Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 88
Heitast 20 °C | Kaldast 10 °C
S-átt, strekkings-
vindur, einkum SV- og
A-lands. Rigning eða
skúrir S- og V-lands,
annars úrkomulaust. » 8
SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2007
ÞETTA HELST»
Verulegur niðurskurður
Hafrannsóknastofnunin leggur nú
til verulegan niðurskurð á heildar-
afla á þremur helztu nytjategundum
okkar, þorski, ýsu og ufsa. Samtals
er lagt til að afli þessara tegunda
verði skorinn niður um 93.000 tonn
og munar þar mest um þorskinn.
Þar er lagt til að afli fari úr 193.000
tonnum í 130.000 tonn. »Forsíða
Gegn gangainnlögnum
Læknaráð ályktaði nýverið að
framkvæmdastjórn Landspítala –
háskólasjúkrahúss (LSH) þyrfti að
sjá til þess að gangainnlagnir kæmu
framvegis ekki til álita í starfsemi
spítalans. Formaður læknaráðs seg-
ir málið snúast um einkalíf sjúklinga
og öryggismál spítalans sjálfs. »4
Einhverfa vegna erfða
Umhverfisþættir hafa lítil áhrif á
það hvort börn greinast með ein-
hverfu, orsök hennar er aðallega
erfðafræðileg og ekkert bendir til
þess að bólusetningar séu á nokkurn
hátt orsakavaldur heilkennisins.
Þetta var meðal þess sem fram kom
á ráðstefnu um einhverfu sem haldin
var í Reykjavík. »4
Forvarnir mikilvægar
Nýr heilbrigðismálaráðherra,
Guðlaugur Þór Þórðarson, segir
mikilvægt að efla forvarnir, mark-
miðið hljóti að vera að fólk þurfi sem
minnst á heilbrigðiskerfinu að halda.
Í viðtali við Morgunblaðið segir
hann að eining sé um að ríkið og op-
inberir aðilar beri lungann af kostn-
aðinum við þjónustuna en ekkert sé
að því að skapa samkeppni milli
þeirra aðila sem veiti hana. »26
SKOÐANIR»
Staksteinar: Réttur hluthafa
Forystugreinar: Reykjavíkurbréf |
Hátíð íslenskra sjómanna
UMRÆÐAN»
Gerð ferilskrár er mikilvæg
Ólöglegar eftirlíkingar vandamál
Yfirlýsing vegna Kárahnjúka
Stillum hitann hóflega
Réttið hlut Flateyrar
Hagfræði heljar
Styður ríkisstjórnin Íraksstríð?
ATVINNA»
FÓLK»
Eli Roth gerir grín að
Kate Hudson. »80
Vytas Narbutas er
myndlistarmaður
frá Litháen sem býr
á Íslandi og hefur
opnað sýningu á
Næsta bar. »78
MYNDLIST»
Fortíðin
kvödd
TÓNLIST»
Bubbi Morthens spilar í
Hafnarfirði í kvöld. »80
FÓLK»
Moby er reiður við ofsa-
trúarmenn. »80
Heiða Jóhannsdóttir
er mjög hrifin af 28
Weeks Later og gef-
ur henni fjórar
stjörnur af fimm
mögulegum. »85
Frábær
hrollvekja
KVIKMYNDIR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. „Þetta er bara græðgi“
2. „Raunveruleikaþáttur“ gabb
3. Lík þriggja nýbura fundust
4. Til meðvitundar eftir nítján ár
BRYNJA, hússjóður Öryrkjabanda-
lags Íslands, hefur ákveðið að selja
Fannborg 1 í heilu lagi en um er að
ræða níu hæða blokk með alls 43
íbúðum. Í staðinn verða keyptar
stakar íbúðir hér og þar á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir íbúa í blokk-
inni. „Þetta er annars vegar tilkomið
af hagkvæmnisástæðum en ekki síð-
ur breyttra sjónarmiða um búsetu
fatlaðra,“ sagði Helgi Hjörvar,
stjórnarformaður Brynju.
