Morgunblaðið - 02.12.2007, Page 60

Morgunblaðið - 02.12.2007, Page 60
60 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ EFNI LEIÐTOGAR Ísraela og Palestínumanna hittust á fundi í Annapolis í Bandaríkjunum í vikunni. Fundurinn er liður í viðleitni til að fá fram viðræður um frið milli þjóðanna tveggja. Fæstir eru þó bjartsýnir á árangur. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, eiga það nefnilega sameiginlegt að staða þeirra er mjög veik heimafyrir í pólitískum skilningi. Abbas og Olmert hétu því þó á fundinum í Bandaríkjunum að leggja sig fram um að ná samkomulagi fyrir árið 2009. Er gert ráð fyrir að deiluaðilar byrji 12. desember að fjalla um viðkvæmustu og mikilvægustu atriðin, þ.e. landamæri væntanlegs sjálfstæðs ríkis Palestínumanna, yfirráðin í Jerúsalem og rétt Palestínumanna í útlegð til að setjast að í heimalandinu. George W. Bush Bandaríkjaforseti hitti þá Olmert og Abbas á meðan þeir voru í Bandaríkjunum og lýsti hann bjartsýni á að árangur næðist í friðarviðræðunum. Mikilvægt væri að hefja þessar viðræður, ekki mætti láta ofstækismenn í Mið-Austurlöndum sigra. Ísraelar og Palestínu- menn ræðast við á ný Reuters Friðarviðræður Ehud Olmert, George W. Bush og Mahmoud Abbas við Hvíta húsið á miðvikudag. Væntingar eru ekki miklar um árangur. Ísland leikur í riðli með Hollandi, Noregi, Skotlandi og Makedóníu í 9. riðli undan-keppni heims-meistara-mótsins í knattspyrnu sem hefst næsta haust. Dregið var í riðla í Durban í Suður-Aríku á síðasta sunnudag. Sú þjóð sem vinnur riðilinn haustið 2009 vinnur sér keppnis-rétt á heims-meistara-mótinu sem haldið verður í Suður-Afríku sumarið 2010. „Hollendingar eru að sjálfsögðu lang-sigur-stranglegasta liðið í riðlinum en ég verð að játa það að ég veit nákvæm-lega ekkert um Makedóníu á þessari stundu,“ sagði Ólafur Jóhannesson, lands-liðs-þjálfari í samtali við Morgunblaðið þegar niðurstaðan lá fyrir. „Að mínu mati hentar það íslenska landsliðinu vel að leika gegn liðum á borð við Skotland og Noreg,“ sagði Ólafur ennfremur og var sáttur við dráttinn þótt hann hefði fremur kosið að vera í riðli með fimm þjóðum til að fá fleiri lands-leiki. Ólafur var sátt- ur við riðilinn Matthías Árni Ingimarsson Sáttur Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu. Götur í nágrenni Royal Ontario Museum í Toronto í Kanada voru rýmdar og fjöldi lögreglu- og sprengju-leitarmanna kallaður til eftir að list-neminn Þórarinn Jónsson kom þar fyrir pakka seinni part miðvikudags sem var merktur upp á ensku: „Þetta er ekki sprengja.“ Í honum var að finna fremur frum-stæða eftirlíkingu af sprengju. Þórarinn hringdi jafnframt á skrifstofu safnsins eftir að hafa komið pakkanum fyrir og tilkynnti að það væri ekki sprengja þar innandyra. „Svo skellti ég bara á og fór beint í skólann,“ sagði Þórarinn. Snöggur í pontu Jón Björn Hákonar-son, vara-þingmaður Fram-sóknar-flokksins, sló líklega met þegar hann steig í ræðu-púlt eftir aðeins 17 mínútna þingsetu í vikunni. Samstaða um hækkanir Sam-staða er milli Sam-taka atvinnu-lífsins og stærstu sam-taka launa-fólks um að þeir sem ekki hafi notið hækkunar á kaup-mætti að undan-förnu fái sérstaka hækkun. Samnings-bundnar hækkanir síðasta eina og hálfa árið eru 2,9% og laun þeirra sem aðeins hafa fengið þessar hækkanir hækka um 4% verði þessi leið farin. Stutt „Strákar, nú ætla ég að gefa ykkur skýrar ordrur um að ræsa,“ sagði Össur Skarp-héðinsson iðnaðar-ráðherra við Georg Pálsson, stöðvar-stjóra í Fljótsdals-stöð, á föstudag. Össur, sem komst ekki austur vegna veðurs, var á Hótel Nordica í Reykja-vík en Georg var í stöðvar-húsinu fyrir austan og gang-setti Kára-hnjúka-virkjun formlega. Þegar hverflarnir í vél 6 í virkjunni voru komnir á fullan snúning, 600 snúninga á mínútu, gaf Árni Mathiesen fjármála-ráðherra skipun um að rafmagn yrði „fasað“ við kerfið, með orðunum: „Er ekki kominn tími til að tengja.“ Kára-hnjúka-virkjun ræst Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Ræst Fljótsdals-stöð Kárahnjúka-virkjunar. Virkjunin var formlega ræst á föstudaginn. RIT-HÖFUNDARNIR Bragi Ólafsson og Kristín Steins-dóttir eru tilnefnd til bókmennta-verðlauna Norður-landa-ráðs sem full-trúar Íslendinga. Bragi er til-nefndur fyrir skáld-sögu sína Sendi-herrann. Kristín er til-nefnd fyrir skáld-sögu sína, Á eigin vegum. Þetta var til-kynnt á föstu-daginn var. Það verður svo til-kynnt hinn 29. febrúar á næsta ári hver hlýtur verð-launin. 35.000 danskar krónur eru í verð-laun, en það eru um 4,2 milljónir íslenskra króna. Verð-launin verða afhent á 60. þingi Norður-landa-ráðs í lok október á næsta ári. Full-trúar landanna í dóm-nefndinni hafa til-nefnt 12 verk eftir norræna höfunda. Í ár eru til-nefnd verk frá Fær-eyjum og samíska mál-svæðinu en engin til-nefning barst frá Græn-landi. Bragi og Kristín til-nefnd Bragi ÓlafssonKristín Steinsdóttir PERVEZ Musharraf sór embættiseið sem forseti Pakistans á fimmtudag en deginum áður hafði hann afsalað sér yfirmannstign í pakistanska hernum. Ekki hefur þótt ganga að sami maður væri forseti og æðsti yfirmaður hersins og hefur lengi verið þrýst á Musharraf að hann léti af seinna embættinu. Musharraf hefur heitið því að neyðarlögum í Pakistan verði aflétt fyrir 16. desember nk. og hann segist staðráðinn í að halda þingkosningar í landinu í janúar. Musharraf áfram forseti Netfang: auefni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.