Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 73
Félagsstarf
Bandalag kvenna í Hafnarfirði | Vor-
ferð Bandalags kvenna í Hafnarfirði.
Áætlað er að fara í dagsferð 9. júní.
Lagt verður af stað frá Hafnarfirði
um kl. 11. Hvetjum félagskonur BKH
að mæta í ferðina. Skráning í ferðina
og uppl.: Karin, formaður BKH, s.
555-2574 og Sigrún Jóhannesd., s.
695-1976.
Bólstaðarhlíð 43 | Ferð að Skógum
undir Eyjafjöllum verður farin
fimmtudaginn 21. júní kl. 12.30 frá
Bólstaðarhlíð 43. Safnið skoðað og
gengið um staðinn. Kaffihlaðborð í
Drangshlíð undir Eyjafjöllum. Skrán-
ing í síma 535-2760. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin
mánudaga og miðvikudaga kl. 10-
11.30. S. 554-1226. Skrifstofa FEBK í
Gjábakka er opin á miðvikudögum kl.
13-14. S. 554-3438. Félagsvist er
spiluð í Gullsmára á mánudögum kl.
Vitatorgs verður farin fimmtudaginn
7. júní kl. 13. Farið verður um Álftanes
í Heiðmörk og nágrenni veitingar
verða í Kríunesi við Elliðavatn, síðan
keyrt um Rauðhóla og Hafravatn. All-
ir velkomnir óháð aldri. Uppl. í síma
411 9450.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Sjómannadagurinn
3. júní. Guðsþjónusta kl. 11 í Árbæj-
arkirkju. Prestur sr. Þór Hauksson.
Organisti Ester Ólafsdóttir. Kirkjukór-
inn leiðir safnaðarsöng.
Fríkirkjan Kefas | Almenn samkoma
kl. 20. Helga R. Ármannsdóttir pré-
dikar. Lofgjörð og fyrirbænir í lok
samkomu og kaffisala að henni lok-
inni. Allir velkomnir. Ath. síðasti
skráningardagur í grillveislu sem
verður 10. júní.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Spiluð verður félagsvist í sumar, alla
mánudaga klukkan 13. Púttvöllur og
krikket alla góðviðrisdaga. Molakaffi.
20.30, en í Gjábakka á mið-
vikudögum kl. 13 og á föstudögum kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Caprí-tríó leikur fyrir dansi.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Þriðjudaginn 5. júní verður
farið á sýningar í Menningarmiðstöð
Gerðubergs. Lagt verður af stað frá
Hlaðhömrum kl. 13. Skráning hjá for-
stöðumanni í síma 586 8014 eftir há-
degi.
Hraunbær 105 | Miðvikudaginn 6.
júní verður farið í Áskirkju. Skráning á
skrifstofu eða í síma 587-2888.
Hraunbær 105 | Kirkjuferð í Áskirkju
kl. 14. Kaffiveitingar í boði sókn-
arnefndar og kvenfélags kirkjunnar.
Verð 300 kr. Brottför kl. 13.30 frá
Hraunbæ.
Norðurbrún 1 | Handverkssýning
verður haldin sunnudaginn 3. júní og
4. júní kl. 14-17. Margt fallegra muna.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Vorferð
Hlutavelta | Þessar ungu stúlkur, Dagný
Þóra Óskarsdóttir og Margrét Árnadóttir,
héldu tombólu við verslun Samkaupa við
Hrísalund og styrktu Rauða krossinn með
ágóðanum, alls 7.941 kr.
dagbók
Í dag er sunnudagur 3. júní, 154. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.“ (Sálm. 16, 2.)
Rannsóknarmiðstöð umsamfélags- og efnahags-mál (RSE) stendur fyrirráðstefnu um samkeppn-
ishindranir í samstarfi við Háskólann
í Reykjavík þriðjudaginn 5. júní
næstkomandi. Yfirskrift ráðstefn-
unnar er Myndun samkeppnishindr-
ana á markaði og aðgerðir til að ryðja
þeim úr vegi.
