Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 21
»Mér finnst bæði dapurt ogsárt að þurfa að upplifa
brunann og átökin við eldinn og
sjá smám saman þessar afleið-
ingar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri
á vettvangi er stórbruni varð á miðviku-
dag í miðborg Reykjavíkur.
» Það er verið að rannsaka allaþætti og þar á meðal hvort
eldurinn hafi kviknað af manna-
völdum.
Stefán Eiríksson , lögreglustjóri höf-
uðborgarsvæðisins, um eldsvoðann.
» Þetta er það versta sem gatgerst og á versta stað.
Bjarni Kjartansson , sviðsstjóri forvarn-
arsviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,
um brunann mikla. Talið er að eldurinn
hafi kviknað fyrir innan klæðningu í lofti
söluturnsins Fröken Reykjavík.
» Svo vil ég bara hvetja allaforeldra til þess að kaupa
kannski einni pitsunni færra og
kaupa þess í stað almennileg
dagblöð.
Guðrún Helgadóttir rithöfundur ræddi
um lestur barna í síðdegisútvarpi Rásar 2
á miðvikudag er rætt var um þjóðargjöf
Glitnis og félags íslenskra bókaútgefenda.
»Ég gat einfaldlega ekki lesiðþessi viðtöl og síðan haldið
áfram að drekka mitt morg-
unkaffi eins og ekkert hefði í
skorist.
Sigurborg S. Guðmundsdóttir viðskipta-
fræðingur, sem lýst hefur yfir áhuga á að
skjóta skjólshúsi yfir íraska konu, sem er
landflótta í Jórdaníu og Davíð Logi Sig-
urðsson, blaðamaður á Morgunblaðinu,
sagði frá í grein um liðna helgi.
»Ef þetta hefði gerst að nóttutil veit enginn hvað hefði get-
að gerst.
Tryggvi Þór Haraldsson , forstjóri RA-
RIK, eftir að aurflóð hafði fallið ofan við
Lindargötu á Sauðárkróki á sunnudag.
» Þetta er svo mikil breytingað ég á erfitt með að skilja að
loftslagið eitt valdi þessu.
Oddur Sigurðsson jarðfræðingur um
rýrnun jökla landsins.
»Við teljum að hún muni,fyrr eða síðar, lækka lítið
eitt. Ég get ekki verið nákvæm-
ari.
Davíð Oddsson um gengi krónunnar.
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/Júlíus
Eyðilegging Slökkviliðsmenn þóttu
vinna afrek í brunanum mikla.
þurfa að spara sérstaklega við sig.
Valið gæti staðið á milli þess og mán-
aðarskammts af splunkunýju kremi,
ReVive Peau Magnifique, sem
bandarískur lýtalæknir hannaði, og
kostar um 130 þús. kr. Áreiðanlega
velktust ekki margir í vafa ef þau lof-
orð stæðust 100% að hrukkurnar
minnkuðu um 45% og notkunin jafn-
aðist á við að færa klukkuna aftur
um fimm ár. Nýja L’Or de Vie krem-
ið frá Dior er nánast ódýrt í sam-
anburðinum á aðeins 32 þús. kr., en
kannski minnkar það hrukkurnar
ekki nema um 15%.
Niðurstaðan
Rannsóknarleiðangur Regans
varð ekki til þess að hún sannfærðist
um áhrifamátt kremanna. Þvert á
móti varð það hennar fyrsta verk að
henda út úr baðskápnum heima hjá
sér snyrtivörum, sem hún hafði áður
keypt í alltof góðri trú. Núna kveðst
hún aðeins hafa maskara, hyljara
(concealer), varalit og rakakrem með
sólarvörn í snyrtiveskinu sínu.
Raunar kom henni einna mest á
óvart hve húð hennar reyndist illa
farin af völdum sólarinnar og því
ráðleggur hún notkun rakakrems
með sólarvörn. Hárnæring, sérstak-
lega ætluð fyrir litað hár og hár með
strípum, fékk einnig náð fyrir augum
hennar. Áður hafði hún keypt hár-
næringu af handahófi, en eftir að
sérfræðingarnir skiptu hári hennar í
miðju og prófuðu formúluna fyrir lit-
aða hárið öðru megin og venjulegu
gerðina hinu megin sá hún augljósan
mun.
Hvað snyrtivörur áhrærir, sem
eiga að hægja á öldrunarummerkj-
um, segir Regan að fólk ætti að vera
á varðbergi og lesa smáa letrið í
glæstum auglýsingum tímaritanna,
þar séu oft fyrirvarar, sem gangi al-
gjörlega á skjön við fagurgala aug-
lýsingarinnar í heild.
Þrátt fyrir ýmis sérkennilegheit
og þversagnir í fegrunargeiranum
neitar Regan því staðfastlega að
fégráðugir loddarar ráði þar ríkjum.
Ástæða sé til að binda vonir við ým-
islegt, sem verið er að þróa og bygg-
ist á traustum vísindalegum grunni.
Niðurstaða Regans er sáraeinföld:
Snyrtivörur eru ekkert töfralyf og
þær dýrustu eru ekki endilega best-
ar. Auglýsingarnar lofa meiru en
efni standa til, en þær, ilmurinn og
umbúðirnar freista fólks hvað mest
til að borga vöruna allt of dýru verði.
Auki slíkt því hamingju, sé allt í
lukkunnar standi, þótt vitaskuld
væri peningunum miklu betur varið í
annað, til dæmis sólarlandaferð – en
þó með rakakrem, sem inniheldur
sólarvörn í farteskinu.
böndum og litum og gæti einnig
skipt um skálastærð.
Ekki er víst að framleiðendur
brjóstahaldara vildu setja á markað
svo margnota haldara. Ætli þeir ótt-
uðust ekki að konur keyptu færri
stykki? Konur eru allavega eins og
stendur ófeimnar við að eiga marga
haldara en undirfatamarkaðurinn er
virði um 325 milljarða króna á ári í
Bretlandi. Margar búðir hafa þess
vegna aukið þjónustu sína í kringum
haldarana hvað varðar aðstöðu og
mátanir.
Brjóst kvenna að stækka
Þessi tala kemur fram í grein
breska blaðsins Daily Telegraph en
þar segir einnig að brjóst kvenna
hafi stækkað síðustu ár. Samkvæmt
undirfatakeðjunni La Senza hefur
meðal brjóstahaldarastærðin farið
úr 75B í 80C og eftirspurn eftir
brjóstahöldurum í DD og stærri
stærðum hefur aukist jafnt og þétt.
Alessandro Pinna, markaðsstjóri
Invista, eiganda Lycra, horfir björt-
um augum á framtíðina. „Síðustu
hundrað ár hafa verið mjög spenn-
andi í sögu brjóstahaldarans og
vinnum við nú hörðum höndum að
því að tryggja að næstu hundrað ár
verði jafn byltingarkennd. Framtíð-
artækni á eftir að hjálpa okkur að
framleiða þróaðri brjóstahaldara
sem sameina það að passa vel og
vera þægilegir, eins og konur vilja,
kynþokkanum sem karlmenn óska
eftir, og þar með brúa bilið sem
þessi könnun hefur leitt í ljós.“
Jahá! Ef fyrirtækinu tekst þetta
er það áreiðanlega með söluvænan
brjóstahaldara í höndunum.
VELFERÐ FYRIR ALLA!
Opinn fundur með framboðum
til Alþingiskosninga á
Grand Hótel Reykjavík
þriðjudaginn 24. apríl kl. 20.00
Fundarstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttastjóri.
FJÖLMENNUMÁ GRANDHÓTEL