Morgunblaðið - 23.02.2007, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hlynur Heið-berg Konráðs-
son fæddist í
Reykjavík 5. mars
1973. Hann lést af
slysförum 8. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Konráð Eggerts-
son, f. 5. maí 1952,
og Jakobína Guð-
mundsdóttir, f. 14.
apríl 1950. Systir
Hlyns er Perla
Lund Konráðs-
dóttir, f. 28. apríl
1976, sambýlismaður Högni
Hallgrímsson, f. 12. október
1973, börn þeirra eru Salka
Heiður, f. 8. mars 2005, og Katla
Móey, f. 9. janúar 2007.
Sonur Hlyns og Sigríðar Önnu
Ásgeirsdóttur, f. 8. apríl 1972,
er Hugi Snær, f. 13. september
2000.
Unnusta Hlyns er Rósa Hjörv-
ar, f. 28. september 1980.
Hlynur ólst upp fyrstu árin í
Reykjavík en fluttist
fjögurra ára gamall
til Húsavíkur þar
sem fjölskyldan bjó
næstu átta árin. Þá
fluttist fjölskyldan
til Akureyrar og bjó
þar í fimm ár. Lá þá
leiðin aftur til
Reykjavíkur. Hlyn-
ur stundaði nám í
Iðnskólanum í
Reykjavík og lauk
námi af tölvubraut.
Hann vann ýmis
störf á sumrin og í
námsleyfum, s.s. hjá Sanitas,
DNG og Blikksmiðjunni Höfða.
Að námi loknu starfaði Hlynur í
upplýsingatæknigeiranum, með-
al annars hjá Friðriki Skúlasyni,
Netverki, Landsbankanum og
Reykjavíkurborg. Nú síðast
starfaði hann hjá Iceland Ex-
press.
Útför Hlyns verður gerð frá
Seljakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku Brósi. Ég get ekki skilið að
þú sért farinn frá okkur. Ég get
ekki skilið að ég fái aldrei að knúsa
þig aftur, aldrei að labba niður
Laugaveginn með þér aftur, aldrei
að fara í hádegismat með þér aftur,
aldrei að plana afmælis- og jólagjaf-
ir með þér aftur, aldrei að syngja
„Þrjú tonn af sandi“ með þér aftur,
aldrei að djamma með þér aftur,
aldrei að sjá þig knúsa sólargeisl-
ann þinn hann Huga Snæ aftur,
aldrei að brosa út að eyrum að
uppátækjum Sölku Heiðar aftur.
Ég get ekki skilið að Salka Heið-
ur og Katla Móey fái ekki að kynn-
ast þér, get ekki skilið að við verð-
um ekki aftur samankomin öll
fjölskyldan í Litlahjallanum í
sunnudagssteik, get ekki skilið að
við rífumst ekki aftur um besta bit-
ann á lambalærinu, get ekki skilið
að það verði ekki fleiri heimsóknir,
ekki fleiri símtöl, ekki fleiri emailar,
ekki fleiri msn-samtöl, ekki fleiri
sms. Ekkert.
Tilhugsunin er mér ofviða.
Þú sem varst svo góður, alltaf svo
góður við litlu systur, passaðir hana
svo vel. Þú varst svo glaður þegar
við Högni fórum að vera saman og
þegar við stofnuðum fjölskyldu. Þú
varst svo ánægður með litlu frænk-
ur þínar.
Þú varst svo skemmtilegur,
fékkst fólk til að hlæja, með kenn-
ingunum þínum, skilgreiningum og
ótal sögum. Þér þótti gaman að
segja sögur og varst góður í því, ég
gat hlegið að sögunum þínum þótt
ég hefði heyrt þær hundrað sinnum.
Þú varst svo ótrúlega stoltur
pabbi. Hugi Snær var svo sannar-
lega stolt þitt og gleði. Þið voruð
svo miklir félagar. Missir hans er
svo ólýsanlega mikill.
Ohh, elsku Hlynur, hvernig gat
þetta gerst? Hvernig getur einhver
hlotið svo grimmileg örlög ? Hvern-
ig getur lífið verið svona óréttlátt?
Þú sem ætlaðir að hætta að vinna
um sextugt, flytja til Spánar og
rækta þinn eigin vínvið, já, þá ætl-
uðum við að kunna að segja meira á
spænsku en bara „hestar borða ekki
kjúklinga“.
