Morgunblaðið - 07.01.2007, Side 54
54 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
U
mrætt ljóð er úr
bókinni Hver
morgunn nýr, sem
út kom árið 1994.
Og þar segir:
Mér er minnisstætt,
er ég í bernsku
sá málverk verða til.
Er ég kom út
einn morguninn,
sat maður á litlum stól
úti á gangstéttinni.
Fyrir framan hann
var hvítt léreft,
strengt á grind.
Hann dró
nokkur svört strik
hingað og þangað
á léreftið.
Forvitni mín var vakin.
Hvað skyldi verða
úr þessu hrafnasparki?
Ég fylgdist með
listmálaranum.
Smám saman
mynduðu strikin
eina heild,
óskýra í fyrstu,
en þeim fjölgaði
og litum var bætt inn í.
Myndin tók að skýrast
og allt í einu
sá ég Esjuna birtast
á hvíta léreftinu!
Ég man
hve ég undraðist.
Hvernig gátu
strikin og litirnir
sýnt mér Esjuna?
Listmálaranum
hafði tekizt
ætlunarverk sitt!
Heilög ritning
dregur upp
mynd af Jesú,
setta saman
úr ótal smádráttum,
er renna saman
í eina heildarmynd,
er vér höfum
tileinkað oss
boðskap hennar.
Engan drátt má vanta,
þá verður myndin óskýr.
Guðspjallið sýnir
einn fegursta dráttinn
í mynd frelsarans.
Ég er
góði hirðirinn!
Ég þekki mína,
og mínir
þekkja mig.
Leiguliðinn
sér úlfinn koma,
yfirgefur sauðina
og flýr.
Ég legg líf mitt
í sölurnar
fyrir sauðina.
Heilög ritning ein
geymir mynd
góða hirðisins,
er sýnir kærleika
frelsarans til vor.
Því er hún
svo mikils virði.
En vér þurfum
að ljúka henni upp,
lesa með athygli
og tileinka oss,
svo vér sjáum
mynd hans.
Hefur Heilög ritning
lokizt upp
fyrir oss?
Þekkjum vér
góða hirðinn?
Heyrum vér raust hans?
Fylgjum vér honum?
Góði hirðirinn
vill gæta vor
fyrir öllum hættum
og leiða oss
heim til Guðs.
Í fylgd hans
er oss óhætt,
hvað sem mætir.
Fylgjum
góða hirðinum!
Hvílum örugg
í faðmi hans!
Málverkið
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
„Ég er góði hirðirinn og þekki mína, og mínir
þekkja mig,“ segir Jesús í einu guðspjallanna. Sig-
urður Ægisson birtir á þessum fyrsta sunnudegi
nýja ársins hugleiðingu sr. Jónasar Gíslasonar,
fyrrverandi vígslubiskups, um þau orð meistarans.
FRÉTTIR
HAUSTÖNN Iðnskólans í Reykjavík lauk með út-
skriftarhátíð í Hallgrímskirkju 20. desember sl. Liðlega
2.200 nemendur stunduðu nám við skólann á haust-
önninni, í dagskóla, kvöldskóla og í fjarnámi. 132 nem-
endur voru útskrifaðir af sjö sviðum skólans.
Í fréttatilkynningu segir:
„Í ræðu sinni við útskriftina ræddi Baldur Gíslason
skólameistari IR m.a. um þær miklu breytingar sem
gengið hafa yfir heiminn undanfarin ár og þann hraða
sem krafist er, meiri hraða í dag en í gær. „Það er ekki
ólíklegt að í þessum hraða láti ýmislegt undan og í ein-
hverjum tilfellum verði gæðum ábótavant,“ sagði Bald-
ur. Hann benti á sem dæmi að í byggingagreinum væri
þróunin orðin slík að við hótelbyggingu í Reykjavík
væru baðherbergi flutt inn í heilu lagi og þeim smellt
tilbúnum inn í bygginguna. „Eitt af því sem kannski er
ekki jafnhátt skrifað nú og það var á árum áður er
handverkið,“ sagði hann. „Gott handverk hefur farið
halloka á síðustu árum vegna þess að sagt er að það
taki of langan tíma. Tíminn er svo dýr að menn hafa
ekki efni á handverki. En bæði tíminn og peningar eru
afstæðar stærðir.“
Breytingar í prentiðnaði
Baldur benti einnig á þróun bókagerðagreina sem
dæmi um aðlögun skólans að breyttri tækni. Þar hefðu
margar iðngreinar verið kenndar fyrir nokkrum árum
en vegna tækninýjunga væru þær nú sameinaðar í
einni, grafískri miðlun.
