Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn GRETTIR, ERTU NOKKUÐ ÖFUNDSJÚKUR VEGNA ÞESS AÐ ÉG FER ALLAF AÐ HITTA LÍSU? NEI? ÞÚ ERT NÚ EKKI ÞAÐ FRÁBÆR BARA 28 DAGAR Í AFMÆLIS- DAG BEET- HOVEN! HVERT FER EIGINLEGA TÍMINN? LANGAR YKKUR Í VATN? ÉG ER MEÐ FULLA KÖNNU AF VATNI HÉRNA... ÞAÐ ER ÉG SEM RÆÐ HVORT ÞIÐ FÁIÐ VATN! ÖRLÖG YKKAR ERU Í MÍNUM HÖNDUM! ÉG STJÓRNA LÍFUM YKKAR! ÁN MÍN MUNIÐ ÞIÐ DEYJA! ÁN MÍN ÞÁ FÁIÐ ÞIÐ EKKERT... ÉG GET EKKI HÆTT AÐ HUGSA UM STORMINN SEM KOM SÍÐASTA VETUR EKKI ÉG HELDUR ÉG HUGSA UM HANN Í HVERT EINASTA SKIPTI SEM ÞAÐ RIGNIR VELDU EINN EF ÞÚ VILT KOMAST AÐ ÞVÍ HVORT ÞÚ SÉRT FALLEGASTA KONA Í HEIMI... VELDU TVO FYRIR... ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ VIÐ SÉUM AÐ MISSA ÞENNAN SAMNING JÁ, ALLT Í EINU ER STÆRSTI VIÐSKIPTAVINUR OKKAR HORFINN ÞETTA ER ÞAÐ SLÆMA VIÐ ÞAÐ AÐ EIGA FYRIR- TÆKI. MAÐUR HRÆÐIST ALLTAF FRAMTÍÐINA EKKI HAFA ÁHYGGJUR. ÖLL MERKI BENDA TIL ÞESS AÐ OKKUR MUNI VEGNA VEL HVEN- ÆR GERIST ÞAÐ? ERFITT AÐ SEGJA. KÚLAN SVARAR BARA „JÁ OG NEI“ SPURNINGUM EF AÐ BLÓÐIÐ MITT ER Í ALVÖRU JAFN STERKT OG ÞÚ SEGIR... ÞÁ ER EKKERT AÐ MÉR, ER ÞAÐ NOKKUÐ? OG ÉG GET FENGIÐ HEILBRIGÐIS- TRYGGINGUNA EKKI STRAX ÉG ER BÚINN AÐ BÓKA ÞIG Í FREKARI RANNSÓKNIR Á SPÍTALANUM Í DAG Í LJÓSI þess að Jude Law er orðinn „Íslandsvinur“ hafa Sambíóin ákveð- ið að frumsýna kvikmyndina Break- ing and Entering í dag. Í Breaking and Entering er sögð saga af glæpum og tilfinningum. Will (Jude Law) og vinkona hans Sandy (Martin Freeman) reka landslags- arkitektúrstofu sem þau flytja í King’s Cross hverfið í London. Staðsetning stofunnar vekur aftur og aftur athygli gengjameðlima og þjófa. Það endar með því að Will fær nóg af innbrotunum og eltir einn af ungu þjófunum, Miro (Rafi Gavron) til heimilis hans þar sem hann býr með móður sinni Amira (Juliette Bi- noche), bosnískum flóttamanni. Will býr með kærustu sinni Liv (Robin Wright Penn) sem eyðir mestum tíma sínum í að hafa áhyggj- ur af unglingaveikri 13 ára dóttur sinni Bea (Poppy Roger). Will vingast við Amiru til að rann- saka innbrotið nánar en vinátta þeirra tekur óvænta stefnu. Amira kemst að því að sonur hennar rændi Will og í tilraun til að vernda hann mútar hún Will. Líf hans er þegar í kreppu og við múturnar fer hann að kanna villtari hliðar á sjálfum sér og villtari hliðar borgarinnar. Leikstjóri Breaking and Entering er Anthony Minghella sem leikstýrði m.a. Truly Madly Deeply, Cold Mountain, The Talented Mr. Ripley og The English Patient. Frumsýning | Breaking and Entering Hjartaknúsari Sambíóin grípa gæsina og sýna mynd með Jude Law. Þreyttur á þjófnaði Erlendir dómar: Metacritic 56/100 Los Angeles Times 70/100 Rolling Stone 63/100 Variety 60/100 Entertainment Weekly 58/100 The New York Times 40/100 (allt skv. Metacritic). Háskóli Íslands efnir til fyr-irlestraraðar í tilefni afári jarðarinnar undir yf-irskriftinni Undur ver- aldar. Á morgun laugardag mun Freysteinn Sigmundsson sérfræð- ingur hjá Jarðvísindastofnun Háskól- ans flytja fyrirlesturinn „Seiga Ís- land: hvernig hreyfist jarðskorpan?“ „Undanfarinn áratug hefur miklum upplýsingum verið safnað með rann- sóknum á hegðun íslensku jarðskorp- unnar. Gervitunglatækni hefur gert það kleift að mæla hreyfingar jarð- skorpunnar með mikilli nákvæmni, bæði með GPS-landmælingum og svokölluðum bylgjuvíxlmælingum úr ratsjárgervitunglum,“ segir Frey- steinn. „Hópur vísindamanna við ís- lenskar rannsóknarstofnanir í sam- starfi við erlenda rannsakendur hafa nú unnið úr þessum upplýsingum skýra mynd af jarðskorpuhreyfingum hér og mun ég í fyrirlestrinum greina frá helstu niðurstöðum um eðli og or- sakir hreyfinganna.“ Freysteinn segir jarðskorpuna á Íslandi hreyfast hægt en örugglega: „Að meðaltali lengist fjarlægðin milli austur- og vesturhluta landsins um 2 millimetra á mánuði, en eins og flestir þekkja er Ísland á mörkum tveggja fleka sem reka hvor frá öðrum. Þessi tognun er stöðug og jöfn þegar mælt er langt frá rekbeltunum, s.s. í Reykjavík en skrykkjótt á rekbelt- unum miðjum og getur jarðskorpan þar gengið til í kippum frá einum til þremur metrum með jarðskjálftum og eldgosum,“ segir Freysteinn. „Rannsóknir síðustu ára hafa hins vegar leitt í ljós að sú spenna sem leiðir af þessari tognun á sér aðeins stað í efstu 5 til 10 kílómetrum jarð- skorpunnar, en jarðskorpa íslands er um 20-40 km þykk. Þá hegðar neðri hluti jarðskorpunnar sér eins og seig- fljótandi vökvi yfir lengri tíma, þó hún sé í föstu formi, og hnígur og rís á svipaðan hátt og t.d. heitt malbik.“ Að sögn Freysteins sýna nið- urstöður rannsóknanna okkur mikið um þróun landsins: „Seigur vökvi rís þegar fargi er af honum létt og jarð- skorpan gerir það sama nú þegar jöklar minnka vegna hlýnandi veð- urfars. Vegna rýrnunar Vatnajökuls síðustu 100 ár hefur land þar undir risið hratt á jarðfræðilegan mæli- kvarða. Breyting á veðurfari hefur þannig ekki aðeins áhrif á jökla og yf- irborð lands heldur einnig á jarð- skorpuna sjálfa. Til lengri tíma getur þessi hreyfing t.d. haft áhrif á sjáv- arstöðu og má vænta þess að land næst jöklinum hækki um 2,5 senti- metra á ári,“ segir Freysteinn. „Þessi þekking kennir okkur margt um landnytjar á Suð-Austurlandi, en þeg- ar Ísland var fyrst numið voru jöklar miklu minni en í dag. Þeir stækkuðu mikið á síðari öldum, og við það má ætla að sig jarðskorpunnar hafi m.a. spillt jörðum við strandlengjuna á svæðinu.“ Freysteinn flytur fyrirlestur sinn í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ kl. 14. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill en efni fyrirlestrarins verður sett fram auðskiljanlegan hátt. Vísindi | Fyrirlestur á morgun kl. 14 um nýj- ar rannsóknir á íslensku jarðskorpunni Seig jarðskorpa Íslands  Freysteinn Sigmundsson fæddist í Reykja- vík 1966. Hann lauk stúdents- prófi frá MH 1985, B.S. gráðu í jarðeðlisfræði frá Háskóla Ís- lands 1988, meistaranámi við sama skóla 1990 og doktorsgráðu frá University of Colorado í Boulder árið 1992. Frey- steinn starfaði á Norrænu eld- fjallastöðinni frá 1992, síðar Nor- ræna eldfjallasetrinu á Jarðvísindastofnun Háskólans. Eig- inkona Freysteins er Ástþrúður Sif Sveinsdóttir bókasafnsfræðingur og eiga þau þrjú börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.