Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björn Krist-jánsson fæddist á Patreksfirði 31. mars 1960. Hann lést á heimili sínu, Skúlabraut 45 á Blönduósi, aðfara- nótt sunnudagsins 13. apríl síðastlið- ins. Foreldrar hans eru Erla Hafliða- dóttir frá Hval- látrum, f. 3. sept- ember 1930 og Kristján Jóhann- esson frá Hjallatúni Tálknafirði, f. 26. september 1921, d. 2. nóvember 1986. Systkini Björns eru: Erlendur, f. 26. júní 1949, maki Sigríður Karlsdóttir, f. 16. október 1949, Kristín Sigríður, f. 11. sept- ember 1950, Ólafur Arnar, f. 8. febrúar 1952, maki Svanhvít Bjarnadóttir, f. 26. janúar 1954, Bára, f. 22. desember 1953, d. 7. maí 2005, maki Kristján Geir Arnþórsson, f. 27. október 1951, Jökull, f. 21 júní 1964, og Björk, f. 30. desember 1965, maki Andri Karlsson, f. 4. jan- úar 1969. Björn á tvo syni. Sonur hans og Unnar Ásu Jóns- dóttur, f. 1. sept- ember 1962, er Ás- geir Már, f. 2. mars 1981, sambýliskona Kristjana Elísabet Sigurðardóttir, f. 17. maí 1986. Sonur Björns og Herdísar Herbertsdóttur, f. 25. júlí 1958, er Eyþór, f. 16. ágúst 1988. Björn ólst upp á Patreksfirði en fluttist suður fyrir tvítugt. Hann lauk kjötiðnaðarnámi frá Iðnskólanum í Reykjavík og vann við þá iðn alla tíð síðan. Síðastliðin 17 ár var hann for- stöðumaður kjötvinnslu SAH Af- urða ehf. á Blönduósi. Útför Björns fer fram frá Pat- reksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. „Inga... Bjössi hérna,“ heyrði ég ósjaldan í símanum mínum á sunnu- dagsmorgnum. Bjössi frændi átti það nefnilega til að hringja snemma, sennilega hefur honum fundist að ég (margra barna móðirin) væri sú eina í fjölskyldunni sem væri líkleg til að vera komin á fætur snemma á sunnudögum. Það var svo skemmti- legt að heyra í honum, Bjössi hafði alltaf góðar fréttir að færa, fréttir af Böggu í Svíþjóð, fréttir af því að Pía ætti von á öðru barni, fréttir af því að Arnþór væri kominn með nýja kær- ustu, fréttir af því að Njörður og Vala væru að flytja heim… svo var hann líka að forvitnast um það hve- nær við færum næst norður. Það eru margar notalegar minn- ingar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til Bjössa. T.d. þegar þeir vinirnir Bjössi og Simmi fengu mig 18 ára til að skutla sér austur fyrir Fjall að hitta Kalla (Eggerts) frænda sem var í sumarhúsi í Ölf- usborgum. Þeir voru löngu byrjaðir að skemmta sér þegar við lögðum af stað og ég bara með nokkurra daga gamalt ökuskírteini. En þeir treystu mér alveg og það gerði ekkert til þótt ég hafi keyrt lúshægt. Þeir höfðu ekki áhyggjur af því. Þannig var Bjössi. Amma segir mér líka oft söguna af því þegar Bjössi passaði mig þegar ég var lítil. Hann tók starfið mjög al- varlega, lét mig meira að segja í bað. Þegar baðið var búið setti hann á mig púður, svo mikið að ekki var hægt að sjá handa sinna skil. Ég man ekkert eftir þessu en þegar amma segir söguna, hlær hún dátt og mér þykir alltaf jafn vænt um að heyra hana. Bjössi var örlátur. Þegar ég var ung og Birgitta aðeins eins árs fékk ég að vera í íbúðinni hans á Loka- stígnum mér að kostnaðarlausu. Það var eiginlega alveg sama hvað það var, Bjössi var alltaf tilbúinn að hjálpa. Til dæmis þegar ég bjó á Bragagötunni, okkur Olgu langaði að setja upp sólpall í garðinum, það var nú ekkert mál. Bjössi mætti og smíðaði pallinn. Svo tók ég upp á því að flytja til útlanda, Bjössi geymdi búslóðina á meðan, í sex ár – ekkert mál. Hann sagði líka alltaf: ,,Þetta verður ekkert mál“. Bjössi móðurbróðir minn var frá- bær kjötiðnaðarmaður. Og hvað það var gaman öll jólin og allar grillveisl- urnar þegar maður gat sagt stoltur: ,,Þetta kjöt er frá Bjössa frænda.