Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 60
60 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku mamma, mér
urðu á leiðinleg mistök
er ég skrifaði æviágrip
þitt. Ég var að skrifa upp nöfn allra
systkina þinna, elsku mamma, en þið
voruð stór hópur, þú varst yngst. En
mér varð á í messunni, ég var svo
mikið að reyna að muna öll nöfnin, að
ég gleymdi þeim hálfbróður sem
mest var samband við, honum
Mona Erla
Símonardóttir
✝ Mona Erla Sím-onardóttir
fæddist á Hrúðunesi
í Leiru 24. nóv-
ember 1927. Hún
andaðist á dval-
arheimilinu Garðv-
angi í Garði 4. jan-
úar síðastliðinn og
var útför henna
gerð í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Bjössa, mér fannst
þetta alveg skelfilegt
þegar þetta uppgötv-
aðist. Því það var alltaf
mikið samband þarna
á milli og við Laugu
hans og börn, eftir að
hann dó. Elsku
mamma, ég ætla hér
með að leiðrétta þetta,
því annað er ekki
hægt, þú hefðir ekki
orðið ánægð með
þetta. Sigurlaug kona
Bjössa dó nokkrum
dögum eftir andlát þitt
og þið eruð örugglega búnar að hitt-
ast aftur, gömlu vinkonurnar. Elsku
mamma, þín er sárt saknað,en ég
ylja mér við góðar minningar. Af
mörgu er að taka. Ég segi ennþá, ég
er að fara til pabba og mömmu, og á
það örugglega eftir að gerast oft,
enda tel ég að þú sért hjá okkur bæði
í anda og hjarta okkar. Þannig að
það er ekkert vitlaust að taka svo til
orða.
Elsku mamma, ég kveð að sinni,
hittumst þó síðar verði.
Guð gefi þér styrk, elsku pabbi.
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd,
bar hún mig og benti
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
mér í huga skín
bjarmi þinna bæna,
blessuð versin þín.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best
hjartað blíða, heita –
hjarta, er sakna’ ég mest.
(Sumarliði Halldórsson)
Þín elskandi dóttir,
Valdís.
Þá er hún amma
mín farin frá okkur.
Hún var vönduð kona
að allri gerð. Mér er efst í huga
þakklæti fyrir þær mörgu góðu
stundir, sem við barnabörnin mátt-
um njóta hjá henni, á Hamars-
brautinni. Mér þótti alltaf mikið til
þess koma hversu glæsilegt heimili
hún rak. Þar mæddi nokkuð á; all-
ur ættboginn leit á heimili þeirra
ömmu og afa sem sitt samkomu-
hús, enda var alltaf gott að koma í
heimsókn til hennar, en amma var
mikil félagsvera og naut sín best í
góðum hópi.
Hún amma hefði orðið 97 ára
hinn 30. mars nk., en ég man ekki
eftir henni öðruvísi en heilsu-
hraustri. Hún var alltaf, fram á
það síðasta, ern vel og fylgdist
gjörla með hvernig börnum,
ömmu- og langömmubörnum vegn-
aði. Á heimili foreldra minna er að
finna ljósmynd af henni ungri að
árum og það er ljóst, að hún amma
hefur verið glæsileg Reykjavíkur-
mær á sínum bestu árum. Hún var
líka alltaf vel til höfð og smekklega
til fara.
Með henni er líka genginn síð-
asti meðlimur í „þríeykinu“ á
Hamarsbraut 8, þar sem sátu mikl-
ir álitsgjafar og greinendur þjóð-
félagsmála. Þórður föðurbróðir
minn og Stefán afi fóru þar fremst-
ir en hún amma átti þar samt
ákveðið hlutverk, þótt rödd hennar
væri ekki alltaf áberandi á því
hringborði. Stundum fann ég að
hún hafði ekki mikinn áhuga á því,
sem var til meðferðar hjá þeim
feðgum, þá reyndi hún að fanga at-
hygli mína svona á hliðarlínunni og
Ragnheiður Hulda
Þórðardóttir
✝ RagnheiðurHulda Þórð-
ardóttir fæddist í
Reykjavík 30. mars
1910. Hún andaðist
sunnudaginn 11.
mars síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði
þriðjudaginn 20.
mars.
spyrja frétta af börn-
um, eða af öðrum
högum mínum.
Annað minningar-
brot er, þegar við
fengum hjá henni „al-
vöru súkkulaði“ sem
var hreint ekki sama
vara og venjulegt
kakó og við lærðum
að gera skýran grein-
armun þar á.
Það er mikið safn
minninga, sem við
barnabörn og barna-
barnabörn eigum frá
góðum stundum á Hamarsbraut 8
með afa og ömmu. Þessar minn-
ingar munu lifa í huga okkar áfram
og ylja okkur að innan og gera
okkur stolt af að vera komin af
sannarlega góðu fólki.
Huldar Örn Sigurðsson.
Elsku Hulda mín.
Nú ertu farin frá okkur og von-
andi ertu búin að hitta Stefán
frænda og Þórð son þinn núna og
þá líður þér vel. Ég sakna þess
mikið að koma ekki á Hamars-
brautina með svarta pokann minn,
til að vera hjá þér á meðan Þórður
fékk sér frí og skrapp eitthvað frá.
Það voru alveg dásamlegar stundir
hjá okkur, við gátum alltaf talað
svo mikið saman, þér leið svo vel
að geta verið á heimilinu þínu og
það gastu því Þórður hugsaði svo
vel um þig eftir að Stefán dó. Þú
varst svo heppin að eignast sex
myndarleg og falleg börn og gull-
fallega afkomendur sem komu oft
til þín í heimsókn og þú ljómaðir
alltaf þegar þau komu. Þú varst
lengi að reyna að muna nafnið á
honum Styrmi, yngsta barna-
barnabarninu, en það kom nú. Ég
ætla alltaf að minnast þín með lag-
inu „Sestu hérna hjá mér ástin
mín“ sem Stefán hefur örugglega
sungið oft til þín, þið voruð svo fal-
leg hjón.
Guð blessi ættingja þína um
ókomna framtíð og geymi góðar
minningar um góða konu.
Soffía Felixdóttir.
Gísli Vigfússon,
ömmubróðir minn og bóndi á
Flögu í Skaftártungu, var í mínum
augum ímynd hins íslenska bónda
og alls þess besta sem góðan
bónda getur prýtt. Hann var
traustur, sterkur, æðrulaus, dug-
Gísli Vigfússon
✝ Gísli Vigfússonfæddist í Flögu í
Skaftártungu í
Vestur-Skaftafells-
sýslu á höfuðdag,
29. ágúst 1923.
Hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Klausturhólum 1.
mars síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Grafarkirkju í
Skaftártungu 10.
mars
legur, hnyttinn og
stríðinn. Og talaði
sérlega fallegt ís-
lenskt mál. Ég var
svo lánsamur að vera
í sveit á sumrin sem
barn og unglingur á
Flögu. Ég var á efri
bænum, Flögu I, hjá
Sveini og Sigrúnu og
á Flögu II bjó Gísli
og hans fjölskylda.
Gísli var ákveðinn og
harðduglegur, en
góðlegur og virtist
aldrei láta sér neitt
fyrir brjósti brenna. Tók hlutunum
eins og þeir voru og virtist alltaf
sáttur við Guð og menn. Hann gaf
sér líka ávallt tíma til að tala við
lítinn frænda sinn þegar færi gafst
og lét sem allt væri merkilegt sem
sagt var. Allt skipti máli og var
forvitnilegt. Hann lét jafnvel eins
og hann væri steinhissa á hvað
þetta var allt merkilegt. Þegar ég
fór suður á haustin þá gaf hann
mér pening og lét mér finnast eins
og ég hefði eitthvað hjálpað á þeim
bænum líka.
Síðustu árin, þegar Gísli var
tekinn að reskjast, var hann yf-
irleitt úti við þegar ég kom í heim-
sókn. Hann bauð þó alltaf strax
inn í kaffi til Siggu og svo var
spjallað. Ennþá virtist allt heldur
merkilegt sem ég sagði og for-
vitnilegt. Þannig leið manni með
honum. Fyrir mér er Gísli ákveðin
fyrirmynd og tákn um heiðarlega
og duglega þjóð sem lagði mikið á
sig til að gera Ísland að betri stað
fyrir eftirkomendur. Fyrir það ber
að þakka. Ég votta Siggu, börn-
unum hennar og Gísla og öðrum
fjölskyldumeðlimum innilega sam-
úð.
Runólfur Birgir Leifsson.
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
✝
Móðir okkar,
ÁSTA INGIBJÖRG ALBERTSDÓTTIR,
lést sunnudaginn 15. apríl.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir alúð og umhyggju
henni til handa.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingunn Vilhjálmsdóttir,
Sigríður Hrefna Vilhjálmsdóttir.
