Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Umsóknarfrestur er til 30. maí Kynntu þér námið á www.hr.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 6 0 8 Eftir Atla Bollason bollason@gmail.com „ÞAÐ vill engin borg vera eins og Ár- bæjarsafn,“ sagði Ólafur Elíasson listamaður á fyrsta degi alþjóðlegrar ráðstefnu um hönnun hafnarborga og hlutverk listar í almannarými sem fór fram í Norræna húsinu í gær- kvöldi. Með því átti hann við að það yrði sífellt að huga að nútímanum við uppbyggingu og endurnýjun borga þar sem þær væru handa fólki í núinu en ekki söfn eða minnisvarðar. Í sömu mund lagði hann þó áherslu á að Íslendingar stæðu vörð um sér- kenni sín og nefndi í því sambandi skammdegi, langa skugga og nánd samfélagsins. Auk Ólafs flutti bandaríski arki- tektinn Christopher Marcinkoski framsögu. Þar sagði hann frá ólíkum leiðum við að byggja upp úr sér gengin svæði innan borgarmarka. Fullt var út úr dyrum á ráðstefnunni og nokkrar umræður að henni lok- inni. Er Ólafur var spurður hvort hann hefði áhyggjur af því eins og sumir að Geirsgata og Kalkofnsvegur mundu skilja tónlistar- og ráðstefnuhúsið um of frá miðborginni sagðist hann vona að gatan yrði grafin niður og kvaðst raunar hafa setið fundi þess efnis. „En í svona lítilli borg eins og Reykjavík skil ég vel að það sé of dýrt. Ég hef þó ekki miklar áhyggj- ur, því ég tel að Lækjartorg muni ganga í endurnýjun lífdaga á næstu árum og vegalengdin þaðan að tón- listarhúsinu er ekki svo mikil. Aðal- málið er að huga að því hvernig að- koman verður frá Lækjargötu.“ Ólafur ræddi á ráðstefnunni m.a. um eldri verk sín og um fossana sem munu prýða New York borg í sumar. Sagði hann fossana vera innblásna af íslenskri náttúru og því hvernig fall- andi vatn gerir manninum kleift að setja sjálfan sig í samhengi með því að bera stærð sína saman við gífur- lega hæð fossanna. Hann telur að í New York borg eigi fólk erfitt með að skilja stærð og hæð borgarinnar þar sem alla mælikvarða skorti. Úr þessu muni fossarnir bæta tímabundið. Síðari hluti ráðstefnunnar fer fram 10. maí nk. Þar munu m.a. flytja er- indi Adriaan Geuze sem stofnaði West 8 hönnunarteymið og Ute Meta Bauer, forstöðumaður myndlistar- deildar MIT. Borgir eiga ekki að vera söfn eða minnisvarðar Rætt um hönnun hafnarborga í Norræna húsinu Morgunblaðið/Golli Uppbygging Tónlistar- og ráðstefnuhús á eftir að setja mikinn svip á miðbæ Reykjavíkur, en húsið er nú í byggingu við hafnarbakkann. UM 200 börn og unglingar hindr- uðu umferð vestur Miklubraut við Kringlumýrarbraut á fjórða tím- anum í gær og sköpuðust langar bílaraðir á tímabili vegna kyrr- stöðu krakkanna á bílabrautinni. Krakkarnir söfnuðust saman á götunni og allt niður í 12 ára börn upp í unglinga á menntaskólaaldri stilltu sér upp við umferðarljósin og komu í veg fyrir að ökumenn kæm- ust leiðar sinnar. Lögreglan tók sér góðan tíma til þess að rýma svæðið og hún segir að það hafi tekist án átaka, en um fimmtán lög- reglumenn hafi verið á svæðinu til taks ef á þyrfti að halda. Myndir voru teknar af eggjakösturum í hópnum og að sögn lögreglu geta þeir átt von á að verða kallaðir til skýrslutöku til lögreglu eða barna- verndaryfirvalda. Börn og unglingar á bílabraut Morgunblaðið/Júlíus BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær kauptilboð Novators, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, í fasteignina að Frí- kirkjuvegi 11. Frestunartillaga full- trúa VG var felld með 4 atkvæðum gegn 1 og framlögð drög að kaup- samningi og afsali samþykkt með sama atkvæðafjölda. Fram kom í bókun borgarstjóra að almenningi væri tryggt óskert að- gengi að Hallargarðinum og allri lóð- inni í kringum húsið. Engar breyt- ingar yrðu gerðar á garðinum nema á lóðarmörkum sunnan hússins þar sem gert yrði torg til að bæta að- gengi almennings að húsinu. Novator fagnar ákvörðun meiri- hlutans og óskar þess að allir velunn- arar hússins og garðsins geti snúið bökum saman við uppbyggingu hússins og umhverfi þess. Óskert aðgengi að Hallargarðinum tryggt Morgunblaðið/Sverrir Fríkirkjuvegur 11 Húsið verður m.a. safn um líf Thors Jensen. BORGARRÁÐ Reykjavíkur staðfesti í gær afgreiðslu skipulagsráðs á breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Keilugranda, þar sem lagt er til að tillögunni verði hafnað, meðal annars með vísan til þess hve langur tími er liðinn frá auglýsingu hennar. Gunnar Finnsson, talsmaður íbúa í nágrenni við Keilugranda 1, segir að ákvörðun borgarráðs komi ekki á óvart eftir synjun skipulagsráðs í lið- inni viku, en sem fyrr vilji íbúarnir að borgin haldi sig við aðalskipulagið fyrir árin 2001-2024, þar sem gert sé ráð fyrir að ekki verði meira en 50 íbúðir á reitnum. Í tillögu, sem var auglýst í fyrra- sumar, var gert ráð fyrir níu hæða fjölbýlishúsi með allt að 130 íbúðum á reitnum. Síðar var tillögunni breytt og þá gert ráð fyrir að nýju húsin yrðu hæst átta hæðir með allt að 103 íbúðum. Gunnar segir að nú sé málið aftur komið á byrjunarreit. Skipulagsstjóra hafi verið falið að vinna með lóðarhöf- um að nýrri tillögu, en hugmyndir um að gera svæðið að þéttingarreit hafi ekki verið dregnar til baka og enn sé verið að tala um að reisa hærra en fimm hæða fjölbýlishús. Það sætti íbúarnir sig ekki við. Aftur á byrjun- arreit Tillögu um skipulag á Keilugranda 1 hafnað SAMTÖKIN ’78 hafa, í samvinnu við félags- og tryggingamálaráðuneytið, gefið út bæklinginn Reaching out. Bæklingurinn er ætlaður sam- og tvíkynhneigðu og transgender-fólki sem búsett er á Íslandi en á ekki ís- lensku að móðurmáli og kemur jafn- vel frá löndum þar sem félagsleg og lagaleg staða hinsegin fólks er ótrygg og óljós. Í bæklingnum eru upplýsingar um lagalega og félagslega stöðu samkyn- hneigðra á Íslandi og nefnd ýmis úr- ræði í samfélaginu. Þá segir bækling- urinn frá Samtökunum ’78 og þjónustu þeirra. Bæklingurinn er á ensku, pólsku, litháísku, og taílensku. Lykill að vinsamlegu samfélagi ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.