“ Sunnudagsmorgunn 13. apríl, sím- inn hringir, klukkan rúmlega níu. Á símanum stóð ekki „Bjössi frændi“ í þetta skiptið heldur birtist þar gamla númerið hans á Lokastígnum. Það fyrsta sem mér datt í hug var: „Nú, er Bjössi í bænum?“ Nei, Er- lendur var í símanum með sorgar- fréttir, fréttir um að Bjössi væri dá- inn. – Æ, hvað það var sárt. Ingibjörg Ósk. Elsku Bjössi minn. Ég á eftir að sakna þess að heyra þig ekki koma inn og segja „Hæ stelpa!“ Á eftir að sakna þess að geta ekki sest og spjallað eins og við vor- um vön þegar við bjuggum hlið við hlið. Við gátum rætt saman um allt, hvort sem var í gríni eða okkar innstu mál. Það verður tómlegt í sumar þegar ég sest út í sólina, því sólin var varla farinn að skína á vorin, þá varstu lagstur út í garði til þess að fanga geisla sólarinnar. Bjössi minn, þú varst yndislegur, ljúfur og einstakur maður sem reyndist mér og börnunum mínum góður vinur. Mig langar að kveðja þig með lag- inu sem við hlustum svo oft á. Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér Og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer en ég vona bara hann hugsi svolítið hlýlega til mín og leiði mig á endanum aftur til þín. (Tvær stjörnur, Megas.) Kæru aðstandendur, ég votta ykk- ur mína dýpstu samúð. Þín vinkona, Gunnlaug K. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Það voru dapulegar fréttir sem mér bárust sunnudagsmorguninn 13. apríl um að Bjössi, vinur minn og vinnufélagi til margra ára, hefði lát- ist af slysförum um nóttina. Bjössi var á margan hátt einstak- ur maður, hæfileikaríkur og góður vinnufélagi. Hann var fróður um hins ýmsu málefni, góður íþrótta- maður og duglegur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Hann lifði fyrir líðandi stund og gaf lítið fyrir lífgæðakapphlaupið sem margir eru uppteknir af. Hann hafði skemmtilega sýn á lífið, var sannur vinstrimaður og hafði farið margar Keflavíkurgöngur. Bjössi sagði skemmtilega frá og beitti þá kímni óspart. Þær eru ógleymanlegar sögurnar af sjónum og æskuminningar frá Patró gátu fengið viðstadda til að veltast um af hlátri. Þá átti Bjössi sviðið. Hann var gleðimaður sem ég mun minnast um ókomna tíð. Sonum Bjössa, móður og öðrum ástvinum votta ég mína dýpstu sam- úð. Ragnar Karl Ingason. Nú kveðjum við góðan vinnufélaga og vin, Björn Kristjánsson. Kynni okkar hófust fyrir tæpum 17 árum þegar Bjössi, eins og við vinir hans og samstarfsmenn kölluð- um hann, byrjaði að vinna hjá „Sölu- félaginu“. Milli okkar varð strax nokkuð náin vinátta í leik og starfi. Hann var einstakur vinnufélagi og honum fylgdi gleði og grín, sem myndaði léttleika á vinnustaðnum. Hann var góður kjötiðnaðarmaður og leiðbeinandi fyrir vinnufélagana og margan greiðann gerði hann fyrir fólk í sínum frítímum, sem ekki var hugsað um að fá greiðslu fyrir. Bjössi var bókhneigður maður og átti nokkuð safn góðra bóka, sem hann var mjög stoltur af, og las nokkuð mikið og hafði þann sér- stæða sið að lesa tvær, þrjár bækur jafnhliða. Hann var vel gefinn, hlýlegur og hæfileikaríkur maður sem lifði bara fyrir einn dag í senn. Hann hugsaði ekki um veraldleg auðæfi sér til handa. Ég minnist margra skemmtilegra vinnustaðaferða, sem starfsmenn Sölufélagsins fóru, en minnisstæðust er samt ferð til Patreksfjarðar þegar við fórum tveir saman til æskustöðva hans fyrir allmörgum árum. Þar var hann vel upplagður og kominn heim. Á leiðinni vestur komum við í Króksfjarðarnes og tókum bensín. Ég fór inn og borgaði bensínið og ók síðan á stað, en viti menn, bíllinn var bensínlaus og ég hafði borgað bensín fyrir einhvern annan. Þessa sögu sagði Bjössi vinnufélögum okkar oft og sagði að ég hefði borgað bensín fyrir alla sveitina. Hann