✝
Elskulegur bróðir okkar,
HAGALÍN KRISTJÁNSSON
fyrrv. bóndi og húsasmiður,
Tröð í Önundarfirði,
sem lést mánudaginn 16. apríl, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 24. apríl kl. 15.00.
Jens Kristjánsson,
Páley Kristjánsdóttir.
Elsku amma Lauga.
Ég veit að þú ert
komin á góðan stað og
líður eflaust vel, en
guð hvað ég sakna þín mikið.
Alltaf þegar ég fer að sofa þá
hugsa ég um ykkur afa og hugsa mér
Sigurlaug Gísladóttir
✝ Sigurlaug Gísla-dóttir fæddist
25. september 1920.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Garðvangi í Garði
sunnudaginn 14.
janúar síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Keflavík-
urkirkju 19. janúar.
hvað þið séuð að gera
þarna uppi.
Það eina sem mér
dettur í hug að þið
séuð að gera er að þið
séuð að dansa við fal-
lega englatónlist.
Ég elska þig og um
mun ávallt hugsa um
þig, þú ert og verður
alltaf í hjarta mínu, þú
ert sæti engillinn
minn.
Ég elska þig og mun
ávallt hugsa fallega til
þín. Blessuð sé minn-
ing þín, elska þig að eilífu.
Þín dótturdóttir
Ragnheiður Friðriksdóttir.
Elsku Halli afi, þá
er komið að kveðju-
stund.
Við munum minnast
þín um ókomna tíð og
erum þakklátar fyrir að hafa fengið
að kynnast þér betur nú á þínum síð-
ari árum. Þú varst orðinn svo dug-
legur að kíkja í kaffi til okkar systr-
anna og þá var ávallt stór
súkkulaðiplata með í för handa lang-
afabörnunum. Reyndar voru börnin
orðin svo spillt að þau voru byrjuð að
heimta súkkulaðið áður en þú komst
inn fyrir dyrnar. Aðeins einu sinni
gleymdist súkkulaðið en það var í
þinni síðustu heimsókn til okkar, þér
var mikið í mun að koma því til
barnanna, við systur munum koma
Haraldur Sigurðsson
✝ Haraldur Sig-urðsson fæddist
á Hjalla í Ölfusi 14.
apríl 1930. Hann
lést á hjartadeild
Landspítalans 11.
mars síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Háteigskirkju
19. mars.
því áleiðis í þetta sinn
og í framtíðinni fyrir
þína hönd.
Það koma margar
minningar upp í hug-
ann, ein af mörgum er
ferð okkar upp í bú-
stað þar síðasta sum-
ar, það var aldeilis
stjanað við okkur öll
og það átti sko að vera
nóg af öllu fyrir okkur.
Eftir að börnin voru
komin í háttinn þá
sátu við öll saman
fram eftir kvöldi og
spjölluðum um hitt og þetta.
Snemma morguninn eftir voru Villi
Helgi, Arndís Birta og Freyja ekki
lengi að laumast til að vekja þig, en
þú varst strax klár í allt sem þeim
datt til hugar. Þið fóruð í berjatínslu
heilmikla, og tókuð ykkur allan þann
tíma sem þið vilduð enda komu
margar föturnar til baka og nokkrir
bláir munnar. Við töluðum ávallt um
að endurtaka leikinn næsta sumar
því það náðist ekki síðasta sumar, við
verðum nú að sætta okkur við ynd-
islegu minningarnar úr síðustu ferð.
Við þökkum allar góðu stundirnar
sem við fengum með þér í gegnum
tíðina og erum þakklátar fyrir að
hafa getað verið til staðar hjá þér á
þínum síðustu dögum. Við erum viss-
ar um að þú sért í góðum félagsskap
og þér líði vel, eins og þú hefðir sagt;
„þetta er salli“.
Elsku Halli afi, blessuð sé minning
þín.
Ég heyrði Jesú himneskt orð:
„Kom, hvíld ég veiti þér.
Þitt hjarta er mætt og höfuð þreytt,
því halla að brjósti mér“.
Ég kom til Jesú sár af synd,
og sorg, af þreytu og kvöl,
og nú er þreytta hjartað hvílt
og horfið allt mitt böl.
(Stefán Thorarensen)
Þínar,
Sigríður, Rut og fjölskyldur.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birtist
valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Minningargreinar