Morgunblaðið - 23.02.2007, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
TUGIR starfsstétta á Íslandi og
víða um heim starfa eftir siða-
reglum. Sennilega má rekja siða-
reglur mjög langt aftur í tímann eða
til læknis þess sem Hippókrates var
nefndur og uppi var á
Grikklandi í fornöld.
Á miðöldum mótuðu
heimspekingar og guð-
fræðingar en síðar
læknar og lögfræð-
ingar þessar reglur.
Og eftir því sem sam-
félagið verður fjöl-
breyttara og fjölskrúð-
ugra, þá hafa nýjar
starfsstéttir sett sér
eigin siðareglur, allt
eftir eðli og sérhæfni
starfanna.
Athygli vekur að í
nýjustu siðareglunum kennir ýmissa
grasa. Þar er ekki einungis fjallað
um tengsl viðkomandi fagmanns við
skjólstæðing heldur einnig starfs-
kyldur gagnvart starfsfélögum og
samfélaginu, jafnvel atvinnurek-
endum. Allt er þetta mjög athygl-
isvert.
Ein mikilvægustu störf í íslensku
samfélaginu eru unnin á Alþingi Ís-
lendinga. Lög um kosningar til Al-
þingis gera einungis ráð fyrir sem
skilyrði til kjörgengis að þingmaður
hafi óflekkað mannorð. Því miður
eiga íslenskir þingmenn sér engar
siðareglur umfram þær sem gerðar
eru til almennra borgara. Einustu
skyldur sem vikið er að í stjórn-
arskrá er að þingmaður skuli und-
irrita drengskaparheit, hvaða skiln-
ing sem venjulegt fólk leggur svo í
það forna orðatiltæki. Ég leyfi mér
að efast um að allir þingmenn geri
sér almennilega grein fyrir hvað í
þessu felst. Í dag eru þingmenn á Ís-
landi einungis bundnir sannfæringu
sinni – rétt eins og hún kann að vera
á hverjum tíma! Þeir virðast hvorki
háðir kjósendum sínum né þing-
flokki. Aðrar skyldur leggur stjórn-
arskráin eða önnur landslög ekki á
herðar þingmanna.
Af og til hafa komið upp nokkur
leiðindamál sem e.t.v. hefði verið
unnt að koma í veg fyrir ef þing-
menn ættu sér siðareglur. Fyrir
nokkrum árum varð kunnur þing-
maður fyrir alvarlegum freistingum
sem leiddu til fangelsisdóms. Freist-
ingarnar geta verið mjög miklar
enda leynast þær víða.
Voru þetta mútur?
Umdeildur þingmaður rataði í
slæmar ógöngur, hann var flæktur í
ýmiskonar fjármála-
hneyksli í tengslum við
verktaka og vegna hús-
byggingar sinnar. Og
það voru ekki einungis
reikningar greiddir af
því opinbera heldur
mun þingmaður þessi
beiðnabók hafa haft
beiðnabók frá verk-
takafyrirtæki. Var t.d.
efni í húsbyggingu
þingmannsins einnig
greitt af fyrirtækinu!
Hér var um að ræða
mjög vafasöm sam-
skipti sem mikið var rætt um á sín-
um tíma en einungis kom til ákæru
hvað varðaði sumar umdeildar at-
hafnir þingmannsins.
Þá hafa á síðustu vikum og mán-
uðum verið gríðarlegar deilur í þing-
flokki nokkrum þar sem hver höndin
virðist vera upp á móti annarri.
Víða um heim eru ýmsar siða-
reglur sem snúa að þingmönnum.
T.d. eru lagðar þær kvaðir á þing-
menn í Bandaríkjunum að þegar
þeir taki við vissum trúnaðar-
störfum, t.d. ráðherraembætti, þá
beri þeim að selja eða koma af sér
hlutabréfaeign sinni í hendurnar á
öðrum til að koma í veg fyrir hags-
munaárekstra enda eru freistingar
nánast á hverju strái eins og reynsl-
an hefur oft leitt í ljós.
Hvers vegna hafa þingmenn á Ís-
landi ekki sett sér siðareglur? Svo
virðist að sumir þeirra telji sig ekki
hafa neinar skyldur gagnvart þjóð-
inni, kjósendum sínum eða félögum
sínum á þingi, flokki, samfélaginu né
neinum öðrum aðila. Þeir skipta um
flokka rétt eins og að skipta um skó.
Stjórnmálaflokkarnir verða einnig
að taka þátt í þessu!
