Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Erlent | Nýir valdhafar í Póllandi hyggjast hreinsa gamla kommúnista úr stjórnkerfinu og hafa nú beint spjótum
sínum að Wojciech Jaruzelski, fyrrverandi leiðtoga landsins. Snyrtivörur |Ef marka mætti fyrirheitin myndu
margar snyrtivörur flokkast undir lyf. Tíska | Brjóstahaldarinn er hundrað ára og segja óljúgfróðir að enn megi betrumbæta hann.
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
HANN er nú 83 ára gamall og ekki
verður séð að hann hafi gerst bros-
mildari með aldrinum. Raunar var
steinrunnið andlit Wojciech Jaru-
zelski ásamt dökku gleraugunum
löngum eins konar táknmynd komm-
únismans í Póllandi. Nú á hershöfð-
inginn fyrrverandi allt að tíu ára
fangelsisdóm yfir höfði sér verði
hann fundinn sekur um að hafa
framið „kommúnískan glæp“ er
hann lýsti yfir herlögum 13. desem-
ber árið 1981.
Í ákærunni, sem birt var Jaru-
zelski á þriðjudag, segir og að hann
hafi farið fyrir „vopnuðum glæpa-
samtökum“ og er þannig vísað til
pólska kommúnistaflokksins. Jaru-
zelski var aðalritari flokksins frá
1981 til 1989 og bar titil forseta frá
1989 til 1990. Herlögin settu stjórn-
völd til að brjóta á bak aftur starf-
semi Samstöðu, óháðu verkalýðs-
hreyfingarinnar, sem andófs-
maðurinn Lech Walesa fór fyrir, og
hafði að markmiði að frelsa þjóðina
undan oki kommúnismans. Herlög-
unum fylgdu miklar hörmungar,
tugir manna voru drepnir í átökum
stjórnarandstæðinga og öryggis-
sveita kommúnista og þúsundir
manna voru teknar höndum.
Árið 1998, níu árum eftir hrun
kommúnismans í Mið- og Austur-
Evrópu, komu stjórnvöld í Póllandi á
fót svonefndri Þjóðarminningar-
stofnun Póllands (p. „Instytut Pa-
mieci Narodowej“) í því skyni að
rannsaka glæpaverk, sem unnin
voru í nafni nasisma og kommún-
isma þar eystra. Stofnun þessi vann
að rannsókn á máli Jaruzelskis.
„Markmið okkar er að uppfylla
skyldu okkar við pólska ríkið og
þjóðina sem og við alla þá sem máttu
þola óréttlæti og auðmýkingu á þeim
tíma sem herlögin voru í gildi,“ segir
Andrzej Drogon, einn starfsmanna
stofnunarinnar.
Stofnun þessi hefur mjög látið til
sín taka í Póllandi á síðustu árum og
starfsemin hefur eflst til muna frá
því tvíburabræðurnir Lech og Jar-
oslaw Kaczynski, leiðtogar flokksins
Laga og réttar, hófust til valda þar
eystra árið 2005. Bræðurnir, sem
eru vægt til orða tekið afar umdeildir
stjórnmálamenn (Lech er forseti
Póllands, Jaroslaw forsætisráð-
herra), voru báðir virkir þátttakend-
ur í frelsisbaráttu Samstöðu.
„Hreinsunarlögin“
Bræðurnir höfðu boðað að komm-
únisminn skyldi upprættur með öllu
í Póllandi kæmust þeir til valda. Og
það loforð hyggjast þeir sýnilega
efna. Sett voru svonefnd „hreinsun-
arlög“, sem í fyrstu tóku eingöngu til
þingmanna, ráðherra og annarra
hátt settra embættismanna, senni-
lega alls um 30.000 manns. Tilgang-
urinn er sá, að hafa upp á þeim sem
áttu samstarf við kommúnista í
valdatíð þeirra. Er viðkomandi gert
að undirrita yfirlýsingu þess efnis að
hann hafi ekki verið samstarfsmaður
kommúnista. Þeir sem neita að und-
irrita yfirlýsinguna eða eru staðnir
að lygum eiga yfir höfði sér brott-
rekstur úr starfi. Í marsmánuði
ákváðu Kaczynski-bræður að út-
víkka gildissvið „hreinsunarlag-
anna“ og taka þau nú til tæplega
750.000 manna. Blaðamönnum,
fræðimönnum, stjórnendum ríkis-
fyrirtækja, skólastjórum, diplómöt-
um og lögfræðingum hefur verið
bætt á listann. Á síðustu mánuðum
hafa um 1.200 lögreglumenn, sem
gengu erinda kommúnistastjórnar-
innar, sagt upp störfum.