Birgir Tjörvi Pétursson er fram-
kvæmdastjóri RSE: „Mikilvægt er að
eðlileg samkeppni sé til staðar á
markaði, en víða í samfélaginu virðist
sem samkeppni skorti eða sé ekki
mjög virk,“ segir Birgir Tjörvi. „Ráð-
stefnan er haldin til að varpa ljósi á
hvað orsakar helst samkeppnishindr-
anir á markaði og hvaða aðgerðir geti
komið að gagni við að ryðja þessum
hindrunum úr vegi. Á ráðstefnunni
verður kynnt ný skýrsla RSE eftir
Þorstein Siglaugsson hagfræðing,
sem fjallar um leiðir til að greina
samkeppnisumhverfi og meta sam-
keppnishindranir.“
Opnunarerindi ráðstefnunnar flyt-
ur Todd J. Zywicki, lagaprófessor við
George Mason-háskóla í Virginíu:
„Hann stýrði áður stefnumótun hjá
Samkeppniseftirliti Bandaríkjanna
(FTC) og mun gefa okkur innsýn í
bandaríska samkeppnislöggjöf,
hvernig hún hefur gefist og hvaða
þróunar megi vænta í framtíðinni,“
segir Birgir Tjörvi. „Bandaríkjamenn
hafa verið frumkvöðlar í löggjöf á
sviði samkeppnismála og þróunin í
Evrópu hefur tekið mið af því sem
gerist vestanhafs. Það verður því
fróðlegt að hlýða á sjónarmið Zywicki
um ávinning af bandarískri sam-
keppnislöggjöf og hvaða straumar
séu líklegir til að berast hingað til
lands í þessum málum.“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, mun flytja er-
indi á ráðstefnunni undir yfirskrift-
inni Samkeppniseftirlitið og hið op-
inbera. Í lok ráðstefnunnar verða
pallborðsumræður þar sem þátt taka,
auk Páls Gunnars Pálssonar, Ari Ed-
wald, forstjóri 365-miðla, Gylfi Arn-
björnsson, framkv.stj. Alþýðu-
sambands Íslands, og fræðimennirnir
Birgir Þór Runólfsson frá HÍ og Guð-
rún Johnsen frá HR. Fundarstjóri er
Heimir Örn Herbertsson hrl. hjá
LEX og aðjúnkt við HR.
Ráðstefna þriðjudagsins er haldin í
HR við Ofanleiti frá kl. 9 til 11.30. Sjá
nánar á ww.rse.is og www.hr.is.
Viðskipti | Ráðstefna um leiðir til að ryðja úr vegi samkeppnishindrunum
Víða skortir samkeppni
Birgir Tjörvi
Pétursson fædd-
ist í Reykjavík
1972. Hann lauk
stúdentsprófi
frá VÍ 1992, út-
skrifaðist frá
lagadeild HÍ
1998 og hlaut
lögmannsrétt-
indi 1999. Birgir hefur lengstum
starfað við lögmennsku frá náms-
lokum, hann er einn stofnenda RSE
þar sem hann hefur verið fram-
kvæmdastjóri frá upphafi. Sam-
býliskona Birgis Tjörva er Erla
Kristín Árnadóttir lögfræðingur og
eiga þau tvö börn.
Söfn
Lyfjafræðisafnið | Lyfjafræðisafnið við Nes-
tröð á Seltjarnarnesi verður opið í sumar á
þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og
sunnudögum kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis.
Leiklist
Gamli Lækjarskóli | Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir Limbó í Gamla Lækjarskóla. Leikstjóri er
Jón Ingi Hákonarson. Limbó samanstendur af
7 stuttverkum eftir fimm unga höfunda. Miða-
pantanir í síma 848-0475 og kostar miðinn
1.500 kr.
Frístundir og námskeið
www.ljosmyndari.is | Ljósmyndanámskeið
verður í Borgarnesi 23.-24. júní kl. 13-17, í safn-
aðarheimili Borgarneskirkju. Farið verður í
helstu stillingaratriðin á stafrænni myndavél,
ýmis góð ráð gefin til að ná betri myndum.
Tölvumálin tekin fyrir o.fl. Námskeiðið kostar
12.900 kr. Skráning á www.ljosmyndari.is. Leið-
beinandi Pálmi Guðmundsson.
Börn
Brúðubíllinn | Forsýning á Brúðubílnum í Hall-
argarðinum, Fríkirkjuvegi 11, mánudaginn 4. júní
kl. 14. Frumsýning í Árbæjarsafni, þriðjudaginn
5. júní kl. 14.
ÍSBJÖRNINN Knútur fær sér sundsprett í dýragarðinum í Berlín á
föstudaginn. Knútur hefur vakið mikla athygi frá því hann kom í heim-
inn, enda hið mesta krútt, en hann vex hins vegar mjög hratt. Húnninn
er orðinn 28 kíló og næstum hálfs árs gamall, og stutt er í að starfsfólki
í garðinum stafi hætta af honum.
Reuters
Knútur í sundi
FRÉTTIR
Í KJÖLFAR skipulagsbreytinga hjá
embætti ríkislögreglustjóra sem
tóku gildi 1. janúar síðastliðinn
hafa nýir yfirmenn verið ráðnir til
embættisins. Það eru Sigríður B.
Guðjónsdóttir, aðstoðarríkislög-
reglustjóri, Páll E. Winkel, aðstoð-
arríkislögreglustjóri, og Jónas Ingi
Pétursson, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs. Markmið skipulags-
breytinganna er fyrst og fremst að
auka skilvirkni embættisins, bæta
yfirsýn yfir lögreglumál, skerpa á
ábyrgð yfirmanna og gera hana
sýnilegri en áður.
Skipurit einfaldað
Skipurit embættisins hefur verið
einfaldað og meginstoðum þess hef-
ur verið fækkað úr fimm í þrjár.
Staða vararíkislögreglustjóra hef-
ur verið lögð niður en til urðu tvö
ný embætti aðstoðarríkislög-
reglustjóra með skýrt afmörkuð
verkefni. Undir annað þeirra fellur
almenn löggæsla og öryggi en hinn
einbeitir sér að lögræði- og stjórn-
sýsluþáttum embættisins. Sér-
stakur framkvæmdastjóri sér síðan
um rekstur embættis ríkislög-
reglustjóra.
