Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 40
ljóð 40 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þ arna er skáldið okkar“ heyrist hvíslað þegar Leifur Eiríksson tekur á móti blaðamanni í and- dyri Hrafnistu í Hafn- arfirði. Í tilefni hundrað ára afmælis hans gaf Hrafnista út safn ljóða sem hann hefur ort um íbúa og starfsfólk á dvalarheimilinu undir heitinu Söngljóð og stökur. Það er fátítt að gefnar séu út bækur eftir ald- argamla menn, en Leifur er hraust- ur, ern og frásagnaglaður og af hon- um stafar hlýja. „Ég ásetti mér ekki að verða skáld enda hafði ég allt of mikið að gera til þess fram yfir fimmtugt,“ segir Leifur en viðurkennir þó að ljóðlistin standi sér nærri. „Ég kann svo mikið af ljóðum að þau koma alltaf fyrir þegar ég tala við ein- hvern. Þau tengjast öllu sem um er rætt.“ Þetta sýnir sig í samræðum við Leif sem fer fumlaust með fjöldann allan af kvæðum. Párað í hrím „Rímur lærði ég spjaldanna á milli þegar ég var ungur. Það var mín skólaganga“ segir hann. Foreldrar Leifs voru Ingibjörg Vigfríður Jóhannsdóttir (f. 1889, d. 1983) og Eiríkur Stefánsson (f. 1883, d. 1956). Þegar Leifur var tveggja ára flutti fjölskyldan að nyrsta bæ landsins, Rifi á Rifstanga. Bærinn var mjög einangraður og búskap- urinn krafðist þrotlausrar vinnu. ,„Ég var nú aldrei nema einn vetur í hverjum skóla því ég hafði svo lítinn pening og mikið að gera. Ég las þó mikið heima, en þá voru allar kennslubækur á dönsku. Svo ætlaði ég bara að koma í stúdentspróf á sauðskinnsskónum, eins og einstaka menn gerðu þá,“ segir Leifur og hlær. „Ég man vel eftir fyrsta prófinu mínu, það var í munnlegri stærð- fræði. Ég hafði enga kennslu fengið og aldrei séð krítartöflu, heldur æft mig að pára í hrímið sem myndaðist innan á rúðunum heima. Áður en ég lagði af stað sagði ég við félaga minn heima á Sléttu að næði ég ekki prófi kæmi ég aldrei aftur heim, heldur myndi ég ráða mig á millilandaskip og aldrei stíga á land á Raufarhöfn. Ég lagði allt undir.“ Þegar upp var staðið fékk Leifur hæstu einkunn í prófunum. „Þeim fannst það skrítið hinum að strákurinn norðan af Slétt- unni fengi ágætiseinkunn.“ Heimagerð sundlaug Leifur var alla tíð virkur í fé- lagsstörfum ýmiss konar, og hlaut fyrir rúmum tíu árum fálkaorðu fyr- ir framlag sitt á því sviði. „Ég var óskaplega hrifinn af ungmenna- félagshreyfingunni sem barst frá Noregi. Ég hafði þörf til þess að vinna að félagsstörfum og helgaði mig þessum félagsskap. Ég var for- maður í ungmenna- og íþróttafélag- inu Austra og var með skátaflokka. Sjálfur var ég aldrei skáti en las mér til og stofnaði svo félag,“ útskýrir hann brosandi. Leifi þótti mikið áhyggjuefni að sjómenn kynnu ekki að synda og einsetti sér að ráða bót á því. „Íþróttir voru ekki kenndar, nema glíma, og mér fannst svo vont að enginn lærði að synda.