Morgunblaðið - 26.04.2008, Side 10
10 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Bíddu bara, Solla mín, hann verður ekki lengi að verða olíulaus þegar við stöndum svona
föst fyrir.
VEÐUR
Það hefur lengi verið erfitt aðátta sig á hvers konar flokkur
Samfylkingin er. Það hefur verið
ljóst, að Samfylkingin er mjög langt
frá því að vera Alþýðuflokkurinn
undir nýju nafni. Samfylkingin er
heldur ekki sósíaldemókratískur
flokkur í hefðbundnum skilningi
þess orðs.
Það er ekki hægt að kalla Sam-fylkinguna jafnaðarmanna-
flokk. Til þess vantar ákveðna þjóð-
félagshópa inn í starf hennar.
En smátt og smátt og eftir því,sem Samfylkingin verður eldri
er að koma í ljós hvers konar flokk-
ur þetta er og um leið og menn hafa
áttað sig á því verður auðveldara
að skilja margt í fari þessa flokks.
Samfylkingin er flokkur hinnarvinstri sinnuðu menntaelítu
þessa lands. Hún er eins konar yf-
irstéttarflokkur.
Samfylkingin er ekki flokkurverkalýðshreyfingarinnar og
hefur engan áhuga á málefnum
vinnandi fólks eða þeirra, sem
minna mega sín (þetta á þó ekki við
um Jóhönnu Sigurðardóttur). Þann
part vantar alveg í Samfylkinguna
til þess að hægt sé að skilgreina
flokkinn sem sósíaldemókratískan
flokk.
Þetta er flokkur mennta-mannaelítunnar, sem var að
mestu í Kvennalistanum og Alþýðu-
bandalaginu. Flokkur sem leitar
frekar stuðnings hjá stórkapítalist-
um en verkalýðshreyfingu.
Að þessu leyti er samhljómur ámilli stefnu Samfylkingarinnar
og þess farvegar, sem núverandi
forseti Íslands hefur markað for-
setaembættinu í sinni tíð.
STAKSTEINAR
Flokkur elítunnar
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!""#
!""!
$%&
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
'
'
'
'
'
'
'
' '
' ' ' '
'
'
*$BC
! "
# $ !
*!
$$B *!
( ) *
)
&
% +%
<2
<! <2
<! <2
( &*"! , "#- .!%"/
CD
$
62
E
8
! % $
B
& #
' ( $
" )
*
' ) (
! * ) + )
# !
01!!
%22"!% 3 %
% , "#
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Heimir L. Fjeldsted | 25. apríl
Starfsfólk Strætó
bs. á betra skilið
Á mínum fyrrverandi
vinnustað til tæplega
fjögurra ára ríkir óöld
enn einu sinni. Fámenn
klíka gerir allt hvað hún
getur til að spilla sam-
bandi starfsmanna við
yfirboðara sína. Afleiðingarnar eru fyrst
og fremst þær að kjarasamningur eru í
hættu eftir að núverandi samningur
rennur sitt skeið í haust. Þessi fá-
menna klíka er að reyna að hlutast til
um stjórnun fyrirtækisins með ...
Meira: hlf.blog.is
Jóna Benediktsdóttir | 25. apríl
Frábær ræða og …
Að vanda fór ég í messu
í gær, á sumardaginn
fyrsta. Veðrið var hreint
frábært og skátarnir
syfjaðir eins og vana-
lega. Það sem stendur
samt upp úr er hann
séra Magnús sem fór alveg á kostum
í prédikuninni. Ég vildi að ég hefði ver-
ið með myndavél til að mynda leik-
ræna tilburði hans við tölvuleik eða
samverustund fjölskyldunnar. Annars
sá ég að fræðslunefnd var að sam-
þykkja aukið stjórnunarhlutfall …
Meira: jonaben.blog.is
Birkir Jón Jónsson | 25. apríl
Grímur stóð sig vel
sem bæjarstjóri
Stórundarleg atburða-
rás hefur átt sér stað í
pólitíkinni í Bolungarvík.
Meint umsvif Soffíu
Vagnsdóttur í atvinnulíf-
inu urðu til þess að A-
listinn gat ekki hugsað
sér áframhaldandi samstarf við K-
lista. Ef slík hugmyndafræði ætti al-
mennt við þyrftu margir kjörnir fulltrú-
ar að hugsa sinn gang og þá vænt-
anlega að segja sig frá
trúnaðarstörfum fyrir sín …
Meira: birkir.blog.is
Arnar Pálsson | 25. apríl
Langa leiðin frá
Neanderthal
Nýliðinn miðvikudags-
morgun fluttu Svante
Pääbo og Johannes
Krause frá Max Planck
stofnunni í Leipzig er-
indi í húsakynnum Ís-
lenskrar erfðagreiningar
um raðgreiningu erfðamengis Nean-
derthalsmannsins. Raðgreining erfða-
mengja felur í sér að ákvarða röð basa
í erfðamenginu til að finna hvaða gen
eru til staðar, innbyrðis afstöðu þeirra
og með samanburði við erfðamengi
annarra lífvera að finna breytingar
sem þau hafa orðið fyrir í tímans rás.
