Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN OPIÐ HÚS - KRISTNIBRAUT 8, 3.H.H. Stórglæsileg 118 fm, 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í fallegu lyftuhúsi með glæsilegu út- sýni. Íbúðir í húsinu hafa verið eftirsóttar af eldra fólki, m.a. vegna golfvallarins og út- ivistarsvæðisins, svo og útsýnisins sem er einstakt. Hægt er að sjá til Bláfjalla, yfir borgina, Snæfellsjökul, til Esjunnar og Úlf- arsfells. Mikið af gönguleiðum er skammt frá og fékk húsið m.a. verðlaun frá Reykja- víkurborg. V. 35,4 m. 6607 EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG Í SAMRÁÐI VIÐ Jón Guðmann í síma 864-4074. OPIÐ HÚS - KRISTNIBRAUT 51, 205 Nýleg og falleg íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlis- húsi. Íbúðin skiptist í forstofuhol, eldhús með borðkrók, stofu, þvottaherbergi, bað- herbergi og tvö svefnherbergi. Útsýni. Eigu- leg og falleg íbúð. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) KL. 14-15. V. 23,6 m. 6500 VIÐ ÞINGVALLAVATN - SÝNING Í DAG Einstaklega góður og vel umgenginn heils- ársbústaður. Húsið skiptist í forstofu, bað- herbergi, stofu, eldhús og þrjú svefnher- bergi. Einnig er lítið útihús, skjólverönd og nýlegur nuddpottur. Húsið er með lituðu gleri og kabisu. Lóðin er 5.000 fm eignarlóð og stendur húsið á góðum stað í norður- hluta Miðfellslands, ekki er byggð norðan og austan megin við lóðina. Rafmagnshitun og kalt vatn úr borholu á lóðinni. Geir sýnir í dag, s. 824-9096. V. 14,5 m. 6775 VÆTTABORGIR - GLÆSILEGT PARHÚS Tvílyft 165,5 fm parhús með innbyggðum 26 fm bílskúr. Húsið er glæsilega innréttað og með óviðjafnanlegu útsýni til norðurs. Á 1. hæð er forstofa, hol, tvö svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi og innbyggður bíl- skúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús, snyrting og svefnherbergi. V. 49,8 m. 6540 HAMRAVÍK - BÍLSKÚR OG GLÆSILEGT ÚTSÝNI 5 herb. glæsileg 143 fm endaíbúð með frá- bæru útsýni ásamt 19,1 fm innb. bílskúr, samtals 162,9 fm. Íbúðin skiptist í n.k. for- stofu, hol, 3 herb. (möguleiki á fjórum), tvær stórar saml. stofur, sérþvh., stórt baðh. og stórt eldhús. Svalir eru út frá eld- húsinu en þær ná meðfram allri suðurhlið- inni og einnig stórum hluta vesturhliðar. V. 40 m. 6772 SÓLHEIMAR - Á 1. HÆÐ MEÐ VERÖND Einstaklega vel staðsett 101 fm, 3ja-4ra herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í tvö góð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, baðherbergi með glugga, geymslur og stórt og gott eldhús með stórum borðkróki. Íbúðin er á 1. hæð með útgangi úr stofu út á suðurverönd í skjólgóðum og fallegum garði. V. 24,9 m. 6774 RAUÐARÁRSTÍGUR - GÓÐ 2JA HERB. ÍBÚÐ Tveggja herbergja 47,9 fm íbúð á 3ju hæð. Íbúðin skiptist í herbergi, stofu, baðher- bergi, eldhús, hol og geymslu í kjallara. V. 14,5 m. 6773 HAMRABORG - VERSLUNARHÚSNÆÐI Glæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á mjög eftirsóttum stað í Hamraborg í Kópa- vogi. Húsnæðið er sérlega vel staðsett og í dag er rekin í því snyrtivöruverslun á jarð- hæð. Húsnæðið er á tveimur hæðum og hægt er að samnýta hæðirnar eða nota þær hvora í sínu lagi. Efri hæðin er tilbúin til innréttingar. Neðri hæðin er skráð 140 fm skv. FMR en efri hæðin er skv. seljanda um 170 fm. V. 70,0 m. 6776 SÝNING Í DAG OPIÐ HÚS Í DAG OPIÐ HÚS Í DAG Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Opið hús í dag kl. 15 - 16 530 1800 57,900,000 Einstaklega glæsilegt, 182,5 fm, 6 herbergja raðhús við verðlauna- götu árið 2006. Glæsilegar innréttingar úr maghony, parket og flísar á gólfum. Fallegur garður og ágætt útsýni. Þórarinn, sölumaður Draumahúsa, tekur á móti gestum Blómahæð 6 - 210 Gbæ Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 • Fax 533 4041 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali LYFTUHÚS FYRIR 50 ÁRA OG ELDRI: Rúmgóð og huggulega inn- réttuð 3ja til 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Stærð íbúðar 101,2 fm. Tvenn- ar svalir. Sérinngangur. Stæði í bílgeymslu. Frábært útsýni. Laus fljót- lega. Verð: 27,8 millj. Ólafur tekur á móti áhugasömum í dag kl. 14-16. jöreign ehf OPIÐ HÚS í dag sunnudag kl. 14-16, SÓLEYJARRIMI 7, 112 Rvík. Í LÖGUM um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96, 2000, 19. gr. kemur fram að í ráð- gjöf og náms- og starfsfræðslu skuli leitast við að kynna bæði pilt- um og stúlkum störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin karla- eða kvennastörf. Í gildi er jafnréttisáætlun fyrir árin 2004- 2008 sem