Innan sem utan Póllands hafa
ýmsir orðið til að líkja framgöngu
stjórnvalda við „nornaveiðar“. Kac-
zynski-bræður láta slíka gagnrýni
sem vind um eyru þjóta. Í jan-
úarmánuði neyddist erkibiskupinn í
Varsjá til að láta af embætti sökum
ásakana um að hann hefði verið sam-
starfsmaður kommúnista. Nokkrir
tugir presta hafa verið úthrópaðir
sem leiguþý kommúnista og hefur
þetta reynst álitshnekkir fyrir kat-
ólsku kirkjuna í Póllandi, sem
löngum veitti ofsóttum skjól.
„Hreinsunarlögin“ hafa skapað
djúpstæðan klofning í Póllandi.
Ráðamenn segja slíkar „hreinsanir“
löngu tímabærar og vísa m.a. til þess
að gamlir kommúnistar hafi margir
hverjir hagnast vel á umskiptunum
þegar frjáls markaðsbúskapur var
tekinn upp í stað hinnar sósíalísku
miðstýringar. Þeir sem áður kúguðu
þjóðina séu nú margir hverjir í bestu
störfunum. Spilling eitri þjóðlífið og
hana beri að uppræta, sem og
tengslanet kommúnista og sam-
starfsmanna þeirra í viðskiptalífinu
og innan stjórnsýslunnar.
Andstæðingarnir segja alltof langt
gengið og má í þessum hópi finna
marga þeirra sem gengu fram af
einna mestri dirfsku í andófinu.
Réttarhöld yfir Wojciech Jaru-
zelski sýnast líklegri en hitt til að
magna enn upp deilu þessa í Pól-
landi. Margir Pólverjar hafa
ákveðna samúð með Jaruzelski og
telja hann hafa staðið frammi fyrir
tveimur skelfilegum valkostum; að
setja herlög með tilheyrandi vald-
beitingu eða hafast ekkert að og
kalla þannig yfir Pólverja innrás
Sovétmanna og hugsanlega annarra
ríkja Varsjárbandalagsins.
„Þetta var martröð“
Jaruzelski hefur og oftlega iðrast
gjörða sinna m.a. í sjónvarpsræðu
árið 1990. Í viðtali við bandaríska
dagblaðið The New York Times ár-
ið 1993 sagði hershöfðinginn fyrr-
verandi að herlögin hefðu líklega
komið í veg fyrir hernaðaríhlutun
af hálfu Sovétmanna með tilheyr-
andi blóðsúthellingum. „En ég
harma þetta mjög. Þetta var mar-
tröð. Þessi þungbæra reynsla þjak-
ar mig mjög og mun gera það alla
mína ævidaga,“ sagði Jaruzelski og
bætti við að hann myndi frekar
skjóta sig í höfuðið en endurtaka
þennan gjörning.
Í desember 1981 hafði Samstaða
öðlast slíkan styrk í samfélagi Pól-
verja að stjórnvöld fengu ekki við
ráðið. Þeir sem sýna málstað Jaru-
zelskis skilning telja víst, að sagan
hafi verið honum ofarlega í huga er
hann ákvað að beita hermönnum og
skriðdrekum gegn samborgurum
sínum; ekki verður því á móti mælt
að Sovétmenn höfðu ítrekað sýnt
að þeir hikuðu ekki við að beita her-
valdi gegn sérhverri þeirri ógnun,
sem þeir fengu greint við komm-
únismann í Mið- og Austur-Evr-
ópu. Það höfðu þeir gert í Austur-
Berlín 1953, í Poznan í Póllandi
1956, í Búdapest sama ár og í Prag
1968.