Við Högni söknum þín ótrúlega
mikið, þú varst svo stór hluti af lífi
okkar beggja. Það verður átak að
halda lífinu áfram án þín, en við
verðum. Við eigum ótal minningar
um þig til að ylja okkur við og segja
dætrum okkar frá.
Ég elska þig.
Þín systir,
Perla Lund.
Hörmulegt dauðsfall ungs manns
veldur jafnan almennri hryggð í fá-
mennu samfélagi, en næsta óvænt
að okkur skyldi vera jafn brugðið
sem raun varð á og gripin svo sár-
um söknuði við andlátsfregn
óskylds manns, sem við höfðum að-
eins hitt einu sinni eða tvisvar í
margmenni en þekktum einungis af
umtali vina hans og kunningja, sem
skilur eftir leifturmyndir af einstak-
lega góðum og skemmtilegum fé-
laga og vini, sem aldrei var til ama,
en vakti glaðværð og skapaði hlýju
hvar sem hann fór og raunar líka
þar sem hann var væntanlegur;
góðum syni og bróður og um-
hyggjusömum föður. Og okkur
fannst við ekki síst hafa kynnst hon-
um í svip og orðum dóttur okkar,
sem nýlega hafði bundist honum svo
að ætla mátti að við fengjum að
hafa meira af honum að segja í ná-
inni framtíð.
En það átti ekki að verða og veld-
ur söknuði sem lengi mun vara. Sá
söknuður veitir okkur ofurlitla inn-
sýn í þá þungu sorg sem hans nán-
ustu heima á Íslandi þurfa nú að
líða.
Þeim vottum við öllum innilega
samúð.
Helga og Úlfur Hjörvar,
Kaupmannahöfn.
Við heyrðum það á haustdögum á
henni Rósu okkar að það sem Hlyni
Konráðssyni fannst og sagði og
gerði þótti henni merkilegra en
annað. Skemmtilegt var að kynnast
mannkostum hans í þeim vonglöðu
frásögnum og seinna honum sjálf-
um. Það er eins og verið hafi í gær
að við fögnuðum öll saman áramót-
unum hér á þakinu á Hólavallagöt-
unni. Hvað nýja árið bar í skauti sér
vissi þá enginn. Og varla að við vit-
um það enn svo óskiljanleg sem ör-
lög geta verið. Framtíðin björt er í
einni svipan minning ein.
Þeim sem mest hafa misst og ást-
vinum hans öllum sendum við okkar
hlýjustu samúðarkveðjur.
Helgi Hjörvar, Þórhildur
Elín og dætur.
Elsku Hlynur minn. Það er skrýt-
ið að hugsa til þess að þú sért farinn
og komir ekki aftur. Ég hafði ein-
hvern veginn aldrei búist við því að
þú færir úr minni tilveru jafnhratt
og við kynntumst. Þegar við kynnt-
umst fann ég strax ákveðnar taugar
á milli okkar sem erfitt er að lýsa
með orðum og sérstaklega á tíma
sem þessum. Það var svo margt við
þig sem gerði þig öðruvísi en okkur
hin og þú varst á margan hátt mesti
sérvitringur en um leið ótrúlega
skilningsríkur og umburðarlyndur
gagnvart öðru fólki og skoðunum
þess. Aldrei fannst mér ég verða
„fórnarlamb“ sérvisku þinnar og
þótt við værum ólíkir á mjög mörg-
um sviðum tókst okkur einhvern
veginn alltaf að mætast einhvers
staðar þar sem báðir voru sáttir. Þú
kunnir að njóta lífsins og þá oftar
en ekki þessara litlu hluta sem við
hin látum oft fara fram hjá okkur án
þess að hugsa. Til dæmis gastu búið
til lúxusmáltíð úr pylsum og nostrað
við að elda góðan mat á meðan ég
sat nýskriðinn að heiman frá
mömmu og kunni ekki að sjóða egg.