En hvers vegna ættum við að rann-
saka erfðamengi útdauðra frænda
okkar? Svante reyndi að svara þeirri
spurningu, aðallega með skírskotun
til forvitni okkar um eigin uppruna og
líffræði.
Í fyrsta lagi eru menn heillaðir af
sérstöðu sinni sem tegund. Í stuttu
máli er Homo sapiens fiskur sem
gekk á land, hékk í tré og gengur nú
uppréttur á afturlimunum. Bróður-
partur erfðamengis okkar er eins og
annarra prímata og mjög svipaður
fiskum og jafnvel þráðormum. Vissu-
lega hafa nokkrar breytingar orðið,
sumar eru einstakar fyrir prímata sem
hóp og síðan aðrar sem einkenna
manninn. Áætlað er að 30 milljónir
basa séu mismunandi milli erfða-
mengja manns og simpansa og að
95% þessara breytinga skipti engu
máli … séu hlutlausar.
Paabo leitaðist við að skilgreina
eiginleika sem eru manninum ein-
stakir, greind, félagsatferli, næmni
gagnvart ákveðnum sýklum o.s.frv.
Hann lagði áherslu á að einungis væri
stigsmunur á flestum þessara eigin-
leika milli manns og simpansa, ekki
eðlismunur. T.d. hafa simpansar sýnt
mikla námshæfileika, valda 100+
orðaforða, nota verkfæri og eru með
flókið félagsatferli. Oft hælir nútíma-
maðurinn sér af greind og höfuð-
stærð, en náfrændi okkar Homo
neanderthalensis var með stærri höf-
uðkúpu en við (mynd úr bók Bartons
og félaga, http://www.evolution-
textbook.org).
Í öðru lagi getur erfðamengi Nean-
derthalsmannsins svarað spurning-
unni um hvort kynblöndun var milli
þeirra og nútímamannsins (rætt hér
áður). ...
Meira: apalsson.blog.is
BLOG.IS
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
Samskip af kröfu ekkju sjómanns,
sem fórst með skipi félagsins, Dís-
arfelli, í mars 1997. Ekkjan krafðist
skaðabóta á þeirri forsendu að orsök
slyssins mætti aðallega rekja til van-
búnaðar eða bilunar skipsins.
Hæstiréttur dæmdi lögmann kon-
unnar í 100 þúsund króna sekt fyrir
ummæli í garð Samskipa, sem fram
komu í héraðsdómsstefnu.
Ekki vanbúnaður né bilun
Hæstiréttur féllst á þá niðurstöðu
Héraðsdóms Reykjavíkur, að ekki
hefði verið sýnt fram á að slysið
mætti rekja til vanbúnaðar eða bil-
unar skipsins. Þá hefði ekki verið
sýnt fram á, að skipstjóri Dísarfells
hefði sýnt af sér gáleysi með því að
kalla ekki á aðstoð fyrr en raun bar
vitni.
Tólf skipverjar voru um borð í
Dísarfelli þegar það sökk um miðja
vegu milli Hornafjarðar og Færeyja.
Allir lentu mennirnir í sjónum en tíu
var bjargað um borð í þyrlu Land-
helgisgæslunnar. Tveir létust.
Ummælin talin ósæmileg
Samskip kröfust þess að Stein-
grímur Þormóðsson, lögmaður ekkj-
unnar, yrði dæmdur í sekt fyrir um-
mæli, sem hann viðhafði í stefnu, þar
á meðal að skipverjar hafi haft
vantrú á skipinu og grunað útgerð-
ina um græsku, að eiginmaður kon-
unnar hafi verið munstraður á mann-
drápsfleytu sem eigendum útgerðar-
innar hafi verið ljóst að gæti sokkið
hvenær sem var og að skipið hafi
verið vel tryggt og útgerðin og eig-
endur þess hafi hagnast á slysinu.
Hæstiréttur taldi ummælin
ósæmileg og sérstaklega vítaverð
enda væri með þeim gefið í skyn að
Samskip hefðu framið refsiverðan
verknað.
Var lögmaðurinn dæmdur til að
greiða 100 þúsund króna sekt í rík-
issjóð.
Málið dæmdu Árni Kolbeinsson,
Garðar Gíslason og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir. Lögmaður Samskipa var
Lilja Jónasdóttir hrl.
Hæstiréttur dæmir
lögmann í sekt
Morgunblaðið/Kristinn