Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 57
JARÐIR - LANDSPILDUR - SUMARHÚS
YFIR 100 BÚJARÐIR OG LANDSPILDUR
OG UM 60 SUMARHÚS Á SÖLUSKRÁ FM
Sjá nánar á www.fmeignir.is
www.fasteignamidstodin.is
Vorum að fá til sölu fallegt einbýlishús á 1700 fm sjáv-
arlóð á sunnanverðu Arnarnesi. Óvenju glæsilegt
útsýni.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
EINBÝLISHÚS Á SJÁVARLÓÐ
Á ARNARNESI
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson,
löggiltir fasteignasalar.
SUMARBÚSTAÐUR
MÚLABYGGÐ 36 BORGARFIRÐI
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Nýr fullbúin sumarbústaður 76,4 fm með
svefnlofti. Í húsinu er auk svefnlofts, 2.
herbergi, eldhús, stofa og baðherbegi. Þá
fylgir uppsett 14 fm gestahús með svefn-
herbergi og baði með sturtu. Þá er annað
hús ca. 10 fm og er það geymsla. Í kring-
um húsið er ca. 150 fm verönd með heitum potti. Húsið stendur á 6.049 fm
kjarrivaxinni lóð og er laus til afhendingar. Verð. 24,5 m. Áhvílandi 11,5 m. í
láni til 15 ára. Skipti á bíl koma vel til greina.
Allar nánari upplýsingar veitir Daníel í síma 897 2593.
www.heimili.is
Um er að ræða mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í litlu þríbýli
við Granaskjól í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er ákaflega vel skipulögð,
björt og falleg. Eignin skiptist í gang, eldhús, bítibúr, tvö svefnherbergi,
tvær stofur og baðherbergi. Einnig er geymsluloft yfir íbúðinni. Eigninni
fylgir að auki hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. V. 23,0 m. 6768
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Granaskjól - falleg eign
Jón Hólm Stefánsson
Lögg. fasteigna-, fyr-
irtækja- og skipasali
Glæsileg eign rétt austan Selfoss
www.gljufurfasteign.is
Til sölu er jörðin Bitra í Flóahreppi, Árnessýslu. Jörðin er talin vera
um 150 hektarar að stærð. Land jarðarinnar liggur að þjóðvegi 1
og Skeiðavegi, er fjölbreytt að landslagi og gróðri. Tjarnir eru í
landinu, sem gefa því ákveðið aðdráttarafl varðandi fuglalíf og
ásýnd. Víðsýnt er frá bæjarhól. Skógræktarsamningur við Suður-
landsskóga. Á jörðinni er íbúðarhús að stærð um 585 fermetrar,
á þremur hæðum, sem gefur ýmsa nýtingarmöguleika. Frekari
upplýsingar eingöngu gefnar hjá fasteignasala í síma 896-4761.
Ásett verð kr. 150 milljónir. Einkasala.
Upplýsingar um framangreinda eign eru veittar á
skrifstofu Gljúfur fasteignasölu í síma 896-4761.
ÁRANGURSRÍKT nám og þroski
krefst notkunar á báðum heilahvel-
um og sama gildir um góð samskipti.
Til að ná árangri í stærðfræði þarf
t.d. að bera kennsl á mynstur og rúm
ásamt því að hafa gott minni og ágæt
tök á notkun tákna. Sérhvert náms-
atriði sem vel tekst til
við snertir bæði hægri
og vinstri hluta heil-
ans. Því er það mik-
ilvægt að samstilla
hann.
Hemi-Sync er tví-
tóna hljóðtækni sem
samstillir heilann sam-
tímis því að breyta
tíðni heilabylgna og
tíðnimynstrum. At-
hyglin verður einbeitt-
ari, minni eykst og fólk
hvílist betur meðan
það sefur en svefn er
mjög mikilvægur þátt-
ur í öllu námsferli.
Hemi-Sync hefur verið þróað og
rannsakað við Monroe-stofnunina í
Bandaríkjunum í 47 ár í samvinnu
við marga virta háskóla, geðlækna,
lækna, kennara, verkfræðinga og
fleiri bæði innan og utan Bandaríkj-
anna.
Hemi-Sync nýtist einstaklingum
með hverskyns námsörðugleika, of-
virkni, athyglisbrest, einhverfu, les-
blindu og heilalömun (cerebral
palsy). Hemi-Sync hjálpar ein-
hverfum börnum að ná samhæfingu
skynsviða en einhverf börn eiga í
erfiðleikum með að vinna úr tauga-
boðum og upplýsingum frá einu
heilahveli til annars.
Áhrif beta-tíðninnar á heila barna
með athyglisbrest og/eða ofvirkni
(ADD) eru aukin eftirtekt á sama
tíma og hvatlyndi þeirra og ofvirkni
minnkar.
Hin samvirku áhrif skapa ýmiss
konar örvun sem hefst í heilaberki
og nær til randkerfis þar sem tilfinn-
ingum okkar er hrund-
ið af stað.
Metamúsik með
Hemi-Sync-mynstri
getur einnig hjálpað
lesblindu fólki og þeim
sem lesa hægt þar sem
bæði atriðin tengjast
villu í tímasetningu
milli heilahvelanna.
Þegar við lesum eru
flestir góðir lesendur
með vinstra heilahvel
virkt á tíðninni 13 rið
(beta-tíðni) og miðl-
ungsmögnun. Les-
blindir á hinn bóginn hafa tilhneig-
ingu til að vera með 10 riða tíðni
(alfa-tíðni) og fremur háa mögnun
þótt sumir þeirra hafi óvenjulega
lága mögnun. Litli heili þeirra sem
eru lesblindir hefur enn ekki lært
samhæfingu og tímasetningu sem
tengist innra jafnvægi líkamans.
Svo virðist sem samhæf blanda
tónsmíða með yfirtónum á beta-tíðni
og Hemi-Sync-ívafi auðveldi nauð-
synlega samstillingu heilans fyrir
einbeitta athygli. Tónlistarumhverfi
hjálpar okkur að læra af röggsemi
fremur en af erfiðismunum.
Hemi-Sync nýtist ekki síður við
ofurnám sem einstaklingum með
námsörðugleika.
Hemi-Sync-hjóðdiskar eru nú loks
fáanlegir hér á landi í vefversluninni
www.puls.is.
Þýtt og endursagt úr grein eftir Carmen
Montoto, leiðbeinanda frá Monroe-
stofnuninni.
Notkun beggja heilahvela
skilar bestum námsárangri
Lilja Petra Ásgeirsdóttir skrif-
ar um mikilvægi samstillingar
heilahvela hjá börnum með
námsörðugleika og athygl-
isbrest
»Hemi-Sync er tví-tóna hljóðtækni sem
samstillir heilahvelin og
auðveldar nám. Tæknin
hefur m.a. verið þróuð
með tilliti til ADD/
ADHD og einhverfu.
Lilja Petra
Ásgeirsdóttir
Höfundur er höfuðbeina- og spjald-
hryggsjafnari, lífeindafræðingur og
dreifingaraðili Hemi-Sync á Íslandi
Myndin sýnir heilabylgju kort fyrir og eftir hlustun á Hemi-Sync.
Fréttir
í tölvupósti