Aldrei kom ég að tómum kofun-
um hjá þér við að spjalla um heima
og geima og komst að því með tím-
anum að þú hafðir ótrúlega gaman
af því að spá og spekúlera í ólíkleg-
ustu hlutum og hafðir oftar en ekki
auga fyrir hlutum sem ekki allir
komu auga á og spáðu í. Það var svo
gaman að fylgjast með því hvernig
þú spáðir í fólk og varst í raun bú-
inn að útspekúlera heilu hópana í
mannlífsflórunni og hafðir lag á því
að sjá fyrir hegðun og viðbrögð frá
fólki við hinar ýmsu aðstæður. Þú
varst kannski svolítill prófessor inni
við beinið. Þú áttir alltaf auðvelt
með að kynnast nýju fólki og eign-
ast vini og þér hafði til dæmis tekist
að verða vinur mömmu minnar, sem
þótti ótrúlega vænt um þig, litla
bróður míns og margra vina minna
án þess að ég kæmi þar nærri eða
væri viðstaddur. Þú áttir enga óvini
en marga vini.
Hlynur, það er ekki hægt að
minnast þín án þess að hugsa til
hlaupa-maníunnar sem greip okkur
nánast frá fyrsta degi, fyrsta hlaup-
ið okkar fram og til baka Nýlendu-
götuna (alla 650 metrana) verður
trúlega seint talið merkilegur ár-
angur þar sem við vorum báðir úr-
vinda eftir þetta. Hins vegar gerð-
um við einhvern veginn þessi
blessuðu hlaup, sem hófust sem
grín, að einhverju sem við áttum
saman og ég man hvað við vorum
ánægðir með að stunda eitthvert
smá heilbrigt líferni sem nokkurs
konar mótvægisaðgerðir við aðra og
síður heilbrigða hluti. Þú kallaðir
þetta Debet-Kredit líf. Það er svo
gaman að hafa hlaupið þessi hlaup
með þér og farið öll þessi ár í
Reykjavíkurmaraþonið og ekki síst
þegar því fylgdu hrekkirnir gagn-
vart Gústa vini okkar. Alltaf gátum
við fundið okkur eitthvað að brosa
og hlæja að og húmorinn þinn var
hárbeittur og það var alltaf eitthvað
skemmtilegt sem spannst úr vit-
leysunni sem okkur datt í hug. Síð-
ustu árin fannst mér vinskapurinn
okkar breytast og ég skil það
kannski fyrst núna að við vorum
orðnir ótrúlega góðir vinir og sálu-
félagar því það þurfti ekki endilega
orðin til þess að við skildum hvor
annan. Ég er svo glaður að við
skyldum ná að hittast rétt áður en
þú kvaddir og mér fannst þú vera
svo sáttur við lífið og tilveruna og
ég sá alveg þegar þú varst að glotta
að því hvað ég var ótrúlega brösu-
legur það kvöld og ég veit hvað þú
hugsaðir. Ég var svo ánægður með
hvað þú varst stoltur faðir og tókst
hlutverk þitt gagnvart Huga alvar-
lega, við vorum kannski bara byrj-
aðir að þroskast aðeins. Ég finn til
með þínum nánustu því missirinn er
mikill. Konni, Bína, Perla, Högni og
Rósa mín, ég vil að þið vitið að hug-
ur minn er hjá ykkur. Hlynur minn,
það er sárt að missa þig og ég veit
að ég mun ekki hitta neinn í líkingu
við þig aftur á lífsleiðinni en á sama
hátt er svo auðvelt að minnast þín
því stundirnar eru allar svo góðar.
Ég er þakklátur og stoltur af að
hafa fengið þessi ár með þér, elsku
vinur. Það er bara einn Hlynur.
Almar Örn Hilmarsson.
Vel sé þér, vinur,
þótt vikirðu skjótt
Frónbúum frá
í fegri heima.
Ljós var leið þín
og lífsfögnuður,
æðra, eilífan
þú öðlast nú.
(Jónas Hallgrímsson.)
Fallinn er í valinn Hlynur Heið-
berg Konráðsson, Norðlendingur er
átti sér ólgandi anda, blik í augum
og bros sem bar í senn vott um
glettni og góðan þokka. Vinahóp-
urinn stendur hnípinn eftir á ögur-
stundu og minnist glaðværra sam-
funda sem nú eru taldir í kjölfar
óskiljanlegs harmleiks á erlendri
grundu. Í einu vetfangi er mannslíf
horfið og spurningum, bornum fram
af veikum mætti, ósvarað. Hver má
þýða heilög ragna ráð? Æðruleysið
er okkar eina haldreipi í bölsins
brimi. Nú er ráð að líta fram á veg-
inn en minnast jafnframt samskipta
okkar við Hlyn þau ár sem þeirra
naut við. Við vinirnir höfum um
nokkurt skeið skipað hóp sem hitt-
ist fjórum sinnum yfir árið og ræðir
landsins gagn og nauðsynjar. Er
þar „farið yfir stöðuna“ eins og við
köllum það gjarnan. Þessum hópi
tilheyrði Hlynur síðustu ár og var
þar ávallt hrókur alls fagnaðar.
Naut sín þar einkum fínstillt skop-
skyn hans auk hins næma auga fyr-
ir mannlífinu sem oftar en ekki
horfði frá öðrum sjónarhóli en okk-
ar hinna. Við þetta bættist sú náð-
argáfa margra, er rekja kyn sitt
norður um land, að Hlynur var
býsna góður sögumaður og kunni
þá list að glæða frásagnir sínar lif-
andi sagnaanda sem hélt hlustend-
um föngnum.
Við félagarnir brugðum undir
okkur betri fætinum í fyrravor og
dvöldumst helgarlangt í Kaup-
mannahöfn enda sumir okkar ýmist
með annan eða báða fætur erlendis
vegna atvinnu. Ekki lét Hlynur sig
vanta í þá för enda hefði okkur þótt
dauf vistin án hans. Áttum við þar
geislandi samverustund sem okkur
þótti mikils um vert enda ekki
áhlaupaverk að finna eina helgi sem
hentar öllum þegar barnauppeldi og
sífellt umsvifameiri starfsskyldur
knýja dyra með auknum þunga.
Gott er nú að líta til þessarar farar
þegar svo mikið og illt skarð er fyrir
skildi sem raun ber vitni. Margt er
auðvitað minnisstætt þaðan en
strax kemur upp í hugann sú for-
gangsstaða sem ungur sonur Hlyns
skipaði í huga hans. Var honum
mjög umhugað um að velja drengn-
um gjöf til að færa honum við heim-
komuna og var allur hópurinn tek-
inn með í leiðangur um
leikfangaverslanir borgarinnar sem
við töldum okkur auðvitað bæði ljúft
og skylt.
Við færum Hlyni Konráðssyni
okkar hinstu kveðju með virðingu
og þökk fyrir þau góðu kynni sem
seint líða okkur úr minni. Aðstand-
endum hans biðjum við allrar bless-
unar og vottum okkar dýpstu sam-
úð á sorgarstundu.
Atli Steinn, Birgir, Páll
Egill og Regin Freyr.
Í dag kveðjum við góðan vin,
Hlyn Heiðberg Konráðsson.
Leiðir okkar strákanna lágu fyrst
saman þegar Hlynur flutti til Ak-
ureyrar fyrir rúmum 20 árum. Á
Akureyri eignaðist þú marga vini,
meðal þeirra vorum við, og hefur
vinskapurinn haldist alla tíð. Þó svo
að við héldum allir okkar leið að
loknu námi og dreifðumst um allt
land hélt þessi vinahópur alltaf sam-
bandi.
Þú varst virkilega trúr og traust-
ur þínum vinum og alltaf tilbúinn að
gera eitthvað skemmtilegt með okk-
ur.
Við eigum margar góðar minn-
ingar um þig sem við munum
geyma með okkur um ókomna tíð.
Það var okkur mikið áfall að
frétta af fráfalli þínu og sorg okkar
er mikil. En við gleðjumst yfir því
að hafa kynnst þér og erum þakk-
látir fyrir þær stundir sem við átt-
um saman.
Við vottum fjölskyldu Hlyns okk-
ar dýpstu samúð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem)
Þínir vinir
Gunnar Níels, Hilmar Þór,
Ingi Þór, Þorvaldur Egilson
og Vernharð.
Elsku Hlynur minn, símtalið sem
ég fékk frá Perlu, systur þinni, er í
þoku, ég heyrði það sem hún sagði,
en samt ekki. Þegar við byrjum
saman 10. mars 1989 erum við ung
og leikum okkur, með allt lífið fram-
undan. Svo þegar foreldrar þínir
ákváðu að flytja til Reykjavíkur
skelltum við okkur í að taka bíl-
prófið, þú hafðir nú ekki mikinn
áhuga á því. En svo hættir þú líka
að keyra! Það var svo ekki fyrr en
10 árum seinna að þú fórst að keyra
til að geta verið meira með honum
Huga Snæ, syni þínum, sem er þitt
stolt og yndi.
