Morgunblaðið - 26.04.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Gleðilegt sumar
20% afsláttur
af stökum jökkum
M
bl
.9
89
14
8
KVARTBUXUR
Margar gerðir
str. 36-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00
og Eddufell 10.00-14.00
Sumaryfirhafnirnar
komnar
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á www.laxdal.is
str. 36-50
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
GLEÐILEGT
SUMAR
Mikið úrval
af hörfatnaði
Str. 36-56
SÝNINGIN Vistvænn lífsstíll hefst
í Perlunni í dag. Um er að ræða
sýningu á vegum umhverfisráðu-
neytis, Úrvinnslusjóðs og Sorpu en
kynntar verða vistvænar vörur og
þjónusta.
Boðið verður upp á reynsluakstur
á mengunarlausa borgarbílnum og
ókeypis ástandsskoðun á reiðhjól-
um. Gestum býðst að jafna kolefn-
islosun sína vegna samgangna auk
þess að kynna sér lífræn matvæli og
hreinlætisvörur sem og umhverfis-
vænar hreingerningarvörur. Þá
verður Góði hirðirinn með úrval
nytjahluta í anda 7. áratugarins auk
þess sem fatabúðin Gyllti kötturinn
verður á staðnum með notuð föt og
nýjar flíkur úr endurnýttum efnum.
Línuhönnun mætir einnig og ráð-
leggur fólki um vistvæna lifnaðar-
hætti.
Lífrænt og
umhverfisvænt
AÐSTAÐA björgunarsveitarinnar
Ársæls og Slysavarnadeildar
kvenna í Reykjavík (SVD) mun tvö-
faldast í kjölfar lóðasamnings sem
undirritaður var fyrir skemmstu.
Um er að ræða úthlutun rúmlega
1.300 fm lóðar við Grandagarð 1 en
samningurinn er gerður milli fyrr-
nefndra félaga og Faxaflóahafna.
„Þetta er alveg svakalega mikill
sigur og það er mikil gleði í gangi
hér. Það hefur skort húsnæði og
það er búið að vera erfitt. Þetta er
eintóm hamingja,“ segir Fríður
Birna Stefánsdóttir, formaður
SVD.
Langþráður draumur
SVD seldi síðasta haust húsnæði
sitt í Sóltúni og flutti í Gróubúð sem
hefur áratugum saman verið fé-
lagsaðstaða björgunarsveitarinnar
Ársæls.
Það hefur því verið þröng á þingi
í Gróubúð í vetur en með úthlutun
lóðarinnar verður unnt að tvöfalda
húsnæðið, auk þess sem til stendur
að bæta við hæð ofan á húsið. Von-
ast er til þess að hægt verði að taka
fyrstu skóflustunguna í sumar og í
kjölfarið taka nýja húsnæðið í notk-
un á næsta ári.
Lengi hefur verið beðið eftir við-
byggingunni en björgunarsveitin
fékk upphaflega samþykki fyrir
lóðinni fyrir mörgum árum en
kaupin gengu aldrei í gegn sökum
fjárskorts. Eftir að SVD seldi hús-
næðið sitt tókst loksins að koma
málinu í höfn.
Lóðasamningur Fríður Birna Stefánsdóttir, formaður SVD kvenna í
Reykjavík, Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, og Ólafur Ósvalds-
son, formaður björgunarsveitarinnar Ársæls.
Aðstaða tvöfölduð
BIRGIR Teitsson og Arnar Þór
Jónsson, arkitektar hjá Arkís, unnu
fyrstu verðlaun í samkeppni um
hönnun gestastofa í Vatnajökuls-
þjóðgarði.
Alls verða gestastofur í Vatnajök-
ulsþjóðgarði sex, en þar af hafa tvær
þegar verið byggðar, í Skaftafelli og
Ásbyrgi.
Fjórar nýjar stofur verða byggðar
á næstu fimm árum: í Skriðuklaustri,
á Kirkjubæjarklaustri, við Mývatn
og á Höfn í Hornafirði.
Samkeppnin beindist einkum að
hönnun stofu í Skriðuklaustri en
einnig var beðið um hugmyndir að
hinum stofunum þremur.
Hver gestastofa verður milli 500
og 600 fermetrar að stærð og áætl-
aður byggingarkostnaður á hverja
þeirra 170 milljónir.
Sannfærandi efnisval
Í umsögn dómnefndar segir að til-
laga þeirra Birgis og Arnars sé út-
hugsuð og öguð, aðkoma og tenging
við útisvæði vel leyst og byggingin
sem þeir leggja til sitji vel í landi. Þá
er innra fyrirkomulag sveigjanlegt
og rýmisnýting góð, útlit stórskorið
en hugmyndir um efnisval sannfær-
andi.
Bárust sex tillögur en veitt voru
verðlaun fyrir þrjár bestu tillögurn-
ar, og námu fyrstu verðlaun 2,5 millj-
ónum.
Ráðgjafar við gerð tillögu Arkís
voru Ari Trausti Guðmundsson, Árni
Bragason, Harpa Birgisdóttir og
Þröstur Geir Árnason.
Verða tillögurnar sem bárust í
samkeppnina til sýnis á Háskóla-
torgi Háskóla Íslands.
Úthugs-
uð og ög-
uð tillaga
Arkís með bestu
hugmyndina að
gestastofu á
Skriðuklaustri
Fréttir
í tölvupósti