Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AÐALMEÐFERÐ Í BAUGSMÁLINU
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
UPPHAF Baugsmálsins, óuppgerðir
reikningar og fundur í Flórída var
meðal þess sem bar á góma í skýrslu-
töku yfir Jóni Gerald Sullenberger í
gær. Ítrekað vísaði Jón Gerald til
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem
„drengsins“ en leiðrétti sig sjálfur eða
var leiðréttur jafnóðum. Nokkrir til
viðbótar voru raunar nefndir með
þessum hætti, enginn þó nándar
nærri eins oft og Jón Ásgeir. Jón Ger-
ald kom í gær fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur bæði sem sakborningur
og vitni. Hann er ákærður fyrir að
hafa útbúið kreditreikning upp á 62
milljónir íslenskra króna og hann bar
vitni í ákærulið sem varðar rekstur
bátsins Thee Viking.
Jón Gerald lýsti aðdragandanum
að útgáfu reikningsins svo að hann
hefði verið á fundi í Bandaríkjunum
30. ágúst 2001 þegar Tryggvi, þáver-
andi aðstoðarforstjóri Baugs, hringdi
í hann og bað hann um að gera sér
greiða með því að útbúa kreditreikn-
ing upp á fyrrnefnda fjárhæð. Jón
Gerald kvaðst síðan hafa útbúið
reikninginn án þess að hugsa meira út
í það. Reikninginn hefði hann gert í
tölvukerfi Nordica sem væri þeirrar
gerðar að það byggi sjálfkrafa til
númer og dagsetningu á reikninginn.
Hann hefði síðan prentað reikninginn
út, án þess að vista hann í tölvukerf-
inu, sent hann með faxi og síðan talið
sig hafa eytt honum. Þetta gæti verið
skýringin á því hvers vegna til er ann-
ar reikningur frá Nordica með sama
númeri og umræddur reikningur.
Frumrit fannst um síðir
Jón Gerald tók skýrt fram að alls
engin viðskipti hefðu legið að baki
þessum reikningi, hann hefði aldrei
komið til tals milli hans og Jóns Ás-
geirs og Baugsmenn hefðu aldrei
minnst á hann aftur fyrr en eftir að
Jón Gerald greindi frá honum hjá rík-
islögreglustjóra í ágúst 2002. Þá
fyrst, í janúar 2003, hefðu þeir gert
tilraun til að innheimta reikninginn
með því að gefa út stefnu í Bandaríkj-
unum en henni, líkt og öllu sem þeir
hefðu borið til Bandaríkjanna, hefði
verið mokað út aftur.
Í yfirheyrslum hjá lögreglu í ágúst
2002 sagði Jón Gerald að hann ætti
ekki frumrit kreditreikningsins en í
september sama ár fundu lögreglu-
menn frá ríkislögreglustjóra reikn-
inginn í skjalabunka á skrifstofu Nor-
dica í Flórída. Jón Gerald gaf þá
skýringu í gær að hann hefði talið sig
hafa hent honum en líklega hefði
hann lagt reikninginn með öðrum
skjölum á borð og síðan hefði hann
endað neðst inni í skáp.
Jón Ásgeir hefur gefið þá skýringu
á reikningnum að hann hefði verið
vegna „vandræðalagers“ Nordica.
Jón Gerald sagði að þetta væri galin
og alröng skýring og benti á að það
hefði verið í höndum starfsmanna
Baugs að panta vörurnar sem hann
sendi þeim. Stærstu vöruliðirnir
hefðu verið auðseljanleg niðursuðu-
vara s.s. frá Green Giant og Del
Monte. Ávallt hefði verið talið út úr
gámunum þegar þeir komu til Íslands
og hefði pakkningar vantað eða eitt-
hvað verið skemmt hefði það þegar í
stað verið leiðrétt. Upphæðirnar
hefðu verið lágar, frá 20–30 dölum
upp í nokkuð hundruð.
Í miklum kröggum
Garðar Valdimarsson meðdómari
spurði Jón Gerald hvort hann hefði
ekki hugsað sig tvisvar um áður en
hann útbjó kreditreikning en með því
væri hann að viðurkenna að Baugur
ætti kröfu á Nordica fyrir 62 millj-
ónir. Jón Gerald svaraði því til að á
þessum tímapunkti hefði hann verið í
miklum fjárhagskröggum vegna van-
efnda Baugsmanna. Tryggvi hefði
heitið því að aðstoða hann, og því
hefði hann ekki talið sér stætt á öðru
en að gera honum þennan greiða.
Hann neitaði algjörlega spurningu
saksóknara um hvort hann hefði
hugsanlega lagt fram kæruna til að
komast hjá því að greiða reikninginn.
Í gær, líkt og margoft áður, kom
fram að á sínum tíma ríkti afar mikið
traust í samskiptum Jóns Geralds við
Jón Ásgeir og Jóhannes Jónsson og
voru samningar, jafnvel um milljóna
viðskipti, gerðir munnlega.
Jón Gerald sagði í gær að haustið
2001 hefði traustið verulega tekið að
bresta. Ástæðan hefði verið sú að Jón
Ásgeir hefði ekki staðið við munnleg-
an samning sem þeir hefðu gert árið
1999 um að tryggja að viðskipti
Baugs við Nordica næmu í minnsta
lagi tveimur milljónum Bandaríkja-
dala á ári eða greiða ella það sem upp
á vantaði. Þessi samningur hefði verið
algjör forsenda þess að hann réðst í
að leigja vöruhús o.fl. til að merkja
bandarískar vörur fyrir Baug. Jón
Ásgeir hefði aldrei staðið við þetta
samkomulag með þeim afleiðingum
að haustið 2001 hafði safnast upp
verulegt tap hjá Nordica. Afar erfitt
hefði reynst að ná í Jón Ásgeir til að
ræða þessi mál. Loks hefði Jón Ás-
geir boðað komu sína, Tryggva og
fleiri til Flórída í febrúar 2002. Þar
hefði Tryggvi tilkynnt honum að þeir
myndu borga honum það sem þeir
skulduðu, um eina milljón Banda-
ríkjadala.
Jón Gerald kvaðst hafa verið sáttur
við þessi málalok og því hefði það
komið verulega illa við sig þegar
Tryggvi hringdi örstuttu síðar, á
meðan Jón Gerald var í bílnum á
heimleið af fundinum, og sagði að
hann hefði gleymt að taka fram að
hann vildi að Jón Gerald kæmi á fund
með lögmanni sem þegar hefði verið
pantaður. Á fundinum hefði verið far-
ið fram á að hann færði eignarhaldið á
Thee Viking yfir á eignarhaldsfélagið
Miramar á Bahamas en því hefði
hann harðneitað, enda ábyrgur fyrir
öllum lánum sem hvíldu á bátnum.
Hann hefði þess í stað krafist að fyrst
myndu Baugsmenn gera upp sína
skuld við Nordica. Í kjölfarið hefðu
tölvupóstsendingar um málið gengið
manna á milli og Jón Ásgeir m.a. sagt
að engar greiðslur myndu berast til
Nordica fyrr en Jón Gerald hefði
gengið frá bátamálunum við Tryggva.
Að lokum hefðu þeir verið komnir að
því að ná samkomulagi um að Jón
Gerald myndi fá 350.000 dali fyrir
sinn hlut í bátnum. Síðan hefði ekkert
heyrst meira frá þessum mönnum.
Gríðarlegt trúnaðarbrot
Það næsta sem gerðist í málinu, að
sögn Jóns Geralds, var að þegar hann
var að rökræða þessi mál við eigin-
konu sína hefði dottið upp úr henni, í
hita samræðnanna, að hann gæti ekki
treyst Jóni Ásgeiri þar sem hann
hefði farið á fjörurnar við hana. Þetta
hefði gerst í samkvæmi í ágúst 2000,
eftir því sem hann minnti. Jón Ásgeir
hefði boðið eiginkonu hans og nokkr-
um vinkonum hennar í samkvæmi
heima hjá honum. Þar hefði Jón Ás-
geir hvíslað í eyra eiginkonu hans
hvort hún vildi ekki senda vinkonur
sínar heim því hann hefði skynjað
strauma á milli þeirra og hefði hún við
það þegar í stað yfirgefið húsið.
