Morgunblaðið - 22.04.2007, Page 41

Morgunblaðið - 22.04.2007, Page 41
inni Piper Cup sem Eiríkur fór í sérstaka ferð til Bandaríkjanna til að sækja en flugmódel eru eitt af fjölmörgum áhugamálum Eiríks. Stærðin á þessari flugvél er einn þriðji af fyrirmyndinni og þegar Eiríkur er ekki að fljúga henni um loftin blá skreytir hún matsal skól- ans. Kerfið á erindi í fleiri skóla Hjá Reykjavíkurborg sagði Jó- hanna Eyrún Torfadóttir ráðgjafi fyrir skólamötuneyti leik- og grunnskóla að vel mætti hugsa sér, að ef svona tölvukerfi verði sett upp í nægilega mörgum skólum, geti matvælafræðingar og jafnvel sálfræðingar nýtt upplýsingarnar til að gera kannanir á mataræði barna. „Það er hægt að setja inn miklu fleiri færslur í forritið og nýta það í innra eftirlit með skóla- mötuneytum og matvælaöryggi. Hægt er að fylgjast með vöru- móttöku og hitastigi matvælanna, þetta er mjög sniðugt forrit,“ sagði Jóhanna Eyrún. Eiríkur kom einn- ig inn á þetta atriði og sagði að hægt væri að bæta við stöðlum úr svokölluðu GÁMES eftirlitskerfi sem Reykjavíkurborg styðst við og er fyrirbyggjandi kerfi sem ætlað er að tryggja öryggi matvæla. Inn í það er skráð hitastig matvæla og hráefna á ýmsum stigum og merkt við þrif á eldhúsi og áhöldum í því, ofna og annað. Í stað þess að skrá það á blöð eins og gert er í dag væri hægt að færa það beint inn í tölvuna og þá getur sá aðili sem hefur eftirlit með slíku hjá Reykja- víkurborg haft aðgang að þessum upplýsingum beint og samstundis frá sinni skrifstofu. Hefur Eiríkur kynnt sviðs- stjórum í Reykjavíkurborg þetta tölvukerfi sem hann fann upp? „Við vildum prófa þetta almennilega hérna í skólanum fyrst og svo komu kosningar og nú eru nýir menn teknir til starfa sem eiga eftir að kynna sér málið en vissulega er kerfið þróað hér í einum skóla borgarinnar og því kannski ekki óeðlilegt að borgin styddi við þessa vinnu,“ sagði Eiríkur. En er ekki fremur óvenjulegt að kokkurinn sé að vasast í að hanna tölvuforrit skólans? „Ég er svona það sem kallað er þúsundþjala- smiður og þegar maður er að vinna við eitthvert kerfi sem virkar ekki alveg, þá er bara að demba sér í að kippa því í liðinn,“ sagði Eiríkur að lokum. Nýtt kerfi Krakkarnir stimpla sig inn í kerfið með litlu lyklaborði. Þúsundþjalasmiður Slóð: http://mbl.is/go/zerzs VEFVARP mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 41 13.-17. maí 2007 Fræðslu- og kynnisferð til Kasakstan Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is www.utflutningsrad.is Kasakstan er eitt af stærstu löndum heims og er mjög auðugt af náttúruauðlindum. Landið er að opnast fyrir erlendum fjárfestingum. Hagkerfi Kasakstan er stærra en allra hinna Mið-Asíuríkjana samanlagt og hagvöxtur í landinu er yfir 10%. Útflutningsráð stendur fyrir fræðslu- og kynnisferð til Kasakstan um miðjan maí. Fyrirtæki sem hafa áhuga á viðskiptum á þessum ört vaxandi markaði eru hvött til að hafa samband sem fyrst og skrá þátttöku, en skráningarfrestur er til 26. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Svansson, gudjon@utflutningsrad.is og í síma 511 4000. I R A P P • AÍ S • 70 79 1 Lifandi afl í 60 ár Málþing Í tilefni 60 ára afmælis RARIK verður málþing í Salnum, Kópavogi, föstudaginn 27. apríl kl. 14:00 að afloknum aðalfundi fyrirtækisins. DAGSKRÁ Ávarp iðnaðarráðherra, Jóns Sigurðssonar Saga rafmagns í 100 ár Sveinn Þórðarson sagnfræðingur Þegar rafmagnið kom í sveitina Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps Hlé / Kaffiveitingar Eru línurnar í lagi? Steinunn Huld Atladóttir, gæða- og umhverfisstjóri RARIK Umhverfi auðnuafls Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins Málþinginu lýkur um kl. 16:00. Fundarstjóri: Sveinn Ingvarsson Fundurinn er öllum opinn. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi 25. apríl á netfangið rarik@rarik.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.