Mjög sjaldgæft er að blokkir séu
boðnar til sölu í einu lagi en Sverrir
Kristinsson hjá Fasteignamiðlun
segir að blokkin geti m.a. hentað
sem íbúðahótel.
Níu hæða
blokk til sölu
í einu lagi
Til sölu Íbúðir í blokkinni eru litl-
ar, 37,5-64 fermetrar að stærð.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
NOTKUN löggæslumyndavéla í miðborg
Reykjavíkur er háð skýrum reglum um rök-
stuðning, meðalhóf og gagnsæi. Stefán Eiríks-
son, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir
lögreglu leggja sig í líma við að framfylgja
þessum reglum. „Við tökum þetta verkefni
mjög alvarlega enda myndi það skaða okkar
hagsmuni verulega ef við færum ekki eftir sett-
um reglum. Það er númer eitt, tvö og þrjú,“
segir hann.
Stefán segir löggæslumyndavélarnar hafa
margsannað gildi sitt á síðastliðnum tíu árum.
„Myndavélarnar gera það að verkum að lög-
reglan getur verið með augu á fleiri stöðum en
ella. Auðvitað leysa þær einar og sér ekki þann
vanda sem við er að etja í miðbænum og koma
aldrei í staðinn fyrir sýnilega löggæslu en þær
auðvelda lögreglu klárlega starf sitt og auka
viðbragðsflýti.“
Hafa bjargað mannslífum
Vélarnar hafa verið í notkun í áratug og segir
Stefán þær í nokkur skipti hafa leitt til þess að
lögreglan hafi bjargað mannslífum. „Það gerist
nánast um hverja einustu helgi að lögreglu-
menn sem vakta vélarnar sjá hluti sem eru í
uppsiglingu, árásir sem eru í gangi og annað,
og láta félaga sína sem staddir eru í miðborg-
inni vita. Ég fullyrði að þetta hefur bjargað
mannslífum.“
Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá Per-
sónuvernd, segir Persónuvernd hafa borist fyr-
irspurnir varðandi löggæslumyndavélarnar en
aldrei hafi komið upp mál þar sem stofnunin
hafi þurft að taka afstöðu eða senda frá sér
álit. „Við höfum ekki fengið neinar vísbend-
ingar um það að lögreglan sé að nota mynda-
vélarnar í einhverjum öðrum tilgangi en kveðið
er á um í reglum og reglugerðum,“ segir Þórð-
ur.
Löggæslumyndavélarnar eru nú átta en fyr-
irhugað er að fjölga þeim um allt að helming í
haust. | 10
Notkun löggæslumynda-
véla háð skýrum reglum
Löggæslumyndavélarnar hafa margsannað gildi sitt á síðastliðnum tíu árum
Morgunblaðið/Júlíus
Gagnlegar Stefán Eiríksson segir myndavél-
arnar hafa reynst vel við rannsókn mála.
MARGIR lögðu leið sína á Esjuna í gær en hópurinn 5
tindar hvatti til að slegið yrði Íslandsmet í fjölda
göngumanna á Esjuna. Þegar haft var samband við
meðlimi hópsins rétt fyrir hádegi í gær höfðu rúmlega
200 manns hafið göngu og voru skipuleggjendur bjart-
sýnir á að 1.000 manna markinu yrði náð fyrir klukkan
átta á laugardagskvöld. Ekkert formlegt Íslandsmet er
til skráð um fjölda göngufólks á Esjuna en markmið
hópsins var að setja markið það hátt að erfitt yrði fyrir
göngufólk framtíðarinnar að slá metið.
Hópurinn 5 tindar samanstendur af níu vinum og
kunningjum sem hafa ákveðið að ganga á fimm hæstu
fjalltinda utan jökla á fimm landshlutum. Verður förin
farin um næstu helgi og er til styrktar Sjónarhóli.
Reynt að slá Íslandsmet í Esjugöngu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Margir reyndu við Íslandsmet
með því að ganga á Esjuna