Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 31
koma betra skikki á.
Hún stendur upp og Beretta
verður vongóð á svip, en leggst þó
aftur niður róleg þegar Katrín kem-
ur strax aftur með úrklippur til að
sýna mér.
Greinilega hefur þótt í meira lagi
fréttnæmt að hinn 31 árs Breti
gengi að eiga hina 29 ára íslensku
konu – af þeim eru fjöldi mynda og
þar sést að ekki er ofsögum sagt af
glæsileika Stellu.
Í blaðagreinunum kom fram að
Stella var frá Viðey. Hún fæddist
þar, dóttir óðalsbóndans Eggerts
Briem og konu hans Katrínar Thor-
steinsson frá Bíldudal. Stella var
elst sjö systkina.
Ævintýralegt ferðalag
Cottonhjónin nýbökuðu settust að
í London, þar sem afi brúðgumans
hafði verið borgarstjóri á sínum
tíma.
Ég hvái við þessar upplýsingar.
„Já, Charles Dickens skrifaði
meira að segja árið 1870 lofsamlega
grein um langafa sem hét raunar
William J.R. Cotton,“ segir Katrín.
Hægt er að rekja Cottonsættina allt
til miðrar 16. aldar og jafnan taldist
ættin til æðri stéttar og gjarnan
voru karlmennirnir í þjónustu krún-
unnar. Langafinn var t.d. þingmað-
ur í lávarðadeildinni.
Ég fæ að sjá mynd af langafanum
og verð ekki fyrir vonbrigðum, hann
er mjög virðulegur á myndunum
sem Katrín sýnir mér.
En aftur að Katrínu sjálfri og for-
eldrum hennar.
„Ég fæddist í heimahúsi í London
og það voru send út allskonar kort
eins og tíðkaðist þá til að tilkynna
komu mína í þennan heim, svo fæð-
ing mín varð ýmsum Bretum
snemma kunn,“ segir Katrín og
brosir.
Á myndum af henni sem smá-
barni sést að hún hefur þrifist vel og
átt skemmtileg ungbarnsár á örm-
um foreldra sinna og ættingja.
En þegar hún var tveggja og
hálfs árs slitu foreldrar hennar sam-
vistum og móðir hennar hvarf með
hana frá Bretlandi.
„Við mamma fórum til Kaup-
mannahafnar og nokkru síðar til
Spánar. Það var eftir að hún kynnt-
ist og fór að búa með Þórði Alberts-
syni stjúpa mínum. Hann gekk mér
í föðurstað.
Við bjuggum á mörgum stöðum,
við vorum fyrst á Spáni en þar ríkti
óöld vegna borgarastyrjaldar og við
komumst með síðustu lest fyrir til-
verknað Péturs Benediktssonar til
Ítalíu. Þetta var víst ævintýralegt
ferðalag, mamma og ég höfðum
sama breska vegabréfið og hún ótt-
aðist að ég yrði tekin frá sér af því
að ég var breskur þegn. En með að-
stoð Péturs gekk þetta allt saman
og við komumst klakklaust í gegn-
um landamærin.
Við landamærin sagði Thor Thors
við mömmu: „Nú þegir þú, Stella!“
Það er í eina skiptið sem hún lauk
ekki upp sínum munni.“
Í skipalest til New York
„Á Ítalíu áttum við yndislega
daga, við bjuggum í Genúa í villu
sem Hálfdán Bjarnason hafði til um-
ráða. Hann var konsúll og gaf mér
minn fyrsta hund, þá var ég á fjórða
ári. Á verönd villunnar stóð ég og
horfði á Mussolini aka framhjá í
opnum bíl í fólksmergðinni. Ég varð
upprifin af stemmningunni og hróp-
aði með: „Viva il Duce.“
Á Ítalíu vorum til stríðsbyrjunar
1939, þá flúðum við til Íslands og
vorum hér stuttan tíma. Við bjugg-
um á Hótel Borg en fórum svo með
Goðafossi árið 1941 í skipalest áleið-
is til New York. Skip var skotið nið-
ur og annað laskað í skipalestinni en
við sluppum óhult á áfangastað.
Þórður starfaði við fisksölu fyrir
SÍF í New York. Með okkur í för
var Gunnar, sonur Þórðar og fyrri
konu hans, Yvonne Broberg, en hún
giftist síðar Baldvini Dungal.
