Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 43
102 áraaf- mæli. Í dag, 26. apríl, verð- ur Margrét Oddsdóttir frá Jörfa 102 ára. Hún dvelst á Dvalarheim- ilinu Silfurtúni í Búðardal. 70ára af-mæli. Í gær, 25. apríl, varð Þorsteinn Hermannsson, Presthúsa- braut 24, Akranesi, sjö- tugur. Í tilefni þess býður hann ætt- ingjum og vin- um að gleðjast með sér á þessum tímamótum í dag, laugardag- inn 26. apríl, í sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, Vogabraut 5 milli kl. 15 og 18. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 43 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Árskógar 4 | Handavinnusýning í Félagsmiðstöðinni Ár- skógum 4 kl. 13-16.30. Kaffisala kl. 14. Föstudaginn 26. apríl er harmonikkuball kl. 15.30. Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Flækjufótur í samvinnu við Bændaferðir fer í vikuferð til Þýskalands í sept. nk. Leiðsögumaður verður Steingrímur Gunnarsson. Allar uppl. í síma 898-2468. Félag eldri borgara í Kópavogi | FEBK. Skvettuball verður haldið í kvöld kl. 20. Þorvaldur Halldórsson leikur og syng- ur fyrir dansi. Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Ferð um Vatnsleysuströnd – Voga – Njarðvíkurnar – Keflavík- urflugvöll – Keflavík – Garðskaga – Sandgerði – Hafnir– Reykjanesvita og Grindavík verður farin föstudaginn 2. maí. Brottför frá Gjábakka kl. 9.45 og Gullsmára kl. 10. Kvöldmatur í Grindavík. Skráningarlistar í félagsmið- stöðvunum. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Hin árlega vorsýning í Gull- smáranum verður haldin dagana 3. og 4. maí nk. Allir eru hvattir til að sýna verk sín á sýningunni. Skilafrestur á sýningarmunum er til Þórhildar og Sigrúnar 29. og 30. apríl. Tökum höndum saman og gerum sýninguna eins frá- bæra nú eins og undanfarin ár Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga kl. 9-16.30 er fjölbreytt dagskrá. Þriðjud. 29. apríl kl. 14 er kynning- arfundur í Ráðhúsinu og kaffiveitingar í boði. Lagt af stað í rútu frá Gerðubergi kl. 13.15 og frá Árskógum kl. 13.30. Skráning á staðnum s. 575-7720 og í Árskógum s. 535- 2700. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan; útskurður, bútasaumur, glerlist, postulín, frjáls verkefni. Ókeypis tölvukennsla á miðvikud. og fimmtud. Línudans, Bör Börsson, söngur, þegar amma var ung og afi líka, brids, skapandi skrif, fé- lagsvist, hláturklúbbur, framsögn. Leikfimitilboð á þriðjud. kl. 9.15. Uppl. 568-3132. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælandsskóla, Víðigrund kl. 9.30-10.30. Uppl. í síma 564-1490. Kvenfélag Kópavogs | Vorferð Kvenfélags Kópavogs verður 15. maí nk. Lagt verður af stað frá Hamraborg 10, kl. 18. Þátttaka tilkynnist fyrir 10. maí í síma: 553-5858 Elísabet eða 557-9707/847-7836 Bryndís. SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verður í Von, Efsta- leiti 7, í kvöld. Vistin hefst kl. 20. Danshljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. Kirkjustarf Kolaportið | Helgihald er í Kolaportinu sunnud 27. apríl kl. 14. Fyrirbænum er safnað frá kl. 13.30 á meðan Þorvaldur Halldórsson leikur sálma og lög. Prestar, djáknar og sjálf- boðaliðar leiða stundina. Miðborgarstarfið. dagbók Í dag er laugardagur 26. apríl, 117. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér af henni getið dafnað til hjálp- ræðis. (1Pt. 2, 2.) Sumarið er komið og lands-menn fara óðum að dragafram reiðhjól, hjólabrettiog skauta. Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sviðs- stjóri slysavarnasviðs Slysavarna- félagsins Landsbjargar minnir á að allir noti hjálma, en fleiri atriði þarf að hafa í huga til að tryggja áfallalaust sumar: „Rannsóknir sýna að notkun hjálms við hjólreið- ar kemur í veg fyrir alvarlega höf- uðáverka í 80-85% tilvika, og því ljóst að miklu skiptir að hjálm- urinn sé notaður,“ segir hún „Yngri börn virðast sem betur fer mjög dugleg að nota hjálminn, en því miður eiga unglingar og full- orðnir eiga það frekar til að sleppa hjálminum.“ Sigrún minnir á að hjálmurinn þarf að vera rétt stilltur svo hann geri gagn: „Hjálmurinn má ekki hallast fram á höfðinu, eða hanga aftur á hnakka, og er ágætis þum- alfingursregla að hjálmurinn situr nógu fast ef hægt er að koma tveimur fingrum undir hökuband- ið,“ segir hún. „Það er líka bannað að skrifa eða líma á hjálmana, því lím og blek getur skemmt efnin í hjálminum og dregið úr styrk þeirra og þá um leið þeirri vernd sem hjálmurinn gefur við högg- um.“ Ekki má gleyma hnjám, olnbogum og úlnliðum Það þarf líka að nota hjálm þeg- ar þeyst er á línuskautum og hjólabrettum: „Einnig er sér- staklega mælt með hlífum á úlnlið- um, olnbogum og hnjám, þar sem högg eru algeng,“ segir Sigrún. „Þess þarf að gæta að stýrið á hlaupahjólum sé í olnbogahæð, því alltof algengt er að börn fái and- litsáverka þegar þau falla fram á stýri sem er of hátt stillt, eða kvið- arholsáverka vegna lágt stilltra stýra.“ Einnig þarf að yfirfara öll tæki vandlega: „ Skoða þarf hvort öll hjól sitji vel föst, hvort bremsur, gírar og legur séu í lagi, og glit- merki öll á réttum stað,“ segir Sig- rún. „Mörgum hættir til að kaupa of stórt hjól sem á að endast barninu í mörg ár. Þess þarf hins vegar að gæta að velja hjól af stærð sem er í samræmi við aldur og þroska barnsins. Börnin hafa verri stjórn á hjólum sem eru of stór og ná á þeim meiri hraða en þau ráða við.“ Auk þess að sýna gott fordæmi með því að nota hjálminn segir Sigrún mikilvægt að foreldrar og forráðamenn gefi sér góðan tíma með börnunum: „Það þarf að fylgj- ast vel með þeim meðan þau læra á þessi nýju farartæki, og brýna fyrir þeim að hjóla og skauta á öruggum svæðum.“ Nánari upplýsingar um öryggis- mál má finna á www.landsbjorg.is Öryggi | Fara þarf varlega á hjólum, hjólabrettum, skautum og hjólaskóm Gleymum ekki hjálminum  Sigrún A. Þor- steinsdóttir fæddist á Hömr- um í Reykholts- dal í Borgarfirði 1968. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól- anum á Akranesi 1988 og B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1992. Sigrún var hjúkr- unarfræðingur við FSA og á Borg- arspítalanum en hefur frá 1999 starfað hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Eiginmaður Sigrúnar er Helgi Þór Jóhannsson viðskipta- fræðingur og eiga þau börnin Andra Má og Söru Sif. Tónlist Bar 11 | Laugavegi 11. Rokkböndin Slugs, Mammút og Weapons halda þrusutónleika kl. 22. Weapons spila rokk, Slugs eru ögn tjúllaðri og Mammút er erfitt að lýsa. Grensáskirkja | Árlegir vortónleikar Ála- fosskórsins verða haldnir í dag í Grens- áskirkju kl. 16 og mánud. 