Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 46

Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 46
46 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Fundarstjóri: Rósa Einarsdóttir, í stjórn Umhyggju. 8.15-9.00 Skráning og afhending gagna. 9.00-9.15 Setning. 9.15-9.50 Heilbrigði og þjóðfélag. Matthías Halldórsson, landlæknir. 9.50-10.25 Börn og fátækt. Stefán Hrafn Jónsson, sviðsstjóri. Kaffihlé 10.45-11.20 Heilsueftirlit barna með sérþarfir. Ingólfur Einarsson, barnalæknir. 11.20-11.50 Ill meðferð barna - vandi fortíðar? Bragi Guðbrandsson, forstjóri. Matarhlé 13.00-13.25 Næring og heilsa. Ingibjörg Gunnarsdóttir, næringarfræðingur. 13.25-13.50 Offita - nýr faraldur. Hvað er til ráða? Ragnar Bjarnason, barnalæknir. Stutt hlé 14.00-14.25 Hreyfing og heilsa. Erlingur Jóhannsson, prófessor. 14.25-15.00 Svefn og heilsa. Arna Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur. Kaffihlé 15.20-16.00 Heilsa og velferð barna. Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur. Fundarstjóri: Geir Gunnlaugsson, forstöðumaður Miðstöðvar heilsuverndar barna. 9.00-9.30 Tannheilsa - tannvernd. Inga B. Árnadóttir, tannlæknir. 9.30-10.00 Sjónvandamál barna - grunur, greining og meðferð. Brynhildur Ingvarsdóttir, augnlæknir. Kaffihlé 10.20-10.50 Flogaveiki - grunur, greining, viðbrögð. Ýr Sigurðardóttir, barnalæknir. 10.50-11.20 Slysavarnir barna. Rósa Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri slysavarna. 11.20-11.50 Sýklalyfjanotkun - er íhaldssemi þörf? Vilhjálmur Ari Arason, heilsugæslulæknir. Matarhlé 13.00-13.25 Geðrænn vandi - líkamleg einkenni. Margrét Valdimarsdóttir, barnageðlæknir. 13.25-13.50 Tölvufíkn - nýr heilsuvandi. Eyjólfur Örn Jónsson, sálfræðingur. Stutt hlé 14.00-14.25 Umönnun barna með sykursýki. Elísabet Konráðsdóttir, hjúkrunarfræðingur. 14.25-14.50 Heyrnarskerðing - grunur, greining og meðferð. Ingibjörg Hinriksdóttir, háls-, nef- og eyrnalæknir. Kaffihlé 15.10-15.45 Sálgæsla vegna sjúkra barna. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur. 15.45-17.00 Móttaka og samvera námskeiðsgesta og fyrirlesara - léttar veitingar. Fimmtudagur 3. maí XXII. vornámskeið Grand Hóteli 3. og 4. maí 2007 Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins Upplýsingar og skráning á www.greining.is eða í síma 510 8400. Skráningu lýkur 26. apríl. Föstudagur 4. maí Börn og heilbrigði AUGLÝSING FRÁ YFIRKJÖR- STJÓRN REYKJAVÍKURKJÖR- DÆMIS SUÐUR UM MÓTTÖKU FRAMBOÐSLISTA OG FLEIRA Framboðsfrestur til alþingiskosninga 12. maí 2007 rennur út föstudaginn 27. apríl nk. kl. 12.00 á hádegi. Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður tekur á móti framboðslistum þann dag kl. 10.00-12.00 á bókasafni Hagaskóla, Fornhaga 1, II. hæð. Á framboðslista skulu vera 22 nöfn frambjóðenda. Hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi kjördæmi. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera 330 að lágmarki og 440 að hámarki. Engin kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista. Komi það fyrir strikast nafn kjósandans út í báðum (öllum) tilvikum. Loks skal fylgja fram- boðslista skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili til þess að enginn vafi geti leik- ið á því hverjir eru í kjöri. Mælst er til að framboðslistum og listum yfir með- mælendur verði skilað á tölvutæku formi. Að öðru leyti er vísað til ákvæða laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, með síðari breytingum. Meðan kosning fer fram, laugardaginn 12. maí nk., verður aðsetur yfirkjör- stjórnar í Hagaskóla, þar sem talning atkvæða, að kjörfundi loknum, mun fara fram. Reykjavík, 20. apríl 2007 Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður. NÝLEGA urðu stjórnarskipti í Bílgreinasambandinu. Af því tilefni langar undirritaðan, sem formann þess, að gera örstutta grein fyrir starfsemi þess og