Við bjuggum í Bandaríkjunum öll
síðari stríðsárin en Gunnar fór þó
heim á undan okkur. Ég fór í skóla
þar vestra og lærði ensku, ég talaði
mest ítölsku fram að því.
Nokkru áður en við ætluðum
heim Íslands var búslóðin okkar
send með skipi. En er brottför okk-
ar nálgaðist þá þverneitaði mamma
að fara með Goðafossi, þótt ákveðið
hefði verið að við færum heim með
því skipi. Þórður samþykkti að
fresta för okkar til Íslands fyrir þrá-
beiðni mömmu og það varð okkur
líklega til lífs, Goðafoss fórst í þess-
ari ferð.
Úr því að svona fór fluttum við til
Washington DC og þar starfaði
Þórður fyrir hönd Íslands hjá
UNRRA, samtökum sem tengdust
Marshall-hjálparstarfinu. Á vegum
þessara samtaka fluttum við nú til
Grikklands. Þar var allt í rúst, hót-
elið þar sem við vorum höfðu Þjóð-
verjar hersetið og skemmt sér við
að skjóta í loftin þegar þeir höfðu
ekki annað að gera. Ég man eftir
skotgötunum. Við máttum ekki fara
út af vegunum vegna jarðsprengna.
Ég sá allt þetta en áttaði mig þó
varla á hinni bláköldu alvöru
ástandsins.
Frá Grikklandi fórum við aftur til
Ítalíu og þangað fannst mér gott að
koma aftur. Við bjuggum í Róm og
ég kynntist borginni nokkuð. Ég var
fyrst sett í skóla þar sem nunnur
kenndu bandarískum börnum. Það
var strangur skóli en góður.
Þarna var ég á tólfta ári. Banda-
ríkjamenn tóku yfir íþróttavanginn
Forum Mussolini, sem svo hét. Þar
var settur á stofn skóli fyrir börn
hermanna og þangað fór ég litlu síð-
ar.
Við bjuggum á Ítalíu til 1948, þá
skildu mamma og Þórður.“
Kynnist föðurfólki
„Við mamma sigldum á norskum
togara frá Genúa til eyju sem hét
Trapani, þar sem skipið lestaði salt
til að fara með til Íslands. Ég man
vel eftir öllum húsarústunum á eyj-
unni. Togarinn strandaði og var
dreginn til Gíbraltar. Þar veiktist
móðir mín og var sett á spítala. Ég
var skilin ein eftir með 32 karl-
mönnum, brytinn átti að gæta mín
en hann hafði öðrum hnöppum að
hneppa, var vínhneigður mjög og ég
varð að passa mig sjálf. Ég slapp vel
og mamma náði sér að fullu. Tog-
arinn sigldi svo eftir að viðeigandi
varahlutir fengust til Bretlands þar
sem ég komst loks í kynni við föð-
urfólk mitt sem ég hafði fram að því
haft mjög litlar spurnir af. Þá var
faðir minn því miður í Bandaríkj-
unum. Hann var kvæntur aftur, Lo-
uise, sem ég átti eftir að kynnast
seinna. Mamma hafði samband við
Veru föðursystur mína, sem var orð-
Móðirin Ingibjörg (Stella) Briem,
rösklega tvítug
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 31
Safna›u 5 toppum af Merrild
kaffipokum og flú gætir unni› gjafabréf
í Marimekko, Laugavegi 56,
a› ver›mæti 50.000 kr.
fiví fyrr sem flú sendir inn,
flví meiri vinningsmöguleikar!
1. útdráttur: 20. febrúar - 6 gjafabréf
2. útdráttur: 20. mars - 6 gjafabréf
3. útdráttur: 20. apríl - 6 gjafabréf
4. útdráttur: 20. maí - 6 gjafabréf
5. útdráttur: 20. júní - 6 gjafabréf
Samtals 30 gjafabréf a› ver›mæti 1,5 milljónir.
Sendu inn flátttökuse›il ásamt 5 toppum af Merrild:
Merrild & Marimekko
Pósthólf 4322
124 Reykjavík
fiú fær› flátttökuse›il í næstu matvöruverslun.
KL
IPP
TU TOPPINN