Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. MIKIÐ Í HÚFI Það er mikið í húfi fyrir heimiliní landinu að vel takist til umverðlækkanir hinn 1. marz nk. Það skiptir að sjálfsögðu máli að sú lækkun opinberra gjalda, sem þá kemur til framkvæmda, skili sér beint til neytenda. Hún á að skila sér beint til þeirra og engin ástæða til að ætla fyrirfram að svo verði ekki. Að vísu hafa ýmsar spurningar vaknað vegna verðhækkana frá birgjum til smásöluverzlana frá því fyrir jól. Opinberir aðilar hafa lagt mikla áherzlu á að vel verði fylgzt með verðlækkunum frá og með 1. marz og ljóst að Alþýðusamband Íslands mun beita sér mjög í þeim efnum. Í gær birtist frétt í Morgunblaðinu sem sýnir að verðlækkanir skipta ekki bara máli fyrir neytendur vegna þess að vöruverð lækki heldur líka vegna hins að skuldir heimilanna hljóta einnig að lækka. Talið er að verðtryggðar skuldir heimilanna geti lækkað um 9–10 milljarða í kjölfar verðlækkana hinn 1. marz nk. Í Morgunblaðinu í gær var sýnt dæmi um áhrif þessara lækkana á húsnæð- islán að upphæð 15,7 milljónir króna. Miðað við spá Landsbanka Íslands um að vísitala neyzluverðs lækki um 1 prósentustig gæti höfuðstóll láns- ins lækkað um 157 þúsund krónur. Það er því mikið í húfi fyrir heim- ilin í landinu. Umtalsverð lækkun matvælaverðs og ýmissa annarra kostnaðarliða er mikilvæg fyrir rekstur heimilanna en ekki síður áhrifin á verðtryggingu lánaskuld- bindinga. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar munu spara heimilunum mikla fjár- muni þegar horft er á þessar tölur á ársgrundvelli. Hér er um veru- lega kjarabót að ræða. Það er svo annað mál að engin ástæða er til að láta hér staðar numið. Staða ríkissjóðs er góð svo að vægt sé til orða tekið. Ríkissjóð- ur safnar miklum fjármunum inn á bankabók um þessar mundir. Og þó að það sé mikilvægt, m.a. til að draga úr þenslu, er augljóst að rík- issjóðs vegna er hægt að ganga lengra í skattalækkunum en gert hefur verið. Fyrir nokkrum árum voru skatt- ar lækkaðir mikið á fyrirtæki. Tals- menn þeirra skattalækkana héldu því fram að tekjur ríkissjóðs af fyr- irtækjasköttum mundu hækka en ekki lækka vegna þessara skatta- lækkana á fyrirtæki. Reynslan sýn- ir að þeir höfðu rétt fyrir sér. Er ekki kominn tími til að stíga stórt skref í lækkun skatta á ein- staklinga og sjá, hvort áhrifin verða ekki hin sömu? Mikil skattalækkun hjá einstaklingum gæti leyst mikla krafta úr læðingi. Þótt miklar umbætur hafi orðið í skattamálum síðustu árin þarf að ganga lengra. Það þarf að jafna muninn á milli skatta af launa- tekjum og fjármagnstekjum. Slíkt þarf ekki endilega að gerast með hækkun skatta af fjármagns- tekjum. Það getur líka gerzt með róttækri lækkun á sköttum á launa- tekjur. BROTTFÖR FRÁ ÍRAK Bretar tilkynntu í fyrradag aðþeir hygðust fækka í herliði sínu í Írak og Danir greindu frá því að þeir hygðust kveðja allt sitt her- lið brott frá landinu. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á þinginu að 1.600 hermenn yrðu kvaddir brott þannig að 5.500 yrðu eftir og fleiri myndu snúa heim síð- ar á árinu. Breskar hersveitir yrðu þó í landinu fram á næsta ár. 460 danskir hermenn hafa verið í Írak og verða þeir kallaðir heim í ágúst. Nú eru hermenn frá að minnsta kosti 22 löndum í Írak að talið er, en liðsafli frá sumum þeirra er rétt til málamynda. Fyrir utan Breta eru aðeins tvö ríki með meira en þúsund manna herafla. 