Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Mjög góð ca 72 fm íbúð á 10. hæð í þessu eftirsótta lyftuhúsi.
Íbúðin snýr í suð-austur með útsýni frá Bjáfjöllum suður yfir Keili.
Góð stofa og stórar suðursvalir. Laus í júlí. Tilboð. 7625
SÓLHEIMAR 23
Opið hús í dag milli kl. 13:00 og 18:00
530 1800
20,900,000
Einstaklega fallegur, 59,8 fm, 3ja herbergja fullbúinn sumarbústaður.
Bústaðurinn er ótrúlega vel útbúinn og mjög vel staðsettur.
Katrín og Þorsteinn taka á móti gestum.
Leynir - 801 Bláskógarbyggð
Um er að ræða glæsilegt einbýli á einni hæð við Stigahlíð í Reykjavík. Eign-
in skiptist í forstofu, eldhús, fimm svefnherbergi, tvær stofur, tvö baðher-
bergi, gestasnyrtingu, þvottaherbergi, innbyggðan bílskúr og geymslur.
Eignin er staðsett innst í botnlanga. Garður við húsið er geysilega fallegur.
6778
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Stigahlíð - glæsileg eign
Góð 72 fm, 3ja herb., risíbúð í fjórbýlishúsi í miðborginni. Íbúðin sk: í gang, eldhús með
nýlegu parketi, samliggjandi borð- og setustofu, eitt svefnh.og endurn. baðh. flísalagt í
hólf og gólf. Upprunalegar lakkaðar hurðir í íbúðinni. Góð íbúð miðsvæðis.
Til afhendingar við kaupsamning. Hagstætt lán getur fylgt.
Verð 17,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag,
sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Njálsgata 83
Opið hús í dag kl. 14-16
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
Falleg, fjögurra herbergja, íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi, suðvestursvalir
og bílastæði í bílastæðageymslu ásamt góðri geymslu í kjallara.
Íbúðin skiptist í 3 góð svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvotta-
hús og baðherbergi. Öll herbergi eru parketlögð og skápar sérsmíðaðir
úr kirsuberjaviði. Stofa er björt og parketlögð. Eldhús er flísalagt ásamt
borðstofu og er innangengt frá svölum. Innréttingar eru sérsmíðaðar úr
kirsuberjaviði. Inn af eldhúsi er þvottahús. Baðherbergi er rúmgott og
er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturtuklefi og baðkar. Íbúðin er 107,5
fm. Ásett verð 35 m.
Allar frekari upplýsingar gefur Markús hjá Saga fasteignum
í síma 8971200 og á markus@sagafasteignir.is
Opið hús í dag milli kl. 17.00 og 18.00
Norðurbrú 4 í Sjálandshverfi, Garðabæ.
Opið hús í dag kl. 16.00 - 18.00
530 1800
47.900.000
Virkilega falleg 138,3 fm
séreign á tveimur
hæðum, ásamt ca 20 fm
risi (óskráð). Eignin er
því um 160 fm.
Falleg suðurverönd bak
við húsið ásamt garði.
Upprunalega var eignin
tvær íbúðir, þannig að mjög auðvelt væri að breyta því aftur og leigja aðra
eignina út. Vandaðar innréttingar og gólfefni.
Guðlaugur og Guðrún Helga taka á móti gestum
Njálsgata 10a - 101 Rvk
Bréf
til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2,
110 Reykjavík
Bréf til blaðsins | mbl.is
STÖKU sinnum í framvindunni
koma upp kringumstæður og
vandi sem kalla á úrlausnir en eru
tækifæri í senn. Hér gildir hið
sama hvort sem litið er til ein-
staklingsins og æviára hans eða
sögu héraða og þjóða sem mælist
á kvarða aldanna.
Þessa dagana stendur þjóðin í
uppgjöri við nánustu fortíð sína og
flytur áherslur og sýn til næstu
framtíðar eftir lögmálum stjórn-
málanna og öldunnar sem rís og
hnígur.
Núpur í Dýrafirði varð um einn-
ar aldar skeið tákn sóknarinnar
fram á við í sínum landshluta, ald-
an sem reis, menntasetur og sam-
komustaður um norðanverða Vest-
firði. Sjósókn og náttúrunýting
voru grunnur þeirrar sóknar. Það
merki er nú kirfilega fallið, sjó-
sóknin í fullum vandræðum, ekki
af því að fiskinn vanti eða búskap-
urinn af því að grösin grói ekki,
heldur af því að straumur tímans
bar okkur um sinn annað. Nú
verður þessi þjóð að ákveða hvað
hún ætlar að gera við arfleifð sína
fyrir vestan.
Hér er tækifæri til þess að
hugsa stórt. Tækifæri og nauðsyn
að rísa yfir hið skammtíma-
bundna. Málið snýst ekki um eina
saman útgerð á Flateyri eða um
jarðir við Djúp, veginn góða á
Barðaströnd eða viðgang tófu á
Ströndum.
Málið snýst um bestu manna
ráð, Gests hins spaka, Jóns Sig-
urðssonar, Skúla Thoroddsen, sr.
Sigurðar í Vigur, sr. Sigtryggs á
Núpi eða Guðmundar Inga. Ráð
manna sem vita og skilja að svipur
heildarinnar snýst um alúð við öll
hin smáu atriði heildarinnar. Vit-
undin um það að alúðin við hið
smáa, sem tengist í heildinni, skil-
ar sér að lokum margfalt í lífs-
fylligu ef ekki veraldlegum auði.
Hér er um að ræða ákvörðun og
Viðhald og
reisn Núps
í Dýrafirði
Frá Aðalsteini Eiríkssyni og Gunn-
hildi Valdimarsdóttur