Morgunblaðið - 26.04.2008, Page 16
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„ÉG HELD að þorri fólks í Evrópu viti ekki mikið
um hvað er að gerast í menningarlífinu á Íslandi,“
segir Juergen Boos, framkvæmdastjóri bókastefn-
unnar í Frankfurt, þar sem íslenskar bókmenntir
verða í heiðurssæti árið 2011. „Allir þekkja Björk
og margir kannast við Halldór Laxness en ekki
mikið meira.“
Juergen var staddur hér á landi í vikunni og
undirritaði ásamt menntamálaráðherra formlegt
samkomulag um þátttöku Íslands í bókamessunni
sem er sú stærsta sem haldin er í heiminum í dag.
Til hvers er ætlast?
Blaðamaður settist niður með Juergen og ræddi
um þær væntingar sem hann gerði til Íslands. „Við
viljum að þið takið með ykkur til Frankfurtar allt
það sem er að gerast núna á Íslandi, hvort heldur í
tónlist, leiklist eða á öðrum listasviðum en viljum
fyrst og fremst að þið færið okkur allt sem er að
gerast í bókmenntunum.“
Hann leggur á það sérstaka áherslu að nálgast
núið í íslenskri menningu: „Þær þjóðir sem við
bjóðum til samstarfs við okkur eiga það allar sam-
eiginlegt að vera mjög stoltar af menningu sinni
og sögu. Það sem við viljum hins vegar mest sjá er
það sem er að gerast núna og jafnvel líka það sem
er að gerast undir yfirborðinu, þar sem við notum
bókmenntirnar sem stökkpall.“
Gæði umfram magn
En hvað þýðir það í rithöfundum, þýðendum og
öðrum listamönnum talið? Tyrkir eru heiðursþjóð
bókastefnunnar í ár og von á um 200 tyrkneskum
rithöfundum og þýðendum á hátíðina af því tilefni.
Nú þegar eru viðburðir tengdir tyrkneskum bók-
menntum og menningu hafnir þó að kaupstefnan
hefjist ekki fyrr en um miðjan október.
Juergen, sem eflaust gerir sér grein fyrir að
fleiri heimsækja kaupstefnuna en búa á öllu Ís-
landi, reynir að hughreysta blaðamann og segir að
það sé ekki magn skálda og listamanna sem skipti
mestu máli: „Það skiptir kannski meira máli, upp á
árangur að gera, með hversu markvissum hætti
Ísland kynnir sig. Með því að beita kröftunum rétt
má hafa mikil áhrif.“
Hann segir líka að vinnan muni langt í frá hvíla
öll á Íslendingum: „Þýskar og evrópskar lista-
stofnanir leggja sig fram við að nýta þá möguleika
sem bókamessan gefur og halda sýningar í
tengslum og í samvinnu við heiðursþjóð hvers
árs,“ segir hann. „Mikil vinna fellur því í okkar
hlut. Hitt er samt ljóst að mikið verk er fram-
undan hjá Íslendingum.“
Getum náð miklum árangri
Með því að halda rétt á spilunum á bókamess-
unni í Frankfurt segir Juergen að ná megi fram
breytingum til frambúðar á stöðu Íslands á al-
þjóðabókamarkaði: „Áhrifin eiga að endast lengur
en bara þá fimm daga sem sýningin stendur yfir.
Þau 2-3 ár sem hátíðin er í undirbúningi skapast
mikil tengsl milli íslenskra útgefenda og þýskra og
eins við útgefendur frá öðrum löndum. Svo þegar
það gerist að íslenskir rithöfundar og útgefendur
hafa eitthvað sem þá langar að selja til útlanda, þá
vita þeir upp á hár hvern á að tala við,“ segir Juer-
gen og bætir við að hann sjái glögg merki um vöxt
og útrás í bókmenntum þeirra þjóða sem settar
eru í heiðurssess í Frankfurt.
Juergen Boos veit hvað hann vill að Ísland færi bókamessunni í Frankfurt 2011
„Allt sem er að gerast núna“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vongóður Juergen Boos segir þátttöku Íslands í bókamessunni geta haft áhrif til langframa.
Morgunblaðið/Frikki
Samstarf Juergen og Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir undirrituðu í gær samkomulag um
þátttöku Íslands í bókamessunni 2011.
Mikið starf framundan,
og til mikils að vinna
Í HNOTSKURN
»Bókamessan í Frankfurt er sú stærstasinnar tegundar og talin mikilvægasta
kaupstefna bókaiðnaðarins.
»Árlega koma nærri 300.000 gestir til bóka-messunnar og um 7.000 sýnendur frá yfir
100 löndum.
» Ísland er heiðursgestur hátíðarinnar 2011og felast í því miklir möguleikar fyrir út-
gáfu á íslenskum verkum um allan heim.
» Íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til aðveita a.m.k. 300 milljónum króna til að
undirbúa þátttöku landsins í bókamessunni
» Fjármunirnir munu að stærstum hlutafara í að styrkja þýðingar á íslenskum
verkum yfir á þýsku og önnur tungumál sem
og kynningarstörf.
