Morgunblaðið - 02.12.2007, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 75
Auglýst er eftir tilnefningum
til viðurkenningar Alþjóðahúss
Alþjóðahús auglýsir eftir tilnefningum fyrir viðurkenninguna „Vel að verki staðið“ fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á
Íslandi. Viðurkenningin, sem forseti Íslands afhendir, verður veitt í árslok og er þetta í fimmta skipti sem hún er veitt. Viðurkenningin er
tileinkuð Thor Jensen en hann flutti hingað til lands ungur að aldri, vann sig upp úr sárri fátækt og markaði rekstur fyrirtækja hans innreið
tæknialdar í íslenskt atvinnulíf og hafði hann gríðarleg áhrif á íslenskt samfélag á fyrri hluta 20. aldar.
Viðurkenningin þjónar þeim tilgangi að vekja athygli á jákvæðu starfi sem unnið er hér á landi í málefnum innflytjenda. Veittar verða
viðurkenningar fyrir lofsverða frammistöðu í þremur flokkum; til einstaklings af íslensku bergi brotinn sem hefur lagt sitt af mörkum til
innflytjenda á Íslandi, til einstaklings af erlendum uppruna sem hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins og til fyrirtækis, stofnunar eða
félagasamtaka fyrir framlag til málefna innflytjenda og fjölmenningarsamfélagsins.
Vinsamlega sendið tillögur til Einars Skúlasonar, framkvæmdastjóra Alþjóðahúss, á einar@ahus.is
fyrir miðvikudaginn 12. desember. Tillögur skulu innihalda rökstuðning að hámarki
200 orð um hvers vegna viðkomandi skuli fá viðurkenningu.
Alþjóðahús ermiðstöð innflytjenda semveitir upplýsingar, ráðgjöf, fræðslu, túlka- og
þýðingaþjónustu og íslenskukennslu. Alþjóðahús stefnir að því að jafnréttis sé gætt,
mannauður nýttur og veitir aðhald á þessu sviði, til þess að allir geti notið þeirra
kosta sem fjölmenningarlegt samfélag býður upp á.
L
U
C
IA
N
O
D
U
T
R
A
H
A
N
N
A
Ð
I
Landsbankinn er bakhjarl viðurkenningarinnar.
Opið
í dag
kl. 13-18
Laugavegi 53 • Sími 552 3737
Opið virka daga 10-18
TÓNLIST
Langholtskirkja
Sinfóníutónleikar
Haydn: Sinfónía nr. 100 í G. Beethoven:
Messa í C Op. 86. Rannveig Káradóttir
sópran, Sibylle Köll alt, Hlöðver Sigurðs-
son tenór, Valdimar Hilmarsson bassi,
Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins. Stjórnandi: Gunnsteinn
Ólafsson. Þriðjudaginn 27. nóvember kl.
20.
FJÖLMENN aðsókn var að seinni
af tvennum tónleikum Há-
skólakórsins og „Ungfóníu“ á
þriðjudag. Þriggja ára gömul
hljómsveitin (39 manna, þar af 22
strengir) var sem fyrr mestmegnis
skipuð lengra komnum tónlist-
arnemum af höfuðborgarsvæðinu.
Hún myndaði í seinni hluta heil-
steypt jafnvægi við 57 manna kór-
inn, er sömuleiðis var í þokkalegu
jöfnu innbyrðis raddvægi (20-14-
10-13) þrátt fyrir landlæga ten-
óraeklu. E.t.v. þurr tölfræði, en
samt viss forsenda fyrir fullnýt-
ingu þeirra hæfileika sem úr er að
spila, enda ófá döpur dæmi um hið
gagnstæða í hérlendu fámenni.
Það gerir þó vitaskuld ekki all-
an gæfumun á útkomu. Vanda
þarf val í söng- og hljóðfær-
araddir, og ekki sízt þarf stjórn-
andinn að vera starfi sínu vaxinn –
sérstaklega þegar ekki nýtur
þrautþjálfaðra atvinnumanna.
Hvort tveggja heyrðist manni
skila sér hér, hvernig sem annars
var farið að restinni, enda spyr
enginn um aðferðir. A.m.k. var
auðheyrt að Gunnsteini Ólafssyni
tókst að ná hinu bezta úr sínu
fólki – auðvitað að viðbættri þeirri
innbyggðu hvatningu sem fólst í
viðfangsefnum kvöldsins.
Það var nefnilega ekki spurning
að vínarklassísku meistaraverkin
tvö höfðuðu engu síður til flytj-
enda en áheyrenda. „Her“-sinfónía
Haydns (1793) úr 12 verka bálki
Lundúna-sinfónía hans kom gletti-
lega vel út í snyrtilegum flutningi
Ungfós, ekki sízt lunkin gam-
ansemin í lokaþættinum. Sumpart
kannski hóflegu hraðavali að
þakka, sem féll jafn vel að miklum
hljómburði Langholtskirkju og að
núverandi færni flytjenda og lýsti
kunáttusamlegu skynbragði á list
hins mögulega.
Algerum tólfum kastaði þó hin
enn stórkostlega vanmetna snilld-
armessa Beethovens frá 1807
handa Nikulási II Eszterházy. Það
er varla ofmælt að þessi að lík-
indum áhrifamesta allra trúarjátn-
inga í tónum eftir Bach hafi haldið
hlustendum á tánum frá byrjun til
enda í leiftrandi innlifuðum flutn-
ingi kórs, hljómsveitar og ein-
söngvara. Allir gerðu hér betur en
hægt átti að vera, og sjaldan
þessu vant mátti heyra unga karl-
einsöngvara er stóðu alti og sópr-
an fyllilega á sporði. Ef ekki gott
betur.
Ríkarður Ö. Pálsson
Vanmetin
stórsnilld
Ungfónían „Allir gerðu hér betur en hægt átti að vera, og sjaldan þessu vant mátti heyra unga karleinsöngvara er stóðu alti og sópran fyllilega á sporði.“