Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 85
WWW.SAMBIO.IS
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 5 - 8 - 11:15 Powersýning B.i. 10 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4
ZODIAC kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
ROBINSONS FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 2
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 8 B.i. 10 ára
BLADES OF GLORY kl. 2 LEYFÐ
IT´S A BOY GIRL THING kl. 6 - 8 LEYFÐ
THE REAPING kl. 10 B.i. 16 ára
SPIDER-MAN 3 kl. 2 B.i. 10 ára
HILARY
SWANK
SUMT ER EKKI HÆGT AÐ
ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUMHÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM
FRÁ D.FINCHER LEIKSTJÓRA
SE7EN & FIGHT CLUB.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is
eee
S.V. - MBL
A.F.B - Blaðið
eee
V.J.V. TOPP5.IS
SPARBÍÓ 450kr
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK
HRYLLINGSMYNDAHEFÐIN
hefur verið að taka nokkrum breyt-
ingum á undanförnum árum.
Kannski mætti orða það sem svo að
ákveðnir þættir í hefðinni hafi orðið
ríkjandi sem geta orðið einstaklega
hvimleiðir þegar ekki er rétt með þá
farið. Þessa þætti má rekja til áhrifa
tveggja þekktra leikstjóra í geir-
anum, þeirra Sam Raimi og Wes
Craven, en sá fyrrnefndi kynnti til
sögunnar kaldhæðni, leikgleði og
groddahúmor í kvikmyndinni Evil
Dead 2 en það hefur skilað sér inn í
myndir á borð við Scream og aðrar
póstmódernískar grínhrollvekjur.
Wes Craven hratt hins vegar af stað
sadísku hrollvekjunni með sinni
fyrstu mynd, The Last House on the
Left, en sá þráður liggur til kvik-
mynda á borð við Hostel, Saw og
endurgerða á klassískum hroll-
vekjum á borð við Keðjusag-
armorðin í Texas. Hins vegar er orð-
ið sjaldgæfara að sjá átök við formið
sem reiða sig hvorki á kvenfyrirlitn-
ingu og kvalalosta né sjálfsmeðvit-
aðan leik með klisjukennd mótíf
hefðarinnar.
Breska hrollvekjan 28 vikum síðar
(28 Weeks Later) er áhugavert inn-
slag í hefðina ekki síst vegna þess að
hún forðast ofangreindar gryfjur.
Um er að ræða framhaldsmynd 28
Days Later eftir leikstjórann Danny
Boyle og handritshöfundinn Alex
Garland þar sem gerð var athygl-
isverð tilraun til að endurvekja og
endurskapa hefð uppvakningamynd-
arinnar á forsendum harð-
neskjulegrar hrollvekju. Myndin
lýsti á áhugaverðan hátt hruni sið-
menningar á Bretlandseyjum, en
galt fyrir stirðbusalegt handrit og
fór út um þúfur í síðari hlutanum.
Gott fólk kom hins vegar auga á
möguleika upprunalegrar hug-
myndar þeirra félaga og ákvað að
þróa hana áfram. Svo einkennilega
vill nefnilega til að framhalds-
myndin, 28 vikum síðar er mun betri
en forverinn, svo mjög að það er allt
að því sláandi. Myndin nýtir sér
snjallar hugmyndir forverans og
vinnur úr þeim án þess að taka feil-
spor. Handritið er þétt og vel skrif-
að, leikur góður, kvikmyndataka
snjöll og tónlistin er áhrifamikil, en
fyrst og fremst tekst myndinni að
framkalla þrúgandi heimsendasýn
og kalla fram djúpstæðan hrylling
sem snýst um eitthvað annað en að
velta sér upp úr kvalafullum dauð-
dögum. Þá er rammpólitískur und-
irtexti ofinn inn í myndmál og frá-
sögn (og að því leyti má greina
áhugaverð tengsl milli 28 vikum síð-
ar og annarrar breskrar heimsend-
amyndar, Children of Men). Hér er
á ferðinni ein eftirminnilegasta
hryllingsmynd síðustu ára og tíma-
bært fráhvarf frá ríkjandi klisjum
greinarinnar.
Frábær „Hér er á ferðinni ein eft-
irminnilegasta hryllingsmynd síð-
ustu ára og tímabært fráhvarf frá
ríkjandi klisjum greinarinnar,“
segir meðal annars í dómi.
Borgin
sem
eyðiland
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri
Leikstjórn: Juan Carlos Fresnadillo. Aða-
hlutverk: Robert Carlyle, Rose Byrne, Je-
remy Renner og Amanda Walker. Bret-
land, 99 mín.
28 vikum síðar (28 Weeks Later)
Heiða Jóhannsdóttir