Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson,
bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
REYKJAVÍKURBORG mun ganga
til viðræðna í þessari viku við eigend-
ur húsa sem urðu eldi að bráð síðasta
vetrardag um kaup á húsunum og lóð-
um þeirra. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri sér fyrir sér að end-
uruppbyggingu húsanna geti lokið á
tveimur árum, gangi allt að óskum.
Hann segir mestu skipta að vinna
verkið hratt og vel.
„Við gerum þetta ekki síst til að
hraða uppbyggingu eins og kostur
er,“ sagði Vilhjálmur. „Einnig til að
tryggja að götumyndin haldi sér og
verði sem næst því sem hún var.“
Fagfólk mun nú
skoða rústirnar og
kanna hvað hægt
er að nýta úr þeim
við endurupp-
byggingu. Eftir
það verða rústirn-
ar fjarlægðar og
taldi Vilhjálmur
það þurfa að ger-
ast innan tveggja
vikna.
Hugmyndin er að borgin standi
fyrir byggingu húsa á lóðunum í stað
þeirra sem brunnu. Með í ráðum
verða Minjavernd, borgarminjavörð-
ur og Húsafriðunarnefnd. „Ég vil sjá
þetta sem næst upprunalegri mynd,
nú er tækifæri til þess. Svona upp-
bygging hefur tekist ágætlega, eins
og í Aðalstræti,“ sagði Vilhjálmur.
Hann sagði vel koma til greina að
borgin seldi eignirnar að hluta til síð-
ar. Óráðið er hvaða starfsemi verður í
endurbyggðu húsunum, en Vilhjálm-
ur kvaðst þó ekki gera ráð fyrir að þar
yrði skemmtistaður.
Verðið óráðið
Ekki hefur verið rætt um verð fyrir
eignirnar og byggingarréttinn, en
Vilhjálmur benti á að samkvæmt
samþykktu deiliskipulagi væri ákveð-
inn byggingarréttur eða byggingar-
magn leyft á lóðunum og taka þyrfti
tillit til þess við verðmat.
Fundur um framtíð húsanna Aust-
urstrætis 22 og Lækjargötu 2 var
haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur kl.
10.00 í gærmorgun. Þar mættu
fulltrúar eigenda, fulltrúar trygg-
ingafélagsins VÍS, sem tryggði allar
eignirnar á svæðinu, lögmaður eig-
enda Austurstrætis 22, stjórnarfor-
maður og framkvæmdastjóri Eikar,
sem á Lækjargötu 2, og fulltrúi
Minjaverndar, auk fulltrúa Reykja-
víkurborgar sem voru borgarstjóri,
forseti borgarstjórnar og formaður
borgarráðs.
Rætt um að borgin
kaupi brunahúsin
Borgarstjóri vill
hraða hreinsun og
uppbyggingu
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
„VIÐ höfum ekki orðið vör við föls-
uð lyf hérna,“ segir Rannveig
Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofn-
unar, en fram kemur á heimasíðu
Lyfjastofnunar að fundist hafi föls-
uð Xenical-hylki í Borås í Svíþjóð.
Xenical er á markaði á Íslandi og
er lyf við offitu.
„Aftur á móti vörum við gjarnan
við fölsuðum lyfjum og tökum und-
ir svona fréttir af því að mikið
samstarf er á milli evrópsku lyfja-
málayfirvaldanna. Það er líka full
ástæða til að vara fólk við, því föls-
uð lyf eru oft seld í gegnum netið
og komast þannig inn í löndin. Hins
vegar höfum við ekki orðið vör við
þetta hér,“ hnykkir Rannveig á.
Ýmsar ástæður geta verið fyrir
því að fölsk lyf uppgötvast; hefð-
bundið eftirlit, lyfin hafa ekki virk-
að á sjúklinga, auk þess sem tolla-
yfirvöld koma með ábendingar.
„Lífsstílslyfin eru gjarnan fölsuð,“
segir Rannveig,
„og þegar um-
ræðuna um
fuglaflensuna
bar sem hæst sáu
óprúttnir aðilar
sér leik á borði
af því að skortur
var á lyfjum.“
Neytendur
geta keypt lyf í
gegnum net-
verslanir og Rannveig segir það í
raun mjög algengt. „Vandamálið
við netverslanir er að ómögulegt
er að vita hvar lyfin eru upp-
runnin. Ég nefni sem dæmi fyr-
irtæki í Svíþjóð sem seldi lyf í Dan-
mörku en ekki á heimamarkaði.
Það er vegna þess að fyrirtækið
hafði enga heimild til að selja lyf
en var skráð í Svíþjóð og því höfðu
dönsk yfirvöld ekki lögsögu yfir
fyrirtækinu.“
Vara við fölsuðum
lyfjum á netinu
Rannveig
Gunnarsdóttir
Fölsuð lyf hafa fundist í Svíþjóð
SALA á lambakjöti hefur dregist
umtalsvert saman síðustu mánuðina.
Sala síðustu 12 mánuði er nú 7%
minni en hún var 12 mánuðina á und-
an. Sala á lambakjöti jókst í fyrra og
hitteðfyrra en þessi aukna sala virð-
ist vera að ganga til baka að tals-
verðu leyti.