„Svona er umhverfið síbreytilegt. Bæði þið, nem-
endur góðir og skólinn, verða að vera tilbúin að takast á
við svona breytingar. Öll menntun er tengd þeim tíma
sem hún er numin á og hún þarf stöðugt að uppfærast.“
Skólameistari benti á að í breytingum fælust tæki-
færi til að gera eitthvað nýtt; tækifæri til endurmennt-
unar og tækifæri fyrir skóla til að þróast og breytast.
Hann benti á skýrslu Starfsnámsnefndar um breyttan
framhaldsskóla, þar sem væri að finna margar fram-
sæknar hugmyndir, t.d. um jafngildingu náms. Einnig
hugmynd um að komið yrði á fót fagháskóla á Íslandi.
Möguleikar væru ekki miklir á framhaldsnámi sem
beintengt væri starfsnámi. „Ég fagna mjög þessum
hugmyndum um fagháskóla,“ sagði Baldur, „og ég vil
sjá Iðnskólann í Reykjavík verða þar fremstan í flokki.
Við munum gera þær breytingar á skólanum sem þarf
til að taka upp nám á fagháskólastigi án þess að rýra á
nokkurn hátt það nám sem við erum nú með, þvert á
móti tel ég að það muni eflast. Ég held að við sambýli
framhaldsskólans og fagháskóla muni þeir styrkja hvor
annan.“
Fjölmargir verðlaunahafar
Tuttugu og tveir nemendur hlutu verðlaun ýmissa
fyrirtækja og félagasamtaka fyrir námsárangur á ein-
stökum sviðum og í einstökum greinum. Tveir af nem-
endum Upplýsinga- og margmiðlunarsviðs hlutu verð-
laun skólans fyrir bestan og næstbestan námsárangur,
þær Lára Fanney Gylfadóttir fyrir bestan og Arnfríður
Ragna Sigurjónsdóttir fyrir næstbestan námsárangur.“
Iðnskólinn Verðlaunahafarnir með verðlaunin í fanginu.
Iðnskólinn í
Reykjavík verði
fagháskóli
Námsárangur Lára Fanney Gylfadóttir tekur við verð-
launum fyrir bestan námsárangur úr hendi Baldurs
Gíslasonar skólameistara. Arnfríður Ragna Sigurjóns-
dóttir sem fékk verðlaun fyrir næstbestan náms-
árangur er á milli þeirra.
ÚTSKRIFT á haustönn í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti fór fram í
Fella- og Hólakirkju 20. desember
síðastliðinn. Í yfirlitsræðu Kristínar
Arnalds skólameistara kom fram að
þetta var í sextugasta og sjötta sinn
sem nemendur voru útskrifaðir frá
skólanum og að þessu sinni voru 148
lokaprófsskírteini afhent. Bestum
árangri á stúdentsprófi nú náði
Agnes Guðríður Agnarsdóttir.
Aldrei hafa fleiri sjúkraliðar verið
útskrifaðir frá skólanum en á þessari
önn, eða 39. Í frétt frá skólanum seg-
ir að það sé ánægjulegt í ljósi um-
ræðu um aukna þörf fyrir fólk í stétt-
inni. Í haust voru tuttugu ár liðin frá
því að farið var að kenna snyrtifræði
við FB og var þeim tímamótum fagn-
að með vinum og velunnurum.
Skólameistari ræddi fjölbreyti-
leika FB og benti m.a. á að algengt
væri að nemendur með stúdentspróf
eða burtfararpróf, frá hinum ýmsu
skólum, kæmu í FB til að bæta við
sig áföngum eða jafnvel heilu braut-
unum. Þarna sé dæmi um stöðuga
þróun og endurmenntun. Þá ræddi
hún ábyrgð og skyldur framhalds-
skólanna gagnvart nýbúum og sagði
að FB myndi sinna þeim í auknum
mæli á næstu misserum.
Ákveðið hefur verið að byggja við
skólann. Framkvæmdir hefjast von-
andi á næsta ári, segir í tilkynningu
frá FB. Skólanum bárust að venju
góðar gjafir frá ýmsum hollvinum.
Þar má nefna Samtök iðnaðarins,
Soroptomistaklúbb Hóla og Fella,
Gideonfélagið, Bókmenntafélagið
Drápuhlíð og Reykjavíkurdeild
sjúkraliðafélagsins.
148 lokaprófsskírteini afhent í FB