Það er svo margt sem mig langar
til að rifja upp með þér Hlynur
minn, en ég ætla bara að hlaupa yfir
nokkur skemmtileg tímabil og atvik.
Því við eigum svo margar góðar
minningar saman.
Við vorum mjög dugleg að flytja
eftir að við komum til Reykjavíkur,
en þó stendur upp úr hjá mér
Laugavegurinn og Bollagatan. Það
var yfirleitt alltaf einhver í heim-
sókn eða einhver sem fékk að gista
á sófanum eina nótt og jafnvel fleiri.
Ég held að við höfum verið ein-
staklega dugleg að ganga á þessum
árum! Manstu þegar við fórum í
sumarbústaðinn hjá mömmu minni
og pabba, Sverrir fór úr axlarlið,
sem var nú ekkert nýtt, og svip-
urinn á pabba þegar hann kom dag-
inn eftir og sá tvær veiðistangir á
pallinum! Eða þegar við giftum okk-
ur í göngugötunni á Akureyri í hópi
fjölda fólks einhverja nóttina, og
hringurinn var kókflipi.
Svo þegar við fórum til Spánar og
Portúgals, en ekki varst þú mikið
fyrir sólina, Hlynur minn, þú varst
alltaf mjög fljótur að finna þér
skuggsælan stað. Eins og þegar þú
og Sverrir voruð í sundlauginni og
Sverrir gleymdi sér aðeins og var
bara hálfur í skugganum. Rosalega
hlógum við um kvöldið þegar eft-
irköstin komu í ljós! Þegar okkar
tæplega níu ára sambandi lauk gat
ég samt alltaf talað við þig og leitað
til þín með allt á milli himins og
jarðar. Og þú sagðir, eins og for-
eldrar þínir sögðu líka, að ég losnaði
ekkert úr þessari fjölskyldu þó að
við værum hætt saman. Enda var
það ekki inni i myndinni og verður
aldrei, þetta er mín fósturfjöl-
skylda. Og þegar ég sagði foreldr-
um þínum að ég væri ófrísk að eldri
dóttur minni varð mamma þín svo
glöð yfir því að vera að fá fyrsta
„ömmubarnið“ og nokkrum heim-
sóknum síðar sagðist hún vera að fá
annað ömmubarn, Hlynur væri að
verða pabbi líka, mánuði á eftir
mér! Það var svolítið fyndið og við
hlógum mikið að þessu. Þú tókst
þér alltaf tíma til að koma og spjalla
við mig. Við gátum talað saman um
allt, okkur í den og okkur núna.
Börnin okkar og hvað við værum
ferlega montin af þeim, sem segir
ansi mikið um hversu gott og ein-
stakt samband við áttum.
Ég get ekki vanist þeirri hugsun
að þú munir ekki oftar hringja í mig
eða senda mér sms. Ég veit að ég á
ósjálfrátt eftir að skyggnast um eft-
ir þér. Ég náði hvorki að kveðja þig
né þakka þér fyrir öll árin okkar
saman en ég vona að þessi orð nái
til þín þrátt fyrir allt og ég mun
ávallt hugsa til þín og sakna þín, þú
munt alltaf eiga vissan stað í mínu
hjarta.
Elsku Bína, Konni, Perla og Hugi
Snær. Hjarta mitt er hjá ykkur á
þessum erfiðu tímum og mun ávallt
vera.
Halldóra.
Okkur langar til að minnast með
nokkrum orðum bjarta og svipfal-
lega unga mannsins sem kom inn í
líf okkar árið 2001. Hann varð einn
af fjölskyldunni í nokkur ár og
sannur vinur allt til hinsta dags.
Hlynur var á margan hátt óvenju-
legur maður og þess vegna einstak-
lega eftirminnilegur. Í honum sam-
einaðist margt það besta sem eina
manneskju má prýða. Þar má telja
einstakar gáfur og fjölþætta hæfi-
leika, frumlega hugsun og kjark til
að takast á við ögrandi viðfangsefni.
Hann var samhliða þessu mjög við-
kvæmur og næmur, eiginlega feim-
inn. Þannig að hann var að mörgu
leyti maður mikilla andstæðna.
Við töluðum stundum um það
okkar í milli að Hlynur væri eins og
persónugervingur fyrir kynslóð
Hlynur Heiðberg
Konráðsson