Sigríður B. Guðjónsdóttir var
skipuð aðstoðarríkislögreglustjóri
og staðgengill ríkislögreglustjóra
þegar nýtt skipurit tók gildi 1. jan-
úar síðastliðinn. Sigríður hefur
starfað hjá embætti ríkislög-
reglustjóra frá 1. september 2006
við verkefni sem lúta meðal annars
að nýskipan lögreglumála, gerð ár-
angursstjórnunarsamnings milli
dómsmálaráðuneytis og embættis
ríkislögreglustjóra og stofnun
greiningardeildar embættisins.
Páll E. Winkel, hefur verið skip-
aður aðstoðarríkislögreglustjóri og
mun hann stýra stjórnsýslusviði
embættisins. Undir Pál falla starfs-
mannamál, samræming og innra
eftirlit, forvarnir og fjölmiðla-
samskipti, tölfræði, útgáfumál og
þróunarverkefni, tæknimál, rann-
sóknir og lögfræðileg málefni.
Jónas Ingi Pétursson, var ráðinn
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
ríkislögreglustjóra þann 1. janúar
2007. Undir rekstrarsvið falla fjár-
mál og rekstur, einkennis- og bún-
aðarmál lögreglu, rekstur bíla-
miðstöðvar, upplýsingatæknimál
og skrifstofuhald.
Sigríður, sem fædd er 1969, lauk
lagaprófi frá Háskóla Íslands 1993.
Hún starfaði hjá ríkisskattstjóra
frá 1993 til 1995 og lagði stund á
framhaldsnám í lögfræði við Kaup-
mannahafnarháskóla frá 1995 til
1996. Sigríður fékk námsleyfi árið
2000 og lauk meistaranámi í Evr-
ópurétti frá háskólanum í Lundi
2002. Hún lauk stjórnunarnámi frá
Lögregluskóla ríkisins 2004 og
stundaði nám á vegum samtaka
evrópskra lögregluskóla um lög-
reglusamvinnu í Evrópu frá 2004 til
2005. Sigríður var skipuð skatt-
stjóri Vestfjarðaumdæmis árið
1996. Árið 2002 var hún skipuð
sýslumaður á Ísafirði.
Páll E. Winkel, sem fæddur er
fæddur 1973, lauk námi frá laga-
deild Háskóla Íslands árið 2000.
Samhliða námi starfaði hann sem
lögreglumaður við embætti sýslu-
mannsins í
Kópavogi og lögreglustjórans í
Reykjavík. Páll var framkvæmda-
stjóri Landssambands lögreglu-
manna árin 2005 til 2007 þegar
hann var ráðinn yfirmaður stjórn-
sýslusviðs ríkislögreglustjóra. Áður
starfaði hann sem lögfræðingur hjá
Fangelsismálastofnun ríkisins árin
2001 til 2005.
Jónas Ingi Pétursson, sem fædd-
ur er 1972, lauk B.A. prófi í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands árið
1998 og MBA prófi við Norwegian
School of Management í Osló árið
2002. Jónas starfaði á rekstrar- og
fjármálaskrifstofu dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins frá árinu 2002.
Skipulagsbreytingar Nýju yfirmennirnir og Haraldur Johannessen ríkis-
lögreglustjóri. Frá vinstri Jónas Ingi Pétursson, Sigríður B. Guðjónsdóttir,
Haraldur Johannessen og Páll E. Winkel.
Nýir yfirmenn
ráðnir hjá embætti
ríkislögreglustjóra
Breytingar á
skráningu inn
í Stað og stund
SÚ breyting hefur verið gerð á
skráningu í Stað og stund í Morgun-
blaðinu að nú birtist skráningin á
Netinu um leið og skrásetjari stað-
festir hana. Skrásetjari getur nýtt sér
þann möguleika að nota leiðréttinga-
forritið Púkann til að lesa yfir text-
ann og gera nauðsynlegar breyt-
ingar. Einnig hefur verið gerð sú
breyting að hægt er að skrá atburði í
liði félagsstarfs og kirkjustarfs tvo
mánuði fram í tímann. Allur texti sem
birtist í Morgunblaðinu er yfirlesinn.
Morgunverðarfundur um unglinga
SAMSTARFSHÓPURINN Náum áttum heldur fræðslufund um sumartím-
ann í lífi ungmenna á Grand hóteli þriðjudaginn 5. júní nk. kl. 8.15 til 10.
Fundarstjóri er Bergþóra Valsdóttir. Erindi halda Ragnar Örn Pét-
ursson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Reykjanesbæ, Hervör Alma Árna-
dóttir félagsráðgjafi og Bergþóra Valsdóttir, framkvæmdastjóri Samfoks.
Opnar umræður verða í lok fundarins.
Þátttökugjald er 1.500 kr. sem þarf að staðgreiða. Morgunmatur er inni-
falinn í gjaldinu. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Skráning
fer fram á www.lydheilsustod.is/skraning