„Þetta var gríðarlegt trúnaðarbrot,“
sagði Jón Gerald. Í kjölfarið hefði
hann orðið fokillur og „misst sig“ við
Tryggva og lesið Jóhannesi Jónssyni
pistilinn.
Jón Gerald sagði að eftir þetta
hefði hann farið að leita að lögmanni á
Íslandi. Þar sem hann vissi að Baugs-
menn væru valdamiklir, m.a. hefði
hægri hönd Jóns Ásgeirs, Hreinn
Loftsson, verið aðstoðarmaður Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra.
„Þannig að ég hafði miklar áhyggjur
af því hvort ég gæti treyst nokkrum
manni,“ sagði hann. Eftir að hafa
fengið þau svör frá nokkrum, m.a.
Jónínu Benediktsdóttur, að Jóni
Steinari Gunnlaugssyni væri treyst-
andi hefði hann farið á hans fund, lagt
gögnin á borðið og jafnframt tjáð Jóni
Steinari að hann óskaði eftir því að yf-
irvöld væru látin vita af því sem væri
að gerast í höfuðstöðvum Baugs. Jón
Gerald var spurður að því hvort
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morg-
unblaðsins, eða Kjartan Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, hefðu blandast í mál-
ið en því neitaði Jón Gerald alfarið.
Bátaeign mátti ekki fréttast
Jón Gerald var ítarlega spurður út í
eignarhald og rekstur Thee Viking og
tveggja forvera hans, Víkings 1 og 2.
Kom m.a. fram hjá honum að Jón Ás-
geir hefði lagt ríka áherslu á að það
myndi ekki fréttast að hann ætti dýr-
an bát á Flórída þar sem það kæmi
illa út fyrir hann sem eiganda lág-
vöruverðsverslunar og m.a. hefði ver-
ið bannað að taka myndir um borð.
Reikninga vegna bátsins hefði hann
m.a. sent á Baug og Gaum. Skýrslu-
taka yfir Jóni Gerald heldur áfram í
dag.
Segir skýr-
ingar Baugs-
manna galnar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Vörn Jón Gerald Sullenberger fer yfir gögn ásamt verjanda sínum, Brynj-
ari Níelssyni hrl. Jón Gerald var yfirheyrður sem sakborningur og vitni.
Í HNOTSKURN
Dagur 9
» Jón Gerald Sullenbergervar í gær yfirheyrður sem
ákærður maður og sem vitni.
» Jón Gerald er ákærður, ílið 15, fyrir að hafa útbúið
tilhæfulausan kreditreikning
sem Jón Ásgeir Jóhannesson
og Tryggvi Jónsson eru sak-
aðir um að hafa notað til að
fegra bókhald Baugs.
» Jón Gerald sagði alls eng-in viðskipti hafa legið að
baki reikningnum, hann hefði
einvörðungu verið að gera
Tryggva greiða með útgáfu
hans.
» Fram kom að vinátttaJóns Geralds og Jóns Ás-
geirs hafði verulega súrnað
haustið 2001 og upp úr sauð
þegar kona Jóns Geralds tjáði
honum að Jón Ásgeir hefði
farið á fjörurnar við sig. Þessu
hefur Jón Ásgeir neitað.
» Jón Gerald bar einnigvitni vegna ákæruliðar 18
en sá liður varðar rekstur á
skemmtibátnum Thee Viking.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru
sakaðir um fjárdrátt með því
að hafa látið almenningshluta-
félagið Baug greiða kostnað
við bátinn.
» Jón Gerald sagði m.a. aðBaugur hefði greitt reikn-
inga vegna bátsins og að ekki
hefði mátt fréttast að Jón Ás-
geir ætti hlut í honum.