Góð fyrirmynd fyrir þingmenn
Rétt er að lokum að vitna í Codex
ethicus Jarðfræðafélags Íslands. Þó
svo að texti siðareglna þessa félags
sé 5 bls. eru þau nefnd drög!
Eftir inngang er kafli sem fjallar
um almenn grundvallaratriði og fag-
leg vinnubrögð. Þar má lesa þetta
m.a.: „Heiðarleiki er grunnur allra
eðlilegra samskipta á milli manna og
því þarf starf sérhvers félaga JFÍ að
grundvallast á heiðarleika. Siða-
reglur miða að því að skýra og skil-
greina hvar og hvernig það hugtak á
við í starfi, í samskiptum félaga og
gagnvart almenningi. Félagi vinnur
af vísindalegri samviskusemi og hef-
ur í heiðri fagleg vinnubrögð þannig
að rannsóknir hans standist ströng-
ustu kröfur um fagmennsku. Hann
rökstyður mál sitt og forðast illa
grundaðar og órökstuddar fullyrð-
ingar“ (grein 1.1.). Ég hvet alla sem
málið varðar að skoða heimasíðu
Jarðfræðafélags Íslands: http://
www.jfi.is/
Á heimasíðunni Heimspekivef-
urinn (http://www.heimspeki.hi.is)
eru tilvísanir á margar heimasíður
þar sem fjallað er um siðareglur:
Fjarri er að sú skrá sé tæmandi. Þar
vantar siðareglur ýmissa mik-
ilvægra félaga t.d. bókasafnsfræð-
inga og leiðsögumanna svo dæmi séu
nefnd.
Nú er málefni þetta nokkuð ný-
stárlegt og því þarfnast það góðrar
kynningar. Spurning er hvort þing-
menn þurfi ekki sérstaklega að huga
að þessu máli m.a. í tengslum við
önnur mikilsverð mál t.d. við endur-
skoðun stjórnarskrár og setningu
laga um starfsemi og fjármál stjórn-
málaflokka.
Ljóst er að ef þingmenn störfuðu
eftir siðareglum mætti búast við að
virðing Alþingis ykist að sama skapi
og koma mætti í veg fyrir mörg
óþörf afglöp. Oft er þörf en nú er
nauðsyn!
Siðareglur og Alþingi Íslendinga
Guðjón Jensson fjallar um siða-
reglur og starfsemi Alþingis » Ljóst er að ef þing-menn störfuðu eftir
siðareglum mætti búast
við að virðing Alþingis
ykist að sama skapi og
koma mætti í veg fyrir
mörg óþörf afglöp.
Guðjón Jensson
Höfundur er forstöðumaður
bókasafns.
NÚ hafa orðið þau tímamót að
undirritaður hefur verið samn-
ingur um náið efnahagssamstarf
milli Íslands og Færeyja með full-
um réttindum fólks beggja vegna
viðkomandi Atlantshafsála. Þetta
skapar nýja sýn á framtíðina. Íbú-
ar á Norðaustur- og Austurlandi,
frá Siglufirði að Hornafirði eru
innan við 15% þjóðarinnar og
njóta ekki beint stuðnings hinna
háværustu í höfuðborginni. Með
því að snúa sér í ríkum mæli að
frændum sínum í Færeyjum gjör-
breytist aðstaðan. Ef lagður er
saman íbúafjöldi þessara „ná-
granna“ er hann rúmlega 30% af
fólksfjöldanum hér á landi og því
mun meira jafnræði á milli.
Höfuðáhersla yrði lögð á aukna
fjölbreytni atvinnulífsins og stuðl-
að að gróskumiklu menningarlífi.
Tvinna mætti saman háskóla á
Akureyri og í Þórshöfn. Þá gæti
háþróað heilbrigðiskerfi náð til
allra íbúanna og þannig mætti
lengi telja. Nú þegar er rætt um
samvinnu varðandi lagningu sæ-
strengja fyrir síma og jafnvel raf-
orku, sem Færeyingar gætu
hugsanlega greitt fyrir með olíu.
Sameiginlegur áhugi er á jarð-
göngum til þess að treysta byggð-
irnar og ferðamennskan hefur
lengi verið samtvinnuð og má bú-
ast við örum vexti. En í því sam-
bandi standa Færeyingar Íslend-
ingum mun framar að því er
varðar snyrtilega umgengni um
bæi og byggðir.
Að lokum er rétt að benda á að
Færeyingar ætla að opna ræð-
ismannsskrifstofu í Reykjavík.
Íbúum fyrir „norðaustan“ veitti
ekki af hinu sama, en kalla mætti
hana „talsmannsskrifstofu“ fyrir
siðasakir.
