Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 47
Fáðu fréttirnar
sendar í símann
þinn
heimilið hafi stundum verið eins og
virki.
Jónas var alltaf vakinn og sofinn í
baráttunni fyrir áhugamálum sínum,
þótt baráttuaðferðirnar væru stund-
um nokkuð hatrammar. Ég man
þegar hann var í síðasta sinn í fram-
boði fyrir norðan árið 1946 og allt
var að springa í Þingeyjarsýslu í
kringum hann. Þetta tók á hann
náttúrlega, hann vissi ekki lengur
hverjir voru með honum og hverjir á
móti af hans gömlu vinum. Í þessari
hinstu herför hans sváfum við eitt
sinn saman í herbergi í Fremstafelli
hjá foreldrum mínum, og þá fór
hann að tala upp úr svefninum og
sagði: „Þetta gæti tekist ansi vel ef
lukkan væri með.“
Mér þótti þetta lýsa honum vel. Í
miðri orrahríðinni var hann allur
með hugann við eitthvert hugsjóna-
mál sem hann vildi hrinda í fram-
kvæmd.“
ishátíðinni 1930, merktu hverja
fjöl og fluttu húsið síðan austur að
Laugarvatni. Þar vantaði nefnilega
íþróttahús. Þetta hús stendur enn
við gufuböðin.“
En þegar þú kemur í Héraðs-
skólann þá eru komin ný fræðslu-
lög í landinu frá 1946?
„Já, það er einmitt stóra málið.
Fram að þeim tíma er Héraðsskól-
inn tveggja ára skóli og hann hef-
ur reyndar verið að æxla út frá
sér íþróttakennaraskóla og hús-
stjórnarskóla og m.a.s. iðnnám í
stuttan tíma og það eru ekki mjög
ungir nemendur, þeir eru flestir
komnir hátt á tvítugsaldur. En
með fræðslulögunum þá taka hér-
aðsskólarnir við því hlutverki sem
gagnfræðaskólarnir í bæjunum
ræktu, að bæta 1-2 árum við ungl-
ingaskólastigið með sérstaka
áherslu á landspróf með fram-
haldseinkunn og réttindi til að
setjast í menntaskóla. Það verður
aðalviðfangsefnið og metnaður
skólanna fer að snúast meira um
það.“
Þetta er gjörbreyting á hugs-
uninni að baki skólunum?
„Já. Þetta sér maður vel ef mað-
ur les sögu Bjarna Bjarnasonar,
Laugarvatnsskóli þrítugur. Hann
gerir skýra grein fyrir því hvernig
þessi breyting kom við hann sjálf-
an. Hann segir að nemendur hafi
orðið miklu yngri en áður „og olli
það langmestu til hins verra“, seg-
ir hann.“
Er þá eftirsjá í hinu fyrra fyr-
irkomulagi?
„Að hans mati er það.“
En að þínu mati?
„Nei, það held ég raunar ekki.
Því þetta var náttúrlega framtíðin,
að menntun og skólaganga yrði
samfelld og æskuárin væru notuð
til þess en horfið frá vinnuþræl-
dómi.
Breyttir tímar
En þegar Menntaskólinn á
Laugarvatni er stofnaður árið
1953 þá finnst mér greinilegt að
einhver ekki ósvipuð hugsun hafi
verið á bak við hann. Þar var lögð
áhersla á að þetta væri mennta-
skóli í sveit. Jónas kemur sjálfur á
stofnsamkomuna og afhenti skól-
anum bláhvíta fánann sem notaður
hafði verið við útför Einars Bene-
diktssonar en Jónas dáði Einar
mjög sem kunnugt er. Þá eru valin
kjörorð fyrir skólann, Manngildi,
þekking, atorka, og ákveðinn
skólasöngur, Til fánans eftir Ein-
ar. Þetta minnir náttúrlega allt á
héraðsskólana.“
Svo honum hefur fundist sem
sín hugsjón væri þá enn lifandi að
einhverju leyti?
