Morgunblaðið - 22.04.2007, Page 10
10 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
LÝÐRÆÐI 21. ALDAR
Í
flestum lýðræðisríkjum heims
felst lýðræðið í að kjósendur
velja sér fulltrúa, sem gæta
eiga hagsmuna almennings.
Slíkt fulltrúalýðræði er t.d.
hér á landi og styttist nú í að
kjósendur velji sér fulltrúa á Alþingi
til næstu fjögurra ára.
Beint lýðræði, þar sem kjósendur
geta milliliðalaust tekið ákvarðanir
um þau mál sem þá skipta miklu, er
æ meira rætt. Almenningur er nú
jafn upplýstur og þeir fulltrúar, sem
valdir eru til að gæta hagsmuna
hans, eða hefur a.m.k. aðgang að öll-
um sömu upplýsingum, þótt auðvit-
að sé misjafnt hversu vel fólk nýtir
sér slíkan aðgang. Liðin er sú tíð,
þegar stjórnvöld ein sátu að öllum
upplýsingum sem þurfti til að taka
vel grundaðar ákvarðanir.
Fyrir réttum tíu árum birti viku-
ritið The Economist úttekt, þar sem
rakið var hve mjög heimurinn hefði
breyst frá því að fulltrúalýðræðið
festist í sessi og færð voru rök fyrir
beinu lýðræði.
Morgunblaðið birti þessa umfjöll-
un The Economist í sérstökum blað-
auka. Þar sagði m.a.: „Vera kann að
sú hugmynd að stjórn fólksins þýddi
í raun ekkert annað en það að leyfa
fólkinu öðru hverju að kjósa þing og
kannski forseta, sem síðan tækju all-
ar ákvarðanir milli kosninga, hafi
virst sannfærandi að einhverju leyti
á 19. öld og á fyrri hluta þessarar.
En jafnvel þá létu Svisslendingar
ekki sannfærast: Þeir komu þjóð-
aratkvæðiskerfinu á fót fyrir 130 ár-
um og það virkaði vel. En í huga
flestra á þessum tíma virtist mik-
ilvægt að einungis lítill hluti þjóð-
arinnar hafði fengið þokkalega
menntun, átti nóga peninga, hafði
greiðan aðgang að upplýsingum sem
vörðuðu almannahag og nægan frí-
tíma til að nýta þær upplýsingar. Því
bæri að leyfa þessum minnihluta að
mynda hina pólitísku stétt, sem
Morgunblaðið/Júlíus
Mikið hefur verið rætt um kosningar á landsvísu
og á sveitarstjórnarstigi undanfarin ár. Ekki
eru allir á einu máli um hversu mikið vægi slíkar
kosningar eigi að hafa og hvort stjórnmálaflokkar
séu jafnvel úrelt fyrirbrigði.
Eftir Pétur Blöndal og Ragnhildi Sverrisdóttur
pebl@mbl.is, rsv@mbl.is
HVENÆR Á ÞJÓÐIN AÐ KJÓSA?
„… minnti mig
óneitanlega á
Skugga vindsins …
hélt mér fanginni
frá upphafi til enda
og nú langar mig í
meira.“
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir
/ bokmenntir.is
„Bók sem
ma›ur
gleypir
í sig.“
Vikan
Einstök lestrarnautn!