Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 6
S jöfn Helgadóttir var upp- nefnd öfuguggi þegar hún var lítil stúlka í Miðbæj- arskólanum. Hún var nefnilega örvhent. Kenn- arinn tók í hönd hennar og batt hana fyrir aftan bak til að venja hana af þessum ósið en allt kom fyrir ekki. Hún var öfuguggi og uppnefnd sem slík – hún skrifaði með vinstri. Sjöfn Helgadóttir varð líka fyrsta konan til að koma á vettvang Sam- takanna ’78 á sínum tíma. Hún er núna 83 ára og hún skrifar ennþá með vinstri hendi og hún er ennþá skotin í konum. „Ég átti alltaf nógan sjens, góða mín. Þú skalt athuga það,“ segir hún í viðtali við Þóru Kristínu Ásgeirs- dóttur í nýútkomnu afmælisriti Sam- takanna ’78. En Sjöfn vill líka að samtíminn muni sársaukann: „Mig langar að þið skiljið,“ segir hún „hvað þetta var erfitt. Þetta var oft gaman en líka alveg djöfullegt.“ Samtökin ’78 fagna 30 ára afmæli í ár. Afmælisritið er veglegt og fullt af sögulegum fróðleik – sögu atburða, einstaklinga og mannamóta sem þurftu á sínum tíma að vera svo rækilega falin að erfitt er að henda fyllilega reiður á samhengi hlutanna. Það sem sagan ber með sér er margt og mikið og litríkt, en upp úr stendur hugrekki, eindrægni og bar- áttugleði fólks sem mótmælti þeim ruddaskap, ofbeldi, þöggun og nið- urlægingu sem viðgekkst eins og eðlilegur hlutur í samfélaginu. Þessir einstaklingar færðu fórnir og liðu þjáningar um leið og þau ruddu brautina til frelsis öðrum til handa. Saga samkynhneigðra er saga hins menningarlega jaðars og sá jaðar getur af innsýn og visku miðlað til samfélagsins alls, nú sem þá, – um fordóma og víðsýni, sársauka og ást, langanir og bælingu, tjáningu og þöggun, hugrekki og niðurlægingu, frelsi og fjötra. Frelsi og fjötra manneskjunnar allrar, og þá fyr- irframgefnu staðla sem hana hefta á hverjum tíma. Manneskjan er mögnuð og fjöl- breytileg: Til eru konur sem hafa alltaf laðast að konum og bara kon- um; til eru konur sem hafa alltaf lað- ast að körlum en urðu svo óvart ást- fangnar af konu – og öfugt; til eru konur sem laðast bæði að körlum og konum; til eru ólíkar konur af öllum toga og hver einstaklingur hefur sína sögu að segja. Já, manneskjan er mögnuð og fjöl- breytileg og svo miklu áhugaverðari en við viljum vera láta. Það að brjóta á bak aftur fjötra hugarfarsins, fjötra normsins, fjötra staðlanna er verk- efni sem heldur áfram inn í framtíð- ina löngu eftir að fullu lagalegu jafn- rétti er náð. Fjötrar hvers samtíma taka auk þess stöðugt á sig nýjar myndir. Þeg- ar einn hópur frelsast úr fjötrum sleggjudóma þá tekur einatt annar hópur útskúfunar við. Sérhver sam- tími skapar sér nýja jaðarhópa, ann- ars konar ánauð, nýja útilokun nýrr- ar kynslóðar. Svo lengi sem einn einasti einstaklingur á Íslandi finnur til sársauka og vanmáttar fyrir sínar heitustu tilfinningar þá er verk að vinna. Svo lengi sem eitt einasta for- eldri finnur til sorgar yfir hreinskilni barnsins síns þá er verk að vinna. Og svo lengi sem einn einasti prestur á Íslandi, einn einasti biskup, álítur ást fullorðins fólks, heit þess og trúnað, vera ógnun við hið gagnkynhneigða hjónaband, þá er verk að vinna. „Þegar ég hugsa um allt það níð og sóðaskap sem dembt var yfir okkur velti ég því fyrir mér hvernig okkur tókst að halda fullu viti,“ segir Þor- valdur Kristinsson á einum stað í af- mælisritinu, en hann var ötull tals- maður Samtakanna í mörg ár – einn af þeim sem hafa lagt dýrmæta hönd á plóginn við að koma Íslandi á betri PISTILL » Það sem sagan ber með sér er margt og mikið og litríkt, en upp úr stendur hugrekki, ein- drægni og baráttugleði fólks sem mótmælti þeim ruddaskap, ofbeldi, þögg- un og niðurlægingu sem viðgekkst eins og eðlileg- ur hlutur í samfélaginu. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Örvhenti öfugugginn og kærleiksríkari stað í þessum efn- um. Sjöfn Helgadóttir, 83 ára, á síðasta orðið í dag: „Ég held að það sé allra mikilvægast af öllu að fólk komi hreint fram með tilfinningar sínar. Það er aldrei nægilega vel brýnt fyr- ir fólki.“ Þetta er heilræði til allra – sam- mannlegt heilræði frá Sjöfn. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is 6 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is MÆLIST mengunargildi við götur í Reykjavík of hátt gæti þurft að grípa til þess að draga úr umferð- arhraða eða hreinlega loka götum tímabundið, segir Anna Rósa Böðv- arsdóttir, heilbrigðisfulltrúi á um- hverfis- og samgöngusviði Reykja- víkurborgar. Hún segir heilbrigðiseftirlit borgarinnar nú vinna að aðgerðaáætlun fyrir þau svæði þar sem mesta mengunin mælist, t.d. við gatnamót Miklu- brautar og Stakkahlíðar. Anna sagði í fyrirlestri á Degi umhverfisins í gær að loftgæði í Reykjavíkur væru ekki nógu mikil. Logn og kuldi kjörskilyrði Þeir mengunarvaldar, sem hafa hvað mestu áhrifin á loftgæðin og fylgst er nánast með, eru köfnunar- efnisdíoxíð, sem kemur úr útblæstri bíla, og svifryk. Þegar kemur að eft- irliti með svifryki er unnið eftir reglugerð þar sem skýrt kemur fram hversu oft má fara yfir heilsu- verndarmörk en verið er að þrengja mörkin til ársins 2010. Í ár má fara 18 sinnum yfir mörkin, á næsta ári 12 sinnum og árið 2010 sjö sinnum. „Í fyrra fórum við 17 sinnum yfir heilsuverndarmörkin í mælistöðinni við Grensás sem á að mæla mestu mengun í borginni. Það var mjög gott ár þar sem það var mikil úr- koma í fyrra en árið 2006 fórum við 29 sinnum yfir mörkin.“ Það sem af er ári hefur verið farið átta sinnum yfir heilsuverndarmörkin. Algengast er að farið sé yfir heilsuverndarmörkin á veturna. Kjörskilyrðin eru logn og kuldi en mengunarefni úr pústi bíla, eins og köfnunarefnisdíoxíð, safnast í hita- skiptalagi sem myndast yfir borg- inni. Þá eru nagladekk stór orsaka- valdur svifryks. Anna Rósa segir fjarlægð Íslands frá öðrum löndum halda menguninni innan heilsu- verndarmarka en þó komi fyrir að mengunar að utan gæti hér á landi. T.d. náði reykur frá skógareldum í Rússlandi fyrir nokkrum árum að teygja sig yfir Austfirðina. Spurð hvað hægt sé að gera til að draga úr mengun segir Anna Rósa það hafa gefið góða raun að bleyta götur með magnesíumklóríði en það kallast rykbinding. Um er að ræða saltblöndu sem heldur götunum lengur blautum og þannig er hægt að draga úr svifryki. „Einn dag í mars tókst okkur að koma í veg fyr- ir að við færum yfir heilsuvernd- armörk. Þá var þessi saltblanda bor- in á allar helstu götur borgarinnar.