28. apríl í Bóka- safni Mosfellsbæjar kl. 20.30. Stjórnandi er Helgi R. Einarsson. Meðleikari er Arn- hildur Valgarðsdóttir, píanó. Höfn | Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið á Höfn í Hornafirði 25.-27. apríl í boði Kvennakórs Hornafjarðar. 14 kvennakórar víðsvegar að af landinu munu taka þátt í mótinu þar sem m.a. verður boðið upp á vinnuhópa. Mótinu lýkur með sameiginlegum tónleikum á sunnud. Kópavogur | Söngvinir, kór eldri borgara í Kópavogi, halda tónleika í Digraneskirkju í dag kl. 16. Aðgangur ókeypis. Laugarneskirkja | Tónleikar Reykjalund- arkórsins verða 27. apríl kl. 17. Flutt verða m.a. lög úr Fiðlaranum á þakinu, Carousel, Showboat, My fair Lady og Ci- cago ásamt Andrew Lloyd-syrpu. Ein- söngvarar Hulda Sif Ólafsdóttir, Ingunn Gyða Hrafnkelsdóttir og Páll Sturluson. Stjórnandi er Íris Erlingsdóttir og píanó- leikari Anna Rún Atladóttir. Verð 1.000 kr. Norræna húsið | Dagskrá um Tomas Tranströmer, eitt þekktasta núlifandi ljóð- skáld Svía, í dag kl. 16. Flytjandi er sænski leikstjórinn Leif Olsson. Ljóðin eru flutt við tónlist eftir Franz Liszt, undirleik annast Lars Hägglund og Björn J. Lindt. Saxófónn og píanó með léttum djassáhrifum á tón- leikum sunnud. 27. apríl kl. 15.15. Guido Bäumer saxófónleikari og Aladár Rácz pí- anóleikari leika miðevrópska saxófón- tónlist. Salurinn, Kópavogi | Útskriftartónleikar á vegum Listaháskóla Íslands kl. 16. Á efnis- skrá eru m.a. verk eftir Vivaldi, Schumann, Frank og Ysaye. Meðleikari er Richard Simms píanóleikari. Aðgangur ókeypis. Myndlist Art-Iceland | Guðný Svava Strandberg sýnir í Geysi Bistro bar til 15. maí. Opið er kl. 11.30-22. Guðný vinnur með hlýnun jarðar á sýningunni. Eldur, ís og æv- intýri. Gallerí | CORPORA í Kirsuberjatrénu. Kl. 13.30 mun Kristín Reynisdóttir vera með leiðsögn um myndlistarsýningu sína, Corpora, sem nú stendur yfir í kjallara Kirsuberjatrésins. Opið til 4. maí á kl. 11-18 virka daga og kl. 11-15 laugard. Gallerí Fold | Listmunauppboð á sunn- dagskvöld í Súlnasal Hótel Sögu kl. 19. 130 verk boðin upp. Verkin eru sýnd í Gallerí Fold við Rauðarárstíg í dag kl. 11-17 og sun- nud. kl. 12-17. Hafnarborg | Í dag kl. 15 verða þrjár sýn- ingar opnaðar. Í aðalsal er yfirlitssýning á verkum Einars Más Guðvarðarsonar mynd- höggvara sem lést árið 2003, í Sverrissal sýnir leirlistakonan Jóna Guðvarðardóttir, í Apóteki sýnir Hildur Ýr Jónsdóttir skúlptúr og skartgripi. Sýningin stendur til 25. maí. Skemmtanir Breiðfirðingafélagið | Vorfagnaður verður í Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 22-03. Hilmar Sverrisson og Helga Möller leika fyrir dansi. Sjá heimasíðu félagsins www.bf.is Hlégarður | Um árabil hefur Mosfellskór- inn boðið eldri borgurum Mosfellsbæjar, Vorboðunum úr Mosfellsbæ og kórum úr félagsstarfi aldraðra í Reykjavík til vor- fagnaðar. Í ár verður fagnaðurinn 27. apríl. Kórarnir stíga allir á stokk og taka lagið og boðið verður upp á kaffiveitingar. Bækur Sólheimasafn | Sólheimasafn Borg- arbókasafns býður til bókmenntagöngu í Vogahverfinu í dag. Hverfið verður kynnt sem heimaslóðir skálda. Lagt af stað frá safninu, Sólheimum 27, kl. 14. Á eftir er boðið í kaffi og með því á safninu. Ekkert þátttökugjald. Dagskráin tekur tvær klst. Fyrirlestrar og fundir Sögufélag | Nafnfræðingafélagið heldur fyrirlestur um gælunöfn kl. 13.30. Kendra J. Willson fjallar um megindrætti í frásögnum Íslendinga af nafnstytt- ingum og öðrum óopinberum manna- nöfnum. Rannsóknin byggist á svörum við aukaspurningu í spurningalista Þjóð- háttadeildar Þjóðminjasafnsins. Ókeypis og öllum opinn. Dans Básinn | Vorball Harmonikufélags Selfoss verður í Básnum, Ölfusi kl. 22-02. Kvikmyndir Félagsheimilið Herðubreið | Herðubreið- arbíó sýnir Brúðgumann eftir Baltasar Kormák í dag kl. 20 og sunnudaginn 27. apríl kl. 15. Miðaverð 1.200 kr. Útivist og íþróttir ÍTR | Ferðalangar úr páskaferð ÍT ferða til Grand Canyon sýna myndir í Íþrótta- miðstöðinni í Laugardal (hús næst Laug- ardagshöllinni) kl. 17 sunnudaginn 27. apríl. FRÉTTIR Flytjast aldraðir of fljótt á hjúkrunarheimili á Íslandi? INGIBJÖRG Hjaltadóttir lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís- lands og sviðsstjóri hjúkrunar á öldrunarsviði Landspítala flytur er- indið: Flytja aldraðir of fljótt á hjúkrunarheimili á Íslandi? mánu- daginn 28. apríl á málstofu Rann- sóknastofnunar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands í stofu C-201, 2. hæð, Eirbergi, Eiríksgötu 34, kl. 12.10-12.50. Rannsókn þessi er hluti af doktorsverkefni Ingibjargar, þar sem hún rannsakar m.a. hvernig heilsufar og færni aldraðra, sem flytja inn á hjúkrunarheimili, hefur þróast á árunum 1996 til 2006, seg- ir í fréttatilkynningu. Fyrirlesturinn er opinn öllum. Bent er á bílastæði sunnan megin við gömlu Hringbrautina. Japönsk ræðukeppni JAPÖNSK ræðukeppni verður haldin í Odda 101, Háskóla Íslands, í dag, laugardaginn 26. apríl, frá kl. 13. Sendiráð Japans á Íslandi og Hugvísindadeild Háskóla Íslands standa að keppninni, sem er sú fimmta frá upphafi og verður sér- lega vegleg í ár. Alls munu taka þátt 34 kepp- endur og hefur Icelandair, í sam- vinnu við sendiráð Japans, ákveðið að veita sérstök verðlaun. Einnig mun Japan Foundation veita vinn- ingshöfum verðlaun. Málþing í Hjallakirkju REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMI eystra stendur fyrir málþingi í Hjallakirkju í Kópavogi undir yf- irskriftinni „Mannréttindi í heimi trúarinnar“ mánudaginn 28. apríl kl. 16.15. Þar verður leitast við að varpa ljósi á mannréttindahugtakið, bæði eins og það birtist í lögum og eins út frá sjónarhóli guðfræðinnar. „Markmið málþingsins er að skerpa hugsun okkar og vitund gagnvart mannréttindum, hver þau eru og hvernig hægt er að leggja sitt af mörkum þegar vegið er að mann- réttindum fólks,“ segir í frétta- tilkynningu. Fyrirlesarar eru Margrét Steins- dóttir, lögfræðingur Alþjóðahúss, sem mun tala um íslensk lög og mannréttindi. Jóhanna Katrín Eyj- ólfsdóttir, framkvæmdastjóri Ís- landsdeildar Amnesty Int- ernational, erindi hennar fjallar um mannréttindakerfið. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, verkefnastjóri á Bisk- upsstofu, mun fjalla um Guðsmynd- ina og mannréttindi og lokaerindið flytur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, um mannréttinda- hugtakið í sögu guðfræðinnar. Mál- þingið er öllum opið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.