Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 31
Stíll Allt í stíl, taska, pils og sokkar.
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Drottning framúrstefnunnar og gáfumanna-tísku, Miuccia Prada, kom enn og aftur áóvart á tískuviku í Mílanó í vikunni. Fatalínahennar fyrir komandi haust og vetur skar sig
úr fjöldanum. Hún notaði ull á mjög nýstárlegan hátt
fyrir nýja öld. Hún notaðist við alpaca-ull, sem er eitt-
hvert dýrasta efni í heiminum, og meðhöndlaði hana og
litaði á þann hátt að hún líktist frekar gerviloðfeldi. Jafn-
framt voru litirnir og litasamsetningarnar óvenjulegar
og ekki í takt við það sem hefur verið í gangi á sýning-
arpöllunum undanfarið. Til dæmis var mikið um appels-
ínugulan og grænan lit. Sýningin var óvenjuleg og erfitt
að lesa í hana. Flykktust þeir sem gátu baksviðs eftir
sýninguna til að fá hönnuðinn til að útskýra hvað hún
meinti eiginlega með þessu.
Ódýr gerviefni?
Hún gaf ekki mikið upp um pælingarnar í samtali við
Style.com. „Það eina sem ég var að hugsa um var að
vinna með liti og efni. Eitthvað einfalt en skrýtið,“ sagði
hún.
Í grein The Daily Telegraph segir að fötin gætu litið út
fyrir að vera úr ódýrum markaðsbási, ef maður vissi ekki
betur. „Ég var orðin svo leið á öllu, leið á því hvernig við
lítum á tísku. Mig langaði að stíga skref til baka í átt til
róta minna, þegar ég var tilraunagjörn,“ sagði hönn-
uðurinn en víst er að sumum þykir hún ekki hafa gert
neitt hlé á tilraunastarfsemi sinni.
Prada ljóstraði því upp að hún hefði eytt mánuðum í að
ferðast og kanna hvernig fólk klæðist og þróa sérstakar
meðferðir sem láta efni líta út fyrir að vera ódýr gervi-
efni.
Ótrúlegt takmark en útkoman er allavega þannig að
maður staldrar mjög við áferðina á fatnaðinum.
Óekta? Efnin voru gerð gervileg. Töff Appelsínugulur var víða.Kjóll Óvenjulegir litir og lögun.Flaksandi Sérstakt kápuefni.
Bæði stórskrýtið
og skemmtilegt
AP
Toppurinn Prada er þekkt fyrir flott hárskraut.
Loðið Rauða röndin setur ákveðinn svip.
tíska
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 31
Brúðkaupsblað Morgunblaðsins
Sérblað helgað brúðkaupssýningunni Já!
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 9. mars
Meðal efnis er:
• Föt á brúðir, brúðguma og
brúðarmeyjar.
• Óvenjulegt brúðkaup ásamt
hefðbundnu brúðkaupi.
• Matur í brúðkaupsveislum.
• Giftingahringir og morgungjafir.
• Tónlist í brúðkaupum.
• Viðtal við hjón sem hafa
endurnýjað heitið.
• Brúðargjafir.
• Brúðarvendir og blómaskreytingar.
• Brúðarsængin og brúðarnærföt.
• Brúðkaupsmyndin.
Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 5. mars
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Til sölu 414 fm byggingarlóð undir einbýlishús á mjög
góðum stað á Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
EINBÝLISHÚSALÓÐ
SELTJARNARNESI