Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 84
84 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.IS
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2:15 - 4:15 - 6:15 - 7:20 - 8:15 - 10:15 - 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 2 - 4 B.i. 7 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ DIGITAL 3D
/ KRINGLUNNI
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 2 - 6 - 10
ZODIAC kl. 3 - 6 - 9 B.i.16.ára
THE REAPING kl. 10:10 B.i.16.ára
GOAL 2 kl. 1:40 - 3:50 - 6 B.i.7.ára
BLADES OF GLORY kl. 2 - 6 - 8.10 B.i.12.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Mesta ævintýri fyrr og síðar...
...byrjar við
hjara veraldar
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
„Besta Pirates
myndin í röðinni!
Maður einfaldlega gæti ekki
búist við meira tilvalinni
afþreyingarmynd
á sumartíma.“
tv - kvikmyndir.is
„SANNUR SUMAR-
SMELLUR... FINASTA
AFÞREYINGARMYND“
Trausti S. - BLAÐIÐ
30.000 manns á 7 dögum
Stærsta 5 daga sumar opnun allra tíma á íslandi
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR
laugardag og sunnudag og mánudagSparBíó* 450kr
PIRATES 3 KL. 14:00 Í ÁLFABAKKA OG Á AK. ZODIAC KL. 15:00 Í ÁLFABAKKA
BLADES OF GLORY KL. 14:00 Í ÁLFABAKKA
OG KL. 14:00 Í KEFLAVÍK
www.SAMbio.is
GOAL 2 KL. 13:40 Í ÁLFABAKKA
MEET ROBINS. KL. 13:50 Í ÁLFABAKKA OG
KL 14:00 Á AKUREYRI
LÍKT OG í samskiptummanna almennt kemursitt hvað uppá í samstarfihljómsveita og margar
eru ekki sterkari en svo að þær
hrökkva í sundur um leið og eitt-
hvað bjátar á. Svo eru þær hljóm-
sveitir sem styrkjast við það að
ganga í gengum erfiðleika, verða
betri líkt og fór með sveitina Grails,
sem mjög er mærð meðal áhuga-
manna um þungt neðanjarðarokk,
einskonar síð-síðrokk. Grails, sem
er tæplega tíu ára gömul sveit,
byrjaði sem heimaverkefni gít-
arleikarans Alex Hall, en hann var
búinn að fá sig fullsaddan af hljóm-
sveitum eftir að hafa spilað pönk ár-
um saman. Meðleigjandi Halls
heyrði upptökur með honum og
taldi hann þó á að finna sér félaga
til að vinna hugmyndir með. Hall
fór því af stað og leitaði nú í aðra
gerð af músík en hann hafði áður
stundað því þeir sem hann fékk með
sér voru hagvanir í spunakenndri
þjóðlagatónlist, fiðluleikarinn Tim-
othy Horner, sem gerði garðinn
frægan með þeirri ágætu sveit Jac-
kie-O Motherfucker, bassa- og pí-
anóleikarinn William Slater, sem er
klassískt menntaður, slagverks Em-
il Amos og gítarleikarinn Paul
Spitz. Sveitin fékk nafnið Laurel
Canyon og tróð upp undir því nafni
nokkrum sinnum áður en haldið var
í hljóðver.
Týndur, horfinn, harmafregn
Laurel Canyon sendi frá sér tvær
stuttskífur 2000 og 2001 og í kjöl-
farið var henni boðið að vera með í
Neurot-útgáfuklíkunni, sem þykir
mikill heiður. Fyrsta Neurot-skífan
með sveitinni kom svo út 2003 undir
nýju nafni, Grails, enda Laurel Ca-
nyon-nafnið orðið ónothæft eftir að
kvikmynd með sama nafni naut
hylli. Um líkt leyti gekk Paul Spitz
úr skaftinu og í hans stað kom
spunarokkgítarleikarinn Zak Riles.
Þessari fyrstu skífu Grails, The
Burden of Hope, var vel tekið, gríð-
arlega vel tekið reyndar, en þó
greinilegt að sveitin var enn að mót-
ast. Næsta skífa, Redlight, var stórt
skref framávið, en í kjölfar hennar
flosnaði Timothy Horner upp frá
sveitinni og frá flestu í lífinu reynd-
ar, því hann hvarf sjónum manna í
þoku geðtruflana og fíkniefnaneyslu
og hefur víst ekki sést í langan
tíma. Hvar hann er, veit enginn.
Þessi hörmungartíðindi höfðu
mikil áhrif á sveitarmenn, sem von-
legt er, en þeir gáfust þó ekki upp,
héldu sínu striki í tónleikahaldi, en
tónlistin þyngdist heldur við þetta,
fiðluhljómurinn hvarf og í stað hans
komu þyngri gítarar og rafmögnuð
klifun.
Gömul sýra
Í tónleikaferð um Evrópu til að
kynna Redlight komst Grails í sam-
band við aðstandendur Southern-
plötuútgáfunnar ensku sem buðu
sveitinni að taka upp plötu í Latitu-
des-útgáfuröðinni, en sú snýst um
að fá hljómsveitir til að sleppa fram
af sér beislinu og taka upp eitthvað
óvenjulegt sem síðan er gefið út í
mjög takmarkaðri útgáfu.
Gails-félagar tóku þessu kosta-
boði og úr varð að þeir tóku upp
þrjú lög, klassískar perlur af sýrðu
rokki sem komu út 2005 undir nafn-
inu Latitudes: Interpretations of
Three Psychedelic Rock Songs
from Around the World. Amos Hall
valdi lögin, en þau komu hvert úr
sinni áttinni: eitt lag frá bandarísku
þjóðlagarokksveitinni Byrd, annað
frá bresku furðufuglunum í Gong og
svo loks eitt lag frá japönsku rokk-
sveitinni sérkennilegu Flower Tra-
vellin’ Band.
Jarðlitarokk
Upptökulotan hristi sveitina vel
saman og markaði henni nýja
stefnu eins og heyra mátti á næsta
verkefni, tveim tólftommum sem
gefnar voru út undir nafninu Black
Tar Prophecies og komu síðan út á
einum disk á síðasta ári. Andrúms-
loft er allt orðið drungalegra og
stemmningin dapurlegri, tónlistin
tilraunakenndari og um leið talsvert
þyngri, vitnað í Black Sabbath og
Led Zeppelin, án þess þó menn séu
að týna sér í einhverri fortíð-
arhyggju, aukinheldur sem kryddað
er vel með krátrokki (Popol Vuh).
Frábær plata.
Fyrir stuttu kom svo út ný Gra-
ils-skífa, fyrsta eiginlega breið-
skífan frá því Horner hvarf sjónum
manna. Á henni heldur sveitin kúrs-
inum frá síðustu skífu en þó með til-
brigðum – til að mynda er á plöt-
unni lag sem kalla mætti fjörugt, en
slíkt hefur ekki heyrst á Grails-
plötu til þessa. Slagverk setur
sterkan svip á plötuna, ekki síður
en skældir og bjagaðir gítarar og
fyrir vikið hefur tónlistin mun víðari
skírskotun en ella, fleiri litir á
spjaldinu og meira líf í myndinni, þó
enn séu jarðarlitir í forgrunninum.
Þung framúrstefna
Bandaríska sveitin
Grails hefur gengið í
gegnum sitt hvað um
dagana, en verður bara
betri við mótlætið, eins
og heyra má á hennar
nýjustu plötu.
Framúrstefna Eftirlifendur í Gails.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíassson