Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Kvisthagi - glæsileg
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Glæsileg efri hæð sem
skiptist í tvær samliggjandi
stofur, sjónvarpsherbergi, eldhús, baðherbergi og fjögur svefn-
herbergi, þar af eitt forstofuherbergi og eitt herbergi í kjallara.
Íbúðinni fylgir 50% hlutdeild í góðu rislofti. Hæðin hefur mjög
mikið verið standsett. 6777
Iðnaðarhús Hveragerði
Fasteignasalan
BAKKIehf
Sími 482-4000
Heimasíða www.bakki.com
Netfang bakki@bakki.com
Sigtún 2 SelfossiÞröstur Árnason
lögg.fasteignasali
sími 899-5466
Fyrir fjárfesta: Eldra iðnaðarhúsnæði við Dynskóga í Hveragerði sem
býður upp á ýmsa möguleika. Burðarvirki hússins er steypt og
steypubitar í þaki einnig. Hlaðið er á milli bita með holsteini. Húsið er
byggt 1964 og var vel til þess vandað á sínum tíma. Lóðin er 6.634fm
afar vel staðsett. Húsnæðið gæti hentað undir ýmiskonar framleiðslu
eða jafnvel geymslu en geymsluhótel hefur verið rekið með góðum
leigutekjum í eigninni undanfarið. Mikill kostur er líka að fast
hitaveitugjald er til staðar um 6.000.kr.pr.mán og ótakmarkað vatn.
Hugmyndir hafa verið uppi um að byggja ný hús á lóðinni. Húsnæðið
er skráð 1.830fm en að auki er stórt milliloft. Íbúð/skrifstofa er einnig í
norðurenda hússins. Verð 125.000.000 kr.
VENJUR mínar á
morgnana eru senni-
lega ekkert ólíkar
ykkar. Við nælum
okkur í morgunblað
eða kveikjum á sjón-
varpinu hvort sem við
erum í New York eða
Reykjavík, Lagos eða
Djakarta og kynn-
umst mannlegum
þjáningum í Líbanon,
Darfur eða Sómalíu.
Auðvitað er ég í að-
stöðu til þess, sem
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna,
að gera eitthvað í
málunum. Og það geri
ég, á hverjum degi.
Þegar ég tók við
þessu starfi gerði ég
mér engar grillur.
Þau orð mikilsmetins
forvera míns að þetta
væri „ómögulegasta
starf í heimi“ urðu
fleyg. Þátttöku Sam-
einuðu þjóðanna er
óskað á fleiri sviðum
en nokkru sinni fyrr,
allt frá friðargæslu til
mannúðaraðstoðar og
heilsugæslu. Á sama tíma og kröf-
urnar aukast á öllum sviðum
minnka fjárframlög hlutfallslega. Á
hinn bóginn má benda á að heim-
urinn hefur breyst að ýmsu leyti á
undanförnum árum, Sameinuðu
þjóðunum í hag.
Mjúkar lausnir
Fjölþjóðlegar lausnir og dipló-
matískar aðferðir við að leysa deil-
ur eiga nú meira upp á pallborðið
en á undanförnum árum af mörg-
um öðrum ástæðum en Írak.
„Mjúkar lausnir“ eru nú efst á
baugi hjá ráðamönnum í heiminum,
en það er einmitt sterkasta hlið
Sameinuðu þjóðanna. Svo aðeins
eitt dæmi sé nefnt hefur á síðast-
liðnu ári náðst samstaða um lofts-
lagsbreytingar og hlýnun jarðar.
Leiðtogar á borð við Bill Gates,
Tony Blair og Bono ætla að leggj-
ast á sveif með Sameinuðu þjóð-
unum til að uppfylla Þúsaldarmark-
mið þeirra (MDGs) sem ná allt frá
því að uppræta fátækt til að stöðva
útbreiðslu HIV/alnæmis og mal-
aríu.
Stuðningur við SÞ –
líka í Bandaríkjunum
Það sem er ef til vill mest hvetj-
andi er áframhaldandi mikill stuðn-
ingur almennings við Sameinuðu
þjóðirnar. Samkvæmt nýrri al-
þjóðlegri skoðanakönnun telur mik-
ill meirihluti (74%) að Sameinuðu
þjóðirnar eigi að leika stærra hlut-
verk í heiminum, hvort heldur sem
er við að hindra þjóðarmorð og
verja þjóðir sem ráðist er á eða að
rannsaka mannréttindabrot af
harðfylgi. Jafnvel í Bandaríkjunum,
þar sem óánægja með Sameinuðu
þjóðirnar hefur verið landlæg, eru
þrír fjórðu hlutar landsmanna
hlynntir öflugri Sameinuðum þjóð-
um og nærri jafnmargir telja að ut-
anríkisstefna þjóðarinnar skuli
framkvæmd í félagi við samtökin.