2.300 suður- kóreskir hermenn eru í Írak og 1.400 hermenn frá Ástralíu. Ákvörðun Dana og Breta hefur verið túlkuð á þann veg hún beri vitni um brestina í samstarfi bandamanna í Írak. Blair þvertek- ur fyrir það og segir að ástandið sé einfaldlega orðið þannig að Írakar geti sjálfir gætt öryggis þar sem breski herinn hefur verið. Það er rétt að ástandið hefur batnað í Basra en það er þó enn slæmt og reyndi Blair ekki að draga dul á það. Hann sagði einnig í viðtali í gær að krefðust aðstæður þess yrði fjölgað í herliði Breta á ný. Ákvörðun Blairs um að taka þátt í innrásinni í Írak með Bandaríkja- mönnum hefur bakað honum miklar óvinsældir. Nú er svo komið að Íhaldsflokkurinn hefur náð forskoti á Verkamannaflokkinn ef marka má skoðanakannanir. Blair er því undir þrýstingi um að snúa þeirri þróun við. En það hefur heldur ekki farið á milli mála að innrás- arherjunum hefur gjörsamlega mis- tekist að koma á jafnvægi í Írak. Þótt George Bush Bandaríkjafor- seti hafi ákveðið að fjölga í banda- ríska herliðinu í Írak er mjög lík- legt að hann muni þegar kemur fram á næsta ár, og forsetakosn- ingarnar nálgast, snúa blaðinu við. Ógerningur er að segja til um það hvað tekur við hverfi Banda- ríkjamenn á braut frá Írak. Í raun má segja að þegar ríki borgara- styrjöld í landinu og átökin gætu magnast og landið liðast í sundur. En einnig má spyrja hvort Banda- ríkjamenn og bandamenn þeirra geti komið í veg fyrir það með því að vera áfram eða hvort það yrði aðeins til að draga núverandi eymdarástand á langinn. Einræð- isherrar eiga ekki að komast upp með að myrða og pynta samborgara sína og ógna nágrönnum sínum. Tony Blair sagði í gær að í stjórn- artíð sinni hefði einræði verið hrundið í Sierra Leone, Kosovo, Afganistan og Írak og heimurinn væri betri fyrir vikið. Enginn sakn- ar Saddams Hussein, en innrásar- herirnir brugðust skyldum sínum þegar þeim láðist að verja óbreytta borgara Íraks eftir að stjórn hans var fallin. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Í umgjöllun undanfarna daga umviðræður fulltrúa Kennarasam-bands Íslands (KÍ) og Launa-nefndar sveitarfélaga (LN) hefur mikið verið gert úr verulegum mun á til- lögum aðila að samkomulagi á grundvelli forsenduákvæðis gildandi kjarasamn- ings. En það eru önnur mikilvæg mál sem gleymst hafa í opinberri umræðu um þetta mál. Launahækkanir og launaviðbætur Komið hefur fram að á hinum almenna vinnumarkaði voru laun almennt hækkuð umfram umsamdar launahækkanir um 0,65% gegn því að samningurinn gilti til ársloka 2007. Um þetta var samið á grundvelli forsenduákvæða í kjarasamn- ingum aðila. Jafnframt voru samþykktar viðbótarhækkanir til láglaunahópa. Það sama gildir um kjarasamninga ríkisins sem hafa tilvísun í forsenduákvæði hins almenna vinnumarkaðar. LN ákvað engu að síður að bjóða kennurum meiri hækk- un árið 2007 eða 0,75% viðbótarhækkun sem þýðir samtals 3,0% launahækkun 1. jan. 2007 og síðan 1,25% viðbótarhækkun í ársbyrjun 2008 eða samtals 3,5% hækk- un gegn því að kjarasamn- ingurinn gildi til 31. maí 2008. Forysta grunnskóla- kennara fer á hinn bóginn fram á samtals um 7,5% viðbótarhækkun við áður umsamdar hækkanir sem er rúmlega tíföld viðbót- arhækkun m.v. hinn al- menna vinnumarkað og myndi kosta sveitarfélögin rúma 1,5 milljarða króna á ársgrundvelli. Menn spyrja sig eðlilega hvaða rök geti legið að baki þessari kröfu þegar kennarar búa við sömu verðlags- og efnahagsþróun og aðrir í þessu þjóð- félagi. Spurningin verður enn áleitnari þegar haft er í huga að laun grunnskóla- kennara skv. gildandi kjarasamningi munu hafa hækkað um 33,8% í ágúst 2007 á sama tíma og laun á hinum al- menna markaði hafa hækkað um 20,2%. Fagleg vinnubrögð Samskipti Launanefndar sveitarfélaga hafa verið afar góð og farsæl við lang- flesta viðsemjendur sína um áratuga skeið. Í gildi eru nú 79 kjarasamningar á vegum nefndarinnar. Mikill trúnaður hefur ríkt á milli aðila og undirbúningur kja ke ha uð ver sam ver áh kja he sam ma sam ein við um áraraðir sem telja að hafi ski arstarfi leikskó eru launakjörin skólakennarar v þessar mundir þ gera betur þega mikilvæg störf urum. Launakj ast nú eftirsókn skólakennara e margra þeirra. Það er skemm samskipti LN o kennara eru afa gagnvart öðrum Launanefnd biður um Eftir Karl Björnsson Karl Björnsson Niðurstöður nýlegra rannsókna áheilanum hafa leitt í ljós aðviðtekinn sannleikur um óvið-jafnanlegan mátt hins unga heila hafi að miklu leyti verið rangur. Þetta kom fram í erindi dr. Elkhonon Goldberg, prófessors í taugafræði við New York University School of Medicine, á ráð- stefnu um öldrun og málefni aldraðra á upplýsingaöld sem nú stendur yfir í Há- skólanum í Reykjavík. Sveigjanleiki eða „mótanleiki“ heilans hefur verið sérsvið dr. Goldbergs áratugum saman og sagði hann allt benda til þess að margir mik- ilvægir hlutar heilabúsins geti haldið áfram að bæta við sig og styrkjast svo lengi sem þeir séu þjálfaðir reglulega – rétt eins og vöðvar. Goldberg sagði rannsóknir t.d. hafa sýnt að sá hluti heilans sem stjórnar um- hverfisskynjun vaxi með aldrinum. Þessi hæfileiki kemur m.a. fram hjá leigubíl- stjórum sem þurfa að leggja sífellt fleiri krókaleiðir á minnið og gengur þetta þvert á gamlar kerlingabækur um að heilinn missi getu til að aðlagast eftir kynþroska. Ennfremur sagði Goldberg að sýnt hefði verið fram á að tónlistarfólk gæti haldið áfram að bæta við sig heilavefjum í „mús- íkölsku stöðvunum“ með því að halda sér í æfingu. Jafnvel það að læra að halda bolt- um á lofti gæti haft mælanleg áhrif á sam- setningu heilans á aðeins örfáum vikum. Með reglubundinni þjálfun má auka getu heilans Goldberg varaði við of þröngri skil- greiningu á elliglöpum og sagði ómögulegt að dæma getu manna út frá ytri einkenn- um, svo sem minnisleysi eða ruglingslegri hugsun. Sem dæmi nefndi hann lækni sem hann kynntist í New York og stundar enn fag sitt þrátt fyrir að vera kominn á átt- ræðisaldur þótt honum væri svolítið farið að förlast á öðrum sviðum. „Hann kann sitt fag jafn vel, ef ekki betur en nokkurn tíma fyrr, og ég leita enn hiklaust eftir læknisfræðilegu áliti hans,“ sagði Gold- berg og bætti við að Goethe hefði ekki skrifað meistaraverkið Fást fyrr en um áttrætt. Að sögn Goldbergs liggur máttur hins þroskaða heila í getu hans til að þekkja ákveðin munstur og vinna úr upplýsingum á skilvirkan máta. Það er vinstra heila- hvelið, sem geymir reynslu og sérþekk- ingu hvers einstaklings, en það ku eldast mun hægar en hægra hvelið sem gegnir fyrst og fremst því hlutverki að aðlagast nýjum aðstæðum og læra nýja hluti. Gold- berg sagðist sjálfur ekki hafa haft nokkra trú á að heilahvelin gætu elst mishratt fyrr en niðurstöður rannsókna síðastlið- inna ára lágu fyrir en þær hafi gríðarlega þýðingu fyrir skilning vísindamanna á öldrun og getu aldraðra. Mikilvægasta niðurstaða Goldbergs, sem skrifað hefur ítarlega um öldrun heil- ans á undanförnum árum, er vafalaust sú að með reglulegri þjálfun og heilbrigðu líf- erni sé ekkert því til fyrirstöðu að fólk haldi áfram að bæta við sig heilavefjum og auka getu heilans fram eftir aldri. Loka- orð doktor Goldbergs voru á þann veg að ef hann ætti að rýna í kristalskúlu myndi hann giska á að innan tuttugu ára ætti „heilarækt“ eftir að verða jafnsjálfsagt og algengt fyrirbæri og líkamsrækt er í dag. Hann benti réttilega á að það hefði tekið nokkurn tíma að koma af stað þeirri hug- arfarsbreytingu sem leiddi til nýlegs heilsuæðis á Vesturlöndum og sagðist vongóður um að sama ferli myndi eiga sér stað á sviði heilans á næstunni. Mikilvægt innlegg í almenna umræðu um jafnréttismál Aðrir fyrirlesarar á upphafsdegi ráð- stefnunnar voru doktor Lawrence J. Whalley, prófessor við háskólann í Aber- deen, Einar B. Baldursson, dósent í vinnu- sálfræði við Álaborgarháskóla, og Ásgeir R. Helgason, dósent í sálfræði við Karol- inska Institutet í Svíþjóð. Ráðstefnan ber yfirskriftina „Er öldrun úrelt í nútíma- samfélagi?“ og er haldin af Háskólanum í Reykjavík, Reykjavíkurborg og Álaborg- arháskóla, í samstarfi við stuðningsaðila úr viðskiptalífinu. Fyrri dag ráðstefnunnar var áherslan fyrst og fremst á vísindalega fyrirlestra og kynningar á niðurstöðum rannsókna sem fram hafa farið á síðastliðnum árum. Síð- ari daginn er síðan ætlunin að byggja á þeirri fræðslu og setja hana í samhengi við aðstæður eldri borgara í dag og náinni framtíð, m.a. félagslegar og fjárhagslegar aðstæður. Ráðstefnan var sett af Vilhjálmi Þ. Vil- hjálmssyni borgarstjóra sem lét þau orð falla að aldur væri „… einhæfur og óná- kvæmur mælikvarði á getu“ og sagðist vonast til þess að ráðstefnan kæmi af stað umræðu sem hingað til hefði vantað hér á landi. Ráðstefnustjóri, Guðfinna S. Bjarnadóttir, kynnti því næst fyrirlesara dagsins fyrir þéttskipuðum sal og benti um leið á að málefni aldraðra væru mik- ilvægt innlegg í almenna umræðu um jafn- réttismál. Er öldrun úrelt Margt um man Háskólans í Re Ráðstefna um öldrun og málefni aldraðra á upplýs- ingaöld stendur nú yfir í Háskólanum í Reykjavík. Gunnar Hrafn Jónsson situr ráðstefnuna og segir frá því sem bar á góma á fyrri degi hennar. Doktor Lafessor íháskóla hann staddur h indi á ráðstefnu fer fram í Hásk þessar mundir. fessor sló á létta indis síns á fimm frá því að eldri að fá meira en n unum hans yfir um líkamann. „ hafa sagt, „þan með nýjan verk Whalley vatt málsins og byrj öldrun – en það margur kynni a sagði bestu skil öldrun ætti sér ekki lagfærður komist hjá einh inum en sagðist grein læknavísi því að seinka öl sjúkdómum á b sjúkdóminn. „M ég ætti á hættu tíðinni,“ gantað lengi sem ég he sjúkdómurinn m mér fyrr en efti ég nefnilega rá dauður og því s Í tæplega klu „Þann með n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.