16 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í MESSU í Langholtskirkju á
morgun verður flutt verkið
„Um endalok tímans“ eftir
Olivier Messiaen. Messiaen
samdi þennan kvartett í fanga-
búðum Þjóðverja í Görlitz í
seinni heimsstyrjöldinni.
Flytjendur eru nemendur
við Listaháskólann í Reykja-
vík, þau Hulda Jónsdóttir
fiðluleikari, Arngunnur Árna-
dóttir klarinettuleikari, Karl
Jóhann Bjarnason sellóleikari og Hákon Bjarna-
son píanóleikari. Við æfingar naut kvartettinn
leiðsagnar Nínu Margrétar Grímsdóttur.
Messan hefst klukkan ellefu.
Tónlist
Messiaen í
Langholtskirkju
Olivier
Messiaen
NÝ-UNG og UngBlind verða
með ýmsar uppákomur í mið-
borg Reykjavíkur í dag.
Ný-ung er ungliðahreyfing
Sjálfsbjargar. Þau bjóðast til
að af-ófatla fólk í dag og einn
úr hópnum, Höskuldur Þór
Höskuldsson, verður með
ljósmyndasýningu í Hinu
Húsinu.
UngBlind er hópur blindra
og sjónskertra ungmenna. Í dag standa þau fyr-
ir lifandi bókasafni en þar gefst almenningi
kostur á því að fletta upp í lifandi bókum um
ýmsa minnihlutahópa.
Opið verður í Hinu Húsinu á milli kl. 13 og 16.
Listir
Lifandi bókasafn
og ljósmyndir
Hitt húsið
SÓLHEIMASAFN Borg-
arbókasafns býður til bók-
menntagöngu í Vogahverfinu í
dag. Í göngunni verður hverfið
kynnt sem heimaslóðir skálda,
en fjölmörg þeirra hafa búið og
búa enn í hverfinu. Bankað
verður upp á hjá þremur
þeirra, þeim Árna Bergmann,
Andra Snæ Magnasyni og Olgu
Guðrúnu Árnadóttur.
Safnast verður saman í Sól-
heimasafni að Sólheimum 27 klukkan tvö. Ekkert
þátttökugjald er í gönguna og eru allir velkomnir.
Áætlað er að dagskráin taki um tvær klukku-
stundir.
Bókmenntir
Bókmenntaslóðir
í Vogahverfi
Andri Snær
Magnason
EFTIRSÓTTUSTU verðlaun sem
veitt eru fyrir pólitísk skrif á Bret-
landi, Orwell-verðlaunin, voru í gær
afhent Raja Shehadeh fyrir bókina
Gönguferðir í Palestínu. Sam-
keppnin var harðari en nokkurn
tíma fyrr og þótti ástæða til þess að
tilnefna talsvert fleiri bækur en áður
hefur verið gert.
Bók Shehadehs fjallar um hvernig
heimahagar hans á Vesturbakk-
anum hafa smátt og smátt lent undir
stjórn Ísraela á síðustu 40 árum og
hvernig landslagið hefur verið eyði-
lagt á sama tíma og sjálfsmynd pal-
estínsku þjóðarinnar. Dómnefnd lof-
aði sérstaklega ljóðrænar
náttúrulýsingar í bókinni sem tvinn-
ast saman við pólitíska sannfæringu.
Raja Shehadeh býr í Ramallah og
starfar sem lögfræðingur. Hann er
einn af stofnendum mannréttinda-
samtakanna Al-Haq og Gönguferðir
í Palestínu er hans þriðja bók.
Orwell-verðlaun í flokki blaða-
manna hlutu þeir Johan Hari, pistla-
höfundur fyrir The Independent, og
sjónvarpsmaðurinn Clive James.
Verðlaunaður Raja Shehadeh
skrifaði um heimahaga sína.
Shehadeh
fékk verð-
laun Orwells
Gönguferðir í Palest-
ínu sköruðu fram úr
MÁLVERK af Tony Blair eftir Phil
Hale sem hanga mun uppi í breska
þinginu var afhjúpað í vikunni.
Hefð er fyrir því að láta gera port-
rett af forsætisráðherrum, en
myndin af Blair þykir víkja talsvert
frá venjunni, því þar sést hann
mjög greinilega þreyttur og í þung-
um þönkum. Myndin var gerð
stuttu áður en Blair steig úr ráð-
herrastóli í fyrra.
Hale segir að Blair hafi ekki
skipt sér af gerð málverksins. „Ég
var heppinn að því leyti að hann
hafði um margt annað að hugsa á
þessum tíma en að líta sem best út á
myndinni,“ sagði hann í samtali við
breska blaðið Guardian.
Bæði Hugo Swire samflokks-
maður Blairs og Cherie Blair eig-
inkona hans segja myndina lýsa
hugarástandi forsætisráðherrans
fyrrverandi vel síðustu vikur hans
embætti, en segja að hann sé allt
annar og kátari maður nú þegar
hann hafi látið af störfum.
Blair í þung-
um þönkum
Blair Tíu ár í embætti að baki.