Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 35
að fossinum og því er hann ugglaust
of mörgum ókunnur. Við Búða klofn-
ar áin og fellur Árneskvísl í sveig til
suðurs og vesturs og það á einmitt
að veita Þjórsá alveg í þann farveg
með stíflu, sem mér skilst að komi
svo að segja á fossbrún Búða. Við
fossinn að vestanverðu er Árnes-
þingstaður; þar var Árnesþing hald-
ið á þjóðveldisöld og sést að þangað
hafa reiðgötur legið víða að.
„Búði hefur bág hljóð/ bylur oft í
þeim hyl,“ segir í þekktri vísu. Ef
virkjað yrði gætu Gnúpverjar ekki
lengur spáð í veðrið eftir því hvernig
heyrðist í Búða. Hann er að vísu ekki
hár, en mjög breiður eins og ætti að
koma fram á ljósmynd. Töfrar foss-
ins liggja ugglaust í því að þarna er
Þjórsá orðin mjög vatnsmikil. Ég
hafði ekki séð Búða, en gekk þangað
frá Minna-Hofi þegar ég var að ljós-
mynda merkisstaði vegna umfjöll-
unar um uppsveitirnar í Árnessýslu í
ritröðinni Seiður lands og sagna.
Þar kemur vel fram að við Búða er
stórkostleg náttúrufegurð; ekki sízt
vegna þess að Heklu ber yfir frá
bezta útsýnisstaðnum.
Skammt ofan við Búða er Nauta-
vað, alfaraleið yfir ána austan úr
Rangárþingi og bezta vaðið á áni.
Nautavað mun hverfa að eilífu ef
virkjað yrði og hestamenn sem oft
ríða Þjórsá á Nautavaði gætu þá
ekki lengur gert sér það til skemmt-
unar.
Ofan við Nautavað rennur Þjórsá
víða þröngt; þar hefur hraunrennsli
þrengt að ánni, en mesta prýði henn-
ar eru hólmar, viði vaxnir, sem munu
fara í kaf ef stefnt verður til óheilla.
Hér erum við á stíflusvæði innan
við Minna-Núp. Þar myndast gríð-
arstórt uppistöðulón sem mun ná
langt inn fyrir Haga. Skammt vestan
við Haga rennur Þverá í Þjórsá.
Gegnt ármótunum hefur Þjórs-
árhraunið runnið langt út í farveg
árinnar og þar er hún afar myndvæn
með Heklu í baksýn.
Báðir þessir staðir eru með þeim
hætti að ekki kemur til greina að
fórna þeim, nema þá í ýtrustu neyð.
Slíkt orkuleysi er sem betur fer ekki
fyrirsjáanlegt og fyrir viðbótarálver
í Hafnarfirði væri þessi fórn fárán-
leg.
Þá er enn eitt ótalið sem mundi
skerða náttúrufegurð í Gnúpverja-
hreppi svo um munaði. Þegar ekið er
upp í Þjórsárdal er fyrst komið að
Þjórsá framan við bæina Þránd-
arholt og Stöðulfell. Á ferðum mín-
um þangað uppeftir síðastliðin 50 ár
hef ég margoft stanzað niður af
Þrándarholti til þess að njóta þess
magnaða útsýnis sem þar gefur að
líta. Þar munar mest um Þjórsá, sem
er síbreytileg, skemmtilegast þykir
mér að ljósmynda ána þegar skarir
eru og jakaburður. Mér skilst að
Gnúpverjar og aðrir aðdáendur
þessa landslags hafi í fyrstu ekki
gert sér grein fyrir því að þarna
verður aðeins þurr farvegur Þjórsár.
Þá verður heldur dapurlegt að líta
þarna yfir og raunar gerist þetta víð-
ar, ef virkjað verður, að fagrir og
magnaðir hlutar árinnar verða þurr-
ir.
Við Urriðafoss og á svæðinu ofan
við Þjórsártún, þar sem gert er ráð
fyrir miðlunarlóni, er ef til vill ekki
önnur eins náttúrufegurð sett í upp-
nám á móti því sem yrði þar sem áð-
ur var talið.
Mér þótti uggvænlegt að heyra í
forstjóra Landsvirkjunar í sjónvarpi
þar sem hann sagði að hiklaust yrði
virkjað á þessum stöðum í Þjórsá,
hvort sem álverið í Hafnarfirði yrði
stækkað eða ekki. En ég vona að
andstaða heimamanna á jörðunum
við Þjórsá, svo og alls almennings,
verði þyngri á metunum.
Eftir að ný brú kom á Þjórsá hafa
mun fleiri en áður séð Urriðafoss;
frá veginum er stuttur spölur að
fossinum og þar hefur verið gerður
ágætur útsýnispallur.
Ekki er mikilli fallhæð fyrir að
fara en Urriðafoss á sína sérstöku
fegurð, og fallegur var hann nú í vet-
ur í klakaböndum.
yggð á einu bretti?
Náttúrufegurð Þjórsá er óvíða fegurri en á kafla gegnt Þverá í Gnúpverja-
hreppi, þar sem áin fellur milli hraunhóla. En allt mun það fara í kaf ef
virkjað verður.
Höfundur er blaðamaður
og myndlistarmaður.
Hvað gerist þegar
þú blandar saman
erlendu láni með
lágum vöxtum og
íslensku láni með
minni áhættu?