Valdimar Kristinsson
Norðausturríkið
Höfundur er viðskipta-
og landfræðingur.
KENNSLUSTARFIÐ er ólíkt
öðrum störfum. Kennari þarf að
geta brugðið sér í mörg hlutverk
sama daginn, jafnvel í sömu
kennslustundinni.
Hvert þessara hlut-
verka krefst hæfileika
og mikillar þjálfunar
sem ekki er endilega í
hávegum höfð í und-
irbúningsnámi.
Kennslustarfið get-
ur verið mjög slítandi
og snýst um fleiri
hluti en bara vænt-
umþykju fyrir nem-
endum. Það sést best
á þeim fjölda nýrra
kennara sem flytur
sig í annað starf inn-
an fyrstu fimm ár-
anna í kennslu.
En af hverju er
svona frábært að vera
kennari? Hvernig datt
mér í hug að leggja
þetta starf fyrir mig?
Ég held að gamli
kennarinn minn
(gömlu kennararnir
mínir) hafi, í mínu til-
viki alla vega, haft
hér mikið að segja.
Kennarinn minn
var einstaklega góður í að útskýra
hluti. Hvernig ýmislegt virkaði eða
hvernig hlutir gerðust. Einstaklega
mikilvægur hæfileiki að hafa þegar
hann var að útskýra allt milli him-
ins og jarðar.
Kennarinn minn hélt ávallt ró
sinni. Það kom vissulega oft fyrir
að það reyndi á þolinmæði hans og
eflaust hefur hann stundum viljað
öskra á nemendur, samstarfsmenn,
forráðamenn, stjórnendur eða aðra.
En eins og góðum kennara er tamt
stóðst hann ávallt mátið.
Kennarinn minn hafði alltaf tíma
fyrir mig. Hversu oft sem ég þurfti
að ræða um hluti, sem jafnvel
tengdust ekki námsefninu beint,
gaf hann af tíma sínum til að
hlusta af virðingu, væntumþykju og
alúð. Gefa mér góð ráð og kær-
leiksríkt viðmót.
Kennarinn minn hafði ein-
staklega skemmtilegt skopskyn og
hafði gott lag á að nýta sér það í
kennslu. Þar sannaðist líka að ef
kennslan er gædd ákveðnu skop-
skyni verður hún áhugaverðari fyr-
ir vikið.
Kennarinn minn var greinilega
að kenna á réttu aldursbili. Það
styð ég með þeim þáttum sem ég
taldi upp hér að framan, sér-
staklega hvað hann hafði mikla þol-
inmæði gagnvart okkur krökk-
unum.
Kennarinn minn hafði alltaf hrós
í pokahorni sínu. Hann var ein-
staklega snjall að finna réttan stað
og stund til að útdeila
því til okkar. Hvort
sem var fyrir góða
frammistöðu við verk-
lok eða til að hvetja
okkur enn frekar til
dáða í miðjum klíðum.
Kennarinn minn
hafði mikla víðtæka
þekkingu. Alltaf fannst
mér frábært hversu
mikið hann vissi í þeim
fjölmörgu náms-
greinum sem við lögð-
um stund á. Slíka
þekkingu nýtti hann til
að miðla til okkar með
nákvæmum en einföld-
um hætti því mark-
verðasta í hverju fagi
fyrir sig.
Kennarinn minn
hafði einstakt brjóstvit.
Ávallt var hann fljótur
að setja sig inn í að-
stæður og taka réttu
ákvarðanirnar. Hvort
sem um var að ræða
að stjórna í kennslu-
stofunni, leiða náms-
ferðir, stýra leikjum á skólalóð, að-
stoða kennaranema eða hvaðeina
sem laut að skólastarfinu, þá beitti
hann alltaf heilbrigðri skynsemi.
Kennarinn minn setti markið
hátt og hafði mikinn metnað. Það
skein í gegnum kennsluna hversu
umhugað honum var um að við
stæðum okkur alltaf framúrskar-
andi vel. Það var líka augljóst
hversu mikinn metnað hann hafði
fyrir okkar hönd og það smitaðist
strax út til okkar krakkanna.
Það gefur manni svo ótal margt
frábært að vera kennari og starfið
er hvort tveggja í senn hugsjón og
lífsstíll. Gömlu kennarana mína sé
ég nú í frábæru samstarfsfólki
mínu, kennarana í skólanum mín-
um. Þeir gefa af sér með brjóstviti
sínu, víðtækri þekkingu, skopskyni
og útskýringum. Hugsa um nem-
endur af alúð og væntumþykju.