Leitaði eftir lögmanni á Íslandi eftir
trúnaðarbrot gagnvart eiginkonu
JÓN Ásgeir Jóhannesson kom á ný
fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær
eftir að yfirheyrsla Sigurðar Tóm-
asar Magnússonar saksóknara yfir
honum var stöðvuð á fimmtudag í
liðinni viku. Var lokið við að yf-
irheyra hann vegna reksturs Thee
Viking en hann mun síðar koma
fyrir dóminn sem vitni vegna
ákæruliðar 19.
Sem fyrr hafnaði Jón Ásgeir því
algjörlega að Baugur hefði verið
látinn greiða fyrir rekstur bátsins
eða lán af honum. Jón Ásgeir sagði
„líkindareikninga“ saksóknarans
um að um áramótin 1999 og 2000
hefði Baugur tekið við að greiða
reikninga vegna bátsins, enda
stemmdu upphæðir við reikninga
sem áður voru greiddir af Gaumi,
ekki standast og væru til marks um
þráhyggju saksóknarans.
Spurningar saksóknara tóku um
klukkustund og síðan spurði Gestur
Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs,
hann í um hálftíma. Spurður um
áhrif málsins á rekstur Baugs sagði
Jón Ásgeir að Baugur væri „tólf síl-
indra tryllitæki“ en vegna málsins
hefði það þurft að keyra í fyrsta og
öðrum gír og hefði sannanlega
misst af mörgum tækifærum. Þá
hefðu ítrekaðar ábendingar hans til
ríkislögreglustjóra, um að rann-
saka það sem gæti styrkt málstað
hans, verið hunsaðar.
Jón Ásgeir sagði einnig að
Baugsmálið ætti sér pólitískar ræt-
ur og hefði byrjað eftir frægan
fund Davíðs Oddssonar og Hreins
Loftssonar í byrjun ársins 2002 en á
fundinum hefði Davíð hótað Hreini
að fyrirtækið yrði fyrir barðinu á
lögreglunni, skattinum og sam-
keppnisyfirvöldum. Á þessum fundi
hefði nafn Jóns Geralds Sullen-
berger borið á góma. Jóni Gerald
hefði verið att út í að kæra. Þetta
hefði m.a. komið í ljós í tölvu-
póstum Jónínu Benediktsdóttur til
Styrmis Gunnarssonar og þessi
mynd styrktist enn þegar horft
væri til vals á lögmanni fyrir Jón
Gerald. „Tengslin eru alveg aug-
ljós,“ sagði hann.
Aðspurður hvers vegna Baugur
hefði verið tekinn af markaði sagði
Jón Ásgeir að eftir innrás lögreglu
hefði verið óhugsandi að hafa fé-
lagið skráð á hlutabréfamarkað þar
sem félagið hefði þurft að skýra op-
inberlega frá því í hvert skipti sem
gögn væru afhent lögreglu. Slíkt
myndi hafa mikil áhrif á gengi fyr-
irtækisins og hefði valdið hlut-
höfum stórtjóni.
Uppphaf Baugsmálsins pólitískt
Morgunblaðið/Ásdís
Aftur Jón Ásgeir Jóhannesson kom
aftur fyrir dóm í gær.
Jón Gerald Sullenberger var yf-
irheyrður í gær. www.mbl.is/mm/
frettir/frett.html?nid=1255001
VEFVARP
VEGNA orða Arnars Jenssonar,
fyrrum yfirmanns í efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra, í Frétta-
blaðinu í gær, óskaði Tryggvi
Jónsson eftir því að árétta að lög-
reglumenn hefðu sagt hann vera
„aukaleikara“ í málinu og að hann
hefði fengið óformlegt tilboð um
að ef hann segði „satt og rétt frá“
myndi staða hans breytast.
„Ég fékk ekki skriflegt tilboð en
mér var sagt að mín staða myndi
breytast ef ég segði það sem þeir
kalla satt og rétt, eins og ég hefði
ekki gert það þá þegar. Þetta
finnst mér sýna hvaða hugarfar
starfsmenn ríkislögreglustjóra
höfðu alla tíð til málsins,“ sagði
Tryggvi.
Árétting