Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 41
Ungar stúlkur frá ýmsum störfum eru hérna að bæta úr þörfum. Ötular, brosandi, yndi manns, ósvikið verðmæti þessa lands. „Skólavaktin“ skemmtilega í skarðið fyllir alveg nú. Með Ástu vinna ágætlega, öllum skyldum reynist trú. Æskubragur er annað ljóð sem birtist í bókinni: Atli er mikill afbragðs piltur, æskuljóminn prýðir hann. Í framkomu svo frjáls og stilltur, fyrir mér sé ég gæfumann. Daníel er drengur góður, danskóngurinn, prúði og djarfi, mannborlegur, fínn og fróður, farsæll bæði í námi og starfi. Hversdagslegustu atvik verða kveikja að ljóðum hjá Leifi. Í Vísa fyrir hafragraut á A-516 þakkar Leifur fyrir að hafa fengið hafra- graut í rúmið þegar að hann nennti ómögulega fram úr einn morguninn: Fanney núna finnst mér best, full af björtum vonum. Einkavininn elskar mest, allt svo ljúft með honum. Allt breytt „Flestallt er meira og minna breytt frá því að ég var ungur.Nema mannlegt eðli,“ útskýrir Leifur. Þótt flest sé nú auðveldara en áður hefur hann nokkrar áhyggjur af því að ungt fólk verði fyrir slæmum áhrif- um af fjölmiðlum, sérstaklega sjón- varpi og kvikmyndum. „Ég er óskaplega hræddur um að umfjöllun í fjölmiðlum komi mönnum yfir á þær brautir sem þeim hefði ekki dottið í hug áður.“ Einnig finnst honum stundum nóg um það hve margt snýst nú um peninga. „Það er merkilegt hvað sumir verða ríkir og hvað sumir heimta mikið,“ bendir hann á. Vissi ekki að ég væri að eldast Í formála að ljóðabók Leifs er hann kallaður hundrað ára ung- skáld. Þetta má til sanns vegar færa því hann er sannarlega ungur í anda. „Veistu það að ég vissi ekki að ég væri að eldast fyrr en ég las grein í Mogganum eftir Ólaf G. Einarsson vin minn þar sem sagði að ég dveldi nú á Hrafnistu í hárri elli. Ég fann ekki fyrir elli fyrr en þarna.“ Greinin sem Leifur vitnar í var skrifuð í fyrra. Kvæðið Núna ber vott um sama lífsþrótt: Ég er bara býsna hress, um bjarta íbúð sveima. Alveg laus við læti og stress, og leiðist aldrei heima. Góða heilsu þakkar Leifur heil- næmu líferni og bindindi á áfengi og tóbak. Góð kona og fjölskylda „Mikilvægast af öllu saman er þó að eiga góða konu og fjölskyldu,“ segir Leifur. „Konan mín, Lúlla, var fædd og uppalin á Raufarhöfn og dáði staðinn mjög.“ Börn Leifs og Lúllu eru fjögur, barnabörn fimm- tán og barnabarnabörn fjörutíu og níu, og Leifur því ríkur maður. Ljóð- ið Óður til Raufarhafnar er tileinkað minningu Lúllu. Það var fyrir langa löngu leiftri sló á unga jörð. Heyra mátti hnegg í lofti, hófum spyrnt í gljúpan svörð. Inn þar flæddi saltur sjórinn, samstundis var höfn þar gerð. Ýmsir telja eflaust verið Óðinn þar á norðurferð. Raufarhöfn þar reis af grunni, roða sló á sæ og hlíð. Allt var breytt á ögurstundu, upp runnin hin bjarta tíð. Vébönd reist gegn veðra lamstri, vígur höfðinn sá um það. Hólminn bægði hafsins grandi, heppnin valdi þennan stað. Síðan hafa sjómenn djarfir sótt á mið frá Raufarhöfn. Einatt lýð og landi þarfir, leikinn háð við svala dröfn. Ötul fley af ýmsum stærðum til Ægis sóttu fenginn sinn. Sökkhlaðinn við síldarfarminn sigldu skip að bryggju inn. Þá var bjart og búsæld mikil, brosti þjóð við Raufarhöfn. Fólkið kom úr öllum áttum algengt fleiri hundruð nöfn. Þá var unnið hörðum höndum, hratt þá tíminn löngum flaug. Ýmsir tengdust ástar böndum við aftanskin frá heimskautsbaug. Þó að nú sé öldin önnur, ærið margt er sígilt hér: Höfnin geymir gullið sanna, greiðir þeim sem verður er. Íbúanna og góðra gesta geymir sagan allra nöfn. Heimsins bestu heilladísir halda vörð um Raufarhöfn. Að skilnaði segir Leifur: „Ég hef aldrei öll þessi ár þurft að standa yf- ir moldum afkomenda minna. Það er mikil hamingja og gleði og ég er svo sæll með þetta allt saman.“ oddnyh@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 41 2-3 júní 2007 Rey kjavík urhöfn - Miðbakki 08:00 Hátíðarfánar prýða skip í höfninni. 10:00-16:00 Furðufiskar – Hafrannskóknarstofnun hefur safnað skrýtnum fiskum sem verða til sýnis. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 09:00-17:00 Hvalaskoðun Reykjavík Tilboð í hvalaskoðun. Sjá nánar á www.hatidhafsins.is Ægisgarður-Reykjavíkurhöfn 10:00-18:00 Reykjavíkurhöfn í 90 ár. Ljósmyndasýning. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 10:00 Athöfn við Minningaröldur Sjómannadagsins. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson fer með ritningarorð og bæn. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar standa heiðursvörð við Minningaröldurnar. Fossvogskapella í Fossvogskirkjugarði 11:00 Sjómannaguðsþjónusta í Dómkirkjunni. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, predikar og minnist drukknaðra sjómanna. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson þjónar fyrir altari. Meðan á guðsþjónustu stendur verður lagður blómsveigur á leiði óþekkta sjómannsins. Dómkrikjan 11:00-17:00 Viðey og vöfflur. Fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna. Sjá nánar á www.hatidhafsins.is 11:00-17:00 Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík. Aðgangur ókeypis. Kaffi og með því í boði Europris. Grandagarði 8 12:00-17:00 Leiktæki á Miðbakkanum. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 13:00-16:00 Landhelgisgæslan sýnir varðskipið Tý, sem hefur verið í þjónustu Gæslunnar í 32 ár. Faxagarði-Reykjavíkurhöfn 13:00-16:00 Happdrætti DAS sýnir glæsilegan Lexus GS300 og Harley Davidson V-Rod mótorhjól. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 13:00 Sýning Björgunarsveitarinnar Ársæls á viðbrögðum við björgun á manni í sjó. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 13:00, 14:00 Skemmtisigling fjölskyldunnar: Sæbjörg, skip og 15:00 Slysavarnarskóla sjómanna, siglir um sundin blá. Veitingar til sölu. Aðgangur ókeypis. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 13:00 Björgunarsveitin Ársæll. Jeppar og annar búnaður til sýnis. Sjúkrahópur verður með kynningu á endurlífgun. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 13:00-16:00 Fjallabjörgunarhópur Björgunarsveitarinnar Ársæls verður með sigæfingu og leyfir krökkum að taka þátt. Fiskverkun Jóns Ásbjörnssonar, Miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn 13:30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á Miðbakkanum Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 13:30-16:00 Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík. Netahnýting splæsing og harmoníkuleikur. Strætisvagn gengur á 20. mín. fresti á milli Fiskverkunnar Jóns Ásbjörnssonar, Miðbakka og Sjóminjasafns Reykjavíkur. Grandagarði 8 14:00-15:00 Hátíðarhöld Sjómannadagsins á Miðbakka Setning hátíðarinnar: Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs. Ávörp: Einar K. Guðfinnsson Sjávarútvegsráðherra Björgólfur Jóhannsson stjórnarfomaður LÍÚ Björn Ingi Hrafnsson formaður hafnarstjórnar Faxaflóahafna Birgir H. Björgvinsson stjórnarmaður í Sjómannafélagi íslands Sönghópurinn Voces Thules flytur sjómannalög Sjómenn heiðraðir Sönghópurinn Voces Thules flytur sjómannalög Kynnir: Hálfdan Henrýsson Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 15:00 Kappróður í innri höfninni. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 15:00 Listflug yfir Reykjavíkurhöfn 15:00 Skemmtidagskrá fyrir börn á Miðbakkanum Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 16:00 Björgun úr hafi – Landhelgisgæslan sýnir björgunarstörf ásamt björgunarsveitinni Ársæli. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 16:00 Verðlaun afhent fyrir róðrakeppni. Miðbakkinn-Reykjavíkurhöfn 17:00 Skáldskapur um hafið Einar Már rithöfundur flytur ljóð um hafið á veitingahúsinu Sjávarbarnum. Grandagarði 9 Sunnudagur 3. júní Matur og menning á Miðbakkanum Skólar og fyrirtæki tengd hafi og hafrannsóknum kynna starfsemi sína í tjaldi á Miðbakkanum frá kl. 13-16. Einnig listsmiðjur fyrir börn, harmonikkuleikur og heitar vöfflur. Fiskiveisla Hátíðar hafsins 1.-3. júní Upplýsingar um veitingastaði og matseðla er að finna á www.hatidhafsins.is Eftirtaldir a›ilar styrkja Hátí› hafsins: Brim hf, Ögurvík, HB Grandi og Iceland Seafood International www.hatidhafsins.is Rey kjavík urhöfn - Miðbakki A unique opportunity On behalf of the owners I have been asked to sell a renowned and popular classic hotel in the center of Copenhagen. Price 275.000.000.- Danish kr. For another client I have been asked to sell an investment project on the island of Rhodos, 33 apartments under construction, beautifully located. Price 31.500.000.- Danish kr. Both are extremely attractive investment opportunities. I will be in Reykjavík from June 4th until June 8th with prospects and photos. Please call Rolf Drewsen, real estate agent, tel: 693-3543 and arrange a meeting. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.