“ Hann fór því fram að Laugum og æfði sund með það að markmiði að geta kennt ung- um sjómönnum. Á Raufarhöfn var engin sundlaug en Leifur fékk skát- ana sína til þess að aðstoða sig við að smíða laug. Hún var gerð með því að steypa veggi í gamalli þró og vatnið hitað með gufu frá síldarverksmiðj- unni. Sementið í laugina keypti Leif- ur sjálfur og leitaði ekki til sveitarfé- lagsins með neitt. Spurður hvað hafi rekið hann áfram svarar Leifur í anda ungmennafélagshreyfing- arinnar: „Ég gerði það bara af því að það var ógert“. Kennari af köllun Eiginkona Leifs var Sveinbjörg Lúðvíka Lund (f. 1910, d. 1977). Hjónin byggðu sér hús á Rauf- arhöfn. Það var á tveimur hæðum og þótti stórt og mikið. Leifur setti á fót einkaskóla fyrir unglinga og kenndi á efri hæð hússins. Skólann rak hann frá 1934 til 1943, þar til barna- og unglingaskólinn á Raufarhöfn var stofnsettur, en Leifur hafði umsjón með byggingu hans. Þar kenndi hann í mörg ár en aflaði sér þó áður kennsluréttinda. „Ég var bara einn vetur, og varla það, en þetta var þriggja vetra skóli. Ég hafði varla nokkurn tíma til að lesa undir prófin, en lét slag standa, lauk þeim öllum og fékk réttindi.“ Síðar fluttu hjónin búferlum í Garðahrepp, nú Garða- bæ, og Leifur var kennari og yf- irkennari í Flataskóla til ársins 1982. Engar áhyggjur - hann nær inn Leifur var sýslunefndarmaður Raufarhafnar á árunum 1945 til 1958, og hafnarstjóri og oddviti hreppsnefndar frá 1950 til 1958. Forysta hans var óskoruð. Til marks um það er að í kosningum 1954 var Leifur í fyrsta sæti á lista hrepps- nefndarinnar og í öðru sæti á lista mótframboðsins. Leitað var álits fé- lagsmálaráðuneytis á því hvort þessi sætaskipan bryti gegn reglum, en svo var ekki þar sem báðir listar voru ópólitískir. Í svari ráðuneyt- isins sagði „Þið skuluð ekki hafa áhyggjur af honum; hann kemst inn. Æskan „ósvikin verðmæti“ Ævistarf Leifs hefur verið í þágu barna og unglinga og hann lætur sér bersýnilega enn mjög annt um ungt fólk sem á vegi hans verður. „Það er svo gaman að tala við unga fólkið. Hér á Hrafnistu vinnur margt æsku- fólk, flest í námi, og það eru líka störf. Ég er oft að tala við þetta unga fólk og öðrum íbúum þykir stundum meira en nóg um hvað það kemur oft að borðinu mínu að spjalla“ segir Leifur og hlær dátt. Þessir vinir hans verða honum yrkisefni í ljóða- bók hans. Í ljóðinu Í borðsalnum eru þessi erindi: Þarna er skáldið okkar Morgunblaðið/ÞÖK Hundrað ára Ungskáld sem smíðaði sundlaug, stofnaði skóla og átti sæti á tveimur listum samtímis Leifur Eiríksson á hundrað ára afmæli á sjó- mannadaginn. Af því til- efni var gefin út bók með ljóðum hans um lífið og tilveruna á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hann sagði Oddnýju Helgadóttur hversu þakklátur hann er fyrir gott heilsufar og stóra fjölskyldu. Látinni eiginkonu sinni tileinkar hann ljóðið Óður til Rauf- arhafnar. Það er dyggð að spara. Þettavita menn. Sparnaður gerirmenn ríka því græddur ergeymdur eyrir. En það er ekki nóg að spara því það þarf líka að eyða peningum. Peningar renna eins og blóð um æðar hagkerfisins og ef rennslið stöðvast lamast kerfið. Það er ekki venja að prútta á Ís- landi heldur borga það sem upp er sett en í mörgum samfélögum er prútt listgrein, venja eða aðferð til að jafna kjör ríkra og fátækra. Í leiðsögubókum stendur að út- lendingar á ferð í Indlandi verði að vera viðbúnir því að allir reyni að hafa fé af þeim. Þetta er alveg rétt. Allir sem ekki eru að selja eitt- hvað sem er vandlega verðmerkt á matseðli eða verðmiða, reyna eftir megni að féfletta útlendingana. Þeg- ar maður spyr um verð byrjar selj- andi oftast á því að nefna fjórfalt til sexfalt hærra verð en venjulegir við- skiptavinir greiða. Hin hefðbundnu samskipti gera ráð fyrir