Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 75
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Sambíóin
Trúnaðarrof/Breach Leikstjóri: Billy Ray. Aðalleikarar: Chris
Cooper, Ryan Phillippe, Laura Linney,
Dennis Haysbert, Gary Cole, Kathleen
Quinlan. 110 mín. Bandaríkin 2007.
UPPHAFSMÍNÚTURNAR
Breach, færa þér sanninn um hver
verða málalokin, en það kemur
ekki að sök, því myndin er keyrð
frá upphafi til enda af skilningi og
virðingu fyrir mikilvægi viðfangs-
efnisins, landráðum í einum helstu
höfuðstöðvum öryggiskerfis
Bandaríkjanna, Alríkislögregl-
unnar – FBI.
Framvindan er eins og best get-
ur orðið hjá spennusagnahöfundi
þó atburðarásin sé aðeins lítillega
dramatíseruð. Breach hefst á því
að Eric ÓNeill (Phillippe), ungum
og efnilegum nýliða í Alríkislög-
reglunni, er fengið verkefni sem
hann áttar sig ekki alveg á: Að
fylgjast með Robert Hanssen
(Cooper), virtum og háttsettum
manni sem hefur unnið aldarfjórð-
ung hjá stofnuninni og er í mikl-
um metum. Til að byrja með tekur
Hanssen nýja aðstoðarmanninum
fálega, hann er eldskarpur, orð-
hvass, virðist sinna starfi sínu af
fullum trúnaði. Fljótlega fer
O’Neill að bera virðingu fyrir
þessum, að því er virðist, vamm-
lausa manni og fær engan veginn
skilið upplýsingarnar sem hann
fékk að leiðarljósi. Að fulltrúinn sé
varasamur náungi og kynferð-
islega brenglaður.
Á réttum tímapunkti fær
O’Neill að vita að alvarlegri hlutir
búa undir og Breach verður smám
saman mögnuð skák á milli nýlið-
ans og eins reyndasta mannsins í
liðinu. Það skiptir því meginmáli
að hlutverkin séu vel mönnuð og
maður beið þess með tilhlökkun að
fá að sjá stórleikarann Cooper
sýna hvers hann er megnugur í
vandasömu og einu stórvægileg-
asta hlutverki sem hann hefur
fengist við, því njósnarinn er hátt-
settur, vel menntaður en við-
sjárverður og háll, mikið til laus
við sérviskuna sem einkennir oftar
en ekki þá karaktera sem kam-
eljónið hefur fengist við til þessa.
Cooper bregst heldur ekki og er
óaðfinnanlegur sem hinn hroka-
fulli og heittrúaði svikari sem var
slíkum hæfileikum búinn að geta
leikið tveim skjöldum í aldarfjórð-
ung. Hann blasir við okkur, með
kosti sína og galla, leyndardóms-
fullur og óræður. Cooper hefur
ekki gert betur síðan hann túlkaði
ekki óáþekkan tvískinnung í Am-
erican Beauty (‘99). Í stað þess að
verða auðgleymdur fallkandídat er
Phillippe að skrölta í gegnum full-
orðinspróf upp úr grunnskólanum,
sem kemur á óvart. Tvær gam-
alreyndar og traustar skapgerð-
arleikkonur, Linney og Quinlain,
fylla út í myndina í hlutverkum
eiginkvenna mannanna tveggja..
Handritið, sem er skrifað af
Adam Mazer og William Rotko,
bráðefnilegum nýliðum, er vitrænt
og blæbrigðaríkt. Í nokkrum lín-
um er gefið í skyn hvað veldur að
Hanssen verður að slíku kaldblæð-
andi skrímsli sem raun ber vitni.
Persóna O’Neills er ámóta lip-
urlega gerð, tvíbent samskipti
hans við yfirboðarann eru alltaf
trúverðug, þrátt fyrir erfiðar að-
stæður og andrúmsloftið er
ótryggt og þrungið spennu frá
fyrstu mínútu. Framvindan er full
af snjöllum smáatriðum sem
kynda stöðugt undir eftirvæntingu
áhorfandans. De Niro hefði haft
gott af því að skoða handbragðið í
Breach áður en hann tók til við
The Good Shepherd.
