Morgunblaðið - 23.02.2007, Page 60
60 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
vilja leggja sitt af
mörkum til að hægja á
hlýnun hnattarins.
Víkverji telur að þetta
sé vitlaus stefna hjá
bílaumboðunum. Það
er fullt af fólki, sem
velur bíla út frá því
hversu umhverf-
isvænir þeir eru, en
ekki vélarstærð eða
hestaflafjölda.
x x x
Bílastæðið við Leifs-stöð stækkar ár
frá ári. Þegar mikið er
að gera í millilanda-
fluginu og margir bílar
á stæðinu er göngutúrinn frá bíla-
stæðinu inn í flugstöð stundum orð-
inn harla langur, iðulega í alveg
hreint afleitu veðri.
Flugstöðin hlýtur að hafa gríð-
arlegar tekjur af vaxandi flug-
umferð, og auðvitað líka af stöðu-
gjöldum þeirra, sem leggja bílum
sínum við stöðina og borga ekki lágt
verð fyrir. Er ekki löngu tímabært
að eitthvað af þessum peningum
verði notað til að byggja bílastæða-
hús, sem tengist Leifsstöð sjálfri
með undirgöngum eða tengigangi –
svona til að draga úr hættunni á að
fólk verði úti á leiðinni úr bílnum
sínum og inn í innritunarsal?
Undanfarið hefurverið athygl-
isverð umfjöllun í
Morgunblaðinu um
dísilbíla. Þar hefur
m.a. komið fram að
þeir eru miklu um-
hverfisvænni en benz-
ínbílar; eyða minna
eldsneyti og losa
langtum minna af
gróðurhúsaloftteg-
undum. M.a. hefur
verið spurt hvers
vegna dísilolía sé ekki
höfð mun ódýrari en
benzín (ríkið ræður
því) til að hvetja fólk
til að aka dísilbílum og
hvers vegna dísilbílarnir séu ekki
líka hafðir ódýrari í innkaupum
(ríkið ræður því líka).
Víkverja finnst þriðja spurningin
eiga erindi í umræðuna. Af hverju
markaðssetja bílaumboðin ekki dís-
ilbílana sem umhverfisvænan kost?
Víkverji á bíl, sem hægt er að fá
með tiltölulega lítilli dísilvél, en líka
með miklu kraftmeiri og stærri – og
umhverfisfjandsamlegri og dýrari –
benzínvél. Í auglýsingum og kynn-
ingarefni umboðsins er áherzlan
lögð á að með stóru benzínvélinni
fái maður kraftinn og sportlegheit-
in, en ekkert er gert úr því að dís-
ilbíllinn sé kosturinn fyrir þá, sem
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu
og mig hólpinn leiða inn í sitt himneska ríki. Hon-
um sé dýrð um aldir alda! Amen. (Tím. 4, 18.)
Í dag er föstudagur
23. febrúar, 54. dagur
ársins 2007
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Til þeirrar stórorðu konu
Ég las grein þína, Margrét Jóns-
dóttir, sem birtist 18. febrúar og er
hún að mörgu leyti athyglisverð. Þú
skrifar um hjartnæma ræðu Haralds
Benediktssonar og hina kjörkuðu
þingmenn, að ógleymdum bóndaó-
mögunum. Ég ætla nú ekki að fara
að kryfja þína grein til mergjar, mér
finnst eins og hún sé þegar merg-
sogin eins og þú berð hana á borð
fyrir landsmenn. Ég ætla ekki að
telja mig ómaga ríkisins, þessi 46 ár
sem ég tilheyrði bændaklúbbi Ís-
lands, né nokkurn annan bónda sem
stundaði og stundar búskap eftir að
þessar beingreiðslur komu til sög-
unnar. Nokkur ár eru síðan hætt var
að niðurgreiða kjötið sem þið fenguð
á borð ykkar. Hver tók þá á sig nið-
urgreiðsluna, var það ríkið? Þá
heyrðist ekki að landsmenn allir, ut-
an bændur, væru upp á þjóðina
komnir. Svo kom að því að þessu var
hætt og malarbúinn varð að borga
fullt verð fyrir kjötið sitt. Þá hófst
söngur um hvað bændur okruðu á
landslýð því auðvitað rennur það
beint í vasa bóndans, andvirði alls
þess. Ég man eftir hæsta verði á
kjötkílói þegar ég hætti hokri, það
var svokallaður stjörnuflokkur, lið-
lega 400 kr. fyrir kg. til bóndans. Nú
er kílóverð á lambslæri í Bónus um
1400 kr. og þykir ódýrt, og aðrir
hlutar lambsins í samræmi við það.
Hver ætli fái mismuninn? Þessi
kona, Margrét Jónsdóttir, og hennar
líkar ættu að vera komin út í ógróinn
afdal með skóflu og haka og vinna
sér þar grænmetislund og hafa sem
lifibrauð. Þá fyndi hún í hvað hún
eyddi orku sinni. Hún getur lifað án
lambakjöts og er það vel, en ekki
hugsa ég að landsmenn hennar allir
séu á sama máli. Að byggja bú frá
grunni krefst meiri orku til sálar og
líkama en að rétta málara pensilinn
eða skola pensla sem mér finnst
þessi kona vera allfær um. Réttur
bænda til ákvörðunar um fram-
leiðslu á kjöti var tekinn af þeim og
bundið í lögum hvað þeir skyldu
framleiða mikið. Svo var sá réttur af
þeim tekinn og þeim úthlutað fram-
leiðslurétti, sem bóndi á hverri jörð
átti. En ekki dugði það lengi. Nokk-
ur ár liðu, þá skyldi jarðareigandi
eiga kvótann, jafnvel þó að þessi
jarðareigandi hefði aldrei stundað
búskap. Í því lenti svo leiguliði sem
var gerður eignalaus öryrki að bú-
skap loknum. Margrét Jónsdóttir
talar um að sauðkindin blessuð sé að
eyða öllum jarðargróðri, mér finnst
ég nú hafa annað að segja. Eftir þau
rúm 40 ár, sem liðin eru síðan ég yf-
irgaf Keldudal í Dýrafirði, hefur
honum heldur hnignað en blómstr-
að, og tel ég að þar vanti sauð-
kindina. Allur er hann uppblásinn af
mosaþembum og sinu, svo það er
varla gangfært um hann að sumri til.
Sauðkindin nærist á gróðri eins og
allir vita og hún skilar líka arði, til
þess bletts sem hún borðar af. Hún
lætur ekki úrgang sinn í gler- eða
postulínsskálar sem rándýrar
leiðslur skila út í sjó, eins og við ger-
um. Því veldur sá sem er í tvíriti, og
veldur mengun sem maðurinn verð-
ur að ganga frá nú á dögum.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir.
Akureyrarvöllur
VIÐ nokkrir íbúar á Akureyri viljum
koma á framfæri kæru þakklæti fyr-
ir borgarafundinn sem vinir Ak-
ureyrarvallar efndu til í Sjallanum
15. febrúar sl. um framtíð vallarins.
Þarna voru flutt mjög góð og upplýs-
andi framsöguerindi, og eins hjá
öðrum ræðumönnum, þar á meðal
þjálfurunum, sem þarna töluðu.
Einnig kærar þakkir til Kristjáns G.
Arngrímssonar blaðamanns fyrir
greinina í Mbl. 20. febrúar sl.,
„Grænt á Akureyri“, þar voru orð í
tíma töluð. Meira af svo góðu, Ak-
ureyringar eða aðrir. Við vonum að
bæjarstjórnin á Akureyri beri gæfu
til að láta Akureyrarvöll vera áfram
á sínum stað og þjóna þeim tilgangi
sem honum var ætlað frá upphafi.
Annað væri hróplegt umhverfisslys
sem ekki yrði bætt.
Nokkrir Akureyringar.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað.
Samþykki afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-
1100, senda tilkynningu og mynd
á netfangið ritstjorn@mbl.is, eða
senda tilkynningu og mynd í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja liðinn
"Senda inn efni". Einnig er hægt
að senda vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÓSKARS-
TILNEFNINGAR
8
BYGGÐ Á
METSÖLU
SKÁLDSÖGU
PATRICK
SÜSKIND
eee
VJV, TOPP5.IS
ÓSKARSTILNEFNING1
BREAKING AND ENTERING kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 9:30 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 - 7:50 LEYFÐ
BABEL kl. 10:40 B.i. 16 ára
BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 5:50 LEYFÐ
MAN OF THE YEAR kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
ROCKY BALBOA kl. 8 B.i. 12 ára
PERFUME: THE STORY OF A MURDERER kl. 10:10 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
BREAKING AND ENTERING kl. 8-10 B.i. 12 ára
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 6 LEYFÐ
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára
HANNIBAL RISING kl. 10:10 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BREAKING AND ENTERING
JUDE LAW JULIETTE BINOCHE ROBIN WRIGHT
Með “Íslandsvininum og sjarminum Jude Law” ásamt óskarsverðlauna leikkonunni Juliette Binoche
Frá leikstjóra English Patient og Cold Mountain
Stærsta fjölskyldumynd í Bandaríkjunum árið 2007
Frá þeim sömu og færðu okkur
Chronicles Of Narnia:
The lion, the witch and the wardrobe