Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 34
umhverfismál
34 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hvað sem líður tali á há-fleygum stundum umfegurð landsins og gæði;um náttúru- og umhverf-
isvernd, hrifningu útlendinga og ást
okkar sjálfra á fegurðinni er ljóst að
þegar til kastanna kemur er ekkert
mark á þessu takandi. Þeir sem við
höfum kosið til að stjórna landinu og
þar með þýðingarmiklum fram-
kvæmdum eru búnir að sýna það í
verki og tillögum um næstu fram-
kvæmdir að þeir meta náttúrufegurð
til fárra fiska.
Þjórsá er bæði lengsta vatnsfall á
Íslandi og með þeim allra vatns-
mestu. Nú hefur henni verið tekið
tak uppi á hálendinu svo um munar.
Þar er ekki um að ræða teljandi
röskun á náttúru, en hefði vitaskuld
orðið ef áformin um að ganga á
Þjórsárver hefði ekki verið stöðvuð, í
bili að minnsta kosti, og kom þar al-
menn andúð á þeirri framkvæmd.
Líklega hafa orðið tímamót vegna
andstöðunnar við Kárahnjúkavirkj-
un og almenningur hefur bæði
ákveðnari skoðanir á þessu núna og
lætur þær í ljós. Andstaða Gnúp-
verja, með Má heitinn Haraldsson í
Háholti í forustu á meðan hans naut
við, hefur orðið þung á metunum.
Núna, þegar fyrir liggja áætlanir um
þrjár virkjanir í Þjórsá á svæðinu í
byggð, ofan frá Haga og út að Urr-
iðafossi, hafa náttúruunnendur í
hreppunum meðfram Þjórsá látið
miklu ákveðnar í sér heyra og
stjórnmálamenn hafa sagt að þarna
sé í rauninni ekkert tilefni til að taka
hluta af jörðum eignarnámi.
Til þessa hafa líklega fáir gert sér
grein fyrir þeirri breytingu á ásýnd
Þjórsár sem verður ef ráðizt verður í
þessar virkjanir.
Meginskaðinn yrði með tveimur
virkjunum ofarlega í Gnúpverja-
hreppi. Meðal þess sem þá yrði eyði-
lagt er fossinn Búði, spölkorni suð-
vestan við Árnes. Enginn bílvegur er
Á að eyðileggja fegurð Þjórsár í b
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Breiður og fallegur Fossinn Búði í Þjórsá er afar breiður og fallegur á sinn hátt þó ekki sé hann með hæstu foss-
um. Verði virkjað fáum við stíflu sem næst fossbrúninni og eftir það verður enginn Búði til. Hekla er hér í baksýn.
Eftir Gísla Sigurðsson