megináherslum um þessar mundir. Bílgreinasambandið er samtök atvinnurek- enda sem starfa á sviði sölu ökutækja, vöru og þjónustu tengdrar þeim. Innan vébanda þess eru vel á annað hundrað fyrirtæki; bílaumboð, bílasölur, almenn verkstæði, hjólbarðaverkstæði, málningar- og réttingarverkstæði, ryðvarn- arstöðvar, smurstöðvar, vara- hlutasölur auk annarra þjónustuað- ila í greininni. Bílgreinasambandið á sér tæplega 75 ára sögu en hefur starfað í núverandi mynd frá 1970 er fyrirtæki í greininni sameinuðust undir merkjum þess. Innan vé- banda Bílgreinasambandsins starfa nú á annað þúsund manns um land allt. Hátæknigrein sem greiðir há laun Samhliða tækniþróun hefur bíl- greinin þróast gífurlega undanfarin ár. Kröfur til starfsfólks í greininni eru nú allt aðrar og meiri en áður, sem m.a. endurspeglast í sífellt betri, viðameiri og oft sértækari menntun sem starfsfólk þarf að afla sér til að standast kröfur nútímans. Samfara þessum breytingum hafa laun og afkomutækifæri tekið stakkaskiptum og teljast nú með því besta sem völ er á – enda er bíl- greinin sem slík í raun orðin há- tæknigrein. Þessari atvinnugrein er mikilvægt að eðlileg endurnýjun eigi sér stað; að maður komi í manns stað, bæði til eðlilegs við- halds greinarinnar og ekki síður til þess að sinna aukinni eft- irspurn eftir þjónustu samfara auknum mannfjölda í landinu. Þess vegna mun Bíl- greinasambandið nú leggja aukna áherslu á að kynna greinina fyrir ungu fólki og þá miklu möguleika sem mennt- un á sviði bílgreina gefur. Innan hennar á ungt fólk stórkostlega möguleika til að skapa sér bjarta framtíð. Samfélagsleg ábyrgð Bílgreinin er öflug atvinnugrein með á annað þúsund manns í vinnu og er samfélagslegt hlutverk henn- ar mikið. Má í því samhengi nefna að tekjur ríkissjóðs af sölu og þjón- ustu við ökutæki voru árið 2005 um 47 milljarðar króna og líklegt að um svipaða fjárhæð hafi verið að ræða á síðasta ári. Það er mikilvægt að aðilar Bílgreinasambandsins taki samfélagslega ábyrgð sína alvarlega og starfi af einurð og heiðarleika og í samræmi við lög og reglur. Í þessu samhengi hefur m.a. verið unnið að innleiðingu gæðastaðla fyrir verkstæði innan vébanda Bíl- greinasambandsins. Gengur það ferli vel og er nú unnið að innleið- ingu, úttekt og vottun fyrirtækja í greininni, sem verða nokkurskonar undanfarar, fyrirmynd annarra þegar öllum verkstæðum Bílgreina- sambandsins verður boðin sam- bærileg innleiðing, öllum til hags- bóta, jafnt starfsmönnum sem viðskiptavinum. Ekki síður hagsmuna samtök neytenda Enda þótt Bílgreinasambandið sé að sjálfsögðu hagsmunasamtök þeirra sem starfa undir merkjum þess eru þau ekki síður öflugur hagsmunaaðili í þágu almennra neytenda í landinu. Því til vitnis má benda á fjölda tillagna sem sam- bandið hefur barist fyrir í áranna rás. Meðal slíkra málefna má nefna áherslu á aukna samkeppni í grein- inni og lækkun ýmissa gjalda rík- isins til verðlækkunar á bílum og þjónustu við þá. Nefna má einnig baráttu fyrir innleiðingu gæða- stjórnunarkerfa og aukinni mennt- un starfsmanna og átak gegn lélegri og illa sinntri þjónustu við neyt- endur. Ávaxta þessarar baráttu sam- bandsins gætir víða, svo sem í formi ýmissa gæðavottana og stóraukinni menntun, en sambandið stóð ásamt fleirum á sínum tíma að stofnun Fræðslumiðstöðvar bílgreina sem nú hefur gengið til samstarfs við sí- menntunarfélag fjögurra annarra iðngreina, Iðunnar fræðsluseturs. Bílgreinasambandið hefur enn- fremur um langt skeið barist fyrir sérstakri skráningu á tjónabílum og Björt framtíð bílgreinarinnar og samfélagsleg ábyrgð Egill Jóhannsson skrifar um lækkun vörugjalda á bifreiðar og breikkun mikilvægra sam- gönguæða » Það er von Bílgreina-sambandsins að stjórnmálaflokkar landsins taki þessar til- lögur til ítarlegrar og já- kvæðrar skoðunar Egill Jóhannsson Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.