Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 55
hans fordæmi, sem JK taldi að ekki
myndi koma til, verði öðrum fram-
bjóðendum til eftirbreytni.
Flaggað í hálfa stöng
JK segir að ég kenni ríkisstjórn-
inni um snjóflóð og grjóthrun á vegi
hér vestra. Þetta er framsókn-
arhundalógík. Úrbætur í vestfirsk-
um samgöngumálum hafa verið
skelfilega hægfara, loforð svikin og
framkvæmdum hefur seinkað. Að
Bolvíkingar með sína rússnesku Ós-
hlíðarrúllettu skuli ekki löngu vera
búnir að fá jarðgöng sýnir tak-
markalausa fyrirlitningu stjórnvalda
á lágmarksmannréttindum. Þegar
þurfti að slá á þá þenslu sem Kára-
hnjúkavirkjun olli í sumar fannst
ríkisstjórninni – með þrjá ráðherra
úr kjördæminu – nærtækast að
fresta vegaframkvæmdum og út-
boðagerð hér. Þegar þeir sem gerst
vita um ástand vega og fram-
kvæmdaþörf hér um slóðir, sem eru
tvímælalaust starfsmenn Vegagerð-
arinnar á Ísafirði, Patró og Hólma-
vík, flögguðu af þessu tilefni í hálfa
stöng fengu þeir bágt fyrir frá
Sturlu samgönguráðherra.
Að sunka
Einhver skarpgreindasti og best
meinandi einstaklingur hér við
Djúp, séra Baldur í Vatnsfirði, fyrr-
um prófastur, sagði eitt sinn að sín
ánægjulegustu prestsverk væru að
jarða framsóknarmenn. „Það er svo
gaman að heyra þá sunka, góði.“ Í
síðustu skoðanakönnun sunkaði
Framsókn niður fyrir átta prósent
og er ég að vona að mín skrif eigi
einhvern þátt í því. En þótt Mbl. út-
nefni mig til þess hlutverks að kasta
rekunum á Framsókn er því nú samt
svo varið, eins og með refinn, sem ég
vil lágmarka skaðsemi af en ekki út-
rýma, að það sama á við um hana:
Það þarf að halda henni utan rík-
isstjórnar, lágmarka skaðsemina, en
varðveita þó fáein eintök fyrir kom-
andi kynslóðir.
Höfundur er bóndi
á Skjaldfönn v/Djúp
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 55
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Viltu fjárfesta á einum áhugaverðasta og arðvænlegasta
fasteignamarkaði í Evrópu? Proxima Finance kynnir Búlg-
aríu. Gullnar strendur, iðandi mannlíf, ódýrt að lifa og
samkvæmt spám er landið að verða eitt mest sótta ferða-
mannaland í Evrópu. Kynntu þér málið á www.bulg-
aria.is og hafðu samband við trausta aðila sem hafa
mikla reynslu af sölu og fjárfestingum í Búlgaríu.
Fáðu kynningu: Ingvar Ragnarsson 822 7300
Eiríkur Hilmarsson 822 7303
BÚLGARÍA – FRÁBÆRT TÆKIFÆRI
FYRIR FJÁRFESTA OG EINSTAKLINGA
Proxima Finance ltd. í samstarfi við Akkurat fasteigna-
sölu kynna vandaðar eignir við baðstrendur Svarta-
hafsins í Búlgaríu.
Proxima – þinn tengiliður við Búlgaríu! – www.bulgaria.is
Við Svartahafið
Villa Karen
• 24 íbúðir
• Sjávarútsýni
• Við bæinn Sozopol
• Einkasundlaug
• Panorama-útsýni
• Verð frá 7,9 milljónum ísl kr.
Íslenskur byggingaraðili
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn