Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 30
umhverfismál
30 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sumarhúsið
& Garðurinn
Abacus á Íslandi
Allianz á Íslandi
All Senses “Upplifðu allt á
Vesturlandi”
Asar ehf
Gljúfrasteinn - Laxness safn
Hótel Glymur
Ferðamannasetur Hvanneyri
Ullarsetrið
Sveitafitness
Búvélasafnið
Landbúnaðarháskólinn
Fossatún
Snorrastofan í Reykholti
Ferðaþjónustuan Húsafelli
Hraunsnef
Sæferðir
Hótel Framnes
Hótel Ólafsvík
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
Hótel Hellnar
Ensku Húsin við Langá
Landnámssetur Íslands
Hótel Hamar
Hamarsvöllur
Leynir Golfvöllur
A-Skaftafellssýsla
Atlantsolía
Áburðaverksmiðjan
Áfangar
Ásútgáfan
Bátar og sport ehf
Billjón ehf - Floridahús.
BM Vallá
Bókaútgáfan Salka ehf
Borgarhús ehf
Bos ehf
Borgarplast hf
Dúkþak ehf
Edda Hótel
Enjo á Íslandi
EON arkitektar - Hljómskál-
agarður
Eyrfeld ehf
Express Ferðir
Farfuglar
Fánasmiðjan
ferd.is
Ferðafélag V-Barðastrandasýslu
Ferðaþjónustan Breiðuvík /
Látrabjarg
Hænuvík
Stekkaból - gistiheimili
bildudalur.is
Villimey
Vesturfari
Skrúðhamrar - gistiheimili
Bjarmaland - gistiheimili
Minjasafnið Hnjóti
Þorpið
Bjarkarholt - gistiheimili
Hamraborg - gistiheimili
Hótel Flókalundur
Ferðaklúbbur 4x4
Ferðamálasamtök Austurlands
Ferðamálasamtök Höfuðbor-
garsvæðisins
Ferðamálasamtök Íslands
Ferðamálasamtök Norðurlands
eystra
Ferðamálasamtök Norðurlands
vestra
Ferðamálasamtök Suðurlands
Ferðamálasamtök Suðurnesja
Ferðamálasamtök Vestfjarða
Ferðamálasamtök Vesturlands
Ferðamálaskóli Kópavogs
Ferðamálastofa
Ferðaþjónusta bænda
Félag Blómaskreyta
Félag ferðaþjónustubænda
Félag leiðsögumanna
Félag skrúðgarðyrkjumeistara
Samband iðnaðarins
Fjölur ehf
Flugfélag Íslands
Flúðasveppir
Fosshotel
Fuglaverndarfélag íslands
GA Tours - Golf Activity Ltd.
Garðyrkjufélag Íslands
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Gámaþjónustan hf
GB ferðir
Glugg-inn
Gluggar og garðhús ehf
Glófi
Golfborgir
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Golfleikjaskólinn
Golfsamband Íslands
Gosbrunnar ehf
Grillbúðin
Habitana House
Haraldur Þráinsson
Hálendisferðir
Hárkarla- og ferðaþjónustan
Bjarnahöfn
Heklusetrið
H. Jacobsen ehf, Saladmaster
Hjukse Bruk - Norsk sumarhús
Hljómsýn - Tivoli útvörp
Hole in One
Hollusta úr hafinu
Hólaskóli
Hópbílar
Hótel Akureyri
Hótel Búðir
Hrein fjárfesting
Hrífunes
Hús og bjálkar ehf
Iceland Express
Iceland Excursions - Gray Line
Iceland
Icelandair
Icelandair Hotels
Indriðastaðir ehf
Indus ehf
Innlit húsgögn ehf
Inns of Iceland
Í ríki Vatnajökuls
Gistiheimilið Ásgarður, Höfn.
Gistiheimilið Hvammur, Höfn
Farfuglaheimilið Nýibær, Höfn
Hótel Höfn
Gistiheimilið Hafnarnes, Höfn
Árnanes, gistiheimili,
veitingastaður, gallerí
Gistiheimilið Hoffeli
Hótel Edda , Nesjaskóla
Fosshótel Vatnajökull
Ferðaþjónusta bænda,
Brunnhól
Gistiheimilið Hólmi
Ferðaþjónustan Skálafelli
Ferðaþjónusta bænda
Smyrlabjörgum, veitingar,
BLÓMASKREYTIR 2007! HÖNNUNARKEPPNI UM UMHVERFISLISTAVERK! LANDSLEIKUR Á FERÐATORGI - YFIR 100 VINNINGAR!
A
llt sem er grænt, grænt
finnst mér vera fal-
legt.“ Einhvern veginn
rifjast þessi laglína
upp þegar umhverf-
ismál ber á góma enda virðist græni
liturinn orðinn svo mikill tískulitur í
íslenskum stjórnmálum að litli Jón
á Grund hlýtur að vera himinlif-
andi.
En þegar allir eru sammála um
mikilvægi náttúrunnar, um hvað er
þá deilt?
Umhverfismál eru stór mála-
flokkur og spanna allt frá ein-
staklingi sem fer með dósir í end-
urvinnsluna til stórra ákvarðana á
borð við Kárahnjúkavirkjun. Þess
vegna þarf ekki að koma á óvart að
greina megi ólíkan tón hjá flokk-
unum og reyndar hnýta þeir oft
hver í annan og segja andstæðing-
inn ekki eins grænan og hann þyk-
ist vera.