Því fer á hinn bóginn fjarri að
þessi sögulega túlkun sé viðtekin.
Pólskir lögfræðingar halda því
m.a.s. fram að herlögin hafi brotið
gegn sjálfum ákvæðum stjórnar-
skrárinnar, sem kommúnistar
höfðu smíðað! Fjendur Jaruzelskis
staðhæfa margir að sovésk gögn
sýni að skýringar hans fái ekki
staðist. Sovétmenn hafi t.a.m. hafn-
að beiðni Jaruzelskis um hernaðar-
aðstoð árið 1981. Fyrir honum hafi
vakað það eitt að tryggja völd
flokks kommúnista og hefta
framþróun borgaralegs samfélags.
Vafalaust verður mikill fjöldi
sögulegra gagna lagður fram komi
til réttarhalda yfir Jaruzelski.
Hann fékk árið 1990 hrundið sams
konar ákæru á hendur sér og nú
hefur verið lögð fram. Síðustu mán-
uðum hefur hann varið í lestrasal
Minningarstofnunarinnar í Varsjá
þar sem hann undirbýr vörn sína.
Er Jaruzelski sagði af sér embætti
forseta árið 1990 kvaðst hann vona
að sér mætti auðnast að njóta ell-
innar og sinna helsta áhugamálinu,
garðrækt. Sú ósk hans hefur ekki
ræst.
Þrjótur eða föðurlandsvinur?
Reuters
Herstjóri Wojciech Jaruzelski í viðtali, sem tekið var fyrir réttu ári. Hann
hefur sagst iðrast herlaganna en margir telja slík ummæli duga skammt.
ERLENT» Í HNOTSKURN»Wojciech Jaruzelski fædd-ist 6. júlí 1923 nærri Bialy-
stok í austurhluta Póllands.
Fjölskylda hans tilheyrði aðl-
inum og flúði til Litháen í kjöl-
far griðasáttmála Hitlers og
Stalíns 1939. Sökum uppruna
síns voru Jaruzelski og faðir
hans fluttir í útlegð til Síberíu.
Faðir hans lést í „gúlaginu“.
»Jaruzelski gekk til liðs viðpólska herinn og tók þátt í
orrustunni um Berlín. Hann
varð hershöfðingi aðeins 33
ára. Jaruzelski tók þátt í inn-
rásinni í Tékkóslóvakíu 1968.
Hann varð varnarmálaráð-
herra sama ár, þá 45 ára, og
tólf árum síðar tók hann við
embætti aðalritara Komm-
únistaflokksins. Árið 1981
setti hann herlögin og framdi
þannig glæp þann sem hann
hefur nú verið ákærður fyrir.
Wojciech Jaruzelski, fyrrum leiðtogi pólskra kommúnista, hefur á ný verið ákærður fyrir að hafa
framið „kommúnískan glæp“ er herlög voru sett árið 1981 til að hefta frelsisbaráttu þjóðarinnar
VIKUSPEGILL»
REUTERS
„Hreinsunarlög“ Lech Kaczynski, hinn umdeildi forseti Póllands, vill
knýja fram allsherjar uppgjör við einræðið, kúgunina og kommúnismann.
Samstarfssjóður Nuuk-
Reykjavíkur-Þórshafnar
auglýsir eftir
styrkumsóknum
fyrir árið 2007
Reykjavíkurborg er aðili að sjóði höfuðborga Færeyja, Grænlands og Íslands.
Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf, milli þessara
borga íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkef-
na sem þjóna þessum markmiðum.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast
samskiptum milli bæjanna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d.
á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.
Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra,
tímasetningu og kostnaði.
Skriflegri umsókn skal beint til:
Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar
b.t. skrifstofu borgarstjórnar
Ráðhúsi Reykjavíkur
101 Reykjavík
Umsóknir berist eigi síðar en föstudaginn 18. maí n.k. og koma umsóknir
sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu. Sérstök umsóknareyðublöð
fást í upplýsingum í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur,
s: (354) 411 4702.
Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í ágúst n.k.
Reykjavík, 17. apríl 2007
Borgarstjórinn í Reykjavík