Sala á kjúklingum og svínakjöti
hefur að sama skapi aukist, einkum
þó sala á kjúklingum. Á síðustu
þremur mánuðum seldust 1.819 tonn
af kjúklingum en 1.762 tonn af
lambakjöti. Mjög óvenjulegt er að
meira seljist af kjúklingum en
lambakjöti. Ef þessi þróun heldur
áfram verður sala á kjúklingum
meiri í ár en á lambakjöti. Það hefur
aldrei gerst áður, því lambakjötið
hefur alltaf verið mest selda kjöt á
Íslandi.
Innflutningur á kjúklingum hefur
verið að aukast en búið er að lækka
tolla á þeim um 40%. Innflutningur-
inn nam rúmlega 41 tonni á fyrstu
tveimur mánuðum ársins.
Kjúklingar
mest selda
kjötið?
FÖTLUÐ börn
eru í 50% meiri
hættu en önnur
börn á að verða
fyrir kynferðisof-
beldi. Til að
draga úr þessari
hættu er nauð-
synlegt að fræða
bæði börnin og
þá sem starfa
með þeim. 97% gerenda þekkja
börnin, vinna með þeim í skóla eða
dagvistun eða eru bundnir þeim
fjölskylduböndum.
Þetta segir bandaríski fræðimað-
urinn Shirley Paceley sem mun
ásamt fleirum halda erindi á ráð-
stefnu um forvarnir gegn kynferð-
islegu ofbeldi gagnvart börnum sem
haldin verður í Reykjavík dagana
24.–25. maí nk. Að ráðstefnunni
standa samtökin Blátt áfram,
Barnaverndarstofa, Þroskahjálp,
Stígamót, Félag heyrnarlausra, Há-
skólinn í Reykjavík, Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra og Neyðarlínan
112.
Paceley hefur sérþekkingu á mál-
efnum fatlaðra barna og er stofn-
andi og starfsmaður samtakanna
Blue Tower Training Center í Ill-
inois.
„Yfirleitt lítur fólk ekki svo á að
fötluð börn séu líkleg fórnarlömb
ofbeldis, en staðreyndin er sú, og
nýlegar rannsóknir hafa sýnt það,
að þau eru í 2–3 sinnum meiri
hættu en önnur börn á að verða
fyrir ofbeldi,“ segir Paceley. En
hún segir margt hægt að gera til að
draga úr þessari áhættu.
„Það er til dæmis mikilvægt að
börnin læri að þau hafi val og geti
tekið ákvarðanir í því umhverfi sem
þau eru í, hvort sem það eru skólar
eða sambýli. Að þau viti að þau geti
sagt „nei“ og að þau hafi rétt til
einkalífs. Það þarf að kenna fötl-
uðum börnum að vera meðvituð um
þetta, að setja mörk og segja frá.“
Gerendur kynferðisofbeldis gagn-
vart fötluðum börnum eru því mið-
ur að sögn Paceley sárasjaldan
dregnir til ábyrgðar fyrir dómi.
„Rannsóknir sýna að þeir eru að-
eins dæmdir fyrir glæpi sína í inn-
an við 3% tilvika,“ segir Paceley.
„Við höfum því unnið með lögregl-
unni og öðrum sem koma að saka-
málum og upplýst þá um að fatlaðir
eru trúverðug vitni. Sú vinna hefur
skilað góðum árangri.“
Fötluð börn líklegri til
að verða fyrir ofbeldi
Sárafáir gerendur kynferðisofbeldis gegn fötluðum fá dóm
Shirley Paceley
NÝ 700 fermetra kirkja í Grafar-
holti á að vera tilbúin í árslok 2008
og kosta 200 milljónir króna. Fyrir-
tækið S.S. verktak ehf. mun byggja
kirkjuna og er miðað við að það
skili henni fullbyggðri.
Kirkjan á að rísa við Kirkjustétt
8. Sóknarnefnd Grafarholtssóknar
valdi að auglýsa alútboð og mun
það vera í fyrsta sinn sem slík leið
er farin við kirkjubyggingu hér-
lendis. Valdir voru fjórir verktakar
og arkitektafyrirtæki til að taka
þátt í útboðinu. Sóknarnefndin
skipaði síðan sérstaka dómnefnd
sem í áttu sæti fagaðilar til að meta
tillögurnar. Niðurstaða dómnefnd-
arinnar var að taka bæri tilboði S.S.
verktaks ehf. Umsjón með kirkju-
byggingunni verður í höndum
bygginganefndar safnaðarins.
Grafarholtssöfnuður er yngsti
þjóðkirkjusöfnuður landsins, stofn-
aður 22. október 2003 og er nú nær
fimm þúsund manns. Til safnaðar-
ins telst Grafarholtshverfið og
byggðin sem er að rísa í Úlfars-
árdal. Formaður sóknarnefndar er
Níels Árni Lund og sóknarprestur
er Sigríður Guðmarsdóttir.
Ný kirkja í Grafarholti í lok 2008
Tölvuteikning
Guðshús Nýja kirkjan við Kirkjustétt 8 í Grafarholti verður 700 m2 og kostar 200 milljónir.