Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 57
|sunnudagur|7. 1. 2007| mbl.is
ÚTSALA
Flísabúðin hf • Stórhöfða 21 • 110 Reykjavík • Sími 545 5500 • www.flis.is
staðurstund
Fjöldi listamanna kemur fram á
tónleikum í Hafnarhúsinu til að
reyna að bjarga Tónlistarþróun-
armiðstöðinni. » 60
tónlist
Bítlarnir eru fyrsta hljóm-
sveitin sem prýðir frímerki í
Bretlandi í félagsskap Elísabet-
ar Englandsdrottningar. » 58
tónlist
Bragi Ásgeirsson fjallar um
listakonuna Tommu Abts og
Turner-verðlaunin í Sjónspegli
dagsins. » 58
myndlist
Leikkonan Jennifer Aniston er
sögð vera í ættleiðingarhugleið-
ingum eins og svo margir aðrir í
Hollywood. » 59
fólk
Courtney Love strengdi hvorki
meira né minna en 53 áramóta-
heit og ætlar meðal annars að
læra að keyra bíl á nýju ári. » 69
fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÓHÆTT er að slá því föstu að út-
varpsþátturinn Tvíhöfði, í umsjón
þeirra Jóns Gnarrs og Sigurjóns
Kjartanssonar, hafi verið einn sá
allra vinsælasti í íslenskri útvarps-
sögu. Á stundum var hann alræmd-
ur en þeir félagar víluðu hvergi fyrir
sér að ganga fram af fólki með ný-
stárlegri dagskrárgerð; viðteknum
hugmyndum þar að lútandi var
reglulega storkað um leið og nýjum
og áður óþekktum hæðum var náð í
grín- og gamanmálum. Tvíhöfðinn
átti sér marga aðdáendur og fylg-
ismenn sem fylgdu honum í gegnum
þykkt og þunnt, m.a. er umsjón-
armennirnir voru kvaddir fyrir
hæstarétt fyrir eitt af tiltækjum sín-
um.
Það er því heiður að geta sagt frá
því að Tvíhöfði snýr aftur á öldur
ljósvakans nú á sunnudaginn kl. 14.
Verður hann vikulega í loftinu,
klukkustund í senn.
Eitt höfuð
Jón Gnarr segist hafa þráð þessa
stund lengi vel og hann hafi saknað
Tvíhöfða.
„Ég hef alltaf saknað Tvíhöfða,“
segir Jón. „Á sínum tíma var fót-
unum óforvarandis kippt undan okk-
ur. Þá var Tvíhöfðinn í miklu stuði,
hafði aldrei verið betri. Við hættum
er leikar stóðu sem hæst en svoleiðis
er þetta stundum í lífinu.“ Jón segir
að þeir félagar hafi úr miklu að moða
hvað þættina varðar og Tvíhöfðinn
verði vel pakkaður í viku hverri.
„Það verður engin tónlist en við
munum spjalla saman um hvað okk-
ur þykir áhugaverðast hverju sinni.
Smásálir kíkja þá í heimsókn og við
verðum ósparir á símtöl. Gamlir
gestir, eins og Grill-Guðjón og Salsa-
Svenni, reka þá mögulega inn nefið.“
Jón útilokar þá ekki að vináttu-
sambandi verði komið á við fólk í
Nígeríu, hann hafi verið að skrifa
ljóð og hugleiðingar og sent þangað
út, sem íslenski bóndinn Kim Jong
Il.
Í gegnum árin flutti Tvíhöfði mik-
ið af mergjuðum leiknum sam- og
símtölum, algerlega drepfyndnum.
Aðspurður hvort þessu hafi verið
haldið til haga segir hann að mögu-
lega eigi Sigurjón eitthvað af þessu.
„Ég týni öllu. Ég fór út í búð áðan
og keypti mér grænt te. Og gleymdi
því síðan í búðinni. Ég er líka búinn
að týna masternum af Ég var einu
sinni nörd.“.
Annað höfuð
„Mér líst auðvitað bölvanlega á
þetta,“ segir Sigurjón Kjartansson
og glottir við tönn. „Nei, nei, þetta er
að sjálfsögðu hið besta mál.
Hann Jón rak þetta áfram og á
endanum komumst við að því að
heillavænlegast væri að ganga í
samstarf við ríkið.“ Sigurjón rifjar
upp að þeir félagar hafi byrjað sem
Tvíhöfði á Aðalstöðinni sumarið ’96
og mikið vatn hafi runnið til sjávar
síðan.
„Mér líður hálfpartinn eins og
Ragga Bjarna þegar ég rifja þetta
upp,“ segir hann og hlær. „Þetta er
orðin löng og örlagaþrungin saga,
þyrfti eiginlega að rata inn á bók.
Við lönduðum þúsund þáttum og
þær eru orðnar ansi margar, út-
varpsstöðvarnar sem hafa notið
krafta Tvíhöfða og við stofnuðum
eina sjálfir meira að segja. Svo eru
það málaferlin maður, þar sem við
gerðum eina heiðarlega tilraun til að
múta héraðsdómi með pitsum.“
Sigurjóni líst vel á klukkutíma
þátt, einu sinni í viku, en þegar best
lét var Tvíhöfði keyrður í fjóra tíma,
fimm daga vikunnar.
„Nú náum við að kreista kjarnann
úr snilldinni, þetta verður til muna
þéttari pakki. Engin tónlist og frítt
spil til að gera það sem við erum
bestir í. Hæfileikarnir nýtast til
fullnustu.“
Margir eru á því að Tvíhöfði hafi
brotið blað í íslenskri útvarpssögu,
hafi verið tímamótaþáttur.
„Það er vafalaust alveg hárrétt,“
segir Sigurjón þegar sú staðhæfing
er lögð fyrir hann. „Við vorum ekki
að fara í þetta upphaflega fyrir neitt
minna. Við vissum að við hefðum
sérstaka sýn á grínið og náðum að
skapa okkur sérstakan heim. Við
náðum einhverju fram sem aðrir
hafa ekki náð að fanga. Þessi heimur
er til, og við kunnum enn á hann,
hvað sem öðrum dægurflugum líð-
ur.“
Kjarninn úr snilldinni
Útvarpsþátturinn Tvíhöfði gengur
í endurnýjun lífdaga á Rás 2
Tvíhöfði Heimsóknir smásála og vináttusambönd við fleiri Nígeríu-búa eru meðal viðfangsefna Tvíhöfða.
Morgunblaðið/Sverrir