Þetta skiptir sköpum fyrir Samein-
uðu þjóðirnar. Ég myndi ekki kalla
þetta nýja byrjun en er samt ekki
langt frá því, ef við berum gæfu til
að grípa tækifærið.
Við Kóreubúar erum kröftugt
fólk. Við erum í eðli okkar þol-
inmóð en þrautseig og ákveðin í að
ná settu marki. Eins og margir
landar mínir hef ég mikla trú á
mætti tengsla. Ég hef í mörg ár
gengið með slitinn pappírsmiða í
veskinu mínu þar sem skráðir eru
með kínversku letri
kostir sérhvers aldurs-
skeiðs. Maður er á
besta aldri þrítugur.
Fimmtugur þekkir
maður örlög sín. Sex-
tugur hefur maður
uppgötvað visku „hins
mjúka eyra.“
Fremur
viðræður en átök
Ég er á þessu ævi-
skeiði núna. Þetta fel-
ur meira í sér en að
einfaldlega hlusta, eins
mikilvægt og það er.
Kannski verður þessu
best lýst með orðinu
glöggskyggni – að geta
séð kost og löst og að
geta myndað tengsl og
eiga gott samstarf
þrátt fyrir mikinn
ágreining. Ég vona að
þetta verði talið mitt
aðalsmerki sem fram-
kvæmdastjóra. Ég kýs
fremur viðræður en
átök. Stundum á við að
diplómatískt starf fari
fram fyrir opnum
tjöldum en stundum er vænlegra til
árangurs að það fari fram bakvið
tjöldin.
Ég legg áherslu á vænlegast til
árangurs því sjaldan er hægt að
ganga út frá því að árangur náist.
Mikilvægast er að leggja sig allan
fram eins og ég hef verið að gera í
Darfur – sem er eitt af forgangs-
málum mínum. Ég hef í sama anda
heimsótt Mið-Austurlönd fjórum
sinnum á jafn mörgum mánuðum
og meðal annars hitt Bashar al-
Assad, forseta Sýrlands, á nokkr-
um fundum. Málaleitanir diplómata
í kyrrþey duga ekki alltaf. En
stundum duga þær eins og sást á
því á dögunum hvernig gísladeila
Breta og Írana var leyst á bakvið
tjöldin.
Mannlegi þátturinn
Iðnríkin átta hittast á fundi í
Þýskalandi í næstu viku til að ræða
meðal annars loftslagsbreytingar –
málefni sem er mér kært. Auðug
ríki búa yfir auðæfum og kunnáttu
til að bregðast við. Hægt er að
bregðast við snjóleysi í svissneskri
skíðaparadís í Ölpunum með því að
breyta áður snjóþungum dal í Ölp-
unum í sólríkt vínræktarhérað eins
og í Toscana. Afleiðingarnar eru
hins vegar háskalegri fyrir Afr-
íkubúa sem nú þegar glíma við út-
breiðslu eyðimarka eða eyj-
arskeggja Indónesíu sem óttast að
sökkva á kaf í hafið.
Ef það er einhver rauður þráður
í mínu starfi eða hugsjónum mínum
myndi það vera mannlegi þátt-
urinn. Ég hef mikla trú á gildi við-
ræðna og diplómatískra tengsla
sem byggja í senn á raunsæi og
trausti. Auk þess er mikilvægt að
hafa í huga hvaða áhrif alþjóðleg
stefnumörkun – okkar stefnumörk-
un – hefur á líf einstaklinga.
Við lesum á hverjum morgni í
blöðunum um mannlega harmleiki.
En hve oft hlustum við raunveru-
lega á raddir fórnarlambanna eða
reynum að hjálpa eftir fremsta
megni? Ég lofa að leggja mig allan
fram við slíkt.
Hvers vegna
heimurinn hefur
breyst Sameinuðu
þjóðunum í hag
Ban Ki-moon skrifar um hlut-
verk sitt og áherslur sem fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna
Ban Ki-moon
» Samkvæmtnýrri al-
þjóðlegri skoð-
anakönnun telur
mikill meirihluti
(74%) að Sam-
einuðu þjóð-
irnar eigi að
leika stærra
hlutverk í heim-
inum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna.