Morgunblaðið - 26.04.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
AFGANGUR af rekstri Kópavogsbæjar á síð-
asta ári var betri en reiknað var með í fjárhags-
áætlun þrátt fyrir mestu umsvif í framkvæmd-
um í bænum í 50 ár. Afgangur af rekstri
A-hluta ársreiknings er 3,1 milljarður kr. en
2,8 milljarðar kr. samkvæmt samanteknum
ársreikningi A- og B-hluta.
Rekstrarniðurstaða samantekins ársreikn-
ings A- og B-hluta varð 754 milljónum kr. betri
en samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun.
Hagnaður af sölu byggingarréttar varð 560
milljónum kr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
Sömuleiðis urðu skatttekjur 521 milljónum kr.
hærri en samkvæmt áætlun. Hins vegar varð
hækkun lífeyrisskuldbindinga 162 milljónum
kr. meiri en áætlun gerði ráð fyrir, afskriftir
voru 59 millj. kr. umfram áætlun og fjármagns-
liðir fóru 90 milljónir kr. fram úr áætlun. Þá
urðu ýmsir aðrir liðir 16 milljónum kr. óhag-
stæðari en samkvæmt áætlun.
Heildarfjárfestingar A- og B-hluta (brúttó)
urðu 10,2 milljarðar kr. á árinu eða rúmlega 1,4
milljarði kr. meiri en áætlað hafði verið. Þar
munar mestu um að landakaup og fram-
kvæmdir við gatnagerð og skóla- og íþrótta-
mannvirki urðu meiri en gert var ráð fyrir.
Heildarskuldir samantekins ársreiknings A-
og B-hluta að teknu tilliti til lífeyrisskuldbind-
inga hækkuðu milli ára úr 14.563 milljónum kr.
í árslok 2006 í 18.926 milljónum kr. í árslok
2007 eða um 4.363 milljónum kr. Hækkunin
skýrist einkum af því að framlag rekstrar og
tekjur af lóðaúthlutunum náðu ekki að standa
undir öllum fjárfestingum ársins, en þær hafa
aldrei verið meiri í sögu bæjarins. Þannig eru
fjármunir bundnir vegna tafa af völdum skipu-
lagsyfirvalda sem koma bæjarfélaginu til
tekna á árinu 2008.
Samkvæmt fjárhagsáætlunum bæjarins fyr-
ir árin 2008–2010 er gert ráð fyrir lækkun
heildarskulda á næstu árum og verulegri
hækkun eigin fjár. Þá er búist við að fjölgun
íbúa muni skila bænum tekjuaukningu umfram
verðlagsbreytingar.
3,1 milljarðs af-
gangur af rekstri
Morgunblaðið/Golli
Kópavogsbúum fjölgaði um 64% 1994-2007.
BROT 73 ökumanna voru mynduð í
Suðurhólum í Breiðholti á þriðju-
dag. Fylgst var með ökutækjum
sem var ekið Suðurhóla í vesturátt,
að Álftahólum. Á einni klukkustund,
eftir hádegi, fóru 303 ökutæki þessa
akstursleið og því ók tæplega fjórð-
ungur ökumanna, 24%, of hratt eða
yfir afskiptahraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var rúmlega 43 km/
klst en þarna er 30 km hámarks-
hraði. Sjö óku á 50 km hraða eða
meira en sá sem hraðast ók mældist
á 53.
Brot 47 ökumanna voru mynduð í
Norðurfelli í Breiðholti á þriðjudag.
Fylgst var með ökutækjum sem var
ekið Norðurfell í vesturátt, að
Gyðufelli. Á einni klukkustund, eftir
hádegi, fóru 117 ökutæki þessa
akstursleið og því óku margir öku-
menn, 40%, of hratt eða yfir af-
skiptahraða. Meðalhraði hinna brot-
legu var tæplega 46 km/klst en
þarna er 30 km hámarkshraði. Níu
óku á 50 km hraða eða meira en sá
sem hraðast ók mældist á 61.
Eftirlit lögreglunnar í Breiðholti
er hluti af sérstöku umferðar- og
hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í
umdæminu en unnið er eftir ábend-
ingum frá starfsmönnum svæðis-
stöðva lögreglunnar.
Margir óku
of hratt í
Breiðholti
EMBÆTTI sýslumannsins í Kefla-
vík hefur verið auglýst laust til um-
sóknar. Guðgeir Eyjólfsson, sem
gegnt hefur embættinu, var nýlega
skipaður sýslumaður í Kópavogi.
Dómsmálaráðherra skipar í emb-
ættið frá og með 1. júní 2008 til fimm
ára í senn.
Umsóknir þurfa að berast dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu eigi síðar
en hinn 13. maí næstkomandi.
Embætti sýslu-
manns auglýst
♦♦♦
MATTI Vanhan-
en, forsætisráð-
herra Finnlands,
kemur í opinbera
heimsókn til Ís-
lands á mánudag.
Mun Vanhanen
eiga fund með
Geir H. Haarde,
forsætisráðherra
auk fulltrúa ís-
lenskra fyrirtækja sem eru með
starfsemi í Finnlandi.
Meðal annars munu ráðherrarnir
ræða samskipti ríkjanna tveggja og
efnahagsmál auk þess sem málefni
Evrópusambandsins verða til um-
ræðu og Rússlands. Heimsókn
Vanhanen lýkur á þriðjudagskvöld.
Í opinbera
heimsókn
til Íslands
♦♦♦
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Fagnaðu sumrinu
með Siemens
A
T
A
R
N
A
í dag frá 10 til 16
Sölusýning
Raftæki frá Siemens í miklu úrvali
R
N
R
N
R
N
R
NN
R
N
RRRRRRRRRRR
AAAAAAAA
T
AA
TTTT
A
T
A
T
A
T
A
TTT
AAAAAAAAA
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Í dag, laugardag, efnum við til sölu-
sýningar í verslun okkar að Nóatúni 4.
Þar gefst tækifæri til að skoða allt hið
nýjasta sem við bjóðum, m.a. þráðlausa
síma, eldunartæki, kæli- og frystitæki,
uppþvottavélar, þvottavélar, þurrkara,
ryksugur, smátæki, ýmsar gerðir lampa,
rofa- og tenglaefni og dyrasímabúnað
frá Siedle. Fjöldi tilboða í tilefni dagsins.
Ríflegur staðgreiðsluafsláttur.
Skoðið öll Tækifæristilboðin á
www.sminor.is.
Matti Vanhanen