því að það taki nokkra stund að ná samkomulagi og vanur kúnni á að bregðast ókvæða við og bjóða á móti upphæð sem er óheyri- lega lág, t.d. 10 rúpíur hafi 100 verið nefndar sem fyrsta verð. Kaupmað- urinn tekur þá bakföll af undrun og hneykslun yfir ósvífni hins aðkomna en þegar hann jafnar sig lætur hann þess getið að auðvitað komi til greina að lækka verðið í 90 rúpíur. Bara af því að það ert þú. Næsta skref kúnnans er að draga örlítið úr hneykslun sinni og reiði og leggja til að sæst verði á 20 rúpíur. Þannig heldur leikurinn áfram þar til menn lenda líklega í 50 rúpíum og allir hafa af nokkra skemmtun. Þennan leik stunda leigubílstjórar löglegir og ólöglegir af mikilli ástríðu og eru mjög harðir í horn að taka svo og flestir kaupmenn sem á vegi manns verða. Örþrifaráð kúnn- ans er að þykjast ætla að ganga í burtu og hætta við öll viðskipti. Hafi hann verið kominn nálægt réttu verði er líklegt að kaupmaðurinn komi hlaupandi á eftir honum með útrétta sáttahönd. Lengi vel hélt ég að prúttið væri einskorðað við grasrót viðskiptalífs- ins hér á Indlandi en eftir samtal við fimm stjörnu hótel þar sem þurfti að beita hótunum í bland við skens til að lækka verðið um helming sann- færðist ég um hið gagnstæða. En bíðum aðeins við. Viðskiptavinurinn kemur frá einu af ríkustu löndum í heimi þar sem peningar flæða um æðar hagkerf- isins á ógnarhraða og allur heim- urinn stendur á öndinni yfir til- þrifum okkar fremstu manna sem kaupa og selja fyrirtæki fyrir millj- arða á degi hverjum. Viðskiptavin- urinn íslenski heldur á myndavél sem kostar sennilega árslaun verka- manns í Delí, hann er verndaður af heilbrigðiskerfi, ferðatryggingum, ríflegum yfirdrætti hjá Glitni og fær þúsundir rúpía fyrir að skrifa þenn- an pistil. Kaupmaðurinn indverski hefur reist bás sinn í óleyfi í vegkantinum við eina af umferðargötum Delí þar sem útblásturinn frá bílunum liggur eins og ský allan daginn. Búðin hans er fáeinir rekkar af minjagripum og glingri sem mynda framhliðina á skýli sem er tildrað upp úr pappa, nokkrum ósamstæðum spýtum og tveimur járnplötum. Þar inni býr fjölskylda hans, kona og tvö ung- börn og virðast sofa öll í einu fleti á moldargólfinu við dyn umferð- arinnar. 100 rúpíurnar sem við deilum um fyrir glingrið sem mig langar að hafa með heim og sýna vinum mínum eru ígildi 150 króna. Fyrir 150 krónur heima á Íslandi fær maður að leggja bílnum sínum í eina klukkustund við Laugaveginn á annatíma. Maður fær 1,5 lítra af mjólk eða 10 karamellur. Hversu mikla orku á ég að leggja í það að prútta við þennan mann til þess að lækka verð hans um 70 krón- ur íslenskar svo ég geti státað mig af því við aðra ferðalanga hvað ég sé harður prúttari og láti ekki Indverj- ana taka mig ósmurt? Kannski getur hann keypt mat í heila viku fyrir þessi tvö litlu börn sem leika sér í moldinni í vegkant- inum fyrir þennan 70 kall sem ég er í þann veginn að hafa af honum af því að ég er svo flinkur að prútta. Hvort er mikilvægara – að hann fái óvænt- ar vikutekjur eða að ég gangi burt með ósært stolt. Er það alveg virðingu minni sam- boðið að prútta við þetta fólk. Á ég ekki bara að vera eins manns þróun- arhjálp og borga það sem sett er upp. Eins manns þróunarhjálp HUGSAÐ UPPHÁTT Páll Ásgeir Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.