandarinnar
og var það lag sungið henni til heið-
urs við jarðarför hennar og kallaði
það fram mikinn grát, mikla sorg
og söknuð hjá börnum hennar sem
grétu mest þegar þetta lag var
sungið. Hún hélt mest upp á Elvis
Presley og Vilhjálm Vilhjálmsson af
öllum söngvurum og voru spiluð lög
við jarðarför hennar sem þeir höfðu
sungið og var það bæði yndislegt og
sorglegt í senn.
Hún lætur eftir sig fimm börn,
þau Kleopötru Kristbjörgu, Jónu,
Þorgerði, Gyðu og Jósep, sex
barnabörn, þau Henrý Trúmann,
Máneyju Mjöll, Lindu Rós, Aron
Óttar, Randver Pálma og Lovísu
Líf, og þrjú barnabarnabörn, Gabr-
iel Martinez, Bjartmar Loga og
litla óskírða stúlku sem hún fékk
aðeins einu sinni að sjá daginn áður
en hún dó, því þá var litla stúlkan
nýfædd og hafði Stefanía beðið
spennt eftir fæðingu hennar og
hlakkað mikið til að sjá hana.
Ævi Stefaníu endaði hinn 26. okt.
síðastliðinn er bíll hennar fór fram
af klettum og út í sjó fyrir neðan
heilsugæslustöðina á Vopnafirði.
Vegna sjúkdóms síns missti hún oft
meðvitund og hafði dvalið um tíma
á legu- deildinni Sundabúð í Vopna-
firði þar sem vel var um hana hugs-
að og á heilsugæslustöðina þurfti
hún að fara reglulega, en í þetta
sinn komst hún aldrei þangað því
hún missti meðvitund undir stýri á
bíl sínum.
Elsku mamma mín, amma og
langamma. Við elskum þig öll og
söknum þín svo sárt. Við vonum að
þú sért hamingjusöm þar sem þú
ert núna og að þér líði vel því þú
átt það svo sannarlega skilið. Þinni
þrautagöngu er nú lokið og það er
okkar eina huggun harmi gegn.
Guð geymi þig og varðveiti þína
góðu, fallegu sál, þín
Kleopatra Kristbjörg,
Henrý Trúmann, Máney
Mjöll, Steingrímur Páll,
Bjartmar Logi og Ísey.
Elsku hjartans amma mín, þú
reyndist mér og börnunum mínum
svo ósköp vel, þrátt fyrir veikindi
þín og erfiðleika þá virtumst við
vera þér efst í huga, þú varst mér
svo dýrmæt. Ég sé svo mikið eftir
því að hafa aldrei gert þér nógu vel
grein fyrir því hve mikið ég elskaði
þig. Og mér þykir það svo leitt að
þú hittir nýfædda dóttur mína að-
eins einu sinni, daginn áður en þú
fórst burt frá okkur öllum. Þú sem
varst svo óskaplega spennt yfir
þessu nýja barnabarnabarni þínu.
Og ég veit elsku amma mín að þú
varst ekki tilbúin að fara alveg
strax, ég veit að þú ætlaðir þér
fyrst að hjálpa okkur. Ég er þér
svo innilega þakklát fyrir það. Ég
sakna þín endalaust mikið elsku
amma og mun halda ástkærri minn-
ingu þinni lifandi um ókomin ár.
Elsku amma mín ég ætla að skíra
litlu dótturdótturdóttur þína í Hofs-
kirkju þar sem jarðarför þín fór
fram og fara með hana að leiðinu
þínu í Hofskirkjugarði ásamt litla
dótturdóttursyni þínum, Bjartmari
Loga. Þú sagðir mér að skíra hana
stuttu fallegu nafni og hún á að
heita Ísey.
Ástar- og saknaðarkveðja, þín
dótturdóttir
Máney Mjöll.
Við kveðjum þig nú kæra Stef-
anía. Þótt við höfum aldrei hist í
þessu lífi þá finnst okkur við samt
þekkja þig í gegnum okkar hjart-
kæru Kleopötru dóttur þína sem
talaði svo oft um þig, bæði um erf-
iðleika þína, þjáningar og veikindi
og endalausar frásagnir af kær-
leiksverkum þínum, hvernig þú með
opinn faðminn tókst á móti fólki í
nauð, gafst því húsaskjól, vernd og
huggun og jafnvel tókst bankalán
öðrum til hjálpar. Sjaldgæf er slík
óeigingirni sem þín og fórnfýsi
Stefanía. Þakka þér Stefanía fyrir
að hafa eignast svona yndislega
kærleiksríka dóttur, hana Kleo-
pötru Kristbjörgu, sem hefur
reynst okkur systrum sem systir í
mörg ár. Guð geymi þig og hvíl í
friði.
Nancy og Helen Gunnarsdætur.
Stefanía Arnfríður
Heiðar Sigurjónsdóttir ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
AÐALSTEINN SIGURÐSSON
fiskifræðingur,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju
mánudaginn 8. janúar kl. 11:00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Rótarý-
sjóðinn, Rótarýumdæminu á Íslandi,
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík.
Ástrún Valdimarsdóttir,
Guðný Aðalsteinsdóttir,
Magnús Þór Aðalsteinsson, Steinunn Brynjarsdóttir,
Bryndís Björnsdóttir, Magni S. Sigmarsson,
Ásdís Björnsdóttir, Guðni Már Harðarson,
Brynjar Steinn Magnússon
og langafabörn.
✝
Okkar ástkæri,
INDRIÐI GUÐMUNDSSON
klæðskeri,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtu-
daginn 11. janúar kl. 11:00.
Bryndís Marteinsdóttir,
Íris Indriðadóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir, Per Olsen,
Sigurður Guðmundsson, Sigríður Sverrisdóttir,
Freygerður Guðmundsdóttir, Vífill Sigurðsson,
Sif Guðmundsdóttir, Steen Norberg Larsen,
Guðný Nanna Guðmundsdóttir,
Haraldur G. Magnússon, Dagmar Róbertsdóttir.
✝
Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn,
SARA LÍF SIGURÐARDÓTTIR,
lést á Barnaspítala Hringsins aðfaranótt fimmtu-
dagsins 4. janúar.
Útför fer fram frá kapellu Hafnarfjarðarkirkjugarðs
þriðjudaginn 9. janúar kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Barna-
spítalasjóð Hringsins, sími 543 3724.
Sigurður Villi Stefánsson,
Sigurbjörg G. Hannesdóttir,
Sóley Líf Sigurðardóttir,
Stefán O. Sigurðsson,
Jónína Friðriksdóttir,
Hannes Freyr Guðmundsson,
Hanna Sigríður Jósafatsdóttir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
UNNUR FRIÐRIKSDÓTTIR,
Eyrarvegi 19,
Akureyri,
verður jarðsungin fimmtudaginn 11. janúar nk.
kl. 13:30.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á
líknarfélög á Akureyri.
Þórður Á. Björgúlfsson,
Björg Þórðardóttir, Björgúlfur Þórðarson,
Friðrik Þórðarson, Kristín Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Kæru vinir!
Við viljum þakka öllum sem með bænum, blómum,
gjöfum, fallegum orðum, faðmlögum, kertalogum,
samúðarkveðjum, ýmiskonar hjálp eða á annan
hátt hafa sýnt minningu Ágústs sonar okkar
virðingu, þakkir frá okkar dýpstu hjartarótum.
Þið eruð okkar hetjur. Guð blessi ykkur.
Aurora G. Friðriksdóttir, Bjarni Sighvatsson.
✝
Kærar kveðjur og þakklæti til allra sem sýndu
okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför
bróður okkar,
GÍSLA ÁGÚSTSSONAR
frá Brúnastöðum,
Dælengi 20,
Selfossi.
Systkini hins látna.