“ Gæti þurft að loka götum við mestu mengunarstaði Morgunblaðið/Valdís Thor Umhverfið Leikskólinn Álfaheiði fékk viðurkenningu Landverndar, Grænfánann, í gær, á degi umhverfisins, en þar eru m.a. matarleifar flokkaðar í sértunnu. Grænfáninn er tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu. LANDVERND afhenti í gær, á degi umhverfisins, leik- skólanum Álfaborg Grænfánann. Grænfáninn er tákn um árangursríka fræðslu og um- hverfisstefnu í skólum. Ljúka þarf ákveðnum verk- efnum sem tengjast umhverfismálum til að geta fengið fánann. Af þessu tilefni var haldin moltuhátíð í Álfaborg í gær. Hátíðahöldin hófust kl. 9 um morguninn þegar foreldrunum voru boðnir ávextir og ávaxtasafi og sungu börnin svo tvö lög. Þá afhenti Sigrún Helgadótt- ir frá Landvernd leikskólanum formlega fánann. Hann er afhentur til tveggja ára en ef öll nauðsynleg skilyrði eru uppfyllt að þeim tíma liðnum fær leikskólinn að halda fánanum lengur. Á Álfaborg eru krakkarnir duglegir að flokka sorp og endurnýta dót sem annars hefði verið fleygt. Mat- arleifar eru flokkaðar í sértunnu og þær notaðar til að búa til moltu. Þá eru krakkarnir í umhverfisráðum en reynt er að gera þau meðvituð um umhverfið og vernd- un jarðarinnar. Börnin dugleg að flokka og endurnýta Dagur umhverfisins var í gær og í tilefni af honum hélt Félag umhverf- isfræðinga á Íslandi mál- þing um vistvænan lífs- stíl, samgöngur og loftgæði. RÓSA Guðbjarts- dóttir, bæjar- fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins í Hafnarfirði, segir að samkvæmt út- reikningum fjár- málastjóra Hafn- arfjarðarbæjar hefði bærinn verið búinn að hagnast um a.m.k. 1,3 milljarða króna ef gengið hefði verið að tilboði Orkuveitu Reykjavíkur í hlut Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suður- nesja í haust sem leið, hluturinn þá seldur, eins og sjálfstæðismenn hafi lagt til, og peningarnir notaðir að hluta til að greiða niður skuldir. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær krefst Hafnarfjarðarbær þess að OR standi við gerðan samning frá því í fyrra um kaup á hlut bæjarins í HS og hefur stefnt fyrirtækinu til að greiða bænum um 8 milljarða. Rósa segir að meirihluti Samfylkingarinn- ar í bæjarstjórn hafi dregið lappirnar í málinu og vegna ákvarðanafælni sé málið komið í þennan farveg, en von- andi standi samningurinn. Rósa bendir einnig á að í fjárhags- áætlun fyrir árið 2008 hafi sérstak- lega verið tekið fram að ekki þyrfti að taka lán á árinu þrátt fyrir miklar framkvæmdir og fjárfestingar, en fjárhagsáætlunin hafi ekki staðið nema í nokkrar vikur því búið sé að taka 3 milljarða erlent lán til að ná endum saman. Bærinn varð af 1,3 millj- arða hagnaði Rósa Guðbjartsdóttir NÍU tonna trilla, Sörli ÍS-66 með tveimur mönnum innanborðs, lenti í erfiðleikum vegna leka á Húnaflóa í gærmorgun. Sendu skipverjar frá sér neyðarkall og komu smábátarnir Sædís ÍS-67 og Dagrún ST-12 á vett- vang 90 mínútum síðar og tóku bát- inn í tog til Norðurfjarðar. Sörli ÍS-66 er níu tonna þilfarsbát- ur sem gerður er út frá Norðurfirði á Ströndum. Þegar neyðarkall barst ræstu stjórnstöð Landhelgisgæsl- unnar og Vaktstöð siglinga þegar út björgunarsveitir og báta. Töluverður leki hafði komið upp í vélarrúmi Sörla og er talið að hann hafi að mestu komið inn með vélaröxlinum. Leki að trillu á Húnaflóa ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.