kynnti Vestfirðina fyrir mér og sérstaklega minnist ég Látra- bjargs. Þegar við komum til Pat- reksfjarðar var tekið á móti okkur af móður hans af miklum hlýleika og rausnarskap. Ég á margar minningar um sam- verustundir okkar sem ég rifja upp með sjálfum mér og syrgi hvað hann yfirgaf okkur fljótt. Ég kveð vin minn með eftirfarandi ljóðlínum : Því eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja, Að sumarið líður allt of fljótt. Ég gái út um gluggann minn, Hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar, Ég reyndar sé þig alls staðaŕ Þá napurt er. Það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Innilegar samúðarkveðjur til móð- ur hans, sona, systkina og annarra vina. Ég kveð vin minn Björn Krist- jánsson eins og við sögðum alltaf þegar við kvöddumst: Sjáumst. Stefán Hafsteinsson. Fallinn er frá vinnufélagi og vinur til margra ára og alla setur hljóða. Vinnufélagar ganga beygðir til vinnu, höggvið er skarð í hópinn, ekkert verður eins og áður. Björn Kristjánsson kjötiðnaðar- maður kom til starfa haustið 1991 sem forstöðumaður kjötvinnslu Sölufélags Austur-Húnvetninga á Blönduósi. Ungur maður, „gang- ster“ að eðlisfari, var mættur á svæðið. Sjálfsagt hefur hvarflað að mörgum að þessi myndi nú ekki stoppa lengi en síðan eru liðin rúm 16 ár. Fljótlega kom í ljós hans innri maður, hann var maður með hjarta úr gulli sem vildi allt fyrir alla gera, hvort sem um var að ræða stærri eða smærri viðskiptavini eða samstarfs- fólk, einstaklega ósérhlífinn, alltaf hafði hann tíma. Bjössi var ekki bara Björn Kristjánsson ✝ Bróðir okkar og vinur, SIGURÐUR ÁSGEIRSSON frá Framnesi, Gunnarsholti, Rangárvöllum, andaðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi, Hellu, fimmtudaginn 17. apríl. Jarðarförin fer fram frá Odda á Rangárvöllum laugardaginn 26. apríl kl. 13.30. Jarðsett verður í Sólheimakirkjugarði í Mýrdal. Systkini, vinir og vandamenn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐLAUGUR JÓNSSON frá Skarði á Skarðströnd, Dalasýslu, andaðist á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, miðvikudaginn 23. apríl. Jón Guðlaugsson, Alda Særós Þórðardóttir, Jóhannes Kristján Guðlaugsson, Hildur Steinþórsdóttir, Kristbjörg Helga Guðlaugsdóttir, Valdimar Guðlaugsson, Ólína Guðlaugsdóttir, Sigurður Rafn Borgþórsson, Kristín Jóhanna Valdimarsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ PREBEN MAGNÚS BECH offsetprentari, andaðist föstudaginn 18. apríl á Herlev sygehuset í Kaupmannahöfn. Útförin fór fram 25. apríl frá Skovlunde Kirkje í Kaupmannahöfn. Fyrir hönd ættingja, Þorbjörg Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Björg Guðmundsdóttir. ✝ Móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG PÁLSDÓTTIR HERSIR, hjúkrunarheimilinu Skjóli, andaðist síðasta vetrardag 23. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gylfi Páll Hersir, Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, Kári Gylfason. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, bróðir og mágur, ERLENDUR HAUKSSON, Brekkubæ 3, Reykjavík, andaðist á deild 11-G, Landspítalanum við Hring- braut fimmtudaginn 24. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Helgadóttir, Georg Ahrens Hauksson og Ingibjörg Sveina Þórisdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LÁRA J. SIGURÐARDÓTTIR, andaðist fimmtudaginn 24. apríl á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður Karlsson, Unnur Laufey Jónsdóttir, Ásmundur Karlsson, Guðbjörg Alfreðsdóttir, Guðríður Karlsdóttir, Guðni Eyjólfsson, Hólmfríður Karlsdóttir, Friðrik Sigurgeirsson, ömmubörn og langömmubörn. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.