Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 53
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
MIKIÐ og gott uppbyggingarstarf
fer fram í hinum fjölmörgu fé-
lagsmiðstöðvum höfuðborgarsvæð-
isins og í félagsmiðstöðvunum
Hólmaseli og Miðbergi lauk góð-
gerðarviku í gær. Fjársöfnun fór
fram og mun allur ágóði renna til
styrktar geðheilbrigðis unglinga.
Téðri viku var hleypt af stokk-
unum síðastliðinn mánudag með
svofelldu góðgerðarbíói. Á þriðju-
deginum tók fólk svo við að spila
hinn gamalkunna og gegna leik
bingó. Fjör færðist svo heldur betur
í leikinn á miðvikudaginn og máttu
starfsmenn hafa sig alla við til að
„halda andlitinu“.
„Það var þá sem við starfsmenn-
irnir mættum með forláta rjómakök-
ur á staðinn,“ upplýsir Jóhann Fjal-
ar Skaptason. „Fyrir sanngjarnt
verð gafst krökkunum svo færi á að
taka þær upp og grýta í andlitin á
okkur. Skemmst frá því að segja
mæltist þetta gríðarlega vel fyrir.“
Jóhann lýsir því að mikil stemning
og góður andi hafi svifið yfir vötnum
þessa annasömu viku. „Krakkarnir
sáu um þetta sjálf að öllu leyti og við
erum mjög stolt af þeim, þau eru bú-
in að standa sig afskaplega vel.“
Vikunni lauk svo með stór-
tónleikum í gær en þá léku tvær
ungsveitir, þær Major Pink Disaster
og Galaxia. MC Biggi kom þá ásamt
sínu teymi og 1985!, sem er rapp-
sveit þeirra Dóra DNA og Danna
Deluxxx, tróð einnig upp. Síðast en
ekki síst lék hin ofurvinsæla Merce-
des Club og gerði allt vitlaust eins og
hennar er von og vísa.
Gæjar og gella Merzedes Club
lagði sitt af mörkum og tróð upp til
styrktar málefninu.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Hólmasel Ungir tæknimenn voru í óða önn að gera allt klárt fyrir kvöldið þegar ljósmyndara bar að garði.
Kaka í
andlitið
Góðgerðarvika
í Hólmaseli
og Miðbergi
BANDARÍSKA leikkonan Claire
Danes verður hið nýja andlit
skartgripalínu tískurisans Gucci.
Danes tekur þar með við af leikkon-
unni Drew
Barrymore en
nýja línan fer í
sölu næsta
haust. Frida
Giannini, þró-
unarstjóri
Gucci, segir að
Danes sé nú-
tímaíkon og
ein áhuga-
verðasta leik-
kona samtím-
ans. Hún búi
yfir nátt-
úrulegri feg-
urð, sé bæði
hress og hraust og það kristallist í
þeim hlutverkum sem hún hefur
tekið að sér. Hún sé tilvalin til þess
að kynna Gucci-línuna. Danes seg-
ist hæstánægð með samninginn við
Gucci og það sé henni mikill heiður
að fá að taka þátt í kynningu á
nýrri skartgripalínu Gucci. Næsta
hlutverk Danes verður í kvikmynd-
inni Me and Orson Welles en þar
leikur hún á móti Zac Efron og Ben
Chaplin.
Danes
andlit Gucci
Claire Danes
Hress og hraustleg
eins og sjá má.