„Já, já. Og til dæmis fyrst eftir
stofnun Menntaskólans tókum við
þátt í skógrækt og hjálpuðum til í
mötuneytinu sem sparaði fé en var
líka talið hafa uppeldisgildi. Auk
þess var íþróttaiðkun meiri en
annars staðar. Svo má nefna að
haldið var sérstaklega upp á af-
mælisdag Einars Ben. ár hvert. Þá
er sérstök kynning á ljóðum Ein-
ars sem tengdist því að hvítbláinn
var afhentur skólanum. Nú, kjör-
orð skólans eru í heiðri höfð. En
tímarnir bara breytast svo ört.
Framsýni Jónasar og nánast
valdbeiting við að leggja svo mikið
fé sem raun var í byggingu skól-
ans á Laugarvatni varð til þess að
skólinn varð nógu öflugur og réð
nægilega sterkt kennaralið til að
geta síðan farið út í mennta-
skólakennslu. Síðan hafa stofnun
Menntaskólans og síðan Íþrótta-
kennaraskólans út frá Héraðsskól-
anum orðið til þess að þarna er
ennþá skólasetur. Eins þótt hér-
aðsskólarnir hafi misst hlutverk
sitt. Svo ég tel einsýnt að þessi
djarfa ákvörðun Jónasar hafi orðið
mjög til góðs þegar á allt er litið.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 47
BEINN SÍMI Í HTH: 530-2906 / 530-2907
BAÐINNRÉTTINGR
KAUPHLAUPSVERÐ
10% AFSLÁTTUR
LISTAVERÐ: 159.900 kr.
KAUPHLAUPSVERÐ 129.900 kr.
Sharp 32" LCD LC-32GA8E
OPIÐ
Í DAG
FRÁ
KL. 13-19
Nýjung!
1 -Umsækjandi sækir um skattkort
á skattur.is
2 - Skattstjóri fer yfir umsóknina
3 - Skattkortið berst í pósti
Núgeturþú sótt um
Þarftu að fánýtt skattkort eða fágamla kortinu skipt?
01018
5-393
9
3. ma
í 2007
100%
Páll J
ónsso
n
Efsta
hóli 5
102 R
eykja
vík
skattkort
á skattur.is
ogfengiðþaðsent
Sótt er um skattkort á:
www.skattur.is
Til sölu Iðnaðarhúsnæði
og/eða heildsala
Heildverslun
með gjafa- og rekstrarvörur, velta
um 45 miljónir á ári, selst með
eða án húsnæðis. Góð framlegð.
Möguleiki á að yfirtaka langtímalán.
Upplýsingar veitir
Jón í síma 892 1316
334 m² að Réttarhálsi 2, vesturenda, með um 140 m² millilofti,
mögulegur byggingaréttur. Lofthæð 4,1 metrar, malbikuð lóð, gott
útisvæði, góð staðsetning þekkt hús, vel byggt og vel viðhaldið.
Verð kr. 56.900.000,-. Gott erlent langtímalán.
Næstu helgi verður haldin sérstök menningarvaka að Laugarvatni um Jón-
as frá Hriflu og tengsl hans við staðinn.
Að ráðstefnunni stendur hópur hollvina Héraðsskólans að Laugarvatni.
Þar verða haldin erindi og sitthvað gert til skemmtunar.
Meðal annars talar Guðjón Friðriksson um tengsl stjórnmálaafskipta
Jónasar við Laugarvatn, Helgi Skúli Kjartansson um skólastefnu Jónasar,
Kristinn Kristmundsson, fyrrverandi skólameistari ML, heldur erindi sem
nefnist Skólasetrið að Laugarvatni í anda Jónasar? og Gerður Steinþórs-
dóttir cand mag og barnabarn Jónasar heldur erindi sem hún nefnir Jónas
– fjölskyldan – Laugarvatn.
Skólastefna Jónasar frá Hriflu