Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 53. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is UPPREISN ÆRU ÍSLENSKA GEITIN ER MANNBLENDIN OG KANN ÞVÍ VEL AÐ VERA KNÚSUÐ >> 28 ÚR HARÐKJARNA Í STRENGI OG PÍANÓ MINÍMALISMI ÓLAFS ARNALDS >> 52 FRÉTTASKÝRING Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is GAMLIR Hafnarfjarðarkratar kunna fyrrum formanni sínum Jóni Baldvin Hanni- balssyni litlar þakkir fyrir þá einörðu af- stöðu sem hann hefur tekið gegn stækkun álversins í Straums- vík. Samfylkingin í Hafnarfirði, sem stjórnar Hafnarfjarð- arbæ, er auðvitað með marga fyrrum al- þýðuflokksmenn inn- anborðs. Þeir telja sumir að fyrrverandi formaður Alþýðu- flokksins hafi gerst of sókndjarfur, ekki hvað síst á baráttufundi andstæðinga stækk- unar álversins innan Samfylkingarinnar í Bæjarbíói í fyrrakvöld. Jón Baldvin sagði þar m.a. að engin hætta væri á að Alcan lokaði í Straumsvík fyrr en í fyrsta lagi árið 2024 þegar raforkusamning- urinn rennur út. Bundið af raforkusamningi Almennt virðast menn vera sammála þessum orðum Jóns Baldvins og benda á að það væri óðs manns æði fyrir Alcan að rjúka upp til handa og fóta og loka sjoppunni því að fyrirtækið væri bundið af raforkusamn- ingnum, þannig að það þyrfti að greiða fyrir um 85% orkunnar sem um hefur verið samið til 2024, hvort sem raforkan væri nýtt eða ekki. Það eru því ekki áhyggjurnar af því að Alcan sé á útleið í bráð sem þvælast fyrir Lúðvík Geirssyni, bæjarstjóra Hafnfirðinga og leiðtoga Samfylkingarinnar þar í bæ og félögum hans, heldur hitt, að Hafnarfjarð- arbær verði af tækifærinu á að þrefalda tekjur sínar af álverinu í Straumsvík. Tekjur bæjarins af álverinu nú eru um 490 milljónir króna á ári en samkvæmt því sem Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur sagt, næmu þær um 1,4 milljörðum króna á ári eftir stækkun. Hannes sagði einnig að til yrðu um tólf hundruð ný störf, sem er auð- vitað mikið hagsmunamál fyrir byggðarlag- ið. Rætt hefur verið um að Norsk Hydro bíði átekta eftir niðurstöðu í kosningunum 31. mars nk. í Hafnarfirði um deiliskipulagið. Þar sé m.a. rætt um þann möguleika að kaupa álverið í Straumsvík, ef Alcan vill út. Norsk Hydro hafi lært sína lexíu þegar eig- endur þess ætluðu að fresta byggingu álvers á Reyðarfirði, en misstu tækifærið yfir til Al- coa í staðinn. Norsk Hydro hafi enn áhuga á að framleiða ál á Íslandi og hafi m.a. rennt hýru auga til Norðuráls á Grundartanga. Gallinn á gjöf Njarðar er bara sá, samkvæmt mínum upplýsingum, að Norðurál er ekki til sölu, hvorki til Norsk Hydro né annarra. El- kem og fleiri fyrirtæki hafi reynt, án árang- urs. Norðurál verður stærsta álverið í eigu Century í árslok og eigendur Century hafa markað þá stefnu að vaxa verulega í frum- framleiðslu á áli og í súrálsframleiðslu. Sala er því ekki á dagskrá hjá þeim. Sundur- lyndi Sam- fylkingar Hvað gerir Norsk Hydro? Kakó fyrir fullorðna JÓNÍNA Bjartmarz umhverfisráð- herra sagði á Alþingi í gær að hún gæti ekki séð að samfélagsleg nauð- syn eða almannahagsmunir kölluðu á eignarnám vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár. Þetta kom fram í ut- andagskrárumræðum um virkjan- irnar. Jónína sagði að auk þess gerði skipulagsvald sveitarstjórna ráð fyrir vilyrði þeirra fyrir fram- kvæmdinni. Telja yrði ólíklegt að sveitarstjórnir færu í bága við vilja bænda sem ættu land að Þjórsá. Einar Oddur Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, lýsti einn- ig þeirri skoðun að eignarnám gæti ekki átt við í þessu sambandi. „Auð- vitað liggur það fyrir að það er frá- leitt að nokkurt stjórnvald, hvað þá heldur ríkisfyrirtæki eins og Landsvirkjun, geti beitt því. Það kalla engin almannaheill á það þótt einhvern tímann hafi menn talið það í upphafi rafvæðingar á Ís- landi,“ sagði Einar Oddur. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýs- ingafulltrúa Landsvirkjunar, eru engin teikn á lofti um að til eign- arnáms komi vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár. Hann segir allar lík- ur á að niðurstaða fáist með samn- ingum miðað við farsæl samskipti við landeigendur til þessa. Form- legar samningaviðræður við land- eigendur og ábúendur vegna fyrir- hugaðra virkjana hófust í janúar síðstliðnum en óformlegir fundir við landeigendur stóðu allt síðasta ár. | 10 Jónína og Einar segja eign- arnám ekki koma til greina Landsvirkjun segir engin teikn á lofti um eignarnám í neðri hluta Þjórsár Einar Oddur Kristjánsson Jónína Bjartmarz ARNA Pálsdóttir og Jóhann Kristján Valfells eignuðust frumburð sinn fyrir skömmu. „Hún líkist mér meir og meir,“ segir Arna Pálsdóttir um dótt- urina, sem fæddist 5. febrúar síðastliðinn og var þá 16 merkur og 51 sm. „Mér finnst hún vera alveg eins og þú,“ sagði Arna hins vegar við Jóhann, þegar þau skoðuðu barnið í þrívídd- arsónar í lok október sem leið. Morgunblaðið var með Örnu og Jóhanni Kristjáni þegar þau fylgdust með barninu í ómskoð- un í þrívídd hjá fyrirtækinu 9 mánuðir ehf. í Kópavogi í lok október. Þá sögðu þau að það stytti biðina að sjá dótturina svona þremur mánuðum fyrir fæðingu og það að sjá barnið í þrívídd í móðurkviði væri góð leið fyrir föðurinn til að tengjast meðgöngunni enn frekar og taka þátt í henni. Nú, rúmlega þremur mánuðum síðar, eru þau enn sannfærðari um ágæti þess að fylgjast með ófæddu barni í þrívíddarsónar. Foreldrarnir segja að síðustu mánuðir meðgöngunnar og fæð- ingin hafi gengið mjög vel. „Litla músin okkar“ eins og þau kalla dótturina, sem verður skírð í næsta mánuði, hafi á myndunum í sónarnum líkst föð- urnum, sérstaklega munnsvip- urinn og nefið, en þá hafi hún ekki verið með opin augun og ekkert hár hafi sést. „Nú sjá allir að hún er með mikið dökkt hár eins og ég,“ segir Arna. Jóhann tekur í sama streng og bendir á að sónarinn hafi ekki sýnt allt. „Hún er með sams kon- ar tær og ég en augun eru frá mömmunni,“ segir hann. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þrívídd Mynd af ófæddri dótturinni úr sónarnum í október. Morgunblaðið/ÞÖK Ung fjölskylda Arna Pálsdóttir og Jóhann Kristján Valfells með dótturina sem fæddist 5. febrúar og var 16 merkur og 51 sm. „Hún líkist mér meir og meir“ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.