Nálgast þá af virðingu og kærleik,
alltaf með hrós í pokahorninu. Þeir
sýna það vikulega, daglega, í hverri
kennslustund að kennsla er frá-
bært starf.
Kennsla er
frábært starf
Leifur S. Garðarsson fjallar um
kennslustarfið
Leifur S. Garðarsson
» Það gefurmanni svo
ótal margt frá-
bært að vera
kennari og
starfið er hvort
tveggja í senn
hugsjón og lífs-
stíll.
Höfundur er kennari og skólastjóri
Áslandsskóla í Hafnarfirði og metur
kennarastarfið að verðleikum.
Í TILEFNI af Vetrarhátíð
2007 óskar Borgarskjalasafn
Reykjavíkur eftir því að fá til
varðveislu skjöl
Reykvíkinga, bæði
rótgróinna og að-
fluttra. Safnið hefur
sérstakan áhuga á
dagbókum, sendibréf-
um, ljósmyndum,
póstkortum, tækifær-
iskortum og öðrum
persónulegum skjöl-
um. Skjölin verða
varðveitt fyrir kom-
andi kynslóðir til
fræðslu og upplýs-
ingar og hægt er að
setja aðgang-
stakmarkanir. Safnið óskar sér-
staklega eftir að fá til varðveislu
skjöl innflytjenda. Þau þurfa ekki
að vera á íslensku.
Íslendingum af erlendu bergi
brotnum fjölgar stöðugt og þeir
eru nú mikilvægur hluti af sögu
og menningu Íslands. Þeir hafa
tekið sig upp frá heimahögum
sínum af mismunandi ástæðum og
fest rætur á Íslandi um lengri eða
skemmri tíma. Innflytjendur eiga
sína fortíð og þeir flytja með sér
sína menningu og reynslu sem
blandast saman við heim okkar
sem fyrir erum. Saga þeirra er
orðin hluti af sögu okkar.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
hefur áhuga á að varðveita þessa
sögu með því að fá skjöl innflytj-
enda til varðveislu. Þjóðerni, at-
vinna eða aldur skipt-
ir ekki máli og heldur
ekki á hvaða tungu-
máli skjölin eru. Skjöl
eru til dæmis hand-
skrifuð bréf, út-
prentun á tölvubréf-
um, dagbækur og
ljósmyndir. Sömuleið-
is væri fróðlegt að fá
sendar frásagnir af
því hvernig er að
setjast að á Íslandi
og sögur af bak-
grunni innflytjenda.
Borgarskjalasafn
óskar eftir skjölum einstaklinga af
erlendu bergi brotinna, fjöl-
skyldna þeirra og ekki síst félaga
innflytjenda. Skjölin sem afhent
eru geta verið allt frá einu bréfi
til stærri safna og bæði frá ár-
unum áður en flutt var til Íslands
sem og frá tímanum á Íslandi.
Þau verða skráð af starfsmönnum
Borgarskjalasafns og varðveitt í
skjalageymslu safnsins. Hægt er
að setja takmarkanir á aðgang, til
dæmis þannig að enginn megi
skoða þau í ákveðinn tíma án leyf-
is viðkomandi.
Skjöl innflytjenda eru mikilvæg
til að skrá og varðveita sögu
þeirra sem einstaklinga og hóps
fyrir framtíðina. Það væri mikill
missir ef saga þeirra glataðist.
Þeir sem eiga eða vita um áhuga-
verð skjöl, hvort sem það eru
skjöl rótgróinna Reykvíkinga eða
innfluttra, eru hvattir til að hafa
samband við starfsmenn Borg-
arskjalasafns og kanna hvort það
vilji fá skjölin til varðveislu.
Til að fá nánari upplýsingar haf-
ið samband í síma 563 1770, sendið
póst á netfangið borgarskjalasafn-
@reykjavik.is eða komið á safnið
frá mánudegi til föstudags milli kl.
10 og 16 í Tryggvagötu 15, 3. hæð,
Reykjavík. Safnið getur útvegað
túlkunarþjónustu ef óskað er.
Mikilvægt að varðveita heim-
ildir um nýja Íslendinga
Svanhildur Bogadottir fjallar
um varðveislu skjala um Íslend-
inga af erlendum uppruna
» BorgarskjalasafnReykjavíkur óskar
eftir að fá til varðveislu
skjöl innflytjenda, til
dæmis bréf, dagbækur
og ljósmyndir.
Svanhildur Bogadóttir
Höfundur er borgar-
skjalavörður í Reykjavík.