Sæbjörn Valdimarsson
Brest-
ur í
kerfinu
Gott handbragð De Niro hefði haft gott af því að skoða handbragðið í
Breach áður en hann tók til við The Good Shepherd
Tækni- og verkfræðideild er stærsta deild Háskólans í Reykjavík
Þar er lögð áhersla á að veita tæknifólki og stjórnendum framtíðarinnar afburða
háskólamenntun. Ennfremur er mikið lagt upp úr því að nemendur geti, sjálfstætt
eða í samstarfi við fræðimenn í fremstu röð, stundað öflugar rannsóknir og sinnt
nýsköpunar- og þróunarstörfum í tæknifræði, tölvunarfræði og verkfræði. Þeir
sem mennta sig í þessum greinum eiga stóran þátt í velgengni margra íslenskra
fyrirtækja á alþjóðamarkaði. Innan deildarinnar er jafnframt boðið upp á nám í
frumgreinum og iðnfræði.
ÓTAL TÆKIFÆRI
Tölvunarfræði:
BSc í tölvunarfræði
MSc í tölvunarfræði
60 eininga nám til kerfisfræðiprófs
(fjarnám og háskólanám með vinnu)
Tölvunarfræði er afar fjölbreytt
fagsvið sem býður upp á marga
valkosti fyrir nám og störf, allt frá
hagnýtum verkefnum til fræðilegra,
frá tölvuumsjón til smíði flókinna
hugbúnaðarkerfa, frá forritun til
stjórnunar. Tölvunarfræðinám er
góður grunnur fyrir starfsferil á
fjölmörgum sviðum.
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1 • SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
Kynntu þér nám í HR á www.hr.is
Umsóknarfrestur er til 31. maí.
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7
Tæknifræði:
BSc í byggingartæknifræði
BSc í rafmagnstæknifræði
BSc í vél- og orkutæknifræði
MSc í byggingartæknifræði
Í náminu taka nemendur þátt í
raunhæfum verkefnum sem undirbúa
þá vel fyrir þátttöku í atvinnulífinu,
jafnframt því að veita góða undirstöðu
fyrir framhaldsnám. Nemendum er gert
að afla sér sex mánaða fagtengdrar
starfsreynslu fyrir námslok.
Verkfræði:
BSc í fjármálaverkfræði
BSc í hátækniverkfræði
BSc í heilbrigðisverkfræði
BSc í hugbúnaðarverkfræði
BSc í rekstrarverkfræði
MSc í byggingarverkfræði
Námið byggir á þvi að veita
nemendum sterka fræðilega
undirstöðu í bland við sérhæfða
fagþekkingu. Atvinnumöguleikar
verkfræðinga eru mjög góðir og
mikil eftirspurn eftir fólki með
þessa menntun, sem og aðra
tæknimenntun.
Iðnfræði:
Diplómanám í byggingariðnfræði,
rafiðnfræði og véliðnfræði.
Markmið námsins er að styrkja
stöðu nemenda á vinnumarkaði og
gera þá hæfari til að takast við fleiri
og fjölbreyttari störf.
Frumgreinar:
Markmið námsins er fyrst og
fremst að undirbúa nemendur fyrir
frekara nám í deildinni. Kjörin leið
fyrir fólk með iðnmenntun og aðra
sem þurfa frekari undirbúning til
áframhaldandi náms.
FÓTBOLTAKAPPINN og tískufríkin David Beck-
ham hefur verið kosinn kynþokkafyllsti pabbi í
heimi. Það var undirfataframleiðandinn Victoria
Secret sem gaf honum þennan titil eftir að hafa stað-
ið fyrir kosningunni „Hvað er kynþokkafullt 2007?“
Jessica Alba var kosin kynþokkafyllsta leikkonan
og Justin Timberlake kynþokkafyllsti karlkyns tón-
listarmaðurinn.
Listinn var tilkynntur í partíi í Las Vegas og var
settur saman af hópi af hönnuðum og fyrirsætum
þar á meðal Heidi Klum og Karolinu Kurkova.
Aðrir sem komust á listann voru leikkonan Kate
Hudson sem kynþokkafyllsta mamman, Jay-Z og
Beyoncé voru nefnd kynþokkafyllsta parið, Sienna
Miller fékk viðurkenningu fyrir flottan fatastíl,
Cameron Diaz fyrir flottustu leggina og Jennifer
Hudson fyrir kynþokkafyllstu varirnar.
Leikararnir í Grey’s Anatomy voru valdir kyn-
þokkafyllsta sjónvarpsteymið.
Kynþokkafyllsti
pabbinn
Reuters