ríkisstjórnin hefur sam- þykkt. Í tölum frá Hagstofu Ís- lands kemur fram að árið 2005 voru konur 84% útskrifaðra nem- enda í heilbrigðis- og uppeld- isgreinum á háskólastigi en 28% úr tækni- og verkfræðigreinum. Lengi hefur verið glímt við að eyða þeim mun sem er á launum karla og kvenna. Á sjötta áratugn- um voru sett lög um launajafnrétti en fyrstu almennu jafnréttislögin tóku gildi 1976 og hafa þau verið endurskoðuð a.m.k. tvisvar sinnum. Þriðja endurskoðunin fer fram um þessar mundir. Gerðar hafa verið reglubundnar rannsóknir á launa- mun kynjanna en þrátt fyrir allar þessar aðgerðir virðist viss stöðnun ríkja um þessar mundir eins og reyndar í nágrannalöndum okkar. Náms- og starfsráðgjafar sinna m.a. ráðgjöf við ungt fólk sem á líf- ið framundan. Tilvera ungs fólks er hneppt í sömu kynjamynstur og samfélagið sjálft og í ráðgjöf er ekki hægt að ganga út frá því að einstaklingurinn sé kynlaus. Jafn- réttis- og kynjasjónarmið ættu því að fléttast saman við alla ráðgjöf náms- og starfs- ráðgjafa. Eitt meg- inviðfangsefni náms- og starfsráðgjafa er ráðgjöf við fólk sem stendur frammi fyrir náms- og starfsvali. Rannsóknir sýna að náms- og starfsval fólks er kynjað fyr- irbæri, þ.e. hefðir, venjur og stað- almyndir eru ríkur þáttur í hugmyndum fólks um vinnumark- aðinn. Í mars og apríl sl. kannaði Capa- cent Gallup fyrir Jafnréttisráð við- horf íslenskra ungmenna (18-23 ára) til starfa og launa. Endanlegt úrtak var 786 manns og svarhlut- fall 53,7%. Spurt var um áhuga ungmennanna á að gegna 10 mis- munandi störfum, hvað þau teldu líklegt að þau fengju í laun fyrir hvert starfanna og hvort þau teldu viðkomandi starf frekar hæfa kon- um eða körlum eða kynjunum jafnt. Meðal þess sem könnunin leiðir í ljós er að í átta tilfellum af 10 reikna karlar með hærri launum fyrir starf en konur. Undantekn- ingarnar eru starf kennara og smiðs en munur þar er ekki mark- tækur. Ekki var mikið um að svar- endur teldu störf hæfa öðru kyninu hinu frekar og aðeins þegar kemur að smiðum var yfir helmingur svar- enda þeirrar skoðunar. Flest önnur störf telja langflestir svarenda að hæfi kynjunum jafn vel. Áhugi ung- mennanna á að gegna ákveðnu starfi er hins vegar nokkuð mis- munandi en meðal karla hafa flestir áhuga á að verða smiðir (33,7%) eða lögfræðingar (31,5%) en hjá konum er hjúkrunarfræðingur í fyrsta sæti (37,9%) og læknir í öðru sæti (36,4%). Fæstir karlar hafa hins vegar áhuga á starfi launa- gjaldkera (2,9%) og hjúkrunarfræð- ings (5,3%). Konur hafa hins vegar minnstan áhuga á starfi verð- bréfamiðlara (5,2%) og kerfisstjóra (6,4%). Jafnréttisráð hefur ákveðið að senda könnunina til allra grunn- og framhaldsskóla í von um að nið- urstöður verði nýttar í kennslu og fræðslu um íslenskan vinnumarkað og sem innlegg í jafnréttisumræðu í skólunum (http://www.jafnretti.is). Ef litið er til þeirra rannsókna og fræða sem fyrir liggja um ein- staklingsmun, ólíka hugsun um nám og störf hjá stelpum og strákum og rótgróin samfélagsleg kynjakerfi er fagstétt náms- og starfsráðgjafa sú stétt samfélagsins sem ætti að hafa frumkvæði að hagnýtingu jafnréttis- og kynja- sjónarmiða í námi og störfum. Náms- og starfsframboð er litríkt og gerir þá kröfu að hverjum ein- staklingi sé mætt á hans eigin grundvelli ef aðstoða á hann við að komast þangað sem hugurinn stefnir til. Erlendar rannsóknir benda til að hægt sé að hafa áhrif á viðhorf nemenda til kynbundinna starfa þannig að þeir skoði störfin í öðru ljósi. Ein af þeim leiðum sem við hljótum að leggja áherslu á í þeirri viðleitni er stóraukin náms- og starfsráðgjöf, þar sem kynjavinkill- inn er hafður að leiðarljósi. Við þurfum að stefna markvisst að því að konur sæki fram í karlaat- vinnugreinum og karlar hasli sér völl í hefðbundnum kvenna- atvinnugreinum. Þetta er þýðing- armikið skref í þá átt að eyða þeim mun sem er á launum karla og kvenna. Náms- og starfsráðgjöf og öflug náms- og starfsfræðsla í skól- um er augljós leið til að sporna við kynjaskiptingu í námi og störfum. Jafnréttis- og kynjasjónarmið í náms- og starfsráðgjöf Ágústa E. Ingþórsdóttir og Ragnheiður Bóasdóttir skrifa um náms- og starfsfræðslu í skólum »Náms- og starfs-ráðgjöf og öflug náms- og starfsfræðsla í skólum er augljós leið til að sporna við kynja- skiptingu í námi og störfum. Ragnheiður Bóasdóttir Ágústa er formaður Félags náms- og starfsráðgjafa og Ragnheiður er náms- og starfsráðgjafi í Fjölbrauta- skólanum Ármúla. Ágústa E. Ingþórsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.