Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 74
74 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Kalvin & Hobbes HRÆKTIRÐU Á BOLTANN? Kalvin & Hobbes FLJÓTUR HOBBES, HVERNIG STOPPA ÉG MIG! STÝRÐU ÞÉR INN Á MÖLINA OG LÁTTU ÞIG DETTA ÞETTA VAR BARA HUGMYND Kalvin & Hobbes ER ÞETTA STEIN- GERVINGUR SEM STENDUR UPP ÚR MOLDINNI? NEI, ÞETTA ER EKKI DÝR. ÞETTA HLÝTUR AÐ VERA EINHVERS KONAR VOPN EÐA FORNT ELDHÚSÁHALD ÆTLI ÞETTA HAFI ÞJÓNAÐ TRÚAR- LEGUM TILGANGI NÚ SKIL ÉG AF HVERJU FÖTIN ÞÍN ERU ALLTAF ÚT UM ALLT HVAÐA DÝR ÆTLI ÞETTA HAFI VERIÐ? Litli Svalur © DUPUIS SVALUR ER FARINN Í SKÓLANN. ÉG HEF ALDREI SÉÐ HANN DRÍFA SIG SVONA MIKIÐ KLUKKAN SJÖ? SVALUR! ÞAÐ ER SUNNUDAGUR! dagbók|velvakandi Perlurnar í Hveragerði VÍÐA leynast perlur í hinum ýmsu bæjarfélögum sem hinn almenni ferðamaður áttar sig ekki á og veit ekki að eru við götu hans. Ein þess- ara perla er Minjasafn Kristjáns Runólfssonar í Austurmörk 2 í Hveragerði. Þar er margt forvitni- legt og fornlegt að sjá og upplagt að koma þar við með börnin og/eða barnabörnin og fræða þau um gamla tímann, um leið og við sjálf rifjum upp liðinn tíma. Á eftir er hægt að setjast inn í gróðurvinina Eden og spölkorn þaðan er Bókasafn Hvera- gerðis í Sunnumörk 2, en þar má líta gjá eina mikla í gólfi hússins með gleri yfir. Hún er sannarlega nátt- úruundur og vekur manni ugg er stíga á yfir hana og verður flestum minnisstæð. Auk þess eru margir fleiri áhugaverðir staðir sem allir eru í göngufæri hver við annan og merktir eru inn á mjög greinargott kort af Hveragerði sem víða liggur frammi fyrir ferðafólk. Þú lesandi góður, góða skemmtun á göngu þinni um hinn fallega bæ Hvera- gerði. Guðlaug Erla Jónsdóttir. Aflífun mávanna HRÆÐILEGT var að sjá í fréttum sjónvarpsins meindýraeyði á vegum Reykjavíkurborgar með byssu, skjótandi máva niður fyrir framan fólkið þar. Ég spurðist fyrir hjá borginni um hver stæði fyrir þessu og var mér sagt að það væri Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi. Ég vil benda honum vinsamlegast á að það er hægt að finna mannúðlegri leiðir til þess að bægja mávinum frá. Hvernig væri til dæmis að gefa hon- um að éta niður við sjó? Því eins og við vitum þá er mávurinn sjófugl en þegar ætið bregst er skiljanlegt að hann leiti annað. Umræðan um máv- ana undanfarið ár hefur verið mjög neikvæð hér í samfélaginu og þar af leiðandi eru fordómar orðnir miklir. Ég kom um daginn að strákum sem voru að kasta grjóti í máva. Ég tal- aði við þá og leiddi þeim fyrir sjónir að svona gerði maður ekki við dýrin. Þeir tóku því mjög vel og slæmt er þegar svona umræða hefur svona áhrif á börnin. Svo er spurning hvernig áhrif þetta hefur á þau börn sem eru niðri við Tjörn að gefa fugl- unum og verða vitni að þessu drápi. Ég varð fyrir áreitni í fyrra þegar ég var að gefa fuglunum vegna þess að ég gaf mávunum líka. Ég er mikill dýravinur og finnst dapurt að um- ræðan skuli vera komin í þennan far- veg. Ég vil að lokum skora á borgar- yfirvöld og lögreglustjórann að stoppa þessar skotveiðar við Tjörn- ina. Ég fer oft niður að Tjörn sem í mínum huga er með yndislegustu perlum borgarinnar. Ég nýt þess að dvelja þar og vil ekki sjá meindýra- eyði skjótandi máva þar. Ég hef áhuga á að stofna félag dýravina og hef áhuga á að komast í samband við fólk sem myndi vilja veita mér lið í þeim málum. Þeir sem vilja hafa samband geta náð í mig í síma 822 2124. Sigrún Reynisdóttir. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is REYKJAVÍKURTJÖRN fékk andlitslyftingu á dögunum þegar gosbrunni var komið fyrir í henni. Gosbrunnurinn kemur til með að verða yndisauki fyrir vegfarendur miðborgarinnar í sumar. Morgunblaðið/G.Rúnar Andlitslyfting Á vaktinni Fundur um vaktavinnu hjá ríki og sveitarfélögum. 5. júní kl. 9.00 - 11.00. Fundurinn er haldinn í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, 1. hæð. Kynnt verður skýrsla um aðbúnað og viðhorf vaktavinnufólks, sem unnin var af Rannsóknarstofu í vinnuvernd. Dagskrá: Setning. Kynning á niðurstöðum rannsóknarskýrslunnar. Á vaktinni, viðhorf fólks og væntingar. Umræður og fyrirspurnir. Störf vinnuhóps samningsaðila. Vandamál við vaktavinnu – leiðir til úrbóta. Allir er hjartanlega velkomnir. Starfshópur fulltrúa BHM, BSRB, ríkisins, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.