Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 27
Fréttir í tölvupósti
mælt með ...
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 27
www.leikhusid.is sími 551 1200
Þjóðleikhúsið fyrir alla!
STÓRFENGLEG!
PATREKUR 1,5
Strákarnir fara á kostum allir sem einn.
Ekki missa af stjörnuleik
Ólafíu Hrannar!
Aukasýning 23/2.
Allra síðasta sýning!
LEG
Forsýningar 1. 2. og 3. mars.
Allt að verða uppselt!
Tryggið ykkur ódýra miða!
eftir Hugleik Dagsson
Hvað er að gerast? Er allt að verða vitlaust?
Sýningar í Barbican leikhúsinu 28/2–10/3
Frumsýnt 8. mars. Fo
rsala hafin!
Frábær fjölskyldusýning!
SITJI GUÐS ENGLAR
Sýning laugardagskvöld kl. 20.00
Sýning sunnudag kl 14.00.
PÉTUR GAUTUR Í LONDON
PÉTUR OG ÚLFURINN
Uppselt, sala hafin á aukasýningar!
Þjóðleikhúsið í útrás.
Sjóminjasafnið
Frönsk safnanótt á Grandanum
www.sjominjasafn.is
Hristusmíð og hipphopp
Heimsdagur barna er liður í vetrarhátíð og verður
hann haldinn á morgun í Gerðubergi frá 13–18.
Það verður örugglega rosalega skemmtilegt fyrir
krakka og unglinga að fá þarna tækifæri til að kynnast
framandi menningu frá öllum heimsálfum í listsmiðjum.
Síðan verður karnivalstemning þegar afraksturinn úr
smiðjunum verður afhjúpaður. Auk þess verða ýmsar
skemmtilegar uppákomur í anddyri Gerðubergs.
Meðal þess sem börn geta kynnst í listsmiðjunum er
hringöndun, hipphopp, krump, salsa, hristusmíði,
ávaxtaútskurður, pappírsskreytingar, arabísk leturgerð
og víkinga- og vopnasmiðja.
Ástarsagnaeldur í Landnámssetri
Landið, náttúran, ástin og sagan verða í forgrunni á
tónleikum Vox Feminae í Landnámssetrinu í Borgarnesi
klukkan 20:30 í kvöld. Kórinn mun syngja undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur undir klettinum forna sem Skál-
inn í Landnámssetri hvílir á. Þetta ku vera elsta berg á
Vesturlandi og hljómburður þess með afbrigðum góður.
Talnahrollur
Heimsfrumsýning verður í Sambíóunum í kvöld á
kvikmyndinni The Number 23 sem skartar Jim Carrey í
aðalhlutverki. Myndin segir frá manni leiknum af Carrey
sem verður heltekinn af bók sem hann telur að segi frá
sínu eigin lífi. Grunurinn breytist svo í ofsóknarbrjálæði.
Geggjaðar prímadonnur
Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði frumsýnir hinn geggj-
aða gamanleik Prímadonnurnar í kvöld í Freyvangi. Um
Íslandsfrumsýningu er að ræða. Verkið er eftir Ken
Ludwig en Saga Jónsdóttir þýðir og leikstýrir.
Sófinn heillar
Ekki má gleyma því að slappa af um helgarnar og
hlaða batteríin fyrir átök vikunnar sem er framundan.
Hvað er þá betra en að henda sér upp í sófa með teppi og
góða bók og halda á vit ævintýra í hugarheimum.
Ljóð í skógi
Ársafn Borgarbókasafns býður til ljóðagöngu í Elliða-
árdal á morgun kl. 14. Þar hefur verið komið fyrir ljóðum
eftir ýmis íslensk skáld sem munu lífga anda og sál gesta
dalsins næstu vikurnar. Gönguna leiða þær Úlfhildur
Dagsdóttir og Jónína Óskarsdóttir en einnig munu
skáldin Einar Már Guðmundsson og Ingunn Snædal
slást í för. Lagt verður af stað frá Rafveituheimilinu og
tekur gangan rúma klukkustund.
Gullmót KR
Búast má við heilmiklu fjöri á Gullmóti KR um helgina
þar sem 580 sundmenn munu keppa í Laugardalslaug í
82 greinum. Hápunkturinn er svo KR Super Challenge
þar sem sterkustu sundmenn mótsins heyja sundeinvígi í
myrkvaðri laug undir ljósasýningu og tónlist.
Hvað er …?
Fyrsta sjónvarpsviðureignin í Gettu betur verður í
kvöld en þar munu Menntaskólinn í Kópavogi og Fjöl-
brautaskólinn í Garðabæ reyna gáfur sínar og minni. Til-
valið tækifæri til að spreyta sig á níðþungum spurn-
ingum og fá dágóðan skammt af skemmtun í leiðinni.
Sjörnuglit
Glæsikjólar og grátklökkar þakkarræður verða án efa
í fyrirrúmi á Óskarsverðlaunaafhendingunni sem fram
fer í Kodak-leikhúsinu í Los Angeles aðfaranótt mánu-
dags. Sýnt verður beint frá henni á Stöð tvö og hefst út-
sendingin klukkan 1:30 um nóttina en á undan verður
upphitunarþáttur sem hefst klukkan 1:00.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Morgunblaðið/Eggert
Reuters
Björn Ingólfsson tekur uppþráðinn frá því í gær vegna
tilborðsverðs á legsteinum:
Hvort legsteinninn minn verður bjarg
eða blý,
blár eða grænn eða rauður,
ég nenni ekki að vera að þvarga yfir því
þá verð ég hvort sem er dauður!
Hólmfríður Bjartmarsdóttir á
Sandi yrkir:
Ég held að loks þá ligg ég dauð
ég lítið hugsi um beinin.
Ég ætla að deyja alveg snauð
og engan panta steininn.
Þó mér einhver geri gröf
í garði kristilegum.
Efa ég ég eigi töf
á þeim drottins vegum.
Hvar sem liggja lúin bein
líklegra mér þætti
að ég gangi í einhvern stein
eftir fornum hætti.
Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd yrkir vegna
fyrirsagnar á viðtali við Guðjón
Arnar Kristjánsson í
Morgunblaðinu:
Karlinn í brúnni keikur er,
kotroskinn allt frá vöggu.
Lifandi hress hann leikur sér
laus við að sinna Möggu.
Enn af
legsteinum
VÍSNAHORNIÐ
pebl@mbl.is