Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 67 daga Sjóveitunnar, en nú tók alvara lífsins við. Það má með sanni segja að Jón hafi verið orðinn fullgildur sjómað- ur 15 ára þegar hann gerðist háseti á Höfrungi sem Jón Fjalli átti. Það- an í frá datt Jóni ekki í hug að líta við öðru en sjómennsku, og kunni ekkert annað. Hann var formaður á fjölda báta stórum og smáum og prófaði öll hugsanleg veiðarfæri. 70 ára sjómannsferill Jóns var áfalla- laus. Fuglaveiði lá vel fyrir Jóni, en þegar hann stundaði veiðar í Ysta- kletti voru veiðifélagar hans lengst af Óli, pabbi Ása í Bæ, Kristján á Löndum og Sigurður í Hraungerði. Á þriggja daga fresti var veiðin flutt á báti sem Óli átti. Eitt sumarið veiddi Jón 40 kippur af lunda. Það var lán mótoristans, sem var nýskriðinn úr skóla, blautur bak við eyrun, að fá að komast í pláss hjá Jóni í Sjólyst á Lagarfossi 1956-7. Fyrir það fyrsta var Tómasarút- gerðin stöndug. Það vantaði aldrei neitt til neins og hvergi til sparað. Það var heppilegt að vélstjóraefnið hafði tekið ástfóstri við 50 HP Tux- ham-glóðarhausmótor í skólanum, sem enginn leit við, en það var ein- mitt 120 HP Grenov tveggja strokka glóðarhaus í Lagganum. Jóni tókst með lagni að gera ung- linginn að sæmilegasta mótorista án þess að særa stolt hans. Einn róður var nokkuð minnisstæður þó að veðrið væri ekki til að kvarta undan. Netin voru á Eyjabankanum, þegar annað skrúfublaðið datt af. Nú voru góð ráð dýr. Það gekk ágætlega að andæfa og klára dráttinn á öðru blaðinu, en hvernig átti að komast heim? Formanninum og mótorist- anum kom saman um að það mætti sigla heim fyrir eigin vélarafli ef varlega væri farið. Lagginn skilaði sér til lands að lokum, þó að hann dinglaði dálítið hekkinu með lestina fulla af boltafiski, 80 í tonninu. Þannig var það á Eyjabankanum áður en Surtsey kom til sögunnar. Votta aðstandendum Jóns í Sjó- lyst samúð mína. Bjarni Jónasson. og skemmtilegan orðaforða, sem gaman var að deila með Jóa. Bjartur var heppinn með pabba og á milli þeirra var gleði og mikil ást. Missir hans er mjög mikill. Ég þakka Guði fyrir allt það besta sem ég fékk að kynnast í Jóa. Elsku Jói, ég skal gæta Bjarts okkar eins vel og ég get, og ég bið Guð að hjálpa mér í bænum mínum, og þar munum við einnig muna eftir þér. Ég bið góðan Guð að hugga og blessa foreldra þína og fjölskyldu og votta mína dýpstu samúð. Ég veit um himins björtu borg í bjarma sólu hærri. Þar er ei skuggi, synd né sorg, hvert sár er grætt og fjarri. (Sigurbjörn Einarsson) Með hlýhug, Andrea Hilmarsdóttir. Við munum aldrei gleyma sumr- inu þegar Jói og Andrea voru að vinna á sveitabænum Hrauni, og við fengum að vera hjá þeim allt sum- arfríið. Hann gerði sumarið svo eftir- minnilegt og okkur leiddist aldrei. Við munum svo vel eftir því þegar þú tókst upp myndbandið af okkur og Edda og Birgittu að syngja „Nú er frost á fróni“ og „Krummi svaf í klettagjá“. Mikið og oft hefur verið horft á það og hlegið. Þessu eigum við aldrei eftir að gleyma, frekar en mörgum öðrum gleðilegum stundum. Þú varst alltaf góður við okkur og fannst alltaf upp á einhverju skemmtilegu að gera. Við munum ávallt minnast þín, og mamma líka. Hún talar stundum um hvað þú varst snjall og klár kokkur. Með hugmyndafræði þinni kunnir þú að búa til mikinn mat úr litlu hráefni. Með samúðarkveðju til allra ást- vina þinna. Guð geymi þig. Kveðja, Íris og Sara Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, HRAFNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR, Grensásvegi 60, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 22. maí á Hjúkrunar- heimilinu Eir. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á 4. hæð Hjúkrunarheimilinu Eir. Jón Ingjaldsson, Ágúst Ólafsson, Sigríður Sveinsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN KRISTJÁNSDÓTTIR, Hlíðarhjalla 6, Kópavogi, lést sunnudaginn 27. maí. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 5. júní kl. 13.00. Kristján Hilmarsson, Sesselja M. Matthíasdóttir, Guðjón Hilmarsson, Hafdís Svavarsdóttir, Birgir Hilmarsson, Erla Ólafsdóttir, Guðrún Hilmarsdóttir, Hans G. Alfreðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR, Drekagili 14, Akureyri, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð aðfaranótt laugardagsins 26. maí. Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 5. júní kl. 13.30. Gunnar Bergur Árnason, Guðmundur Örn Gunnarsson, Helena Gunnlaugsdóttir, Jóhanna Arnleif Gunnarsdóttir, Vilbergur Kristinsson, Erna Hildur Gunnarsdóttir, Gunnar Magnús Guðmundsson og barnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AXEL ÞÓRIR GESTSSON, Þórir frá Reykjahlíð, Karlagötu, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur vinsemd og samúð. Sérstaklega viljum við þakka Þorsteini Gíslasyni lækni og starfsfólki 13D Landspítala við Hringbraut fyrir einstaka aðhlynningu. Svanhildur J. Ingimundardóttir, Guðrún Axelsdóttir, Guðlaugur Jónasson, Ragnheiður Axelsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Ingimundur Gestur Axelsson, Jónas, Þórir, Fannar, Sindri, Gunnar, Guðlaugur og Leó. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, AÐALBJÖRN STEFÁNSSON, Hraunbæ 26, lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi fimmtu- daginn 31. maí. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurborg Ernudóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÞÓRIR EINARSSON, Sléttuvegi 21, áður Háaleitisbraut 56, lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 1. júní. Margrét Sigurðardóttir, Sigurður Örn Búason, Þórunn Sighvats, Elsa Hrönn Búadóttir, Sigurður Jónasson, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Jón Hrafn Jónsson, Einar Már Guðmundsson, Jóna Hálfdánardóttir, Guðrún Eygló Guðmundsdóttir, Heiðar F. Jónsson, Hafdís Björk Guðmundsdóttir, Jóhann Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÍKARÐUR MAGNÚSSON múrarameistari, Hrafnistu Hafnarfirði, andaðist sunnudaginn 20. maí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Magnús S. Ríkarðsson, Halldóra M. Ríkarsdóttir, Ríkarður M. Ríkarsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SESSELJA ZOPHANÍASDÓTTIR, Lella, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 31. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Hafsteinn Ólafsson, Þóra Bragadóttir, Jón Ólafsson, Þórhildur Sigurjónsdóttir, Örn Ólafsson, Margrét Elín Egilsdóttir, Theodór Ólafsson, Hulda Snorradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR frá Miðtúni á Melrakkasléttu, lést á dvalarheimili aldraðra, Hvammi, Húsavík föstudaginn 1. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Maríus Jóhann Lund, Ásdís Karlsdóttir, Kristinn Lund, Guðný Guttormsdóttir, Níels Árni Lund, Kristjana Benediktsdóttir, Benedikt Lund, Anna Ólafsdóttir, Sveinbjörn Lund, Jóhanna Hallsdóttir, Grímur Þór Lund, Eva Nøregaard Larsen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og kveðjur við andlát og útför föður okkar, SKÚLA ÞÓRÐARSONAR. Guð blessi ykkur öll. Bragi Skúlason, Hrafnhildur Skúladóttir, Hafdís Skúladóttir og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.