Allir flokkarnir sem bjóða fram
til Alþingis í vor eru hlynntir því að
nýta hagræna hvata til að hvetja til
umhverfisvænni lifnaðarhátta, t.d.
með því að það sé ódýrara að eiga
bíla sem menga minna, og eru
hlynntir frekari rannsóknum á
vetni og metangasi. Þá kemur fram
hjá öllum að Ísland skuli standa við
alþjóðlegar skuldbindingar sínar
um að minnka útstreymi gróður-
húsalofttegunda en skiptar skoð-
anir eru um hvort sú sé raunin. Rík-
isstjórnarflokkarnir benda á að
70% af heildarorkunotkun á Íslandi
komi frá vistvænum orkugjöfum.
Stjórnarandstaðan segir hins vegar
að lítið sem ekkert hafi verið gert
til að minnka útblástur og að Ísland
eigi ekki að njóta neinna sérkjara í
þessum efnum.
Sjálfbær þróun
og náttúruvernd
Grunnstefið í stefnu Samfylking-
arinnar, Vinstri grænna (VG) og Ís-
landshreyfingarinnar er sjálfbær
þróun og verndun náttúrusvæða,
t.d. með stofnun og stækkun þjóð-
garða. Allir þessir flokkar leggja
mikla áherslu á að hverfa frá stór-
iðjustefnunni og efla annars konar
atvinnustarfsemi. Í stefnu Samfylk-
ingarinnar, Fagra Ísland, kemur
fram að slá eigi stóriðjufram-
kvæmdum á frest meðan gerð er
rammaáætlun um náttúruvernd.
Hugsanlegar virkjanir fyrir stóriðju
verði reistar á viðskiptalegum for-
sendum, án ríkisábyrgðar, og um
leið sé þeim gert að greiða sann-
gjarnt verð fyrir afnotarétt á auð-
lindum sem og fyrir mengunar-
kvóta.
Í Grænni framtíð, riti VG um
sjálfbæra þróun, er hins vegar rætt
um stóriðjustopp til fimm ára. Há-
lendi Íslands verði svo verndað með
þjóðgörðum og friðlöndum, náttúru-
perlur og auðlindir séu í almanna-
eign, þ.m.t. ferskvatn. Bæði Sam-
fylkingin og VG vilja að Alþingi
fullgildi Árósasamninginn sem hef-
ur verið undirritaður fyrir Íslands
hönd og með því gerðar lagabreyt-
ingar sem m.a. veita almenningi og
félagasamtökum lögvarða hagsmuni
á sviði umhverfisréttar.
Umhverfismál eru aðalmála-
flokkur Íslandshreyfingarinnar en í
stefnu flokksins kemur skýrt fram
að hætta eigi við fyrirhugaðar bygg-
ingar álvera í landinu. Nóg sé komið
af stóriðju, friða eigi miðhálendið og
nýta hafið á sjálfbæran hátt.
Frjálslyndi flokkurinn deilir
skoðun hinna stjórnarandstöðu-
flokkanna um að miðhálendið eigi
að vera sameign þjóðarinnar og
leggur einnig mikla áherslu á vist-
vænar fiskveiðar sem og að koma í
veg fyrir skemmdir á hafsbotni og
botngróðri af völdum veiðarfæra.
Verndun hafsins og vistvænar fisk-
veiðar koma fyrir í stefnuyfirlýs-
ingum flestra flokkanna.
Áhersla á skógrækt
og landgræðslu
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn eru með örlítið
aðrar áherslur þegar kemur að um-
hverfismálum og innan flokkanna
heyrast þær raddir að umræða um
náttúruvernd hafi snúist allt of mik-
ið um stóriðju.
Flokkarnir leggja til að mynda
mikla áherslu á skógrækt og land-
græðslu þótt fulltrúar allra flokka
sem Morgunblaðið ræddi við séu
sammála um að skógrækt sé ekki
endanleg lausn í baráttu við hlýnun
jarðar.
Framsókn vill að Ísland verði
sjálfbært í orkunýtingu og leggur
jafnframt áherslu á frekari upp-
byggingu þjóðgarða og friðlýstra
svæða. Hvatt er til þess að Alþingi
setji lög um auðlindasjóð og
greiðslur fyrir afnot af auðlindum í
eigu eða forsjá ríkisins renni í hann.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
meiri áherslu á ábyrgð ein-
staklingsins og telur að skynsamleg
nýting náttúruauðlinda sé best
tryggð með því að nýtingar- og af-
notarétturinn sé í höndum ein-
staklinga, þótt ríkið fari með full-
veldisrétt þjóðarinnar yfir
auðlindum. Þá eigi að nýta kosti
einkaframtaksins við rekstur þjóð-
garða, herða viðurlög við umhverf-
isspjöllum og gera þjónustusamn-
inga við einkaaðila um mengunar-
varnir.
Græni litur kosninga
Umhverfismál hafa
sennilega aldrei verið
eins mikið hitamál fyrir
kosningar og í ár. Halla
Gunnarsdóttir kynnti
sér stefnu flokkanna í
þessum málaflokki nú
þegar græni liturinn er
í tísku.
halla@mbl.is
Náttúruvernd Allir flokkar sem bjóða fram til Alþingis eru sammála um að Ísland eigi að standa við alþjóðlegar skuldbindingar um að takmarka losun
gróðurhúsalofttegunda og að æskilegt sé að nota hagræna hvata til að hvetja til umhverfisvænni lifnaðarhátta.